Morgunblaðið - 07.08.1986, Side 23

Morgunblaðið - 07.08.1986, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986 Mor^funblaðid/Valdimar Knstinsson Allir eiga þessir knapar og hestar það sameiginlegt að hafa sigrað í tölti á íslandsmóti og munu þau mæta á Islandsmótið um helgina. Lengst til vinstri er Einar Öder Magnússon á Tinnu frá Flúðum, Þórður Þorgeirsson á Snjalli frá Gerðum, Olil Amble á Fleyg frá Kirkjubæ og Björn Sveinsson á Hrímni frá Hrafnagili. Islandsmót í hestaíþróttum: Islandsmeistarar í tölti síðustu ár mæta á mótið UM NÆSTU helgi verður haldið Islandsmót í hestaíþróttum á Víðivöllum, svæði Fáks. Mótið sjálft hefst að morgni laugar- dags en föstudagskvöldið verður haldinn fundur með dómurum og keppendum þar sem dómarar munu útskýra eftir hverju verði Icitað í dómstöfrum. Síðan gefst keppendum kostur á að leggja fram fyrirspurnir. Forkeppni í gangtegundagreinum mun Ijúka á laugardag en einnig verður keppt í 150 metra og 250 metra skeiði sem eru aukagreinar. Um kvöldið verður dansleikur í fé- lagsheimili Fáks. Á sunnudag hefst dagskrá með hlýðnikeppni fyrir hádegi en eftir hádegi verða úrslit í öllum greinum og að sögn Hafliða Gíslasonar for- manns íþróttadeildar Fáks, sem sér um framkvæmd mótsins, verða tvö- föld úrslit í öllum greinum, þannig að fyrst verður keppt um 6. til 10. sæti og síðan 1. til 5. sæti. Á sunnu- dag verða einnig farnir báðir sprettir í gæðingaskeiði. Á mótið munu einnig mæta til leiks íslandsmeistarar í tölti síðustu ár og má þar nefna Björn Sveinsson með Hrímni, Einar Öder Magnússon með Tinnu, Olil Amble með Fleyg og Þórð Þorgeirsson með Snjall. Ekki verður þessum hrossum att til keppni heldur verða þau aðeins sýnd mönnum til skemmtunar. Öll úrslit munu fara fram á Hvamms- vellinum en keppt verður á tveimur völlum samtímis í forkeppninni. Að sögn Hafliða er góð þátttaka í flokki fullorðinna en þátttaka unglinga frekar dræm. Einnig gat hann þess að aðgangur að mótinu væri ókeypis og vonaðist hann eftir að fólk myndi fjölmenna á þennan hápunkt íþróttamóta ársins. Mataræði orsök 30% krabbameinstilfella ÆTLA má að milli 100 og 200 þeirra 700 krabbameinstilfella sem áriega greinast á Islandi megi rekja til mataræðis. Þetta kemur fram í grein ■ síðasta hefti Heilbrigðismála eftir Sigurð Árnason sérfræð- ing i krabbameinslækningum við Landspítalann. I greininni segir Sigurður að er- lendir vísindamenn geri ráð fyrir að um 30 af hundraði krabbameina eigi rætur að rekja til mataræðis, eða jafn mikið og talið er að rekja megi til reykinga. Þetta mat er byggt á þrenns konar rannsóknum. I fyrsta lagi svokölluðum faralds- fræðilegum rannsóknum, sem byggjast á því að athugað er mis- munandi mataræði þjóða og síðan fylgui milli þess og mismunandi tíðni krabbameina. I því sambandi hafa vísindamenn meðal annars veitt því athygli að ristilkrabbamein er sjaldgæfur sjúkdómur í þeim löndum þar sem menn neyta að jafnaði mikilla trefja, eins og til dæmis á stórum landsvæðum í Afríku. Ristilkrabbamein er á hinn bóginn algengt í löndum þar sem trefjar eru lítill hluti fæðu, svo sem á Norðurlöndum og í Bandaríkjun- um. í öðru lagi er stuðst við dýratil- raunir, en tekist hefur að auka tíðni vissra krabbameina í meltingarvegi í rottum og músum sem aldar eru á ákveðnum fæðutegundum. Loks hafa menn í þriðja lagi fyi'- ir sér erfðafræðirannsóknir, sem styðja það að efni, sem geta valdið stökkbreytingum í bakteríum eða iiðrum lífverum, séu líkleg til að vera krabbameinsvaldandi. Sigurður segir að enda þótt rann- sóknir séu of skammt á veg komnar til að hægt sé að fullyrða að sam- band sé milli krabbameins og ákveðinna fæðutegunda, þá hafi krabbameinsfélög í Bandaríkjunum og Kanada séð ástæðu til að ráð- leggja mönnum um mataræði til að draga úr líkunum á krabba- meini. Fyrst og fremst ber að forðast mikla fituneyslu, en svo virðist sem fituneysla auðveldi myndun og viixt krabbameins. Um það bil 40% af fæðuorku íslendinga fæst úr fitu og er talið ráðlegt að menn minnki neysluna að minnsta kosti um fjórðung. Sigurður bendir á að slíkt sé tiltölulega einfalt, að- eins þurfi að forðast feitt kjöt og smjiir og drekka léttmjólk eða und- anrennu í stað nýmjólkur. Slíkt hefur fólki lengi verið ráðlagt til að forðast kransæðastíflu, svo minni fituneysla sýnist vera mikil- vægt heilbrigðisatriði. Samhliða minni fituneyslu er tal- ið æskilegt að auka neyslu trefja- ríkrar fæðu, sem fæst einkum úr gi'ófu brauði, ávöxtum og gi-æn- meti. Þá er talið að fæðutegundir ríkar af A- og C-vítamínum dragi úr líkum á krabbameini, en jafn- framt varað við því að fólk taki inn A-vítamín í töfluformi, þar sem of- neysla þess getur valdið eitioin. Þess í stað er bent á dökkgrænt og djúpgult grænmeti, sem ríkt er af karóteini. Faraldsfræðilegar at- huganir benda einnig til að neysla grænmetis af krossblómaætt geti minnkað líkur á krabbameini, svo sem spergilkál, hvítkál, rósakál og blómkál. Loks er varað við fæðu sem cr mjög söltuð, reykt eða inni- heldur saltpétur. í slíkum mat eru margvísleg tjiiruefni sem geta vald- ið krabbameini, svipað og tjara tóbaksreyks. Loks er bent á að offita sé vara- siim. Nýleg rannsókn bandaríska krabbameinsfélagsins leiddi í ljós að fólk sem er 40% meira ofan við kjiirþyngd væri 33-55% líklegra til að fá krabbamein en fólk sem er hæfiléga þungt. 5 1 23 Svefnbekkur með yfirhillu, dýnu og 3 púðum kr. 10.720,-. 8 skúffu kommóður kr. 4.210,-. 6 skúffu kommóður kr. 3.430,-. 4 skúffu kommóður kr. 2.750,-. Hægindastóll kr. 2.290,-. Öll húsgögnin eru spónlögö meö slitsterkri plastfilmu í eikarlit, kvistafuru og hvítu. -K-húsgagnalröllin IfflTW.tA'l BÍIDSHÖFÐA 20-112 REYKJAVÍK - 91 -681199 og 681410 AF BARNAHUSGOGNUM TOKUM VIÐ HEIM OG ÞAU MUNU SELJAST UPP Á NOKKRUM DÖGUM HÉR ER VERÐIÐ Svefnbekkur með dýnu og 3 púðum 190x70 sm, kr. 6.530,- með góðu bómullarefni. 30 TON Svefnbekkur með endahillu, dýnu og 9.280,-. Skrifborð lengd 120 sm kr. 3.600,-. Klæðaskápur breidd 80 sm kr. 5.960,-. Bókahilla breidd 60 sm kr. 2.880,-. Skrifborðsstóll kr. 2.000,-. Svefnbekkur með dýnu og 3 púðum kr. 6.530,- með góðu bómullarefni. Skrifborð lengd 150 sm kr. 4.690,-. Bókahilla breidd 90 sm kr. 3.510,-. Skrifborðsstóll kr. 2.000,-. tttaBgg • a?K i 3 púðum kr.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.