Morgunblaðið - 24.07.1986, Qupperneq 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986
MorgunblaSiS/Óskar Sœmundsson
• Ekki vitum viA hvað Hannos Eyvindsson ar að gera á þessari
mynd en í næstu viku verður hann að keppa f Landsmóti kylfinga hjá
Golfklúbbi Suðurnesja.
Landsmótið í golfi:
Keppni hefst
á mánudagí
2. og 3. flokki
LANDSMÓTIÐ f golfi hefst á
mánudaginn með keppni f 2. og
i3. flokki karla og kvenna. Ræst
verður út frá klukkan 8 árdegis
en áður hafði verið búist við að
ekki þyrfti að byrja fyrr en á
þriðjudag.
Frestur tii að skila inn þátttöku-
tilkynningum rann út í gær og nú
er Ijóst að það verða 242 kylfingar
sem keppa á mótinu að þessu
sinni.
Það er rétt að ítreka það að 2.
og 3. flokkur kvenna og karla byrj-
ar strax klukkan 8 á mánudags-
morguninn og jafnframt er nú Ijost
að þegar búið er að leika 36 holur
i 1., 2. og 3. flokki er nauðsynlegt
að grisja hópinn og verður það
gert á skori en samt sem áður
•verða í það minnsta 24 í hverjum
flokki sem komast áfram.
í 1. flokki komast þeir áfram sem
leika á 180 höggum eða minna, í
2. flokki eru það 190 högg og 198
Drengjalandsliðið
á Norðurlandamót
NK. SUNNUDAG, 27. júlí, heldur
landslið íslands, skipað leikmönn-
um 16 ára og yngri, til Danmerkur
til þátttöku í Norðurlandamóti
Drengjalandsliða. Mótið er haldið
í Nyborg á Fjóni.
Liðið leikur fyrsta leik sinn á
mánudag gegn Svium. Á þriðjudag
-ærður leikið gegn Finnum, á mið-
vikudag gegn Dönum, föstudag
gegn Færeyingum og ó laugardag
verður leikið gegn núverandi Norð-
urlandameisturum, Norðmönnum.
Eftirtalda leikmenn hefur þjálfari
liðsins, Lárus Loftsson, valið til
fararinnar:
Kri«tján Flnnbosamon KR
Krlttjén Haraldsson KR
Ingólfur Ingólfsson Stjaman
Sigurður BJarnason Stjaman
iörundur Svslnsson Stjsman
Aml Kvaran Stjarnan
Guðbjartur Auðunaaon, fyrirliðl Fram
Haukur Pálmaaon Fram
Gunnar Andrésson Fram
Jaórður Jónason Vlklngur
Jóhannas Jónsson Vfklngur
Haraldur Ingólfsson lA
Ami Halldórsaon ÍA
Axel Vatnsdal Þór.Ak.
Halldór Krlstinason KA
Þorstainn Þorstalnsson Þróttur, R.
Dómari fyrir fslands hönd varður Glsll
Guðmundsson, Val.
högg hjá 3. flokki. Svo gæti farið,
ef skor verður lélegt, að tölurnar
verði hækkaðar til að fá 24 kylfinga
í hverjum flokki.
Búið er að raða æfingatímum
niður á klúbbana á laugardag og
sunnudag og eru þeir sem hér
segir, en frá klukkan átta til tiu,
báða dagana, er frjáls tími:
Kl. 10-11
11—12
12-13
13.-13.30
13.30-14
14.10
14.20-16
16-16.30
16.40-17.40
17.60—18.60
QR
GK
GS
GOS, GHH, GJÓ, GE og Gf
GG
G V
NK
GR
GK
GS
Enn eitt hneykslið á Ítaiíu:
Heimsmeistararnir
taldir hafa þegið
ólöglegar greiðslur
ENN EITT hneykslismálið skekur
nú ftölsku knattspyrnuna. Upp-
lýst hefur verið að allir leikmenn-
irnir 22, sem þátt tóku í
heimsmeistarakeppninni á Spáni
1982 fyrir hönd Ítalíu — og urðu
heimsmeistarar, hafi þegið háar
peningagreiðslur undir borðið frá
franska fyrirtækinu Le Coq Sport-
if, eftir að þeir unnu titilinn.
Alfonso Marra, vararíkissak-
sóknari Ítalíu, sagði í gær að allir
leikmennirnir tuttugu og tveir
hefðu fengið tilkynningu um aö
verið væri að rannsaka þátt þeirra
í málinu. Á meðal leikmannanna
eru heimsfrægir knattspyrnu-
menn, eins og Paolo Rossi, Bruno
Conti, Sandro Altobelli, Dino Zoff,
Antonio Cabrini, Gaetano Scirea,
Giuseppe Bergomi, Giancarlo An-
toniogni og Marco Tardelli.
Upphæðin sem um er að ræða
jafngildir rúmlega 11,5 milljónum
• Bruno Conti er einn þeirra
sem flæktur er í hneykslismálið.
íslenskra króna og hana fengu leik-
mennirnir frá fyrirtækinu, að því
er virðist fyrir að auglýsa óbeint
fatnað þess, en Le Coq Sportif er
þekktur framleiðandi íþróttafatn-
aðar og framleiddi búninga ítalska
liðsins. Upphæðin var afhent í
dollurum eftir sigurleikinn, og kom
um hálf milljón íslenskra króna í
hlut hvers.
Samkvæmt upplýsingum rann-
sóknaraðila tilkynntu leikmennirnir
ekki um peningana þegar þeir
flugu heim til Ítalíu, og brutu þar
meö ítölsk bankalög. Italskt viku-
rit, sem upplýsti málið, fullyrti að
leikmennirnir hefðu falið pening-
ana í flugvélinni — sömu vél og
Sandro Pertini, forseti landsins,
kom heim með.
Viðurlög við meintum brotum
leikmannanna eru eins til sex ára
fangelsi og/eða sektir allt að fjór-
faldri upphæðinni sem stungið var
undan.
• Skagamenn fá að spreyta slg
gegn Englendingum.
Grimsby
við ÍBV
leikur
ÍA
og
— auk Þróttar frá Neskaupstað
GRIMSBY Town, enska 2. deild-
arliðið, sem kemur hingað til
lands 5. ágúst næstkomandi á
vegum Þróttar frá Neskaupstað,
mun leika brjá leiki hár á landi —
við Þrótt, IBV og ÍA.
Liðið leikur miðvikudaginn 5.
ágúst við Skagamenn á Akranesi,
laugardaginn 8. ágúst við gest-
gjafana á Neskaupstað, og að
lokum spila þeir við Vestmannaey-
inga í Eyjum mánudaginn 10.
ágúst. Liðið leikur því engan leik á
höfuðborgarsvæðinu að þessu
sinni.
Grimsby kemur hingað fyrir
milligöngu Jóns Olgeirssonar,
ræðismanns og fiskkaupmanns í
Grimsby, og notar ferðina til æf-
inga fyrir keppnistímabílið í Eng-
landi.
Landsliðsmálin:
SigiHeldvill aðOL-liðið
æfi saman einu sinni í viku
MÁLEFNI landsliðsins í knatt-
spymu hafa verið til umræðu að
undanförnu, einkum vegna þess
að þremur landsleikjum, sem fyr-
irhugaðir voru f sumar, hefur
verið aflýst. Morgunblaðið ræddi
við Ellert Schram, formann KSÍ,
um þessi mál og spurði fyrst
hvers vegna leiknum við Norð-
menn hafi verið aflýst.
„Það er fyrst og fremst af fjár-
hagslegum ástæðum sem þessi
ákvörðun var tekin," sagði Ellert.
„Því miður varð gífurlegt tap á
Reykjavíkurleikunum sem við efnd-
um til hér í vor, það nemur líklega
um tveimur og hálfri milfjón þegar
upp er staðið. KSÍ hefur ekki
ótæmandi sjóði og þetta tap kem-
ur illa við fjárhaginn.
Það var því ekki verjandi að taka
aðra áhættu með leiknum við Nor-
eg. Engin skynsamleg rök benda
til þess að við myndum fá marga
áhorfendur á þann leik, sem líklega
hefði verið leikinn með hálfgerðum
varaliðum beggja þjóða.
Þá var hætt við Grænlands-
ferðina vegna þess að sú þriggja
landa keppni, sem fyrirhuguð var
þar, á milli íslands, Færeyja og
Grænlands, datt uppfyrir þegar
Færeyingar lögðu ekki í þátttöku,
kostnaöarins vegna. Við það
brustu forsendur þeirrar farar",
sagði Ellert.
— Skýtur þá ekki svolftið
skökku við að hafa hér þjálfara á
fullum launum þegar engir lands-
leikir eru?
„Síðastliðin tvö ár hefur starfað
fyrir okkur landsliðsþjálfari, sem
bjó erlendis og hafði lítið af okkar
knattspyrnu að segja nema í
nokkra daga fyrir landsleiki. Þetta
mæltist illa fyrir. Því var ráðist í
það að fá þjálfara hingaö til dvalar
að sumrinu, sem gæti fylgst vel
með íslenskum knattspyrnumönn-
um sem hér leika, og jafnframt
fylgst með þeim leikmönnum sem
leika erlendis á veturna.
Þetta sumar hefur verið honum
mjög gagnlegt — hann hefur
kynnst aðstæðum hérlendis, og
viöhorfum leikmanna og forráða-
manna. Hans verkefni er auðvitað
fyrst og síðast að velja og undirbúa
Á-landslið okkar fyrir landsleiki, en
hann er einnig til ráðuneytis fyrir
aðra þjálfara KSÍ og þeirra þjálfara
hjá félagsliðunum sem þess óska.
Sigi Held hefur mikla reynslu af
knattspyrnu eins og hún gerist
best og vonandi getur hann miðlað
okkureinhverju af þekkingu sinni."
— Er undirbúningur ólympfu-
landsliðsins eitthvað á veg
kominn?
„Það er ekki búið að velja hóp
ennþá, en Sigi Heid hefur lagt á
það áherslu að hann verði valinn
sem allra fyrst, og að hann muni
koma saman til æfinga eins oft
og hægt er, helst einu sinni í viku
fram á haust. Það gæti reynst erf-
itt að ná samkomulagi við félögin
vegna þessa, en nú er verið að
leggja drög að æfingaáætlun fyrir
þetta landslið."
Ellert Schram, formaöur KSÍ.