Morgunblaðið - 07.08.1986, Page 1
64 SÍÐUR B
STOFNAÐ 1913
173. tbl. 72. árg.
FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Sement
skortir í
Chernobyl
Moskvu, AP.
SEMENTSSKORTUR í Sov-
étríkjunum veldur þvi, að ekki
hefur enn tekist að byrgja
kjarnakljúfinn, sem slysinu olli í
Chernobyl. Kom þetta fram í
Pravda, málgagni sovéska
kommúnistaflokksins, i gær.
„Vinna við steinsteypubyrgið yfir
kjamakljúfinn hefur dregist úr
hömlu,“ sagði í Pravda og kom þar
einnig fram, að tilraunir til að koma
aftur af stað tveimur kljúfanna og
gera við þann þriðja gætu ekki
hafist fyrr en byrgisverkinu væri
lokið. Var sementsskorti um kennt.
Þessi gagnrýni sætir nokkrum
tíðindum því að hingað til hefur
ekki annað verið sagt frá Chemo-
byl en hve þar gangi allt vel. í
enskri útgáfu Prövdu í gær var
gagnrýninni þó sleppt.
Giftu sig
á fjögiirra
metra dýpi
West Springfield, Massacnusetts, AP.
HJÓNAEFNI, sem eru miklir
unnendur froskköfunar, voru
gefin saman á fjögurra metra
dýpi í hótelsundlaug í bænum
West Springfield í Massachusetts
á sunnudag. Voru þau, svo og
friðdómarinn, sem vígði þau, í
f roskkaf arabúningum.
Brúðarparið, Skip Hochreich og
Judy Grigas, sagði, að hjónavígslan
endurspeglaði þá hamingju, sem
þau hefðu fundið í þessari tóm-
stundaiðju sinni.
Þau urðu að kenna friðdómaran-
um, Michael McDowell, undirstöðu-
atriði köfunaríþróttarinnar, svo að
hann gæti framkvæmt hjónavígsl-
una.
McDowell hélt á vatnsheldu ein-
taki vígsluræðunnar, sem hann
flutti yfir hjónaefnunum, og var hún
jafnframt spiluð af segulbandi fyrir
brúðkaupsgestina, sem stóðu á
bökkum laugarinnar.
Morgunbladið/Einar Falur.
Reykjavíkurbörn í hátíðarskapi
KÁTIR krakkar úr öllum hverfum borgarinnar héldu hátíð í gær í Iok námskeiða í fé-
lagsmiðstöðvunum. Um 200 börn á aldrinum 7—11 ára gengu í litskrúðugum búningum
frá Lækjartorgi í Hljómskálagarð þar sem farið var í leiki. Þessi hátíð er orðin árviss liður
í starfi félagsmiðstöðvanna.
Karpov fór
með signr
af hólmi
ANATOLY Karpov bar sigur-
orð af Garri Kasparov,
núverandi heimsmeistara, í
fimmtu einvigisskák þeirra í
gærkvöldi. Kasparov gaf
skákina eftir 32. leik Karpovs.
Staðan í einviginu er því jöfn
en sem kunnugt er af fréttum
sigraði Kasparov í fjórðu
skákinni.
Florencio Campomanes, forseti
Alþjóðaskáksambandsins, FIDE,
sagðist í samtali við blaðamann
Morgunblaðsins í gær, ekki vilja spá
um úrslit einvígisins. Hann sagði
taflmennsku Kasparovs ævintýra-
lega að sjá og skákirnar glæsilegar.
Campomanes ræddi við blaða-
manninn stuttu áður en skákmeist-
ararnir settust að tafli í gær. Margir
telja Campomanes hlynntari
Karpov, en í viðtalinu segist hann
hafa stöðvað fyrsta einvígið af
mannúðarástæðum, þar sem ótrú-
legt álag fylgi einvígum sem
þessum.
Campomanes hældi íslensku
skákmeisturunum mikið í viðtalinu
og þá sérstaklega Friðriki Ólafs-
syni.
Sjá nánar viðtal Jóhönnu
Kristjónsdóttur við Campom-
anes og skákskýringu Mar-
geirs Péturssonar á bls. 32.
Methalla spáð hjá rík-
issjóði Bandaríkjanna
Washington, AP.
Bandaríkjastjórn spáði því í
gær, að halli ríkissjóðs þar í landi
yrði sá mesti í sögunni á þessu
fjárhagsári eða yfir 230 milljarð-
ar dollara. í fyrra var þessi halli
212 milljarðar dollara og hafði
aldrei verið jafn mikill áður.
Berly Sprinkel, helzti ráðgjafi
Reagans forseta í efnahagsmálum,
sagðist samt vera bjartsýnn á, að
mikill uppgangur væri framundan
í bandarísku efnahagslífi. Hann við-
urkenndi, að vöxtur efnahagslífsins
hefði verið mun minni á fyrri hluta
Afríka:
Engispr ettufarald-
ur í kjölfar þurrkanna
Nairobi^ Kenýa, AP.
NY PLAGA blasir nú við löndunum sunnan Sahara-eyðimerkur-
innar í Afríku, þar sem þurrkar ollu til skamms tíma uppskeru-
bresti árum saman. Rigningar undanfarið hafa skapað ákjósanleg
skilyrði fyrir engisprettufaraldur, sem gæti stórlega skaðað upp-
skeruna í þessum löndum, að sögn fulltrúa Matvæla- og land-
búnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO).
Nú þegar hefur plágan lagt
þúsundir ekra af uppskerulandi í
auðn í austur-, mið- og suðurhluta
álfunnar.
Eduard Saguma, fram-
kvæmdastjóri FAO, segir engi-
sprettufaraldinn nú geta orðið
verri en farald, sem gekk yfir
árið 1974, en það er versti engi-
sprettufaraldur sem gengið hefur
yfir álfuna og skráðar heimildir
eru til um. Plágan gæti valdið
skaða næstu 4-5 ár og hefur FAO
farið fram á 23,3 milljón Banda-
ríkjadala fjárveitingu á næstu
þremur árum til þess að ráða nið-
urlögum hennar. Löndin sem eru
í mestri hættu vegna plágunnar
eru Botswana, Chad, Malí, Norð-
ur-Eþíópía og Mið-Súdan, en
einnig er búist við að plágan nái
til Zimbabwe, Zambíu, Namibíu
og Angóla.
Engisprettuskýin geta talið allt
að 40 milljörðum engisprettna og
geta þakið allt að þúsund ferkíló-
metra svæði í einu. Slíkt ský étur
um 80 þúsund tonn af korni á
sólarhring, en það kom myndi
nægja til þess að fæða 50 þúsund
manns í heilt ár.
þessa árs en vonir hefðu staðið til.
Markmiðið væri þó, að hagvöxtur
næði 3,2% á þessu ári. „Ég tel þessa
tölu ekki óraunhæfa," sagði Sprink-
el. Hann játaði þó, að forsenda fyrir
slíkum hagvexti væri, að hinn nei-
kvæði viðskiptajöfnuður landsins
versnaði ekki frá því sem nú er.
Margir bandarískir efnhagssér-
fræðingar hafa látið í ljós efasemdir
um raungildi framangreindrar efna-
hagsspár. Segja þeir, að til þess að
ná fram jafn miklum hagvexti og
þar komi fram, yrði hagvöxturinn
að vera 4% það sem eftir er þessa
árs. Það væri nær fjórum sinnum
meiri hagvöxtur en verið hefði á
tímabilinu apríl-júní, en þá dróst
hann saman og nam aðeins 1,1%.
Var það minni hagvöxtur en nokkru
sinni síðan í lok árs 1982. Af þess-
um sökum megi ekki reikna með
meiru en í mesta lagi 2% hagvexti
á síðari hluta þessa árs.
Reagan forseti vann óvæntan
sigur í gær, er frumvarp um höml-
ur við innflutningi á vefnaðarvör-
um, sem hann hafði beitt
neitunarvaldi gegn, náði ekki til-
skildum tveimur þriðju hlutum
atkvæða í fulltrúadeild Bandaríkja-
þings til þess að mega sín meira
en neitunarvald forsetans og verða
að iögum.
Stuðningsmenn frumvarpsins
héldu því fram, að nauðsyn væri á
áhrifamiklum aðgerðum til vemdar
bandarískum vefnaðariðnaði.
Bandaríkjastjóm hélt því fram á
móti, að slíkar verndarráðstafanir
myndu koma af stað verzlunarstríði
um allan heim og verða til þess
eins, að aðrar þjóðir heims gripu
til verndarráðstafana á móti.
Sovétríkin:
Flett ofan af
líkræningjum
Moskvu, AP.
í síðasta hefti ungmennatima-
ritsins Yunost flettir sovéska
ljóðskáldið Andrei Voznesensky
ofan af grafarræningjum, sem í
tvö ár hafa rænt gullfyllingum
og skartgripum af líkum í fjölda-
gröf í Sovétríkjunum.
í grein Voznesensky segir að
ræningjamir hafi þegar árið 1984
hafið að ræna ijöldagröfina, sem
nasistar létu grafa i þeimsstyijöld-
inni síðari. Gröfin er skammt frá
Simferopol, höfuðborg Krím.
Voznesensky segir að nokkrir
ræningjanna hafi verið dregnir fyr-
ir rétt á síðasta ári, en hlotið vægan
dóm.