Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.08.1986, Qupperneq 31
f MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 7. AGUST 1986 31 Að lokinni göngn friðarsamtaka á þriðjudagskvöld var logandi kertum fleytt á Tjörninni. í frétt samtak- anna segir að á þeim hafi logað furðanlega vel þrátt fyrir súld og rigningu. Minntust Hiroshimasprengj- unnar með friðargöngu Samstarfsnefnd Friðarhreyf- inga stóð fyrir göngu milli sendiráða Bretlands, Banda- ríkjanna, Frakklands, Kína og Sovétríkjanna á þriðjudagskvöld til að minnast þess að 41 ár er liðið frá því að kjarnorku- sprengju var varpað á Hiro- shima. Göngumenn afhentu sendiráðunum áskorun og gengu síðan niður að Tjörninni, þar sem flutt voru ávörp og kertum fleytt á vatninu. Áskorunina undirrituðu fulltrúar 8 friðarsamtaka. Þar segir orðrétt: „Þjóðir heims þurfa að nýta friðar- árið til að hefla einarða baráttu fyrir friði og afvopnun á grundvelli stefnu Sameinuðu þjóðanna um kjamorkuvopnalaus svæði. Um leið og íslenskir friðarsinnar skora á íslensk stjórnvöld að snúast alstaðar og ævinlega gegn kjarnorkuvíg- búnaði og lýsa yfir fullum stuðningi við tillöguna um kjarnorkufriðlýst Norðurlönd, skorum við á frönsk, bresk, bandarísk, sovésk, kínversk stjómvöld að stöðva nú þegar fram- leiðslu kjarnorkuvopna og hætta tilraunum með þau.“ Myndlistar- sýning í Hveragerði Sigurður Sólmundarson mynd- listarmaður opnar sjöundu sýningu sina á morgun í Félags- heimili Olfusinga í Hveragerði. Sýningin verður opnuð kl. 16 og lýkur kl. 20. Síðan verður opið alla daga frá kl. 14 til 22 fram til 17. ágúst. Á sýningunni verða um 40 verk af ýmsu tagi og er hún tileinkuð 40 ára afmæli Hveragerðis (Ur fréttatilkynningu). Útimarkaðir í Hólminum Stykkishólmi. . Það fer í vöxt að liafa útimark- aði, þótt þeir standi ekki lengi. Ef gott er veður, þykir fólkinu tilbreyting í því að versla úti í góða veðrinu. Verslunarþjónar hafa þá tilbúinn varning sem helst þjónar sumri og sól og einn- ig algenga og almenna vöru sem gengur allt árið. Vöruhúsið Hólmkjör hf. í Stykk- ishólmi var með vörur á útimarkaði á landareign sinni nú fyrir skömmu og var það skemmtileg nýbreytni. Komu margir bæði að skoða og gera verslun og tók fréttaritari Mbl. þá þessa mynd af örtröðinni. Fánalengjur allavega litar blöktu yfir markaðsstaðnum. Þá leit fréttaritari á leið sinni til Hrafnkels í Húsinu og var hann einnig með sína fána og við að útbúa útimark- að á sínum vörum, enda veðrið til þess. Var hann að raða mununum upp á stórt borð þegar fréttamann bar að garði. Þetta var góð tilbreyting og er ekki að efa að menn kunnu að meta þetta. — Árni HRAUN ÓTRÚLEG ENDING HRAUN - FÍNT hefur mjög góöa viöloöun viö flest byggingarefni og hleypir raka auöveldlega í gegnum sig. Mikið veðrunarþol — stórgóö ending. Vestur-Islend- ingar í heimsókn Hér á landi er nú staddur hópur Vestur-lslendinga sem búsettir eru í Kanada. Vestur-íslendingarnir komu til landsins 1. ágúst og dvelja hér til 21. ágúst. Það er ferðaskrifstofan Viking-travel í Gimli sem sér um ferðir Vestur-Islendinganna í samvinnu við Samvinnu- ferðir/Landsýn sem nokkur undanfarin ár hefur staðið fyrir leigu- flugi milli Islands og Kanada. Að sögn Kristínar Gunnarsdóttur hjá Samvinnuferðum/Landsýn hafa á annað hundrað manns heimsótt ísland nú í sumar, fólk sem gjarnan kemur til að heimsækja ætt- ingja sína á íslandi. Við birtum hér nöfn þeirra sem hér dvelja nú: Thomás Alexanderson, Arborg, Duane Anderson, Grand Forks, Emilia J. Anderson, Grand Forks, Kristjan G. Anderson, Ottawa, Phyllis M. Anderson, Ottawa, Einar Arnason, Winnipeg, Thora Arnar- son, Winnipeg, Mable B. Auch- staetter, Calgary, Elva I. Barnson, Burnaby, Warren Birch, Vancouver, Ima Dinusson, Fargo, Sigridur El- vin, Mississauga, Esther V. Erick- son, Selkirk, Victor E. S. Ericson, Selkirk, Pearl Eyford, Winnipeg, Arngerdur J. Fridriksson, Don Mills, Petur O. Fridriksson, Don Mills, Gudny Gierholm, Gimli, Peral M. Goodmanson, Selkirk, Grace M. Grímson, Qesnel, Martin H. Grímson, Qesnel, Lillian Gudmund- son, Arborg, Victoria Gudmundson, Grand Forks, Laura Gunderson, Selkirk, Anna Hancherow, Calgary, Kirk Hancherow, Calgary, Christ- ine Hannell, Hamilton, Francis Hannel, Hamilton, Dorothy Hatc- her, Toronto, Gudmundur A. Helgason, Arnes, Thora A. Helga- son, Ames, Ken A. Johnson, Edmonton, Lillian R. Johnson, Vancouver, Valdine G. Johnson, Winnipeg, Oloafa Jonasson, Winnipeg, Kristin Juliusson, Ed- monton, Brent A. Kellas, Winnipeg, Bruce D. J. Kellas, Winnipeg, Ro- bert E. Kellas, Winnipeg, Sigrid A. Kellas, Winnipeg, Steven D. J. Kellas, Winnipeg, Sylvie Lacombe, Quebec, Kathryn A. Love, Winni- peg, Anna R. Magnusson, Winni- peg, Janis O. Magnusson, Regina, Stefania Morris, Surrey, Laura 01- afson, Churchbridge, Winnifred Oliver, Vancouver, Mary B. Perfect, Winnipeg, Karen Reppin, Don Mills Lynda Senior, Downsview, Richard Senior, Downsview, Asgeir Sigurd- son, Elfros, Unnur Thomson,-*- Rexdale, Elsa Thor, Winnipeg, Katrín Thor, Winnipeg, Hulda Thorsteinson, Regina, Skuli Thor- steinson, Regina, Gunnar Thorvald- son, Edmonton, Elizabeth Young, Selkii'k, Nelson S. Gerrard, Arborg, Gunnthora Gísladottir, Winnipeg, Elin Hood, Brandon, Oddny T. Jul- iusson, Regina, Gudmundur E. Nordal, Winnipeg, Hermania Nord- al, Winnipeg, Marius Olafsson, Edmonton, Koletta Hancherow, High River. Einleikstónleikar fyrir leiksýningar í tengslum við sýningar Al- þýðuleikhússins á verki Ágústs Strindbergs, „Hin sterkari", hafa verið haldnir tónleikar á undan sýningum. Hingað til hafa komið fram tón- listarmennirnir Kolbeinn Bjamason flautuleikari og Kristinn Ámason gítarleikari. I kvöld, fimmtudaginn 7. ágúst og föstudaginn 8. ágúst mun Snorri Örn Snorrason leika einleik á lútu og samanstendur efn- isskráin af ýmsum lútuverkum frá endurreisnartímanum. Sýningamar eru haldnar í Hlað- varpanum, Vesturgötu 3, og opnar húsið kl. 20.30, en tónleikamir he§- ast um hálftíma síðar og lýkur um 21.30, þegar leiksýning hefst. (Ur fréttatilkynningu.) ARHARHÓLL Á horni Ingólfsstrætis og Hverfisgötu. Borðapantanir í sima 18833. Útimarkaður í Stykkishólmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.