Morgunblaðið - 24.07.1986, Qupperneq 59
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
59
<
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
691100 KL. 11-12
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
i;^vhi uJn/’Ull
Þessir hringdu . .
Gjörvulegir
unglingar
J.G.B. hringdi:
„Það er oft verið að hnýta í
unglingana í Vinnuskóla borgar-
innar, þeir sagðir ónýtir til allrar
vinnu og húðlatir í þokkabót. Að
minni hyggju er um mikinn mis-
skilning að ræða. Að undanfömu
hafa staðið yfír framkvæmdir á
lóð Olduselsskóla og hafa ungling-
ar úr Vinnuskóla borgarinnar
verið þar við vinnu. Ekki er annað
að sjá en þar fari atgervismenn
bæði til líkama og sálar. Krakk-
amir eru þrælduglegir við vinnu
sína og láta sér verk aldregi úr
hendi falla, enda þótt leiðbeinandi
sé ekki ávallt til staðar. Þeir eru
skólanum og sjálfum sér til mikils
sóma.“
Þakkir
til Agústs
H.F.T. hringdi:
„Mig langar til að koma þakk-
læti mínu á framfæri til Ágústs
Ásgeirssonar blaðamanns á Morg-
unblaðinu fyrir fagleg vinnubrögð
í skrifum sínum um ftjálsar fþrótt-
ir. Þær vilja oft gleymast hjá
íþróttafréttamönnum _ annarra
blaða. Öll umfjöllun Ágústs er til
fyrirmyndar."
varpsins af fjársvelti því sem
Kvennaathvarfið býr nú við. Mér
flaug sú spum í hug hvort ekki
væri mun einfaldara fyrir þær
konur og böm, er þar þurfa að
gista, að hringja á lögregluna og
láta hana hirða karlana, stinga
þeim inn og láta þá sofa úr sér
vímuna. Eg geri mér grein fyrir
því að konur fara ekki að ástæðu-
íausu í Kvennaathvarfíð, en er
ekki hægt að láta lögregluna sjá
um þetta?"
Skokkgalli
tapaðist
Regína Jóhannsdóttir
hringdi:
„Mánudaginn 14. júní tapaði
11 ára stúlka plastpoka með gul-
um og hvítum skokkgalla og
eymalokkum á Nýbýlavegi í
Kópavogi. Finnandi vinsamlegast
hringi í síma 44153.
„Á biblíuslóðum"
Sigurbjörn Á. Einarsson,
Eiríksgötu 35, hringdi:
„Ég var að lesa harla athyglis-
verða bók, hún heitir „Á Biblíu-
slóðum“ og kom út um jólin í
fyrra. Margt býsna athyglisvert
kemur fram í þeirri bók, sem
gengur þvert á viðteknar skoðanir
manna um kristindóminn og frá-
sögur Biblíunnar. Þrátt fyrir þetta
hef ég lítið sem ekkert heyrt
minnst á þessa merku bók. Hvers
vegna hafa fræðimenn í guðfræði
ekkert sagt um þetta framlag til
umræðunnar? Eru þeir sammála
öllu sem þar er sett fram? Mér
þætti vænt um að heyra þeirra
álit.
Er þörf á
Kvenna-
athvarfi?
Svanborg Þórmundsdóttir,
Mávahlíð 3, hringdi:
„Ég var að horfa á fréttir sjón-
Myndavél
tapaðist
Hilmar hringdi:
„Að kvöldi 20. júní sl. gleymd-
ist Canon-myndavél innan við
torfbæinn Steinahlíð sem gerður
var þegar sjónvarpskvikmyndin
„Paradísarheimt" var tekin. Dag-
inn eftir fór fólk frá bænum
Hvalnesi að ná í myndavélina en
þá var hún horfín. Finnandi er
vinsamlegast beðinn að hringja í
síma 620208.“
Er verð á
aðgöngumiðum
kvikmynda-
húsanna
óeðlilega hátt?
Ein af Nesinu hringdi:
„Mig Iangar til þess að varpa
þeirri spumingu til forráðamanna
kvikmyndahúsanna hér í borg
hver sé ástæðan fyrir því að að-
göngumiðar að húsunum kosta
það sama og leiga á einni mynd-
bandsspólu. Það geta margir horft
á sjónvarp eða myndaband í einu
og því liggur í hlutarins eðli að
ódýrara ætti að vera að fara í bíó
en leigja sér spólu. Samt er raun-
in ekki sú. Hver er ástæðan fyrir
þessu háa verði á aðgöngumiðum
hér? Er það sambærilegt við verð
á sömu þjónustu í nágrannalönd-
um okkar?"
Veski
tapaðist
Laufey hringdi:
„Veski tapaðist föstudags-
kvöldið 11. júlí, sennilega einhvers
staðar á milli skemmtistaðanna
Holljrwood og Sigtúns. Veskið er
vínrautt að lit. í því voru skilriki
en engir peningar. Finnandi er
vinsamlegast beðinn um að
hringja í sfma 72502.“
Tjaldpoki
tapaðist
R.O. hringdi:
„Síðastliðinn föstudag tapaðist
úr Jóruseli 8 blár poki utan af
tjaldi með hvítu plasti á botninum.
Finnandi er vinsamlegast beðinn
að hringja f síma 75172.
hatUanÍAkó
I E RffADE | LDW
1 - 2 - 3 - 4 - 5
Kjúklingur er hollur, góður og síðast en ekki síst
ódýr matur.
Við viljum að allir borði kjúkling að minnsta kosti
einu sinni í viku og velji sér kjúklingadag.
Hér birtist spennandi uppskrift úr samkeppni
(SFUGLS, veldu þér kjúklingadag og reyndu
uppskriftina.
KJÚKLINGA- OG HRÍSGRJÓNASALAT
INGIBJÖRG ST. HARALDSDÓTTIR
Efni:
1 stk. stór kjúklingur, steiktur
3-4 bollar af soönum hrísgrjónum
1 stk. stór, rauð paprika, skorin í strimla
1/1 dós ananas, bitaður niður
1/2 dósmaís
1 bolli frystar grænar baunir, soönar
3-4 matskeiðar matarolía
aromat eftir vild.
Matreiðsla:
Paprikustrimlarnir settir út í heit hrísgrjónin (paprikan
má ekki sjóða). Kjúklingabitum, ananas, maís og soðnum
baunum hrært léttilega saman við hrísgrjónin ásamt
matarolíu og aromat.
Einnig má breyta til og sjóða hrísgrjónin með karrýi.
Framreiðsla:
Borið fram heitt eða kalt.
Þetta er heppilegur ,,party”-réttur og er einnig afar
vinsæll í helgarferðina.
Uppskrift af sósu, sem einnig er hægt að nota með
þessum rétti:
Efni:
1 hluti mayonaise
1 hluti súrmjólk
1 hluti tómatsósa
hvítlauksduft
sykur eftir vild
Efninu pískað saman.
í staðinn fyrirtómatsósu má nota 1-hluta sinnep og dill
eftir vild.
ísfugl
Simi: 666103
GOTT-HOUT
0G ÓDÝRT
r
rr