Morgunblaðið - 24.09.1986, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
3
Skreiðarskipið:
Horsham bíð-
ur enn á ytri
hofnmni í
Lagos
ENN hefur ekki borist greiðsla
eða greiðslutrygging fyrir þeim
tæplega 61 þúsund pökkum af
skreið, sem bíða í leiguskipinu
Horsham á ytri höfninni í Lagos
í Nígeríu. Tæpar sex vikur eru
nú liðnar síðan skreiðin fór um
borð í skipið hérlendis og í La-
gos hefur hún beðið um borð í
rúmar þijár vikur. Yfir 100
íslenskir framleiðendur eiga
skreiðina, sem er hátt í 350 mil|j-
ón króna virði.
Það var íslenska umboðssalan
h.f., sem sendi skreiðina suður til
Nígeríu. Bjami V. Magnússon,
framkvæmdasijóri fyrirtækisins,
hefúr verið í Lagos að undanfömu
og reynir að ganga frá greiðslu eða
bankatryggingum fyrir henni. Ifyrr
en það hefur tekist verður farmin-
um ekki skipað upp, að sögn Ama
Þ. Bjamasonar hjá íslensku um-
boðssölunni.
„Þetta hefur tekið heldur lengri
tíma en við áttum von á en ég held
að þetta sé um það bil að ganga
saman," sagði Ámi í gær. „Ég held
að ekki sé ástæða til að óttast að
greiðslan komi ekki á endanum,
hlutimir ganga einfaldlega hægar
fyrir sig þama suðurfrá en við eig-
um að venjast. Ég minni líka á, að
fyrirtækið í London, sem hefur
milligöngu um þessi viðskipti, hefur
þegar fengið greiddan flutnings-
kostnaðinn til Nígeríu, rúmar
Qórtán milljónir króna.“
Kjarasamningar
tollvarða:
Urslitin verða
ljós í kvöld
í KVÖLD munu væntanlega
liggja fyrir úrslit í atkvæða-
greiðslu Tollvarðafélags íslands
um nýgerðan kjarasamning fé-
lagsins við fjármálaráðuneytið.
Samkvæmt honum fá tollverðir
4-7 launaflokka hækkun, eða sem
svarar til 12-21% kauphækkunar,
og gefa út yfirlýsingu um að
þeir afsali sér verkfaUsrétti í
staðinn, að sögn Sveinbjöms
Guðmundssonar, formanns ToU-
varðafélags íslands..
Atkvæðagreiðslan hófst á sunnu-
daginn og lauk á stærstu stöðunum
á mánudagskvöld en nokkrir félag-
ar greiða atkvæði bréflega utan ai
landsbyggðinni. Getur talning þvi
ekki hafist fyrr en eftir klukkan 18
í kvöld.
Sveinbjörn Guðmundsson sagði
að á félagsfundi, sem haldinn var
á föstudaginn, hafi ekki komið fram
margar gagnrýnisraddir varðandi
bókunina um afnám verkfallsréttar.
„Það var frekar að menn teldu laun-
in enn of lág eftir þennan samning
og tiyggingar ekki nógu góðar,"
sagði hann. „Á fundi, sem ég hélt
með tollvörðum í Keflavík á laugar-
daginn, virtist mér að menn væru
nokkuð sáttir við þessa niðurstöðu.
Mín tilfinning er sú, að menn sjái
ekki fram á að tollverðir, frekar en
aðrar öryggisstéttir, fái óskoraðan
verkfallsrétt og telji því, að þessi
leið sé skárri en aðrar.“
Alls eiga 100 tollverðir rétt á að
taka þátt í atkvæðagreiðslunni.
Fróðleikur og
skemmtun
fyrirháa semlága!
Það fylgir því
sérstök fjölskyldustemmning
að taka slátur
Asamt bjartsýni og æðruleysi hefur slátur ver-
ið helsti lífgjafí íslensku þjóðarinnar í bar-
áttu hennar á liðnum öldum við máttarvöld
þessa heims og annars. Slátur er sérstaklega nær-
ingar- og fjörefnarík fæða og hollustubylting síðustu
ára hefur lyft því til vegs og virðingar á nýjan leik.
Sláturfélag Suðurlands hefur nú opnað slátursölu í
Skútuvogi 4. Þar er til sölu nýtt slátur og allt til slát-
urgerðar svo sem rófur, kartöflur, rúgmjöl, hafra-
mjöl, rúsínur, saumagarn, nálar og frystipokar.
Einnig dilkakjöt í hálfum skrokkum og ýmsar kjöt-
vinnsluvörur á kynningarverði.
Síðast en ekki síst er slátur einstaklega ádýr mat-
vara; eitt slátur (sviðinn og sagaður haus, lifur,
hjarta, tvö nýru, hálsæðar, þind, hreinsuð vömb og
Slátursala ©
Skútuvogi 4 Sími 35106
keppur, 1 kg. mör og 750 gr. blóð), sem ásamt með
1.5 kg. af mjöli gefur af sér 7—8 stóra sláturkeppi,
kostar aðeins 200,- kr. A ódýrari fæðu er tæpast
kostur. I kaupbæti færð þú svo skilmerkilegan leið-
beiningarpésa um sláturgerð.
Slátursalan er opin kl. 9—18 máundaga—föstudaga
og kl. 9—12 á laugardögum. r
Allt til sláturgerðar á einum stað.
G0H FÓLK / SÍA