Morgunblaðið - 19.08.1986, Síða 6

Morgunblaðið - 19.08.1986, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. ÁGÚST 1986 Hún á afmæli blessuð borgin okkar við sundin, þessi friðar- höfn í vondum heimi. Fleiri bæir þessa lands eiga afmæli, fjjrir austan Eskifjörður og vestan Isa^örður. Ríkisfjölmiðlamir sinna að sjálfsögðu hinum merku tímamótum með ýmsu móti. Þannig mættu fréttamenn sjón- varps til leiks bæði á Ísafírði og á Eskifjörð en á sunnudagskvöldið 17. águst er leið að afmælisdeginum mikla var á dagskrá einkennileg af- mælisdagskrá þar sem lýst var 100 ára afmæli frelsistyttunnar, senni- lega hefír hin yfirgengilega flugelda- og leysigeislahátíð ameríkananna átt að koma okkur í hátíðarskap og stilla strengi sálarinnar fyrir hátíðina í litlu borginni okkar við sundin blá. En fleira var á dagskrá sjónvarps á þessu aðfarakveldi, til dæmis brot úr hinni nýju kvikmynd er Reykjavík- urborg fékk Hrafn Gunnlaugsson til að gera í tilefni afmælisins, en sú mynd er nú sýnd í Háskólabíoi. Vona ég bara að myndin verði brátt sýnd í fullri lengd í sjónvarpinu. Sama kveld var líka á dagskránni, Kvöld- stund með listamanni, en þar ræddi Halldór B. Runólfsson listfræðingur og málarí við myndlistarmanninn Þórð B. Sveinsson, en Þórður heflr lagt fram í málverki og skrifum ýmsar athyglisverðar hugmyndir um framtíðarskipulag höfuðborgar okk- ar. Hugmyndir Þórðar Ben virðast svolítið loftkenndar við fyrstu sýn en málverkin yndisfögur og hver veit nema hugsýn listamannsins nái einhvers staðar rótfestu? En meir um hátíðardagskrá sjónvarps síðar. Það er af svo mörgu að taka í hátíðardagskrá útvarpsins að ég veit bara ekki hvar byrja skal. Er máski við hæfí að byija á því að minnast á messu í Neskirkju er hljómaði síðastliðinn sunnudag. þar flutti borgarstjórinn okkar, Davíð Odds- son, predikun og lýsti á lifandi hátt þeim miklu umskiptum er hafa orðið á lífskjörum borgarbúa í tímans rás þannig að vart myndi nokkur einasti íbúi borgarinnar við sundin fyrir svo sem tvö hundruð árum hafa náð yfir hin skilgreindu fátæktarmörk dags- ins í dag. Stundin í Neskirkju var hátíðleg og eftirminnileg. Síðar þennan sama dag var Svav- ar gests að venju með á rás 1 þátt sinn Alltaf á sunnudögum, en í þess- um þáttum velur Svavar, býr til flutnings og kynnir efni úr gömlum útvarpsþáttum. Að þessu sinni valdi Svavar upptökur frá fundum Reykjavíkurfélagsins, en sumar af þessum upptökum hafa aldrei heyrst áður í útvarpi, til dæmis upptakan af ræðu Bjama Jónssonar vígslubisk- ups. Einstakur ræðumaður Bjami og það var eftirtektarvert hversu óþvingaðir áheyrendumir virtust vera í návist þessa fyrsta heiðurs- borgara Reykjavíkur. Nú, og ekki má gleyma þætti Svæðisútvarps Reykjavíkur og ná- grennis í hátíðarhöldunum, en þeir svæðisútvarpsmenn hafa kynnt vel og rækileg öll hátíðarhöldin, undir- búning þeirra og kvatt í þulastofu Qölda manna að ræða um afmælis- veisluna. Hátíðarfundurinn í borgar- stjóm í gær var einkar hátíðlegur, en þar fluttu borgarfulltrúar ávörp í tilefni dagsins. Þótti mér athyglis- verð ræða Ingibjargar Sólrúnar þar sem hún minntist á mæður Reylqaví- kur er hún taldi að mættu ekki hverfa í skuggann fyrir hinum marg- nefndu feðrum borgarinnar. Þá fylgdust þeir svæðisútvarps- menn með opinberri heimsókn forseta íslands, Vigdísar Finnbogad- óttur, til höfuðborgarinnar. Sannar- lega stór stund og allir í afmælisskapi er forseti vor flutti hátíðarræðuna í sölum borgarstjómar Reykjavíkur. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/ SJÓNVARP A hringveginum: Utvarpað úr Norðurárdal ■^■■1 Umsjónarmenn -| (T 20 þáttarins Á A" hringveginum hafa að undanfömu verið að fikra sig yfir á vestan- vert landið og verða væntanlega komnir til Bif- rastar í Norðurárdal í dag. Það verða þeir Ævar Kjart- ansson og Ásþór Ragnars- son sem munu halda um hljóðnemann næstu daga, en þeir fóstbræður ætla fyrst að leggja ieið sína í Dalina og síðan vestur á Snæfellsnes. Munu hlust- endur geta fylgst með ferðum þeirra gegnum hljóðtæki sín og altént heyrt ef ekki séð það sem fyrir þá félaga ber. Stefán Jökulsson situr svo í þular- stofu á Skúlagötu 4 og grípur inn í framrás mála, en tæknimaður, sem að- stoðar Ævar og Ásþór, er Halldór Gröndal. Barnautvarpið ■■ í dag ætlar 03 Bamaútvarpið “’ að fjalla um af- mælishátíð Reykjavíkur- borgar, farið verður í dýragarðinn, sögugarðinn, þrautagarðinn og fleiri staðir verða heimsóttir. Einnig verður í þættin- um efni frá afmælishátíð Eskifjarðar og að lokum verður fímmti lestur fram- haldssögunnar um Múmí- una sem hvarf eftir Dennis Jiirgen í þýðingu Vem- harðar Linnet. Á morgun er síðan ætl- unin að tileinka þáttinn landnáminu. Gunnar Karls- son sagnfræðingur kemur í heimsókn og fræðir jafnt um það sem allir eiga að vita og það sem færri vita. Umsjónarmenn Barna- útvarpsins eru þær Kristín Helgadóttir og Sigurlaug M. Jónasdóttir. Þeim til aðstoðar em þau Ingibjörg Karlsdóttir og Pétur Snæ- land. Pétur Snæland, Krístín Helgadóttir stjórnandi og Ingibjörg Karlsdóttir. Stuðmenn eru meðal þeirra sem fram eiga að koma á Arnarhóli. U nglingaskemmtun á Arnarhóli H í kvöld ætlar 05 sjónvarpið að “ sjónvarpa beint tónleikum sem haldnir verða á Arnarhóli í tilefni af 200 ára afmæli Reykja- víkurborgar. íþrótta- og tómstundaráð hefur veg og vanda af tónleikunum og er stefnt að ósvikinni tón- listarveislu fyrir unga fólkið. Þar eiga að koma fram hljómsveitirnar Tic Tae, Wunderfools, Greifamir, MX-21 og Stuðmenn. 0 I dagsins önn: Þarfasti þjónn nútímans ■i í þættinum 30 verður stuttlega rakin saga þarf- asta þjónsins í nútíma samfélagi, bifreiðarinnar. Þessi saga er rakin allt frá uppgötvun Súmera á hjól- inu fyrir um 5000 árum, til uxakerru bóndans, hestakerrunnar og loks að bílnum. En þrátt fyrir gagnsemi bílsins hefur hann sínar verri hliðar. Mörg slys af völdum ökutækja og manna bera því glöggt vitni. Jafnframt flnnst einn fylgifiskur, sem alltof lítill gaumur hefur verið gefinn hér á landi, en það er loft- mengunin sem fylgir bílnum. í þættinum í dag verður einmitt fjallað um þennan vágest og hvemig má varast hann. Er ef til vill hreina og tæra loftið sem við stæmm okkur svo af ekki lengur jafnhreint og tært og við höldum? Umsjón Jón Gunnar Grétarsson. ÚTVARP v ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 7.00 Veðurfregnir. Fréttir Bæn. 7.15 Morgunvaktin. 7.30 Fréttir. Tilkynningar. 8.00 Fréttir. Tilkynningar. 8.15 Veöurfregnir. 8.30 Fréttir á ensku. 9.00 Fréttir. 9.05 Morgunstund barn- anna: „Olla og Pési eftir Iðunni Steinsdóttur. Höf- undur les (9). 9.20 Morguntrimm. Tilkynn- ingar. Tónleikar, þulur velur og kynnir. 9.45 Lesiö úr forystugreinum dagblaðanna. 10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir. 10.30 Ég man þá tíö. Her- mann Ragnar Stefánsson kynnir lög frá liðnum árum. 11.00 Fréttir. 11.03 Samhljómur. Umsjón: Þórarinn Stefánsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.30 í dagsins önn — Heilsu- vernd. Umsjón: Jón Gunnar Grétarsson. 14.00 Miðdegissagan: „Fólk á förum" eftir Ragnhildi Ólafs- dóttur. Elísabet Jónasdóttir þýddi úr dönsku. Torfi Jóns- son byrjar lesturinn. 14.30 Tónlistarmaöur vikunn- ar — Björn Thoroddsen. 15.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 15.20 Á hringveginum — Vest- urland. Umsión: Ævar Kjartansson, Asþór Ragn- arsson og Stefán Jökulsson. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veðurfregnir. 16.20 Síödegistónleikar. a. Divertimento fyrir ein- leiksflautu eftir William Alwyn. Christoph Hyde Smith leikur. b. Divertimento fyrir málm- blásara og slagverk eftir Albert Huybrechts. Hljóð- færaleikarar úr Sinfóníu- hljómsveitinni í Liege leika; Julien Ghyoros stjórnar. c. Divertimento nr. 2 eftir Xavier Montsalvatge. Alicia de Larrocha leikurá píanó. 17.00 Fréttir. 17.03 Barnaútvarpiö. Umsjón: Kristín Helgadóttir og Sigur- laug M. Jónasdóttir. 17.45 í loftinu — Blandaöur þáttur úr neysluþjóðfélag- 19.00 Dansandi bangsar. (Das Tanzbaren Márchen). Annar þáttur. Þýskur brúðu- myndaflokkur í fjórum þáttum. Þýðandi Kristrún Þórðardóttir. 19.25 Úlmi. (Ulme). Þriðji þáttur. Sænsk- ur teiknimyndaflokkur um dreng á víkingaöld. Sögu- maöur Arnar Jónsson. Þýðandi Jóhanna Jóhanns- dóttir. (Nordvision — Sænska sjónvarpiö). 19.50 Fréttaágrip á táknmáli. 20.00 Fréttir og veöur. inu. — Hallgrímur Thor- steinsson og Guölaug María Bjarnadóttir. Tilkynn- ingar. 18.45 Veöurfregnir. Dagskrá kyöldsins. 19.00 Fréttir. 19.40 Tilkynningar. 19.45 Daglegt mál. Guðmund- ur Sæmundsson flytur þáttinn. 19.50 Fjölmiölarabb. Ólafur Þ. Haröarson talar. 20.00 Ekkert mál. Ása Helga Ragnarsdóttir stjórnar þætti fyrir ungt fólk. 20.40 Leyndarmál öræfanna. Síðari þáttur Höskuldar Skagfjörð. Lesari með hon- um: Guðrún Þór. 21.05 Perlur. Frank Sinatra og Jack Teagarden leika og 20.30 Auglýsingar og dag- skrá. 20.35 Borgargróöur. Tæknisýning Reykjavíkur hefur látiö gera flokk mynda um hinar svonefndu Tækni- stofnanir borgarinnar. Fyrsta myndin sem sjón- varpið sýnir úr þessum myndaflokki heitir Borgar- gróður og lýsir hún því sem gerist þegar riki náttúrunnar mætir tæknivæddu borgar- samfélagi nútimans. Kvik- myndun: Sigurður Jakobsson. Texti: Ólafur syngja. 21.30 Utvarpssagan: „Sögur úr þopinu yndislega" eftir Sigfried Lenz. Vilborg Rickel Isleifsdóttir þýddi. Guðrún Guölaugsdóttir les (3). 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orð kvöldsins. 22.16 Veðurfregnir. 22.20 Leikrit: „i forsæludal" eftir John M. Synge. Þýð- andi: Einar Ólafur Sveins- son. Leikstjóri: Guðmundur Ólafsson. Leikendur: Valur Gislason, Þóra Friöriksdótt- ir, Jóhann Sigurðarson og Amar Jónsson. (Endurtekið frá fimmtudagskvöldi). 22.50 Berlínarútvarpiö kynnir unga tónlistarmenn. Hátíð- artónleikar af tilefni þess að 40 ár eru liöin frá upphafi Bjarni Guðnason. Lesari: Arnar Jónsson. Hljóðsetn- ing: Kot. 21.05 Unglingaskemmtun á Arnarhóli. Bein útsending frá Reykjavíkurrokki. Tónleikar sem haldnir eru á Arnarhóli í tilefni af 200 ára afmæli Reykjavíkurborgar. iþrótta- og tómstundaráð hefur veg og vanda af hljómleikunum en þar koma fram hljóm- sveitirnar Tic Tac, Wunder- foolz, Greifarnir, MX-21 og Stuðmenn. Dagskrárlok óákveöin. þessara tónleika. Umsjón: Guðmundur Gilsson. 24.00 Fréttir. Dagskrárlok. ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst 9.00 Morgunþáttur i umsjá Ásgeirs Tómasson- ar, Gunnlaugs Helgasonar og Sigurðar Þórs Salvars- sonar. Guðríður Haralds- dóttir sér um barnaefni i fimmtán mínútur kl. 10.05. 12.00 Hlé 14.00 gkammtaö úr hnefa Stjórnandi: Jónatan Garð- arsson. 16.00 Hringiðan Þáttur í umsjá Ingibjargar Ingadóttur. 17.00 i gegnum tiðina Jón Ólafsson stjórnar þætti um íslenska dægurtónlist. 18.00 Dagskrárlok. Fréttir eru sagðar kl. 9.00, 10.00, 11.00, 15.00, 16.00 og 17.00. SVÆÐISÚTVARP REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæðisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni - FM 90,1 MHz. AKUREYRI 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. SJÓNVARP ÞRIÐJUDAGUR 19. ágúst

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.