Morgunblaðið - 16.08.1986, Page 32

Morgunblaðið - 16.08.1986, Page 32
32 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 16. ÁGÚST 1986 SKESSUJURT Livisticum officinale Skessujurtin, sem sumir kalla „Maggi-jurt“, er ljölær, beinvaxin og harðger jurt, sem þrífst ágæt- lega hérlendis og prýði er að í hverjum garði. Hún er stinn og vindþolin þó hún sé há, verður á annan metra á hæð, gljáandi tviQaðurskipt blöð og er blað- fögur, enda er blaðskrúðið hennar mesta prýði. Blómin eru smá, gulleit, í sveipum og ekki sérlega ásjáleg. Skessujurtin er feikidugleg þegar hún er búin að ná sér á strik á annað borð og þarf þá lítið fyrir henni að hafa nema gefa henni áburð á vorin þegar hreins- að er til og virðist hún geta dafnað vel þótt lítt sé að henni hlúð. Skessujurtin er það blaðfalleg að hvað útlit snertir stendur hún vel fyrir sínu og sómir sér prýðisvel t.d. sem bakgrunnur í breiðu beði eða í sambýli við runna. En hún hefur fleira til síns ágætis en dugnaðinn og fallegt útlit. Hún er að mínu viti einhver sú ágæt- asta kryddjurt sem völ er á hérlendis. Á vorin og frameftir sumri ilma blöðin og smakkast BLÓM VIKUNNAR 16 Umsjón: Ágústa Björnsdóttir eins og fínt karrý, síðsumars líkist bragð þeirra blöndu af karrýi, selleríi og steinselju. Það er ákaf- lega handhægt að geta skroppið út í garðinn sinn á sumrin og náð sér í slíkt ferskt og gott krydd í súpur, sósur, kjötrétti o.fl. Það þarf ekki stórt blað til þess að gefa gott bragð og fljótlegt er að skola það, klippa niður, setja það í matinn og lofa því að sjóða með dálitla stund, en bragðið segir til sín. Á haustin er upplagt að safna blöðum af skessujurtinni, þurrka þau svo vel að þau molni og geyma síðan í þéttum ílátum. Þannig notast hún allt árið og óþarfí er að kaupa aðrar súpujurtir. Best er að taka blöð til þurrkunar áður en þau fara að láta á sjá á haust- in. Skessujurtin er mikið notuð í pakkasúpurnar vinsælu. Rót skessujurtarinnar var hér áður fyrr notuð til lækninga. Rót af gömlum plöntum var þá tekin upp að vori og þurrkuð. Ein tesk. af rótinni á móti einum bolla af vatni er soðið í 3 mínútur. Síað. Drukknir 3 bollar af seyðinu á dag. Talið hjarta- og taugastyrkj- andi og einnig gott við þvagteppu. Skessujurtin hefur sem sagt margt sér til ágætis og þó hún sé dálítið fyrirferðarmikil er hún vel þess virði að gefa henni rúm f garðinum. Henni má fjölga með skiptingu og einnig má sá til henn- ar. Sigurlaug Árnadóttir, Hraunkoti. Hugað að stórri og stæðilegri skessujurt i garði á Akranesi. Útlit fyrir að kvótinn verði að vera áfram - segir Kristján Ragnarsson formaður LIU KRISTJÁN Ragnarsson formaður Landssambands íslenskra útvegs- manna tékur undir sjónarmið sjávarútvegsráðherra í kvótamálinu og lýsir sig fylgjandi áframhaldandi kvótakerfi i fiskveiðunum. Hann segist ekki sjá annað en að forsendur kvótakerfisins verði áfram til staðar, auk þess sem menn séu farnir að aðiaga sig kerf- inu og sætta sig bctur við það en áður var. „Ég aðyllist þó í vaxandi mæli þau sjónarmið að kvótakerfið þurfi að vera ákveðið til langs tima og að fiskveiðiréttindin verði gerð betur framseljanleg til að kerfið njóti sín,“ sagði Kristján í samtali við blaðamann Morgnn- blaðsins. Ekki ástæða til að setja kvóta á úthafsrækjuna Núgildandi lög um stjómun físk- veiðanna gilda einnig fyrir næsta ár, en í lögunum er ákvæði um að stefnan fyrir næsta ár verði endur- skoðuð fyrir 1. nóvember næstkom- andi. Halldór Ásgrímsson sjávarút- vegsráðherra hélt í vikunni samráðsfund með sjávarútvegs- nefndum Alþingis og hagsmunaað- ilum í sjávarútvegi vegna þessarar endurskoðunar. Kristján Ragnars- son sagði að Hafrannsóknastofnun hefði lagt til að heimilað yrði að veiða sama aflamagn á næsta ári og í ár. Nú stæði yfír endurskoðun á þessu áliti, en ekki væri búist við miklum breytingum frá fyrri áætl- unum. Kristján sagði að í Ijósi þessa teldu menn ekki ástæðu til neinna meiriháttar brejrtinga nú, en staðan endurmetin á næsta ári. Komið hefur til tals að setja kvóta á úthafsrækjuveiðar, þannig að þær reiknist inn í kvótann að hluta eða öllu leyti. Ástæðan er sú að þeir sem standa að sérhæfðum úthafs- rækjuskipum óttast um sinn hag vegna stóraukinnar rækjuveiði ann- arra skipa. Aðspurður um þetta sagði Kristján að á fundinum hefði það komið fram að Hafrannsóknar- stofnunin teldi sig ekki hafa ástæðu til að takmarka úthafsrækjuveið- arnar, miðað við þær upplýsingar sem fyrir lægju. „Ég tel ekki koma til greina að takmarka rækjuveið- arnar nema fiskifræðilegar ástæður krefjist þess, þó auðvitað geti kom- ið að því ef sóknin héldur áfram að aukast jafn mikið og að undan- förnu," sagði Kristján. Hann sagði að veiðarnar hefðu gengið einstak- lega vel undanfarnar vikur þrátt fyrir þessa miklu sókn. Kostir kvótakerfis- ins ótvíræðir Almennt um kvótakerfið og reynsluna af því sagði Kristján: „Þegar kvótakerfið var sett á í upphafi taldi ég ekki annað fært vegna fregna um ástand fiskistofn- anna. Mér sýnist nú að kostir kvótakerfisins séu ótvíræðir: Við höfum sparað útgerðarkostnað. Við höfum nýtt aflann betur og fengið meiri verðmæti út úr honum. Við höfum aukið sóknina í vannýtta fiskistofna. Allt hefur þetta orðið til að gera Jressa atvinnugrein hag- kvæmari. Ég tek því undir það með sjávarútvegsráðhen-a að kvótakerf- ið verði að vera áfram, miðað við þann fiskiskipaflota sem við eigum í <iag. Ég sé ekki annað en að forsend- ur kvótakerfisins verði áfram til staðar, auk þess sem mér fínnst að allir séu farnir aðlaga sig þessu kerfi til að ná sem mestum árangri í því. Hættir að gcra ráð fyrir að gefíð verði eftir. Þá hefur gagmýni útgerðarmanna og sjómanna á kvótakerfíð minnkað. Ég aðhyllist þó í vaxandi mæli þau sjónarmið að kvótakerfið þurfí að vera ákveð- ið til langs tíma og að fiskveiðirétt- indin verði gerð betur framseljanleg til að kerfíð njóti sín.“ Á samráðsfundinum kom til tals vandi einstakra byggðarlaga, svo sem Suðurnesja og tírundarfjarðar. Aðspurður um þetta sagði Kristján meðal annars: „Þetta eru byggðar- Kristján Ragnarsson formaður og framkvæmdastjóri Landsam- bands íslenskra útvegsmanna. sjónarmið sem eiga ekkert skylt við kvótakei'fíð. Rætt er um að skip hafi verið seld frá þessum stöðum og kvótinn farið með þeim. Það er í sjálfu sér alveg rétt, en það gerist bara hvort sem við búum við kvóta- kerfí eða ekki að aflinn fylgir fískiskipunum þegar þau eru keypt til staðanna og seld þaðan. Það hlýtur ávallt að vera réttur eigenda skipanna að ráðstafa kvótanum, en ekki annarra. Kvótakerfíð er sett á samkvæmt lögum og er aflanum skipt upp eftir þeim. Ráðherra hef- ur því ekki einhvern aukakvóta ofan í skúffu hjá sér til að úthluta út og suður enda væri það ekki æski- legt að hann hefði slíkt vald.“ Ferskfiskmarkaðurinn jafngildur og hver annar Isfísksölur bar einnig á góma á fundinum. „Menn eru að blanda sölu á ferskum fiski saman við kvótakerfið á sama hátt og sölu fískiskipanna á milli staða. Ég tel að þetta hafí ekki áhrif, menn eru bara að reyna að gera sem mest verðmæti úr aflanum. Fyrstu sjö mánuði ársins voru seld 32.700 tonn af ísfiski í Bretlandi og er aukning- in talsverð á milli ára, þó enn sé þetta takmarkaður hluti af heildar- afla okkar - verður innan við 10% af botnfiskaflanum í ár. Þetta hefur verið gagnrýnt, og sagt að við séum að flytja vinnuna úr landi. Niður- staða Þjóðhagsstofnunar er þó sú að ísfískútflutningur gefi jafn mikil verðmæti á hvert kíló hráefnis og útflutningur frysts físks. Þetta sýn- ir að útflutningur fersks fisks er þjóðhagslega jafn þýðingarmikill. Með þessu er ég ekki að segja að við eigum að auka hlutfall fersk- físksins í útflutningnum, heldur að þetta er jafngildur markaður og hver annar og að við eigum að selja fískinn þar sem hagstæðast er, en vera ekki fyrirfram með fullyrðing- ar um að einn markaður sé öðrum betri eða ein vinnsluaðferð öðrum betri.“ — Hvað um Bandaríkjamarkað- inn. Óttast þú ekki að við getum tapað þar markaði með sama áframhaldi? „Það ber að leggja ríka áherslu á að viðhalda stöðu okkar á Banda- ríkjamarkaðnum og hafa langtíma- sjónarmið í huga í því efni, þó einnig verði að taka tillit til breytinga sem verða á mörkuðunum. I Banda- ríkjunum er og verður okkar mikilvægasti markaður en við meg- um ekki ekki einskorða okkur við einn markað á kostnað annars. Það eru til dæmis ekki nema tvö ár síðan við vorum í erfíðleikum með að selja allt það sem framleitt var fyrir Bandaríkjamarkaðinn. Núna eru einnig erfíðleikar að fá unninn fisk fyrir Sovétríkin. Vegna gengisþróunarinnar hafa opnast svo margir aðrir markaðir, sérstaklega í Evrópu og Japan, og því má ekki stýra framleiðslunni í of miklum mæli inn á ákveðna markaði eins og gert hefur verið." Af koman hefur breyst til batnaðar Að undanförnu hafa verið fréttir hér í blaðinu um að útgerðin stæði í skilum við Fiskveiðisjóð og væri að grynnka á skuldum sínum við olíufélögin. Kristján var spurður um hag útgerðarinnar í þessu ljósi. „Það hefur breyst til batnaðar í afkomu veiðanna og er staða út- gerðarinnar betri en verið hefur mörg undanfarin ár. Þetta kemur meðal annars fram í því að ekki myndast vanskil vegna fjárfesting- arlána og skuldir við viðskiptavini, meðal annars olíufélögin, minnka. Þetta kemur til af því að tekjurn- ar hafa aukist vegna góðs afla og aukins ferskfiskútflutnings. Þá hef- ur útgerðarkostnaðurinn lækkað vegna olíuverðslækkunar. Loks má geta þess að ekki hefur verið bætt við flotann og tel ég nauðsynlegt að standa mjög gegn því að flotinn verði stækkaður. Verði það ekki gert mun það einungis leiða til lak- ari afkomu útgerðarinnar og þjóðarinnar," sagði Kristján Ragn- arsson. Námskeið í torfhleðslu í Vatnsmýri NÁMSKEIÐ í torfhleðslu verður haldið um helgina í Vatnsmýrinni og stendur það frá kl. 10 til 18 í dag og á morgun. Þátttakendur mæti í mýrinni kl. 10 í dag. Það er Tryggvi Hansen, hleðslu- maður, sem leiðbein'ir þátttakend- Frönsku listf lug- sveitinni seinkaði FRÖNSKU listflugsveitinni, Patrouille De France.sem leika átti listir sínar á Reykjavíkur- flugvelli í gærkvöldi seinkaði og verður sýning hennar kl. 19. í kvöld. Listflugsýning þessi er í tengsl- um við 50 ára afmæli Flugmálafé- lag íslands sem stofnað var 25. ágúst 1936.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.