Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 26.08.1986, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1986 W. Bindel skipstjóri: Veður víða um heim Lægst Hæst Akureyri 11 skýjað Amsterdam 12 18 skýjað Aþena 22 36 heiðskirt Barcelona 26 hálfskýjað Berlin 7 20 skýjað Brússel 7 20 heiðskírt Chicago 18 25 skýjað Dublin 9 15 rigning Feneyjar 21 léttskýjað Frankfurt 10 16 rigning Genf 13 15 rigning Helsinki 12 14 rigning Hong Kong 28 32 skýjað Jerúsalem 19 31 heiðskírt Kaupmannah. 8 17 heiðskírt London 15 rigning Los Angeles 17 29 heiðskírt Lúxemborg 15 skýjað Malaga 28 léttskýjað Mallorca 29 skýjað Miami '27 31 rigning Montreal 12 17 rigning Moskva 14 22 skýjað New York 15 24 heiðskirt Osló 7 16 skýjað Peking 19 28 heiðskírt Reykjavík 10 skúr RíodeJaneiro 16 30 skýjað Rómaborg 24 31 heiðskírt Stokkhólmur 12 9 rigning Sydney 12 18 rigning Tókýó 22 30 heiðskírt Vinarborg 12 24 skýjað Þórshöfn 11 hálfskýjað Þegar írakar gerðu árás á Sirri-eyju hinn 12. þessa mánaðar varð risaolíuskipið Azarpad fyrir eldflaug og kviknaði í því. Hér má sjá dráttarbát reyna að koma skipverjum til hjálpar. Iran: Olíuútflutninerur minnkar um 50% Nikósíu, AP. ° í SÍÐUSTU viku minnkaðj olúútflutningur írans um helming vegna árása íraka að því er ábyggi- legt efnahagstímarit á Kýpur skýrði frá á mánudag. Er dagsframleiðsla nú aðeins um 600.000 tunnur að meðaltali. Efnahagstíðindi Miðausturlanda, sem gefin eru -út í Nikósíu, greindu frá því að íranir hefðu hætt olíufermingu frá Sirri-eyju, a.m.k. í bili og færi nú olíuútflutningurinn að mestu um Larak-eyju, sem er rúmum 200 km austar og í Hormuz-sundi miðju. Árásir voru gerðar á Sirri-eyju hinn 12. þessa mánaðar, en þær hafa ekki orðið fyrir árás áður, enda hafa írakskar vélar ekki fyrr flogið svo sunnar- lega. Talið er að frakar muni nú einbeita sér frekar að því en áður að lama efnahag íran, sem þó var ekki beysinn fyrir. Olíuhöfnin í Larak hefur verið lokuð að undan- fömu vegna veðurs, en nú hefur ferming hafist að nýju og bíður 21 olíuskip þess að geta lagt úr höfn. Líkur eru taldar á að olíútflutningur verði samur sem áður, en óvíst er hvenær af því verður. Tamílarnir ekki í hættu Toronto, AP. WOLFGANG Bindel, vestur- þýski skipstjórinn sem álitinn er hafa flutt á skipi sínu tamilana 155 er fundust á reki í björgunar- bátum undan strönd Kanada 11. ágúst, kveðst hafa reynt að tryggia öryggi fólksins. Kanadíska dagblaðið The Tor- onto Star segist hafa rætt við Bindel sl. sunnudag er hann var staddur um borð í skipi sínu, Aurigae, í Las Palmas á Kanaríeyjum. Hann hefði ekki beinlínis viljað viðurkenna að hafa flutt fólkið yfir hafið, en sagð- ist hafa gert allt sem í hans valdi stóð til að tryggja öryggi þess. Það hefði fengið áttavita og hefði því átt að geta bjargað sér. Lögreglan í Hamborg í Vestur- Þýskalandi segir að Bindel hafi fengið fé sem svarar til um 20 millj- óna ísl. króna fyrir að flytja fólkið til Kanada í lest skipsins. Er AP-fréttastofan hafði sam- band við Bindel á mánudag vildi hann ekki staðfesta ummælin í kanadíska blaðinu, sagðist vera á leið til Bremerhaven í V-Þýskalandi og myndi ekki láta hafa neitt eftir sér fyrr en þangað kæmi. V Ballettskóli Eddu Scheving Skúlatúni 4 5 vikna haustnámskeið hefst 1. september. Fjölbreytt og skemmtilegt kerfi fyrir alla aldurshópa frá 5 ára. Upp- lagt tækifæri fyrir byrjendur til kynningar áður en vetrar- önn hefst. Innritun í síma 38360 kl. 16—18 daglega. Afhending skírteina sunnudaginn 31. ágúst kl. 14—16. Ferðist um Suðurland Á Suðurlandi eru margar helstu perlur íslenskrar náttúru og víðfrægir sögustaðir. Hvar sem þú ferð er stutt í næsta veitinga- og gististað, hótel, sumarhús, farfuglaheimili eða tjaldstæði. Öll önnur ferðaþjón- usta við hæfi hvers og eins. FerðamáSasamtök Suðurlands Pakistan: Sljórnarand- staðan undirbýr óhlýðniherf erð Islamabad, Pakistan, AP. FLOKKAR í stjómarandstöðu í Pakistan tilkynntu að þeir myndu efna til herferðar þar sem fólk yrði hvatt til þess að sýna stjórn- völdum óhlýðni þar til Zia Ul-Haq, forseti Iandsins, hefði hrökklast úr embætti. Lögregla hélt i gær áfram þeirri iðju sinni að handtaka leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Stjórnarandstaðan krefst þess að efnt verði til kosninga í landinu sem fyrst en ríkisstjómin hefur sagt að kosningar verði ekki fyrr en árið 1990. Mohammad Kahn Junejo for- sætisráðherra þvertók í gær fyrir að kosningar yrðu fyrr en þá og varaði fólk við því að bijóta lögin eða reyna að ýta undir óróleika í þjóðfélaginu. „Ríkisstjórnin trúir á frjálst stjómmálalíf, en það gefur mönnum ekki leyfí til þess að skaða þjóðina," sagði hann meðal annars. Junejo ræddi ástand öryggismála í landinu við þá sem þar um véla og eftir fundinn hermdu heimildir að ríkisstjórnin væri staðráðin í að bæla alla andstöðu niður með ,járn- hnefa“. Ekki er ljóst hvenær leiðtogar stjórnarandstöðunnar verða látnir lausir, en um það bil 500 þeirra hafa verið handteknir frá því til- kynnt var að almennir fundir yrðu ekki leyfðir 14. ágúst síðastliðinn á þjóðhátíðisdegi Pakistan. Meðal hinna handteknu er Benazir Bhutto, dóttir Alis Bhutto, fyrrum forsætis- ráðherra, en hann var tekinn af lífi. Að minnsta kosti 29 manns hafa látið lífið undanfarinn tæpan hálfan mánuð í óeirðum. Danmörk: Viðskiptahalli meiri en spáð haf ði verið Kaupmannahöfn^ AP. VIÐSKIPTAJOFNUÐUR í Danmörku var óhagstæður um 2,3 millj- arða danskra króna í júlí og er það töluvert meira en ráð hafði verið gert fyrir, segir í skýrslu frá tölfræðistofnun rikisins. Sérfræðingar um efnahagsmál höfðu spáð því að viðskiptahallinn yrði um einn milljarður króna. Hall- inn í júlí 1985 var 1,3 milljarðar, sagði í skýrslu tölfræðistofnunar- innar. Danir fluttu inn vörur fyrir 13,2 milljarða króna í júlí (14,03 millj- arða í júli 1985). Aftur á móti fluttu Danir út vörur að andvirði 10,9 milljarða króna í júlí (12,7 milljarða í júlí 1985). Anders Andersen, viðskiptaráð- herra, sagði að viðskiptahallinn væri alvarlegt mál í útvarpsviðtali og sakaði landa sína um að vera helst til neyslufreka. Hann var spurður hvort grípa ætti til sérstakra spamaðarráðstaf- ana: „Það er alltaf verið að velta vöngum yfír því,“ sagði ráðherrann: „En ekkert hefur verið ákveðið um það enn sem komið er.“ Fyrir tveimur vikum birti töl- fræðistofnun upplýsingar um viðskiptahallann á fyrri hluta þessa árs. Sagði að hann hefði verið 18 milljarðar króna, en 13,7 milljarðar fyrri hluta ársins 1985. Hallinn fyrstu sex mánuði ársins var svipað- ur því sem ríkisstjórnin hafði gert ráð fyrir árið allt.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.