Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986 Hvalstöðin í Hvalfirði: Heimamenn mótmæltu við sendinefnd frá NATO UM 40 manns úr Hvalfjarðar- strandarhreppi, þar af margir starfsmenn Hvals hf., stóðu mót- mælastöðu við Hvalstöðina í Hvalfirði í gærdag þegar 20 manna sendinefnd Atlantshafs- bandalagsins kom þar að til að skoða stöðina. Veifuðu heima- menn mótmælaspjöldum þar sem „afskiptasemi Bandaríkjastjórn- ar af hvalveiðum íslendinga var fordæmd“. „Yfirgangur Bandaríkjamanna í þessu máli er með ólíkindum og við vildum með þessum hljóðlátu mót- mælum láta þá vita að við fylgjumst vel með framvindu mála," sagði Jón Einarsson oddviti, einn mótmæl- enda. Jón sagði að mótmælin hefðu greinilega farið í taugamar á komu- mönnum og því náð tilgangi sínum. „Þama vom menn frá öðrum lönd- um Atlantshafsbandalagsins en Bandaríkjunum og það er ágætt að þeir viti í hvers konar hættu Banda- ríkjamenn em að stofna samskipt- um okkar við þá,“ sagði Jón. Hitaveita Suðurnesja: „Skömmin er ykkar íslendingar“, sagði á einu skiltinu, „Rannsakið ekki hvalina til dauða“, sagði á öðm og á því þriðja stóð : „íslend- ingan standið við loforðin - takið tillit til bannsins við hvalveiðum í ábataskyni". Á enn öðm skilti var hvatt til hunsunar á íslenskum vör- um - „Hættið hvalveiðum eða við hættum að kaupa fisk af ykkur“, sagði þar. Einn talsmaður friðunarsinna, Christine Stevens, frá Animal Wel- fare Institute, sagði að sín samtök hefðu fyrir nokkm hvatt sína fé- lagsmenn til að hætta að kaupa íslenskar vömr. Forsprakki nátt- úmvemdarhópa, sem mynda heild- arsamtökin Monitor, Craig Van Note, sagði Morgunblaðsmönnum við viðskiptaráðuneytið í gær að ef íslendingar ætluðu að halda fast við ákvörðun sína um að hefja hval- veiðar á ný eftir 20. ágúst þá myndu verða keyptar auglýsingar í víðlesn- um blöðum og milljónir manna hvattar til að sniðgagna íslenskar Um 40 manns söfnuðust í gær saman við viðskiptaráðuneytið í Washington. Vegfarendum var afhent fiskafurðir. yfirlýsing þar sem hvalveiðum Islendinga var mótmælt. í dreifíbréfi sem friðunarsinnam- Morgunblaðið/Jón Ásgoir Sigurðsson/AP/Simamynd Hvalveiðimálið í Bandaríkjunum: Hugsanlegt að viðskipta- ráðherrann falli frá kæru Lækkar gjaldskrá um 22,3% STJÓRN Hitaveitu Suðurnesja hefur samþykkt að lækka gjald- skrá sina á vatni, sem selt er í gegnum mæli. Lækkunin, sem reiknast frá 1. júlí, er um 22,3%. Vatnið kostaði áður 45 krónur tonnið en fer nú niður í 35 krónur tonnið. í fréttatilkynningu frá Hita- veitu Suðumesja segir, að með þessu vilji stjómin leggja fram sinn skerf til eflingar atvinnulífs á Suð- umesjum, enda telji hún að fjár- hagsstaða fyrirtækisins leyfí það. — ef hvalafurðirnar verða nýttar meira á íslandi Washington D.C., frá Ómari Valdimarssyni blaðamanni Morgunblaðsins. EKKI er útilokað að viðskiptaráðherra Bandarikjanna falli frá fyrir- ætlan sinni að setja fram staðfestingarkæru á hendur íslendingum vegna hvalveiða í vísindaskyni takist að finna leið til að nýta meira af afurðunum á íslandi en hingað til hefur verið ætlunin. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins hér munu emhættismenn Bandaríkja- stjórnar hafa látið í Ijós þá skoðun í oformlegum viðræðum að þeir gætu fallist á vísindaáætlun íslendinga - svo fremi sem megnið af afurðum hvers hvals færi til neyslu innanlands. Samkvæmt skýrslu Hvals hf. sem Bandarískir embættismenn sem lögð hefur verið fram í viðræðunum blaðamaður Morgunblaðsins hefur hér verður rúmlega helmingur hvers hvals eftir á Islandi, það er þegar bein, haus og fleira, sem ekki er nýtanlegt til manneldis er reiknað með. Bandaríkjamenn munu nú gera kröfu um að megnið af nýtanlegum afurðum hvaianna fari til neyslu innanlands á íslandi, hvort sem það fer til manneldis, í dýrafóður, eða í bræðslu. rætt við hafa verið þöglir sem gröf- in og segja að samkomulag hafí orðið um að láta ekkert fréttast út úr viðræðunum. „Báðir aðilar eru að hugsa málin frekar og viðræðun- um verður haldið áfram," sagði Dean Swanson, einn embættis- manna viðskiptaráðuneytisins hér í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins í gær. Hann og fleiri embættismenn sem rætt var við sögðu að á næstu dögum yrði sam- bandið á milli þjóðanna haldið um sendiráðin í Washington og Reykjavík. Hópur manna hér, sem sögðust vera úr 7 samtökum með um 1,2 milljónir félagsmanna gengust fyrir mótmælastöðu fyrir framan banda- ríska viðskiptaráðuneytið í gær. Um 40 manns tóku þátt í mótmælunum þegar flest var. Mótmælendumir bám uppblásna hvali af ýmsum stærðum og spjöld með áletmnum þar sem Islendingar vom fordæmd- ir fyrir hvalveiðar sínar. Jafnframt var bandaríski viðskiptaráðherrann Malcom Baldrige hvattur til að sýna hörku gagnvart hvalveiðiþjóðunum. Ágreiningur í verkalýðsarmi Alþýðubandalagsins: Guðmundur Þ. féll við kjör í stjórn verkamannabústaða GUÐMUNDUR Þ. Jónsson formaður Iðju og Landssam- bands iðnverkafólks og fyrrverandi borgarfulltrúi Alþýðubandalagsins náði ekki kjöri sem fulltrúi verka- lýðsfélaganna í stjórn verka- mannabústaða í Reykjavík þar sem hann hefur átt sæti undanfarin ár. Fulltrúar verkalýðsfélaganna í stjóm- inni verða Ragna Bergmann formaður verkakvennafé- lagsins Framsóknar og Guðjón Jónsson formaður Félags jámiðnaðarmanna og Málm og skipasmiðasam- bands íslands. Ágreiningur innan Alþýðubandalagsins varð þess valdandi að stungið var upp á bæði Guðmundi Þ. og Guðjóni og féll Guðmund- ur þrátt fyrir stuðning Verkalýðsmálaráðs Alþýðu- bandalagsins. Stjóm verkamannabústaða í Reykjavík skipa sjö fulltrúar, for- maður er skipaður af ráðherra, þrír eru kjömir af borgarstjóm, tveir eru tilnefndir af fulltrúaráði verka- lýðsfélaganna í Reykjavík og einn tilnefndur af BSRB. Þegjandi sam- komulag hefur verið um það innan fulltrúaráðsins að annar fulltrúi þess væri frá Alþýðubandalaginu og var Guðmundur Þ. Jónsson sá fulltrúinn en hinn var Páll R. Magn- ússon húsasmíðameistari. Verka- lýðsmálaráð Alþýðubandalagsins mun hafa samþykkt að Guðmundur sæti áfram í stjórninni, en Guðjón Jónsson, sem var formaður stjómar verkamannabústaða á sfðasta kjörtímabili skipaður af Svavari Gestssyni fyrrverandi félagsmála- ráðherra, lýsti því þá jafnframt yfir að hann myndi einnig gefa kost á sér í stjómina. Á fulltrúaráðsfundi verkalýðs- félaganna var síðan stungið upp á Guðmundi Þ. og Guðjóni og Rögnu Bergmann. Atkvæði féllu þannig að Ragna og Guðjón fengu 6 at- kvæði af 7 mögulegum en Guð- mundur Þ. 2 og verða Guðjón og Ragna því fulltrúar verkalýðsfélag- anna í stjóm verkamannabústaða næstu §ögur árin. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Dagsbrún- ar og Verkamannasambandsins og alþingismaður AlþýðUbandalagsins var á fulltrúaráðsfundinum og stakk hann upp á Guðmundi Þ. Ætla niður Hvítár- gljúfur á kajökum Selfossi. Á morgun ætla fimm Englendingar úr klúbbi siglingamanna að síga niður í Hvítárgljúfur rétt neðan við Gullfoss, niður á klettasillu um 6 m ofan við vatnsborðið og láta sig síðan falla niður í ána í kajökum. Þegar niður í ána kemur munu þeir róa meðfram fossinum og niður gljúfrið, að Brúarhlöðum. Englendingar þessir eru í 24 Graham Bassett, fóru niður Gýgj- manna hópi sem hefur aðsetur á Selfossi og stundar kajakferðir á Hvítá, Þjórsá og fleiri ám inni á hálendinu. Markmið hópsins er að fara niður Hvítá. Þeir byijuðu róðurinn inni á Kili, í Blákvísl, fóru að Hvítárvatni og reru yfir það að jöklinum. Þrír þeirra, Pete Montgomery, Tim Oldrini og arfoss í Jökulfalli sem er um 6 metra hár. í dag munu þeir róa frá Hvítárvatni að Gullfossi. Alan Barber, einn af forsvars- mönnum hópsins, segir að þeir hafi kannað aðstæður við Gullfoss mjög vel og að þeir einir muni fara niður í gljúfrið sem reyndast- ir eru. Sig. Jóns. ir afhentu vegfarendum við ráðu- neytið í gær var því meðal annars haldið fram að íslendingar ætluðu að selja hvalkjöt til Japans fyrir 20 milljón dollara og veija um 2 millj- ónum til „hvalrannsókna". Enginn þeirra sem Morgunblaðsmenn ræddu við tóku hið minnsta mark á þvi að um væri að ræða veiðar í raunverulegu vísindaskyni. Örn Valdimarsson Örn Valdi- marsson framkvæmda- sljóri látinn ORN Valdimarsson, fram- kvæmdastjóri, Iést í Reykjavík þriðjudaginn 5. ágúst, á 50. ald- ursári. Öm fæddist í Reykjavik hinn 4. desember 1936. Að loknu námi í Verslunarskóla íslands hóf hann sjálfstæðan verslunarrekstur þar til hann tók við starfi aðalbókara hjá Vinnufatagerð íslands árið 1970. Hin síðari ár starfaði hann sem framkvæmdastjóri fyrir fasteign- imar Skeifuna 15 og Vesturgarð. Öm tók virkan þátt í flokksstarfi Sjálfstæðisflokksins og var formað- ur í stjóm Félags sjálfstæðismanna í Smáíbúða-, Bústaða- og Fossvogs- hverfi er hann lést. Eftirlifandi kona hans er Katrín Ámadóttir. Hann lætur eftir sig Qögur böm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.