Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 64

Morgunblaðið - 24.07.1986, Síða 64
m SEGÐU RMARHÓLL ÞEGAR Þtí EERÐ ÚTAÐ BORÐA -----SÍMI18833----- FIMMTUDAGUR 24. JÚLÍ 1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. Vatnsrenni- braut í Öskjuhlíð? UMSÓKN um leyfí til að byggja vatnsrennibraut í -Öskjuhlíð var lögð fram á fundi borgarráðs á þriðjudag. Um- sækjandi er Jón Hlíðar Guð- jónsson. Umsókninni var vísað til skipulagsnefndar til nánari umfjöllunar. Morgunblaðið/S ímamynd/ómar Valdimarsaon Húnn Snædal um borð í nýja farkostinum á Akureyri í gær. Þriöja loftfarið HÚNN Snædal flugmaður og flugvélasmiður á Akureyri hefur lokið smíði nýrrar listflugvélar. Alls tók smíðin 2.800 klukku- stundir og verður henni reynslu- flogið á næstunni. Þetta er þriðja loftfarið, sem Húnn smíðar og um þetta áhugamál sitt segir Húnn Snædal: „Veður á íslandi er með þeim hætti að það er erfítt að hafa flug fyrir tómstundagaman. Það er auð- veldara að veija flugtímanum til flugvélasmíði". Sjá nánar blaðsíðu 37. Hringferð um landið á hestbaki Morgunblaðið/Einar Falur ÞRÍR hestamenn með fjórtán hesta eru nú á leið hringinn í kringum landið og er það ætlun þeirra að loka hringnum á morgun. Ferðin hefur gengið mjög vel og heilsast mönnum og hestum vel. Hið besta veður hefur fylgt leiðangrinum, ef frá eru taldir undanfarnir síðustu dagar á Suð-Vesturlandi. Ferðin hófst þann fyrsta júlí á Selfossi og var riðið hringinn austur fyrir land. Myndin er tekin í Kaldadal á leiðinni frá Húsafelli til Þingvalla, en þá var úrhellisrigning. Sjá nánar frétt á bls. 27. Steingrímur Hermannsson, forsætisráðherra: Ottast viðskipaþving- anir Bandarí kj amanna — vegna útflutnings íslendinga á hvalaafurðum og túlkunar á samþykktum Alþjóða hvalveiðiráðsins í Bandaríkjunum „VIÐ fengum eftir óformlegum leiðum frá Bandaríkjastjórn fréttir um að við hefðum að þeirra dómi gerst brotlegir við samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðs- ins vegna þess að við neytum ekki meirihluta hvalkjötsins inn- anlands. Af þeim sökum væri þeim óhjákvæmilegt að leggja til við viðskiptaráðherra Banda- ríkjanna að mælast til þess við Bandaríkjaforseta að íslending- ar yrðu beittir efnhagsþvingun- um.“ sagði Steingrímur Landbúnaðarráðherra ákveður 20% verðlækkun á kindakjöti: „Er algjörlega á jábyrgð seljenda“ - segir Þorsteinn Pálsson, en ákvörðun um niðurgreiðslur hefur ekki verið tekin Landbúnaðarráðuneytið hefur ákveðið að verð á kindakjöti lækki um 20% í dag. Að sögn Guðmundar Sigþórssonar, skrif- stofustjóra, verður verðlækkun- in líklega fjármögnuð með niðurgreiðslum. Þorsteinn Páls- son, fjármálaráðherra, sagði að ^enn hefði ráðuneyti hans enga ' ákvörðun tekið um hvort, eða hversu miklu, fé yrði veitt til útsölunnar. Sér kæmi það því spánskt fyrir sjónir að hún skyldi hafin. Væri afslátturinn algjör- lega á ábyrgð seljenda þar til ákvörðun um niðurgreiðslu ligg- -^ir fyrir. Hann bjóst við að taka afstöðu til málsins í dag. Á fundi sínum sl. fímmtudag samþykkti ríkisstjómin tillögu fjár- málaráðherra um að hann kannaði ásamt landbúnaðarráðherra og við- skiptaráðherra frekari niðurgreiðsl- ur á kindakjöti. Verðábyrgð ríkisins nær til nær allrar kindakjötsfram- leiðslu bænda á síðasta ári. Það er því skuldbundið til að greiða fyrir kjötið, hvórt sem það selst eða ekki. „Spumingin er hvort við niðurgreið- um kjötið innanlands, eða greiðum útflutningsbaetur með því,“ sagði Guðmundur. í landinu eru nú fyrir- liggjandi um 3.500 tonn af kjöti, og taiið hæfílegt að eiga um 1.200 tonna birgðir í upphafí næstu slát- urtíðar. Guðmundur var spurður hvort auglýsingaherferð fyrir neyslu kindakjöts undanfarið hefði ekki borið árangur. „Árangurinn af henni er nokkur“, sagði Guð- mundur, „en alls ekki nægur." í gærkvöldi hélt landbúnaðarráð- herra fund með kaupmönnum til að kynna þeim söluátak á dilka- Iqoti. Markmið hans var fræðsla og gagnkvæm tjáskipti, að sögn Guð- mundar. Meðal annars var rætt um gerð hentugra umbúða og leitað eftir hugmyndum um frágang og sölu. Hermannsson forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi. „Bandarílqamenn segja þó að til efnahagsþvingana þurfí ekki að koma því að Japanir muni hætta við að kaupa hvalaafurðir héðan ef Bandaríkjastjóm lýsir yfír andstöðu sinni við sölu hvalkjöts. En við bú- umst við því að viðskiptaráðherra Bandaríkjanna leggi þetta til við forseta Bandaríkjanna á mánudag. Forsetinn hefur síðan 60 daga til að ákveða hváða aðgerða skuli grip- ið til. „Sá möguleiki er þó fyrir hendi að einhverjir komi vitinu fyrir Bandaríkjamenn. En ég tel vera hér um svo gróf afskipti af innanlands- málum annarrar þjóðar að ræða að þetta er óþolandi. Ég veit ekki hvemig Bandaríkjamenn geti tekið sér slíkt lögregluvald um allan heim. Minna má á að Bandaríkja- menn drepa tugþúsundir höfmnga svo að eitthvað sé nefnt.“ Hver verða viðbrögð íslenskra stjómvalda? „Ég mun leggja til að Banda- ríkjastjóm verði ekki svarað á þessu stigi máls. Við fengum fyrst eina helgi til að svara tilmælum Banda- ríkjamanna um að hætta við sölu á hvalkjötinu en síðan eina viku," sagði Steingrímur. Steingrímur sagðist ætla að gera ríkisstjóminni grein fyrir þessu máli í dag, en hann ætti ekki von á því að ákvörðun yrði tekin um það, þar sem Halldór Ásgrímsson er erlendis. Samkvæmt heimildarmanni Morgunblaðsins í Washington verð- ur engin ákvörðun tekin um hvort litið verður svo á að íslendingar hafi gerst brotlegir við samþykkt Alþjóðahvalveiðiráðsins í þessari viku. Hann sagði ennfremur að legði viðskiptaráðherra til við Bandaríkjaforseta að hann tæki afstöðu til málsins, þá hefði Reagan 60 daga til að ákveða hvort gripið verði til einhverra ráðstafana eða ekki. Eins og málin stæðu nú væri ekki til umræðu að beita íslendinga efnahagsþvingunum. íslendingar munu sjá um meistaramót Þjóðverja MEIST ARAMÓT Þýskalands í hestaíþróttum verður _ haldið á Falkenhorst þar sem íslending- arnir Herbert Ólason og Aðal- steinn _ Aðal3teinsson ráða ríkjum. í tengslum við mótið hafa þeir skipulagt íslandsviku þar sem í ráði er að kynna islenska framleiðslu og þjónustu ýmiss konar. Að sögn Herberts er búist við að 6 til 8 þúsund manns muni koma á þetta mót en auk þess verður sjón- varpað beint um allt Þýskaland frá mótinu. Veitingasala verður alfarið í höndum íslendinganna á Falken- horst. Unnið er að því að fá „Hófí“ til að mæta á staðinn til að afhenda verðlaun í mótslok. Sjá nánar á bls. 36.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.