Morgunblaðið - 19.08.1986, Page 7
sser tp/joá ei WDAomi&ui't .aiaAOfwuofiOM
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 19. AGUST 1986
Sjálf stæðisf lokkurinn:
Fyrsta prófkjöríð á
Vestfjörðum frá 1970
- ekki vitað annað en að þingmenn flokksins og fyrsti varaþingmaður
gefi kost á sér, segir formaður kjördæmisráðsins
Á AÐALFUNDI kjördæmisráðs
Sjálfstæðisflokksins á Vestfjörð-
um síðastliðinn laugardag var
ákveðið að viðhafa prófkjör fyrir
næstu alþingiskosningar og mun
það fara fram dagana 11. og 12.
október nk. Prófkjör hefur ekki
verið haldið á vegum Sjálfstæðis-
flokksins í Vestfjarðarkjördæmi
siðan fyrir alþingiskosningarnar
árið 1971.
„Kjömefnd er starfandi og mun
hún koma saman nú á föstudaginn
og ákveða nánar hvemig að próf-
kjörinu skuli staðið. Það þarf meðal
annars að ákveða kjörstaði og kjör-
stjómir auk þess hvenær frestur til
að skila inn framboðum skuli renna
út“, sagði Engilbert Ingvarsson,
formaður kjördæmisráðsins, í sam-
tali við Morgunblaðið. „Ymsar
HM í skák:
Karpov
frestaði
níundu
skákinni
London, frá Margeirí Péturssyni, stór-
meistara, fréttaritara Morgunbladsins.
ANATOLY Karpov tók sér
frest í gær þegar átti að tefla
9. skákina í einvígi hans við
Gary Kasparov um heims-
meistaratitilinn í skák. Klukk-
una vantaði aðeins tíu mínútur
í tólf þegar Karpov tilkynnti
skákstjórninni um frestunina,
en síðasti möguleiki til að
fresta er klukkan tólf á hádegi.
Staðan í einvíginu er nú 4 V2
vinningur gegn 3 ‘/2 Kasparov í
vil, eftir að Karpov tapaði 8.
skákinni á tíma. Frestun Karpovs
kom fáum á óvart, því hann hef-
ur verið mjög slyppfengur í
tveimur síðustu skákunum. í sjö-
undu skákinni missti hann af
vinningi í tímahraki, og í þeirri
áttundu var hann á tímabili peði
yfir, án þess að Kasparov hefði
nægjanleg sóknarfæri. En einnig
þá lék Karpov af sér og þegar
hann féll á tíma var staða hans
orðin töpuð.
Hvor um sig hefur nú frestað
einni skák, en þeir eiga aðeins
eftir að tefla Qórar skákir hér i
London. Um mánaðamótin verð-
ur einvígið flutt til Leningrad og
seinni hluti þess háður þar.
Níunda skákin verður tefld á
miðvikudag.
terkurog
hagkvæmur
auglýsingamiðill!
ástæður eru fyrir því að ekki hefur
verið haldið prófkjör á vegum Sjálf-
stæðisflokksins síðan 1970. 1974
þótti ekki ástæða til þess. Þingslit
höfðu líka borið að með skjótum
hætti og skammur fyrirvari var til
að undirbúa prófkjör. 1977 voru
menn almennt sammála um skipan
í þijú efstu sætin og 1979 og 1983
voru þingslit og vetrarkosningar og
ekki talið ráðlegt að halda prófkjör
með þeim fyrirvara sem gafst.
Kjömefndin leggur áherslu á að
próflq'ör fari fram með viðunandi
hætti og öllum sjálfstæðismönnum
sem hafi hug á að taka þátt í því
sé það mögulegt. Til að svo megi
verða þarf mikinn undirbúning í
stóm og dreifbýlu kjördæmi eins
og Vestfjarðakjördæmi.
Rétt á þátttöku elga allir skráðir
félagar í félögum Sjálfstæðisflokks-
ins á svæðinu eða þeir sem hafa
undirritað skriflega stuðningsyfír-
lýsingu við flokkinn. Enn hafa engin
formleg framboð komið inn en ekki
er vitað annað en að þingmenn
Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu,
þeir Matthías Bjamason og Þor-
valdur Garðar Kristjánsson ásamt
fyrsta varaþingmanni Einari K.
Guðfínnssyni muni gefa kost á sér
í prófkjörinu," sagði Engilbert Ing-
varsson, formaður kjördæmisráðs-
ins.
Gestalt
Þú átt aðeins eitt líff, og
þú ert aö iifa því núna.
Seinna er ekki til.
Möguleiki þinn til að njóta sannra
lífsgæða er fólginn í hæfileika
þínum til að bindast öðrum
manneskjum djúpum og varan-
legum tilfinningaböndum.
Þekktur breskur sállæknir, Terry
Cooper, heldur dvalarnámskeið
á Reynisfjalli helgina 22.-24.
ágúst.
Upplýsingar og skráning í sima
18795.
Athugið að fjöldi
þátttakenda er tak-
markaður.
Sproti,
íslenskur Gestalt-skóli.
Skelltu þér á nýja
PHILIPS-ÞVOTTAVÉL
VIÐ TÖKUM ÞÁ GÖMLU
UPP í Á KR. 3000.-
Philips-þvottavélar hafa
verið ófáanlegar um alllangt
skeið, mörgum til mikils
ama. En nú færum við
viðskiptavinum okkar þá
gleðifregn að þær eru
fáanlegar á ný.
Til þess að auðvelda
fólki að endurnýja þá
tökum við gömlu
þvottavélina uppí á kr.
3000,-
Reynsla og þekking er
undirstaða framleiðslu
Philips-þvottavéla. Þæreru
sérhannaðartil að standast
öll gæðapróf og bjóða
aðeins það besta eins og
Philips er þekkt fyrir.
NOKKRAR UPPLÝSINGAR UM NÝJU VÉLARNAR:
• Tekur inn á sig heitt eða kalt vatn # Með því að nota nýtni-stillinguna
sparast um 30% af orku • Allt að 1000 snúninga vinda • Sérstakur „stuttur"
þvottur fyrir föt sem eru aðeins lítils háttar óhrein • 9 stillingar fyrir viðkvæman
þvott • Tekur 4.5 kg af þvotti
PHILIPS
PHILIPS
ERUM SVEIGJANLEGIR
Heimillstækl hf ísAiyiNiNGUM
SÆTÚNI 8, SÍMI 27500. HAFNARSTRÆTI 3, SÍMI 20455.