Morgunblaðið - 07.08.1986, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1986
27
Hrapaði niðurágötu ímiðri Mexíkóborg
Þessi mynd er tekin í Mexíkóborg í síðustu viku eftir að tveggja hreyfla Cessna hafði hrapað niður
á fjölfarna götu í miðborginni. A.m.k. sex manns létu lífið og enn fleiri hlutu meiðsl eða fengu
taugaáfall. Fjórir bílar gereyðilögðust.
Bandaríska flugfélagið Delta:
Neitaði alnæmissjúklingi
um far án fylgdarmanns
San Francisco, AP.
SAMTÖK, sem vinna í þágu alnæmissjúklinga, ætla að skora á fólk
að ferðast ekki með bandaríska flugfélaginu Delta, biðjist félagið
ekki afsökunar á að hafa neitað alnæmissjúklingi um flugfar nema
í fylgd með aðstoðarmanni.
Samtökin, sem hafa höfuðstöðv-
ar sínar í San Francisco, krefjast
George Bush
þess einnig, að Delta gefi út opin-
bera yfírlýsingu um, að alnæmis-
sjúklingurh sé velkomið að ferðast
með flugvélum félagsins, að sögn
Ken McPherson, varaformanns
samtakanna.
„Mark Sigers var beðinn um að
yfirgefa eina af farþegaþotum
Delta sl. þriðjudag, af því að hann
þurfti sérstakrar umönnunar við á
leiðinni, en hafði ekki aðstoðarmann
í för með sér,“ sagði talsmaður fé-
lagsins, Bill Berry. „En honum var
ekki vísað frá vegna þess að hann
væri alnæmissjúklingur."
McPherson sagði, að Sigers hefði
raunverulega verið neitað um þjón-
ustuna, vegna þess að andlit hans
og líkami væru þakin sarkmeinssár-
um, sem eru einkenni alnæmissjúk-
dómsins. „Fólk er ekki vant að sjá
sjúklinga, sem haldnir eru alnæmi,"
sagði hann. „Það er ekki beint fög-
ur sjón. En við erum hneyksluð á
því harðhnjóskulega tillitsleysi, sem
þarna var sýnt.“
Bush
snýr
heim
Washington, AP.
VARAFORSETI Bandaríkjanna,
George Bush, kom heim úr 10
daga ferðalagi um Miðaustur-
lönd á miðvikudag. Hann sagði
að hann hefði haft mikið gagn
af viðræðum við leiðtoga þeirra
ríkja, er hann heimsótti, og að
nú hefðu Bandaríkin tækifæri til
þess að eiga frumkvæði að varan-
legum friði fyrir botni Miðjarð-
arhafs.
Bush ræddi við fréttamenn á leið
heim frá Kaíró, og sagði að það
gerðist ekki oft nú á dögum, að
hægt væri að fá stjórnir þriggja
ríkja til þess að fallast á eitthvað,
„ ... en ég er sannfærður um að
það sé nægur grundvöllur fyrir þró-
un í friðarátt".
Talsmaður Bush, Marlin Fitz-
water, sagði að vart hefði orðið
aukins sveigjanleika Israela, en að
viðbrögð Husseins Jórdaníukon-
ungs hefðu verið óljós.
Borgaryfirvöld í Moskvu:
Boðaðar umbætur og
herferð gegn spillingu
EF BORIS Yeltsin, hinum nýja leiðtoga Moskvudeildar sovéska
kommúnistaflokksins, tekst að koma hugmyndum sínum í fram-
kvæmd, má vænta mikilia breytinga í Moskvu á næstu árum.
Yeltsin, sem einnig gegnir stöðu borgarstjóra, hefur boðað her-
ferð umbóta þar sem Mo$kva er langt frá því að geta talist
fyrirmyndarborg sósíalismans að hans mati. Sjálfur hefur hann
sagt að ástandið í húsnæðis- og heilbrigðismálum sé öldungis
óviðunandi og að nauðsynlegt sé að uppræta spillingu og dug-
leysi meðal þegnanna.
Yeltsin tók við embætti af Viktor
Grishin sem lét af störfum í des-
ember á síðasta ári og átti að
baki fremur vafasaman feril.
Yeltsin er talinn dyggur fylgis-
maður Mikhail Gorbachevs, leið-
toga Sovétríkjanna, og greinilegt
er að hann hyggst hrinda umbóta-
hugmyndum leiðtogans í fram-
kvæmd.
Boris Yeltsin hefur sagt að yfir-
völdum beri að einbeita sér að
heilbrigðismálum en skortur á
sjúkrarúmum hefur lengi loðað
við Moskvuborg. Þá telur hann
að yfirvöldum beri að ráðfæra sig
við borgarbúa áður en ráðist er í
að rífa gamlar byggingar til þess
að rýma fyrir forljótum fjölbýlis-
húsum.
Milljónir Sovétborgara æskja
þess að fá að flytjast til höfuð-
borgarinnar. Frá árinu 1970 hafa
700.000 verkamenn frá lands-
byggðinni flutt þangað og telur
Yeltsin þessa þróun mjög óæski-
lega. Þeir sem fá leyfi yfirvalda
til að flytjast búferlaflutningum
þurfa í staðinn að vinna í fimm
til sjö ár í verksmiðjum Moskvu-
borgar.
Yeltsin hefur sagt að flytja
verði 128 verksmiðjur frá Moskvu
fyrir árið 1990 en þar með munu
40.000 iðnverkamenn missa vinn-
una. Skriffinnarnir eru ekki
lengur öruggir um störf sín því
nú þegar hafa 74 starfsmenn
flokksins í Moskvu verið reknir.
Yeltsin er einkum umhugað um
að bæta úr matvælaskortinum
sem hann hefur nefnt „skömm
Moskvuborgar". Skorturinn
stafar einkum af lélegri stjómun
og takmörkuðu geymsluplássi. Þá
hnupla starfsmenn verslana mat-
vælum og selja þau á svörtum
markaði.
Víst er að Boris Yeltsin á ærið
verk fyrir höndum. Honum mun
þó reynast auðvelt að grípa til
óvinsælla aðgerða því ólíkt starfs-
bræðrum sínum á Vesturlöndum
þarf hann ekki að leita eftir hylli
borgarbúa.
HANDBÆKUR
TÖLVUORÐ
°9
unnrn (rddfoikv* utn *oIwjí
I ' •. lölVUfMOMAN
Tölvufræðslan hefur gefið út eftirfarandi
tölvubækur:
Þýðingar ásamt skýringum á 900 algengum tölvuorðum.
Ennfremur fylgja viðaukar um stýrikerfið MS-DOS, IBM-PC
lyklaborð o.fl.
MULTIPLAN
Vönduð handbók í notkun töflureiknisins Multiplan.
Með bókinni fylgir disklingur með ýmsum gagnlegum
líkönum t.d. skattaútreikningi, fyrningaskýrslum, fjár-
hagsáætlunum, víxlum, verðbréfum o.fl.
WORD
Handbók í notkun ritvinnslukerfisins WORD ásamt
æfingum í notkun kerfisins.
Þessi rit eru öll til sölu hjá Tölvufræðslunni Ármúla
36. Sendum ennfremur út á land í póstkröfu.
Athugið: NemendurTölvufræðslunnarfá 30% afslátt.
Ármúla 36, Reykjavik.
Blaðburöarfólk
óskast!
ÚTHVERFI
Álfheimar
Skeiðarvogur
Kleppsvegur 3-38
Laugarásvegur 39-
AUSTURBÆR
Njálsgata
Plö1T0iIluWít^Í^
NÝTT SÍMANÚMER
69-11-00
Auglýsingar 22480 • Afgreiðsla 83033