Morgunblaðið - 07.08.1986, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
Vindhviða feykti eiturgámunum íána
Átján gámar, sem fullir voru af eiturefnum, féllu í ána Des Moines í grennd við bæinn Boone
í Iowa í síðustu viku. Óhappið átti sér stað, þegar óveður brast á og geysiöflug vindhviða
feykti járnbrautarvögnunum fram af 35 metra hárri brú.
Frakkland:
Bandaríkin:
Herferð hafm
gegn ólöglegri
eitur ly fj aney slu
WaBhington, AP.
RONALD Reagan Bandaríkja-
forseti hóf á mánudag herferð
gegfn ólöglegri eiturlyfjaneyslu
og sagðist treysta á stuðning al-
mennra borgara við þá viðleitni
stjórnvalda „að fá eiturlyfjaneyt-
endur til að taka sig saman um
að hætta“.
„Allar heimsins stjómvaldaað-
gerðir koma fyrir lítið, þegar
eiturlyfjaplágan ’er annars vegar,
svo lengi sem hún nýtur griða með
þegjandi samþykki almennings,"
sagði Reagan. „Þess vegna verðum
við nú að ganga lengra en áður og
einskorða okkur ekki við að reyna
að hefta söluna, við verðum einnig
að beina athyglinni að neyslunni."
Reagan sagði, að eiturlyfjaneysl-
unni linnti ekki og afleiðingar
hennar versnuðu sífellt þrátt fyrir
tilraunir stjórnvalda til að hefta
ólöglegan innflutning efnanna.
„Við stefnum ekki að því að koma
neytendunum í fangelsi, heldur losa
þá við vímuefnin," sagði hann.
Hann kynnti ýmsar ráðstafanir
stjómvalda í þessu skyni. M.a. á
að beina þeim tilmælum til samtaka
atvinnurekenda og launþega, að
þau leggi fram skerf í baráttunni
við eiturlyfjavandamálið.
Pólland:
Handtekín fyr-
ir að mótmæla
áfengisneyslu
Varsjá, Póllandi, AP.
AÐ MINNSTA kosti sex manns
voru handteknir fyrir að mót-
mæla ofneyslu áfengis í Varsjá
á mánudag. Fólkið hafði tekið
sér stöðu fyrir framan opinberan
útsölustað áfengis og hafði uppi
spjöld með áletruninni: „Ágúst
er vínlaus mánuður."
Fyrstu ríkisfyrirtækin aug-
lýst til sölu í september
París, AP.
EDOUARD Balladur, efnahags-
málaráðherra Frakklands, sagði
í gær, að fyrstu fyrirtækin í eigu
franska ríkisins, sem seld skyldu
einkaaðilum samkvæmt áætlun
GEGN
STEYPU
SKEMMDUM
STEINVARI 2000
hefur þá einstöku eiginleika aö
vera þétt gegn vatni í fljótandi
ástandi, en hleypa raka i
loftkenndu ástandi auöveldlega í
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
Viljir þú verja hús þitt skemmdum
skaltu mála meö
STEINVARA 2000.
stjórnarinnar, yrðu auglýst til
sölu um miðjan september.
Á fundi með fréttamönnum í gær
kvaðst Balladur ekki enn hafa tekið
ákvörðun um, hvaða fyrirtæki af
þeim 65, sem áformað væri að selja
á næstu fimm árum, yrðu þau
fyrstu, sem seld yrðu í hendur
einkaaðilum. En hver sem þau yrðu,
þá sagðist hann vona, að sölukjörin
þar yrðu höfð sem „fyrirmynd", að
því er snerti þau fyrirtæki, sem
seld yrðu síðar.
Haft er eftir heimildum innan
stjórnarinnar, að á lista yfir þau
fyrirtæki, sem helzt komi til greina,
séu tvær iðnaðarsamsteypur, tveir
bankar, tvö tryggingafyrirtæki og
tvö móðurfyrirtæki annarra hluta-
félaga. Fyrirtæki þessi verði síðan
endanlega sett í sölu í lok þessa árs.
Sá orðrómur hefur verið á kreiki,
að Saint-Gobain SA, sem framleiðir
gler og byggingavörur, yrði líkleg-
ast fyrir valinu úr hópi iðnfyrirtækj-
anna, en Groupe des Assurances
Nationales og Ássurances Genera-
les de France væru líklegast á meðal
tryggingafyrirtækjanna. Þá væru
Credit Commercial de France og
Societe Generale efstir á listanum
yfir þá banka, sem seldir yrðu.
Katólska kirkjan í Póllandi hefur
undanfarin ár barist fyrir því að
fólk haldi sig algerlega frá áfengis-
neyslu í ágústmánuði og hafa
prestar brýnt það fyrir sóknar-
börnum sínum við guðsþjónustur.
Voru mótmælin skipulögð af kirkj-
unni og stuðningsmönnum hinnar
útlægu verkalýðshreyfingar Sam-
stöðu. Kirkjan og hið opinbera hafa
miklar áhyggjur af auknum
drykkjuskap í Póllandi.
Mótmæli voru einnig fyrir fram-
an aðra áfengisverslun í Varsjá og
við að minnsta kosti tíu áfengissöl-
ur í borginni Gdansk. Lögreglan
hafði engin afskipti af þessum mót-
mælum. Sams konar mótmæli voru
einnig höfð í frammi í ágústmánuði
á síðasta ári. Sækja verður um leyfi
til ríkisvaldsins í Póllandi fyrir mót-
mælastöðum.
Sala á bandarísku gnlli
kæmi illa við Suður-Afríku
Gullsalan meðal þeirra refsiaðgerða, sem utan-
ríkismálanefnd öldungadeildarinnar mælir með
Washingfton, AP.
Utanríkismálanefnd öld-
ungadeildar Bandaríkjaþings
samþykkti í síðustu viku með
15 atkvæðum gegn 2 að heimila
sölu á hluta af gullbirgðum
ríkisins. Er þetta liður í refsiað-
gerðum gegn Suður-Afríku,
sem nefndin hefur samþykkt.
Stuðningsmenn þessa hafa þó
viðurkennt, að þeir eigi mjög
erfitt með að meta í heild þær
efnahagslegu afleiðingar, sem
gullsalan kunni að hafa í heild.
Fyrirhugaðar refsiaðgerðir, sem
nefndin mælir með, felast fyrst
og fremst í banni við kola- og
stálsölu til Suður-Afríku, flugvél-
ar þaðan eiga ekki að fá lending-
arleyfi í Bandaríkjunum, bann
verður lagt við frekari fjárfesting-
um bandarískra fyrirtækja í
Suður-Afríku, en auk þess verður
Reagan forseta heimilað að selja
af gullbirgðum Bandaríkjanna.
Gullsölunni er ætlað að knýja
fram verðlækkun á heimsmark-
aðsverði á gulli. Suður-Afríka er
einn helzti gullútflytjandi heims,
en Sovétríkin selja einnig m.kið
af gulli. Lægra heimsmarkaðs-
verð myndi því draga úr tekjum
beggja þessara landa af gullsöl-
unni.
Áhrifamiklir aðilar í bandaríska
gulliðnaðinum eru þessu hins veg-
ar algerlega mótfallnir og segja,
að þetta geti haft í för með sér,
að endir verði bundinn á rekstur
gullnáma í Bandaríkjunum sjálf-
um. Jafnframt sé alls ekki ljóst,
hverjar afleiðingamar verða á
gullmarkaði í Bandaríkjunum eða
heimsmarkaðinum í heild.
Mark Helmke, aðstoðarmaður
Richards Lugar, formanns utan-
ríkismálanefndarinnar hefur sagt,
að þessi hugmynd hafi fyrst kom-
ið upp, eftir að brezka tímaritið
Economist fitjaði upp á henni 19.
júlí sl.
Economist, sem til skamms
tíma var andvígt refsiaðgerðum,
hélt því fram, að Suður-Afríka
gæti komizt yfir flestar refsiað-
gerðir, en bætti síðan við: „Áhrifa-
mesta og hraðvirkasta ráðstöfun-
in yrði að hóta lækkun á
heimsmarkaðsverði á gulli.“ Hélt
blaðið því fram, að tilkynningin
ein um sölu á bandarísku gulli
myndi snarminnka tekjur Suður-
Afríku af gullsölu, „áður en
klukkustund væri liðin.“
Helmke kvaðst hafa það eftir
Lugar og öðrum meðlimum utan-
ríkismálanefndai'innar, að þeir
teldu þetta vera „athyglisverða
hugmynd" og eftir nokkrar
vangaveltur samþykktu þeir að
taka hana með' í hugsanlegar
refsiaðgerðir gegn Suður-Afríku.
Frumvarpið verður nú að fara
fyrir öldungadeildina og síðan til
þingnefndar, þar sem reynt verður
að samræma það frumvarpi því,
sem fulltrúadeild þingsins hefur
þegar samþykkt.
Reagan forseti lýsti því yfir í
ræðu fyrir nokkrum vikum, að
hann væri andvígur refsiaðgerð-
um gegn Suður-Afríku og sagði,
að þær myndu hafa öfug áhrif
miðað við það, sem þeim væri
ætlað. Forsetinn sagði hins vegar
ekkert um, hvoix hann hygðist
beita neitunarvaldi, ef þingið sam-
þykkti slíkar aðgerðir.
ÓSA/SIA