Morgunblaðið - 16.08.1986, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 16.08.1986, Qupperneq 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986 atvinna — atvinna —- atvinna — atvinna — atvinna —- atvinna Fóstra Leikskólinn Kátakot á Kjalarnesi óskar að ráða fóstru eða starfskraft með reynslu frá og með 1. september. Umsóknarfrestur er til 25. ágúst. Upplýsingar í síma 666039 milli kl. 8-13. Forstöðukona. Ertu kennari? — Viltu breyta til? Hvernig væri þá að athuga alla möguleika á því að gerast kennari í Grundarfirði? Grunnskólinn í Grundarfirði er að stærstum hluta í nýlegu húsnæði. Hann er ágætlega búinn tækjum með góðri vinnuaðstöðu kenn- ara ásamt góðu skólasafni. Bekkjardeildir eru af viðráðanlegri stærð (12-14 nemendur) en heildarfjöldi nemenda er 150. Sértu að hugsa um að slá til þá vantar kennara í almenna bekkjarkennslu og til kennslu í líffræði, eðlis- fræði, stærðfræði, ensku, dönsku og handmennt (hannyrðir og smíðar). Ennfrem- ur til kennslu á skólasafni (hálft á móti hálfu starfi á bókasafni). Ódýrt húsnæði í boði. Grundarfjörður er í fögru umhverfi í u.þ.b. 250 km fjarlægð frá Reykjavík. Þangað eru daglegar ferðir með áætlunarbifreiðum og flug þrisvar í viku. Viljir þú kynna þér málið þá sláðu á þráðinn. Skólastjórinn Gunnar Kristjánsson sími 93- 8637 eða 93-8802 og varaformaður skóla- nefndar Sólrún Kristinsdóttir sími 93-8716 gefa allar nánari upplýsingar. Skólanefnd. Gæðaeftirlit Óskum að ráða starfsmann til að annast gæðaeftirlit á rannsóknarstofu okkar. Allar nánari upplýsingar veittar á staðnum, ekki í síma. Málningarverksmiðja Slippfélagsins, Dugguvogi 4. C> Kennarar Tvær lausar kennarastöður við Grunnskól- ann Eiðum, sem er heimavistarskóli. Ódýrt húsnæði, góðir tekjumöguleikar. Upplýsingar gefur Sigtryggur Karlsson, sími 97-3828 og formaður skólanefndar Kristján Gissurarson, sími 97-3805. Skrifstofustarf í Kópavogi Maður eða kona óskast til almennra skrif- stofustarfa. Lítilsháttar tölvuþekking nauð- synleg. Tilboð leggist inn á augldeild Mbl. fyrir 26. ágúst merkt: „S — 3098“. Kennarar v Tvær kennarastöður eru lausar við Alþýðu- skólann á Eiðum. Æskilegar kennslugreinar danska, þýska, stærðfræði og viðskipta- greinar. Ódýrt húsnæði fyrir hendi. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 91- 612342 næstu daga. Skólastjóri. Álftanes Blaðbera vantar á Suðurnesið. Upplýsingar í síma 51880. jntogmililfifeft Hjúkrunarheimilið Sólvangur auglýsir eftirtaldar stöður lausar nú þegar eða eftir nánara samkomulagi. Stöður hjúkrunarfræðinga Um hlutastörf er að ræða. Stöður sjúkraliða Fullt starf — hlutastarf. Stöður starfsfólks við aðhlynningu Fullt starf — hlutastarf. Stöður starfsfólks við ræstingu Hlutastarf. Nánari upplýsingar gefur hjúkrunarforstjóri í síma 50281. Kennarar Kennara vantar að Grunnskóla Blönduóss næsta vetur. Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í símum 95-4229 og 95-4114. Skólanefnd. RAFMAGNSVEITUR RÍKISINS Skrifstofumaður Auglýsum laust til umsóknar starf skrifstofu- manns. Starfið felst að mestu leyti í sendiferðum auk almennra skrifstofustarfa. Þarf að hafa bílpróf. Laun eru samkvæmt kjarasamning- um B.S.R.B. og ríkisins. Upplýsingar um starfið eru veittar hjá deild- arstjóra starfsmannahalds. Rafmagnsveitur ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík. Ræsting Fyrirtæki í austurbænum vill komast í sam- band við áræðanlega aðila til að ræsta um 1300 fm verslunar- og skrifstofuhúsnæði. Tilboð leggist inn á augldeild Mbl. fyrir 20. ágúst nk. merkt: „K — 294“. Tónmenntakennara vantar að Barnaskólanum á Selfossi. Tón- mennt yngri barna og kórstarf. Upplýsingar hjá skólastjóra í síma 99-1498. Skólanefnd. Matsölustaður óskar eftir stúlku í hálfs dags starf. Yngri en 25 ára koma ekki til greina. Tilboð sendist á augld. Mbl. fyrir 24. ágúst merkt: „M - 3100“. Hella Umboðsmaður óskast til að annast dreifingu og innheimtu fyrir Morgunblaðið á Hellu. Upplýsingar hjá umboðsmanni í síma 5035 og hjá afgreiðslunni í Reykjavík í síma 91- 83033. pJnrgwimMftfoiífr Bankastofnun óskar eftir að ráða innanhússendil strax. Umsóknir sendist augldeild Mbl. fyrir 20. ágúst nk. merktar: „B — 3099“. Veitingahús Viljum ráða ungt og efnilegtfólk í eftirtalin störf: * Ræstingu og uppvask. Vinnutími virka daga 8.00-16.00. * Matreiðslumann m/góða reynslu . * Aðstoðarkokk, starfsreynsla æskileg. * Framleiðslufólk í sal, starfsreynsla. Krákan er frakkur veitingastaður sem leggur áheyrslu á framandi rétti og frumlega. Hring- ið eða komið. Krákan, Laugavegi 22, Sími 13628. Víðistaðaskóli kennarastaða Kennara vantar til almennrar kennslu í 12 ára bekk í Víðistaðaskóla, Hafnarfirði. Um er að ræða heila stöðu. Upplýsingar gefur skólastjóri í síma 52911 eða 651511. Fræðsluskrifstofa Hafnarfjarðar. Útgáfufyrirtæki í Múlahverfi óskar eftir að ráða í eftirtaldar stöður: 1. Símavörslu og vélritun. 2. Tölvu- og spjaldskrárvinnslu. Reglusemi og stundvísi áskilin. Umsóknir sendist inn á augld. Mbl. fyrir 21. ágúst merkt: „Ú - 3095“. Öllum umsóknum svarað. Verkfræðingar Staða forstöðumanns tæknideildar hjá Vita- og hafnarmálaskrifstofunni er laus til um- sóknar. Starfið felur í sér að hafa yfirumsjón með áætlanagerð, hönnun og framkvæmdum við hafnargerð. Við mat á umsækjendum verður því m.a. lögð áhersla á reynslu og hæfni í áætlanagerð og stjórnun. Skrifleg umsókn þar sem fram komi upplýs- ingar um aldur, menntun og fyrri störf sendist samgönguráðuneytinu. Vita- og hafnarmálaskrifstofan, Seljavegi 32.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.