Morgunblaðið - 24.09.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 24. SETPEMBER 1986
AF ERLENDUM
VETTVANGI
eftir ÖNNU BJARNADÓTTUR
Þessir verkamannabústaðir í Hamborg eru hlutí þeirra, sem Schiesser hefur nú keypt víðs vegar
um Vestur-Þýskaland.
V estur-Þýskaland:
Brauðgerðarmaður
kaupir 200.000
verka.ma.nna.ihii ðir
Vestur-þýska Alþýðusambandið, DGB, seldi alls óþekktum
brauðgerðareiganda, Horst Schiesser, í Vestur-Berlín alla verka-
mannabústaði sambandsins fyrir helgina. Sala byggingafyrirtæk-
isins Neue Heimat, sem reistí og rak bústaðina með gífurlegu
tapi, kom eins og þruma úr heiðskiru loftí. Sérstakur ráðgjafi var
í óða önn að reyna að bjarga þvi frá gjaldþroti þegar leiðtogar
Hlutafélags um félagsbúskap, BGAG, sem rak Neue Heimat, til-
kynntu að verkamannabústaðirnir væru seldir og Alþýðusamband-
ið laust allrar ábyrgðar á þeim. Schiesser greiddi 50 miiyónir
þýskra marka, um einn milijarð
17 milljarða marka skuld hvílir
Neue Heimat var stofnað
snemma á sjötta áratugnum
þegar Alþýðusambandið ákvað að
byggja hundruð þúsunda íbúða
fyrir láglaunafólk. Mikill hús-
næðisskortur ríkti þá enn í Vestur
Þýskalandi eftir eyðileggingu
seinni heimsstyrjaldarinnar. DGB
reisti alls 260.000 íbúðir sem um
ein milljón manns býr nú í víðs
vegar um landið.
Rekstur íbúðanna fór að ganga
illa um miðjan áttunda áratuginn
og þingnefnd er nú með hann f
rannsókn. Stjóm Neue Heimat
keypti land sem engin þörf reynd-
ist fyrir, hún byggði íbúðir sem
enginn vildi búa í; flárfesti í lúxus-
íbúðum í París, hóteli í Mónakó
og landsvæðum í Suður Ameríku;
og safiiaði óviðráðanlegum skuld-
um.
Sérstakur ráðgjafi, Manfred
Meier-Preschany, var ráðinn um
síðustu áramót til að ráða fram
úr erfíðleikum byggingafélagsins.
Hann er kristilegur demókrati en
fyrrverandi bankastarfsmaður og
þekktur fyrir að hafa gegnt mikil-
vægu hlutverki í endurreisn
AEG-fyrirtækisins.
Hann sá að Neue Heimat var
ekki viðbjargandi og lagði til að
byggingafyrirtækinu, sem er hið
stærsta sinnar tegundar í Evrópu,
yrði skipt upp á milli landa Vest-
ur-Þýskalands. Johannesi Rau,
jafnaðarmanni og forsætisráð-
herra Nordrhein-Westfalen, leist
vel á það og var reiðubúinn að
kaupa 40.000 Neue Heimat-íbúðir
í umdæmi hans. Stjóm jafnaðar-
manna og græningja í Hessen var
einnig reiðubúin að kaupa 30.000
íbúðir í Hessen. Leiðtogar annarra
landa vom ekki eins sólgnir í íbúð-
imar. Flestar þeirra era í norður-
isl. kr., fyrír 200.000 íbúðir sem
á.
Brauðgerðarmaðurinn Horst
Schiesser hefur ekki verið
áberandi í vestur-þýsku við-
skiptalífi. Nú hefur hann fest
kaup á 200.000 verkamanna-
íbúðum.
hluta Vestur-Þýskalands og þykja
mjög mismunandi að gæðum.
Efnahagsástandið þar er verra en
annars staðar í landinu og leið-
togamir sáu ekki fram á að þeir
gætu selt íbúðimar aftur. í Suð-
ur-Þýskalandi var lítill áhugi á
að hjálpa Alþýðusambandinu og
Jafnaðarmannaflokknum að ráða
fram úr erfíðleikum Neue Heimat
svo skömmu fyrir kosningamar
25. janúar n.k.
Meier-Preschany taldi sig vera
búinn að tryggja rekstur fyrirtæk-
isins út næsta ár þegar honum
var tilkynnt að Neue Heimat væri
selt. Forstjóri BGAG, Alfons
Lappas, og aðrir verkalýðsleið-
togar trúðu því ekki að þessi
kristilegi demókrati gæti reist
byggingafyrirtækið við. Það var
orðið óvinsælt í verkalýðshreyf-
ingunni vegna hneykslismála og
leiðtogar Jafnaðarmannaflokks-
ins, eins og Hans-Jochen Vogel,
formaður þingflokksins, gagn-
rýndu það harðlega. Lappas og
félagar hans ákváðu að grípa til
eigin ráða.
Schiesser skrifaði Lappas bréf
í maí og lýsti yfír áhuga á að
kaupa Neue Heimat. Lappas tók
bréfíð ekki alvarlega og stakk því
ofan í skúffu. Hann mundi aftur
eftir því þegar raddir um að losna
við byggingafélagið urðu æ há-
værari. Hann ræddi við Schiesser
og kaupsamningurinn var gerður
án þess að forystumenn Alþýðu-
sambandsins og Jafnaðarmanna-
flokksins væra látnir vita.
Um 2.500 starfsmenn Neue
Heimat munu skipta um vinnu-
veitanda um mánaðamótin þegar
Schiesser eignast verkamannabú-
staðina. Milljón leigjendur munu
þar með fá nýjan leigusala.
Schiesser býst við að fækka
starfsfólki um 400 í framtíðinni
og segir að leigjendur megi búast
við hærri leigu þegar leigusamn-
ingar þeirra renna út.
Schiesser, sem er 56 ára, er
lærður bakari og verslunarmaður.
Hann erfði brauðgerð af föður
sínum og rekur hana auk þess að
fást við ýmis viðskipti önnur.
Hann hefur ekki verið áberandi í
vestur-þýsku viðskiptalífí fram til
þessa og er hann sagður „ósköp
venjulegur maður". Hann hefur
trú á að Neue Heimat geti borið
sig ef fyrirtækið er rekið rétt.
Hann hefur ráðið Jurgen Haven-
stein, skattaráðgjafaogfv. starfs-
mann flárfestingafyrirtækis,
forstjóra Neue Heimat. Þeir von-
ast til að smærri fjárfestingaraðil-
ar Qárfesti í fyrirtækinu, en
Schiesser segir að hann kæri sig
ekki um stóra hluthafa. „Við vilj-
um gera Neue Heimat að því sem
það átti að verða: sterkt og traust
byggingafyrirtæki, ekki síst fyrir
fólkið sem býr { íbúðum þess.“
Heimild: Der Spiegel.
Á ferð I Reykjavík.
Skólaganga í sveitmni.
í Þjóðminjasafninu
Utanríkisráðherra
á allsherjarþingi
MATTHÍAS Á. Mathiesen
utanríkisráðherra situr nú
41. allsheijarþing Samein-
uðu þjóðanna sem formaður
íslenzku sendinefndarinnar
á þinginu og hélt á mánudag
ræðu í ahnennri umræðu
þingsins, segir í frétt frá
utanrí kisráðuneytinu.
í för með utanríkisráðherra era
þeir Ólafur Egilsson, skrifstofu-
stjóri, Hreinn Loftsson, aðstoðar-
maður ráðherra og Davíð Ólafsson
fyrrverandi seðlabankastjóri.
Auk þeirra annast fastanefnd
íslands hiá Sameinuðu þjóðunum
þátttöku Islands í störfum þingsins
og er Hörður Helgason sendiherra
varaformaður sendinefndarinnar.
Samkvæmt venju er gert ráð fyrir
að þingflokkamir eigi einnig full-
trúa sem sitji allsheijarþingið.
Þingið hófst 16. september og mun
ljúka um miðjan desember.