Morgunblaðið - 24.07.1986, Page 61

Morgunblaðið - 24.07.1986, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 flERKST Adalsteinsson, spelande trána rél Saab. • Þorbergur í þann mund að skora eitt fjölmargra marka sinna fyr- ir fólag sitt, Saab, í sœnsku 1. deildinni f fyrravetur. síðasta vetur og þar gekk allt upp hjá honum. Liðið vann sig upp í Allsvenskan sem er úrvalsdeild þeirra og í sænskum blöðum þakka menn Þorbergi fyrst og fremst þennan árangur liðsins. Þorbergur verður áfram hjá félaginu og mun freista þess að halda liði sínu í úrvalsdeildinni en hann býst við að það verði geysilega erfitt. VERÐUR ERFITT í VETUR HJÁ SAAB „Já, ég er viss um að þetta verð- ur erfiður vetur. Við ætluðum að fá tvo til þrjá nýja leikmenn en það gekk ekki upp, ekki að sinni að minnsta kosti. Einn þeirra sem við ræddum við var Páll Ólafsson en hann hafði meiri áhuga á að fara til Þýskalands og verður því ekki með okkur. Liðið verður því svipað og í fyrra nema hvað ég losaði mig við þrjá leikmenn sem ekki féllu nógu vel inn í liðsheildina og aö auki rak ég liðsstjórann og fékk mér nýjan.. Þessum breytingum var mjög vel tekið af /orráðamönnum félagsins enda eru þeir reiðubúnir að gera allt fyrir okkur. Saab var einu sinni „stóra“ liðið í Svíþjóð en gleymdi að yngja upp hjá sér og féll því niður í 1. deildina og hefur verið þar í átta ár. Nú er lið- ið komiö upp í úrvalsdeildina og það eru allir ánægðir með það. Ég hafði hugsað mér að leika minna með næsta vetur en ég hef gert en þar sem við fengum enga nýja leikmenn verð ég með á fullu. Ég fer í háskóla þarna úti í vetur og verð þar í markaðsfræðum og það er nú meginástæðan fyrir því að ég gef ekki kost á mér í lands- liðið." — Er mikill munur á að vera handknattleiksmaður í Sviþjóð og á íslandi? „Já, það er talsvert mikill mun- ur. í Svíþjóð er allt mun betur skipulagt. Við hjá Saab skipuleggj- um til dæmis allt keppnistímabilið fljótlega eftir að keppnistímabilinu lýkur, þá er gengið frá æfingaleikj- um fyrir keppnistímabilið og leikj- um í jólafríinu auk þess sem leikjaniðurröðunin liggur fyrir mjög snemma. Saab er íþróttaklúbbur innan Saab-Scania-fyrirtækisins sem framleiðir herþotur. Margir af strákunum vinna létta vinnu þar og geta nokkurnveginn haft það eins og þá listir og ef menn vilja frekar vera í skóla þá geta þeir þaö líka. Svíar eru ekki eins viljugir að æfa og við íslendingar en það kem- ur á móti að mér finnst þeir hafa meiri handbolta í sér. Þeir hafa betur menntaða þjálfara og ungu strákarnir fá þennan handbolta í sig snemma. Annað sem er ágætt þarna líka er að maður getur komist á samn- ing hjá fyrirtækjum og við hjá Saab erum á samningi hjá fyrirtæki sem framleiðir Bagheera-íþróttafatnað og síðan er ég á sérsamningi hjá fyrirtækinu og þar fær maður ágætan pening lika.“ — Kom ekkert til tals að þú tækir að þér þjálfun hjá öðrum félögum eftir þetta góða gengi sfðasta vetur? „Eiginlega ekki en ég fékk sex tilboð. Eitt sem hljóöaði upp á ótrúlegar upphæðir en það var frá Kuwait en ég hafði ekki áhuga á að fara þangað. Ég ætla að klára námið fyrst í Svíþjóð áður en ég hugsa mér til hreyfings. Ég er sem sagt ekki á leiðinni heim næstu 2-3 árin en eftir það er aldrei að vita hvað maður gerir. Kannski skreppur maður til Kuwait að þjálfa, það eru rosalegir peningar í boði þar," sagði Þorbergur Aðal- steinsson brosandi að lokum. Teng Yi og Seng unnu tvfliðaleik karía á opna bandaríska meistaramót- inu. Áður hafði Teng tryggt sér sigur f einliðaleik. Sannfærður um að ég get orðið heimsmeistari - segirTeng Yi, semernú talinn besti borðtennis- leikari heims „MIKILVÆGASTA atríðið fyrir þá sem spila borðtennis er að hafa heilastarfsemina í fullkomnu lagi og geta einbeitt sér að kúlunni og vera nánast blindir fyrir öllu öðru á meðan keppni stendur,u sagði Teng Yi, kínverskur lands- liðsmaður f borðtennis, sem nú er talinn besti borðtennisleikarí heims. Hann hefur þó ekki fengið tækifæri til að sanna getu sfna, þvf heimsmeistaramót eru haldin á tveggja ára fresti. Næsta keppni er á næsta árí, en Teng hefur í ár lagt alla bestu keppend- ur heims að velli á mótum víðsvegar um heim. Hann vann einliðaleik og tvfliðaleik karla á bandarfska meistaramótinu. „Ég hef spilað borðtennis í rúm tíu ár, en ég er 25 ára gamall. Það er mikill áhugi á borðtennis í heimalandi mínu, hundruðir þús- unda stunda þetta dag hvern, í skólum eða í æfingahöllum. Af þessum sökum eigum við besta keppnislið heims ár eftir ár," sagði Teng í samtali við blaðamann Morgunblaðsins. Reyndar þurfti á túlk að halda, þar sem Teng talar enga ensku. „Þó við keppum víða höfum við ekki tíma til að læra erlend tungumál, ég geri það seinna þegar ég þarf ekki að hugsa um hvítu kúluna," sagði Teng bros- andi. Það er nánast ótrúlegt hvað hugurinn þarf að vera mikið við þetta. Ég æfi minnst fjóra tíma á dag, bæði með því að spila og gera líkamsæfingar. Fyrir stórmót æfi ég meira, þetta er mikilvægt því andstæðingar gefa ekkert eftir og maður er fljótur að tapa snerpu. Það eru svo margir góðir að nokk- Einherja- keppnin 1986 HIN árlega golfkeppni Einherja, en það nefnast þeir sem fariö hafa holu f einu höggi, verður haldin hjá Golfklúbbi Suðurnesja hinn 27. júlf 1986. Ræst verður út frá klukkan 12-14. Skráning fer fram f golfskálanum f sfma 92—4100. Morgunblaðið/Gunnlaugur • Teng með tilþríf gegn jap- önskum mótspilara, sem varð að lúta f lægra haldi eins og aðrir andstæðingar Kínverjans. ur mistök í keppni kosta sigurinn." „Við notum ýmsa taktit í leikjum. Oftast vil ég sækja, spila stíft á andstæðingum, en passa mig á því að breyta um leikstfl á milli móta svo andstæðingarnir læri ekki á mig. Það nota margir sál- fræðibrögð, sveifla t.d. hendinni sem þeir nota ekki til að halda á spaðanum, eða nota villandi líkamshreyfingar. Sumir stappa niður löppinni eftir uppgjafir til að bregöa mótspilaranum, en víða hefur það þó verið bannað. Enda er það tækni spilaranna, sem á að ráða úrslitum, ekki brögö." Aðspurður um árangurinn á bandaríska meistaramótinu sagði Teng: „Þetta var ekki mjög sterkt mót, þó vissulega væru góðir spil- arar. Það vantaði t.d. marga góða Kínverja, sem eru að æfa sig fyrir stórmót í sumar. Á næsta ári er síðan heimsmeistarakeppnin og þangað ætla ég. Ég er sannfærður um að geta sigrað, hef þegar unn- ið þá bestu í öðrum mótum. En málið er að vera í toppæfingu og hafa taugar og heilastarfsemina í lagi. Það er lykillinn að því að vera bestur," sagði Teng. - GR. 61 * RENOLB kedjur tannhjól og girar f v/ v B pjÓN USTA pEKK||v,G FÁLKINN SUÐURLANDSBRAUT 8 SÍMI 84670 m.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.