Morgunblaðið - 26.08.1986, Page 18

Morgunblaðið - 26.08.1986, Page 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1586 Sagan um Joan Kennedy Erlendar bækur Jóhanna Kristjónsdóttir Marcia Chellis: The Joan Kennedy Story Útg. Sidgwick & Jackson Ltd. 1985 Stöllumar Sylvía Guðrún, Fanný og Kristín efndu til hluta- veltu í Rauðagerði 63 hér í bænum til ágóða fyrir Hjálpar- stofnun kirkjunnar. Söfnuðust þar 830 krónur. Þessar ungu dömur, Hulda Ýr og Móheiður, efndu til hluta- veltu til ágóða fyrir Hjálparsjóð Rauða Kross íslands og söfnuðu rúmlega 600 krónum. Marcia Chellis var persónulegur vinur Joan Kennedy og auk þess sérstakur ráðgjafi hennar þegar eiginmaðurinn Edward Kennedy sóttist eftir útnefningu demókrata- flokksins í Bandaríkjunum við forsetakosningamar 1980. Hún hefur augsýnilega kynnzt vel Joan Kennedy og segir sögu hennar þennan tíma af hreinskilni og mik- illi vinsemd í garð Joan. Joan Kennedy giftist ung Ed- ward Kennedy, en átti alla tíð erfitt með að aðlaga sig að „Kennedy- stflnum". Fljótlega tók að bera á erfiðleikum milli þeirra hjóna og kvensemi eiginmannsins átti hún sérstaklega örðugt með að afbera. Henni fannst óbærilegt að vera í sviðsljósinu og smátt og smátt hneigðist hún til óhóflegrar víndrykkju og varð það ekki til að bæta ástandið. Annar sonur þeirra gekkst undir krabbameinsupp- skurð, Kennedy slasaðist í flugslysi Myndin er tekin tun það leyti sem Kennedy tilkynnti að hann sækt- ist eftir útnefningu demókrata- flokksins við forsetakosningar 1980. Akveðið var að reyna að flikka upp á hjónabandið í leið- inni, ef það yrði honum til framdráttar. og til að kóróna allt kom svo Chappaquiddick-atburðurinn til, þegar Edward Kennedy ók út af brú og ung stúlka farþegi í bílnum drukknaði. Allt í kringum þann at- burð var hið dularfyllsta og raunar INNRITUNISTARFSNAM Tvær nýjar námsbrautir Bókhaldsbraut Skrifstofubraut 1) Verslunarreikningur Skjalameðferð 401. 3ein. 5) Bókfærsla IIA+B Bók 405 601. 5ein. 1) Vélritun I 405A 401. 3ein. 5) Vélritun I4 405B 401. 3 ein. 2) Bókfærsla I Bók 205 601. 5 ein. 6) Bókfærsla III Bók813 40t. 4ein. 2) Bókfærsla I Bók 205 601. 5ein. 6) Ritvinnsla 401. 3ein. 3) Rekstrarhagfræði Rek 203 401. 3ein. 7) Tölvubókhald 401. 3) Verslunarreikningur 401. 7) Viðskiptaskjöl Skjalavarsla Tímastjórnun 401. 4) Tölvur 203 + 403 601. 6 ein. 8) Kostnaöarbókhald Kos 213 401. 3 ein. 4) fslenska 40t3ein. 8) Viðskiptaenska 401. Tilgangur með brautum þessum er að bjóða upp á sérhæft nám fyrir fólk í atvinnulífinu og aðra þá sem leggja vilja stund á sér- hæft og hagnýtt nám sem tengist þeirra áhugasviði. Hægt veröur að Ijúka brautarnáminu á einum vetri en lengst á þremur misserum. Námsbrautirnar eru sjálfstætt áfangakerfi sem tengjast einnig öldungadeild að hluta til. Frekari upplýsingar ásamt innritun er á skrifstofu skólans í síma 688400 og 688597. Skólinn verður settur miðvikudaginn 10. septem- ber kl. 14.00. VERZLUNARSKÓLI ÍSLANDS Ofanleiti 1, 108 Reykjavfk. hefur Kennedy aldrei gert mjög sannfærandi hreint fyrir sínum dyr- um í því máli. í bók Marciu Chellis kemur ótvírætt fram að eftir þann atburð var hjónaband Joan og Kennedy varla meira en nafnið tómt. Drykkja hennar ágerðist, hún leitaði sér loks lækninga en féll aftur og hélt áfram að drekka. Hún lagði stund á píanónám sem hún hafði hætt á yngri árum, drakk, fór á meðferðarstofnanir og sambúð þeirra hjónanna var slitið án þess að um skilnað væri að ræða. Þegar Kennedy ákvað að sækjast eftir útnefningu flokks síns 1980 var flikkað upp á fjölskylduímyndina og sett á svið sæmilega lukkulegt hjónaband. Joan var þá hætt að drekka og hún virðist heils hugar hafa viljað vinna að því að hjálpa og styrkja stöðu manns síns. Á hinn bóginn höfðu ýmsir áhyggjur af því að hún yrði honum fremur fjötur um fót en hitt. í þessari baráttu sem Marcia Chellis lýsir af nákvæmni og ritgleði, virðist Joan hins vegar hafa staðið sig með hinum mesta sóma. Margt forvitnilegt kemur fram í frásögninni og fróðlegt að fá nasasjón af öllum þessum undir- búningi sem er í kringum slíkar forkosningar. Allan tímann virðist Joan Kennedy hafa vonað, að hvemig sem niðurstaðan yrði, myndi EkJward fást til að reyna al- vörusambúð á nýjan leik. Sú von brást og satt að segja er sú mynd sem Marcia Chellis dregur upp af Kennedy ákaflega ógeðfelld. Lok- aður, fjarrænn maður, tilfínninga- lega klemmdur, dæmigerður hnútamaður og karlrembusvín. Þó er ég ekki viss um að þetta sé vilj- andi gert. En óhjákvæmilega hlýtur maður að vera bara feginn því, hvað sem öðru líður, að hann skyldi ekki ná útnefningu — hvað þá verða kosinn. Þó svo að höfundur kunni að ýkja. Myndin af Joan er engin glansmynd heldur, en hún er mann- eskjuleg og auðskilin og á virðingu skilið fyrir hvemig hún háði sína eigfin baráttu og hvemig henni hef- ur síðan famast eftir að þau hjónin ákváðu loks að skiija að skiptum. TÓmSTUnDflHÚSIÐ HF LaugauegilS'l-Reijfciauit 5=21901 í Tómstundahúsinu fæst geysilegt úrval af fjarstýrðum bílum af öllum gerðum og í öllum verðflokkum. Jeppar — Pickup — Buggí — Rallí — og hreinir kappakstursbílar. Allt þetta fæst hjá okkur ásamt tilheyrandi mótorum og fjarstýringum. Þú getur próflaus ekið bíl frá Tómstundahúsinu — og gleymdu ekki varahlutaþjónustunni — Tómstundahúsið er alvöru bílaumboð. Póstsendum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.