Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FÍMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
áster...
Vu
.. .okkar eigið lag
TM Reg. U.S. Pat. Otl.—all rights reserved
e 1986 Los Angeles Times Syndicate
Ég bjargaði fuglinum í
fyrra, í nokkur skipti, úr
olíumengun hér við fjör-
una!
Með
morgunkaf&nu
Þú munt kunna að . meta
mömmu og pabba. — Þau
sofa bæði!
HÖGNI HREKKVISI
„Hafa skal það er
sannara reynist“
Sigurkarl Stefánsson
skrifar:
„Mig langar til að gera
athugasemd við bréf Einars
Einarssonar, Hveragerði, þar
sem hann vitnar í eftirmæli
Páls Ólafssonar um uppá-
halds hest sinn, Bleik. Þar er
í síðustu línu fímmtu vísu
Vinnings-
númerin
eru veitt í
síma 29107
Bragi Jónsson í happdrættis-
nefnd Samtaka um byggingu
tónlistarhúss hafði samband við
Velvakanda og vildi koma eftir-
farandi á framfæri:
„Fyrir skömmu kvartaði kona
yfir því í dálkum Velvakanda að
hún gæti ekki fengið upplýst
vinningsnúmerin í happdrætti
Samtaka um byggingu tónlistar-
húss. Því er til að svara að
símsvarinn okkar var í sambandi
til miðs febrúar á þessu ári en
síðan hafa upplýsingar verið
veittar í skráðum síma samtak-
anna, 29107. Þetta símanúmer
er að fínna í símaskránni þannig
að vandalaust ætti að vera fyrir
fólk að fá upplýsingar um vinn-
ingsnúmerin."
sagt „þar til ég fínn marinn“
en á að standa „þar til fínn
ég rnarinn".
Einnig var ég að hlusta á
þátt sr. Bolla Gústavssonar í
Laufási í útvarpinu í gær-
kvöldi og er ekki sáttur við
hvernig farið var með vísuna
sem byrjaði þar á vísuorðun-
um: „Ber af öllum snótum
snót..." Hana lærði ég fyrir
nærri 80 árum og á þennan
hátt:
Aldrei verður Ljótunn ljót,
ljótt þótt nafnið beri.
Ber af öllum snótum snót,
snótin blessuð veri.
I seinni tíð hef ég hins veg-
ar orðið þess var að menn eru
famir að snúa vísunni við og
hafa seinni partinn á undan
og fyrri partinn á eftir, líkt
og gert var í þætti sr. Bolla.
Mér sýnist hins vegar augljóst
að vísan sé rétt eins og ég
lærði hana forðum, því að sé
seinni parturinn hafður á und-
an, verður ekki með neinu
móti séð við hvaða snót er
átt fyrr en seint og um síðir.
Eins er vísan betur ort með
því móti sem ég lærði hana,
því að þá enda stuðlalínur
vísunnar í báðum tilfellum á
sama orði og höfuðstafalín-
umar bytja á.“
Vísa vikunnar
Manna sættir mildar stríð
mismunandi póla.
Þannig eru brosin blíð
og bamsleg mildi Óla.
Hákur
Víkverji skrifar
Samfélag manna verður stöðugt
flóknara. Um leið eykst þörfín
fyrir ýmiss konar nýja þjónustu til
mæta kröfum tímans og endur-
bætur á þeirri sem fyrir er.
Agætt dæmi um slíkt er trygg-
ingastarfsemi. Hérlendis starfa
mörg tryggingafélög — amk. ef
miðað er við höfðatölu. Milli þeirra
ríkir nú orðið þó nokkur samkeppni
en engu að síður bjóða þau flest
upp á mjög áþekka trygginga-
flokka. Einhvem veginn hefur
maður það á tilfínningunni að í því
efni séu hérlend tryggingafélög
talsvert á eftir því sem gerist víða
á Vesturlöndum. Kannski stafar
það af því að íslendingar eru ekk-
ert sérlega nýjungagjamir á þessu
sviði og ekki tilbúnir að borga það
sem til þarf. Hér tryggja menn
bílinn sinn, hús og innbú og þeir
framsýnustu fá sér e.t.v. húseig-
endatryggingu. Einhveijir kaupa
sér jafnvel ferðatryggingu — en
mikið meira er það nú varla hjá
hinum almenna borgara. Fólk er
líka almennt tortryggið gagnvart
tryggingastarfseminni því að þjóð-
sagan um smáletursgreinamar á
tryggingaskírteininu, sem trygg-
ingafélögin geti alltaf skotið sér á
bak við, hefur reynst vera býsna
lífseig.
Astæðan fyrir því að hér er vikið
að tryggingastarfsemi er að
Víkverji rakst nýlega á grein í
bandarísku blaði, þar sem verið var
að segja frá ýmsum furðulegum og
skemmtilegum uppákomum í trygg-
ingastarfseminni þar vestra. Það
sem upp úr stendur er hversu mik-
il tryggingavemd hinum almenna
borgara þar virðist standa til boða.
Hér eru nokkur dæmi:
í vor fékk tryggingafélag eitt í
Bandaríkjunum t.d. sérkennilega
kröfu á sig. Maður sem valdur hafði
verið að árekstri á hraðbraut í
Michigan krafðist þess að trygg-
ingafélagið bætti allt tjónið í
árekstrinum, þar sem sökin hefði
ekki verið hans heldur músar er
skreið eftir fæti hans. Við athugun
kom í Ijós að líklega hafði mús
sloppið inn í bílinn meðan hann stóð
á bílastæði skömmu áður og maður-
inn síðan misst stjóm á bílnum
þegar hann fann eitthvað hreyfast
í annarri buxnaskálminni. Trygg-
ingafélagið greiddi nærri 150
þúsund krónur í bætur vegna
árekstrarins.
Annað félag bætti nýlega dæld
á bílþaki sem varð þannig til að
maður var að grilla steik út á svöl-
um hjá sér. Skyndilega skrapp ein
sneiðin úr höndum hans, yfir svala-
handriðið og maðurinn mátti horfa
á eftir steikinni sinni falla niður 17
hæðir og beint ofan á þak bíls fyr-
ir neðan.
Á öðrum stað í Bandaríkjunum
varð skötuhjúum illilega sundur-
orða. í bræði sinni henti stúlkan
trúlofunarhring sínum í unnustans,
sem tók hann upp með tilburðum
og gleypti. Tryggingafélagið
greiddi foreldrum stúlkunnar nærri
10 þúsund krónur fyrir hringmiss-
inn.
Enn annað tryggingafélag
greiddi manni í New Jersey nærri
40 þúsund krónur í bætur eftir að
hann hafði tekið aðvörun í útvarpi
of bókstaflega og mölvað rúður í
öllum gluggum heima hjá sér. í
útvarpstilkynningunni hafði fólki
verið ráðlagt að „rífa upp“ alla
glugga hjá sér til að draga úr hættu
á fokskemmdum af völdum felli-
bylsins Gloríu. Maðurinn réðst því
með hamri á alla glugga á heimili
sínu og mölvaði allar rúðumar.
Flest hjákátleg slys af þessu tagi
verða af hreinu hugsunarleysi.
Dæmi um það er maðurinn sem
fékk sex ára syni sínum ör og boga
og sagði honurr. að fara út í garð
að leika sér. Nágranninn í næsta
húsi, sem flatmagaði makindalega
í garðstólnum sínum, varð of freist-
andi skotmark fyrir skyttuna ungu.
„Örin hæfði bakhlutann á nágrann-
anum, olli skrámu og batt enda á
góða og áralanga vináttu," er haft
eftir starfsmanni tryggingafélags-
ins sem þurfti að leggja út sem
svarar um 4.000 krónum í bætur.
Þeim þætti sennilega ekki ónýtt,
einhveijum hér uppi á Fróni, ef
tryggingafélögin bættu vinslit, eins
og ástandið er á þessum síðustu
og verstu tímum.