Morgunblaðið - 21.10.1986, Side 24

Morgunblaðið - 21.10.1986, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 21. OKTÓBER 1986 Enrile lát- inn víkja úr sljóm Aquino? Manílu, AP. JUAN Ponce Enrile varnarmála- ráðherra sagði að leysa œtti upp rikisstjórn Corazon Aquino for- seta ef hann yrði neyddur til að segja af sér. Enrile á við aukinn andróður að stríða innan stjórn- arinnar og sagðist Augusto Sanchez, verkalýðsmálaráð- herra, myndu krefjast afsagnar hans á ríkisstjórnarfundi í vi- kunni. Þrír ráðherrar a.m.k. hafa nú krafíst afsagnar Enrile vegna gagn- rýni hans á stefnu stjómar Aquino. Spá blöð í höfuðborginni að uppgjör sé óumflýjanlegt milli Enrile og ráðherra, sem era nánir bandamenn forsetans. Að sögn talsmanns Aqu- ino, Teodoro Benigno, bendir ekkert til þess að hún væri í þann mund að reka hann úr starfí. „Forsetinn er þolinmóður sem fyrr,“ sagði hann í gær. Að sögn Sanchez stæði öll stjóm- in með Aquino ef til uppgjörs kæmi vegna Enrile. Að sögn áreiðanlegra heimilda fara áhrif Enrile innan hersins þverrandi og ríkir óánægja með hann í röðum æðstu manna hersins. Hann hefur verið andvígur samningum við uppreisnarmenn kommúnista og dregið í efa heilindi þeirra í samningaumleitunum. Jafn- framt hefur hann lagst gegn afnámi stjómarskrárinnar frá 1973 og upp- töku eigna Marcosar fyrram forseta og nánustu samverkamanna hans. Enrile var einn af helztu sam- starfsmönnum Marcosar en þegar leiðir þeirra skildu í febrúar sl. leiddi það til valdatöku Aquino. Persaflóastríðið: 10 menn deyja í árás á tankskip Shaijah, Sameinuðu furstadæmunum, AP. TÍU skipverjar fórust í eld- flaugaárás írana á olíuflutninga- skipið Five Brooks undan ströndum Óman á föstudags- kvöld, að sögn áreiðanlegra heimilda. íranskur varðbátur skaut eld- flaugum að tankskipinu þegar það var nýfarið frá Kuwait með olíu- farm. Skipið var þá statt rétt undan Óman. Ein flauganna hæfði skipið þar sem vistarverar skipveija era. Eldur kom upp í skipinu en fljótlega tókst að ráða niðurlögum hans. Olíuskipið er frá Panama og hin- ir látnu skipveijar vora sjö Pakist- anar, einn Kínveiji og tveir frá Maldívueyjum. Af komust 29 skip- veijar og stukku sumir þeirra fyrir borð þegar eldur kviknaði í skipinu. íranir hafa ráðist margsinnis á tankskip á suðurhluta Persaflóans í hefndarskyni fyrir loftárásir íraka á Khargeyju, olíuhöfn írana, og tankskip, sem lestað hafa þar. Láta mun nærri að íranir og írakar hafí sín á milli ráðist á 250 skip frá því Persaflóastríðið brauzt út fyrir 6 áram. Launalækkun ný stefna í fínnskum kjaramálum Helsinki, Frá Lars Lunsten, fréttaritara Morgunblaðsins. ER HÆGT að færa fram hugmyndir um allsherjar launa- Iækkun eða kjaraskerðingu án þess að fremja pólitískt sjálfsmorð um leið? í Finnlandi snýst stjómmálaumræðan þessa daga um hvort það sé hægt að draga úr atvinnu- leysi með því að lækka launin hjá þeim sem eru ekki atvinnulausir. Noregur: Lyftingamenn frá f ran leita hælis Ostó, AP. FJÓRIR lyftingamenn frá íran komu á laugardag til Noregs og hafa þeir óskað eftir pólitísku hæli þar. Mennimir komu frá Suður-Kóreu þar sem þeir tóku þátt í Asíuleikunum svonefndu. Stjóra Suður-Kóreu fór þess á Ieit við norsk stjóravöld að menn- irair fengju landvistarleyfi þar. Mennimir Iétu sig hverfa í þann mund sem íþróttafólkið frá íran hugðist snúa aftur til síns heima. Fréttir herma að þeir hafi leitað hælis í sendiráði íraka í Seúl, höfuð- borg Suður-Kóreu. Þar sem Suður- Kórea hefur formleg stjómmála- samskipti bæði við Iran og frak leituðu stjómvöld þar eftir aðstoð embættismanna Flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna. Þeir leituðu síðan til norskra stjómvalda, sem ekki hafa tekið formlega afstöðu f Persaflóastríðinu. Þessi hugmynd er runnin undan riQum samtaka atvinnurekenda eins og ætla mætti. Fmmkvæðið í umræðunni kemur í þetta skipti frá formanni fínnska alþýðusambands- ins SAK. Hann lét í ljós að SAK gæti samið um að hækka ekki laun verkamanna í næstu kjarasamning- um, ef atvinnurekendur féllust á að nota þá peninga til að minnka atvinnuleysið. Þessa helgi kom í ljós að Esko Ollila íjármálaráðherra og mið- flokksmaður er að undirbúa auka- Qárlög sem m.a. gera ráð fyrir skattlækkun fyrirtækja og sam- svarandi skattlækun hjá launþeg- um. Þessar aðgerðir fela í sér kjaraskerðingu strax, og er það þvert á yfirlýsingamar sem ríkis- stjómin gaf í vor þegar kjarasamn- ingar voru undirritaðir. Fulltrúar SAK hafa þegar komið fram í fjöl- miðlum og fordæmt áætlun fjár- málaráðherra. Á næstu dögum kemur í ljós hvort hinir stjómarflokkamir þora að færa fram frumvarp um kjara- skerðingu nokkram mánuðum fyrir þingkosningar. Paavo Váyiynen utanríkisráðherra og miðflokks- maður kom fyrir skömmu með samskonar hugmyndir og fjármála- ráðherrann nú vill framkvæma. Báðir segjast fyrst og fremst vilja samkeppnishæfan útflutningsiðn- að. Kalevi Sorsa forsætisráðherra og formaður jafnaðarmanna var fljótur að skamma utanríkisráð- herrann opinberlega. „Ríkisstjómin f heild" gaf út fréttatiíkynningu um að allir stjómaraðilar séu sammála um þá lqaramálastefnu sem ríkis- stjómin tók í vor. Væntanlegur samdráttur í út- flutningi tii Sovétríkjanna og Dulspekingar halda sýningu: Framtíðarspár, kristal- kúlur, tarot og lifibrauð Toronto, AP. SPÁMENN og dulspekingar komu saman í Toronto I Kanada um helgina til að spá fyrir um framtíðina og tryggja eigin afkomu. Á sýningunni var boð- ið upp á hvers kyns þjónustu: spár fyrir verðbréfamarkaðinn á 120 þúsund krónur og yfirlit yfir heilsufar manna. „í þessu fagi er nóg af loddur- um. Þeir, sem hingað era komnir, bera aftur á móti af sem askur af þymi. Hingað kemur enginn, sem vísvitandi reynir að kasta ryki í augu viðskiptavinarins," sagði Donald Nubaum, fram- kvæmdastjóri §órðu sýningar dulspekinga, sem haldin er árlega. Nausbaum kvaðst sjálfur hafa athugað lófalesara, andalækna og aðra þá, sem fram koma á sýning- unni. Þama kemur m.a. fram Schmi- elewski nokkur. Þessi Kanada- maður heldur þvf fram að spár sínar um verðbréfamarkaðinn standist í átta tilvikum af hveijum tíu. Hann segir að 95 af hveijum hundrað viðskiptavinum hafí grætt á því leita ráða hjá sér. „Oft og tíðum koma til mín menn, sem ramba á barmi örvingl- unar og óttast að hafa misst af lestinni," sagði Schmielewski um viðskiptavini, sem era á höttunum eftir skjótfengnum gróða. versnandi samkeppnisaðstaða Finn- lands á vestrænum mörkuðum era vandamál sem núverandi ríkisstjóm getur varla leyst fyrir kosningamar í mars. Þá er augljóst að jafnaðar- menn vilja ekki taka til aðgerða sem minnkar vinsæld þeirra innan verkalýðshrejrfíngarinnar. Ríkis- stjómin §allar um þessi mál á miðvikudaginn. Sú hugmynd sem formaður al- þýðusambandsins upphaflega færði fram, varð aldrei vinsæl meðal at- vinnurekenda. Hugmyndin var að vísu að hækka ekki laun verka- manna, en ætlunin var að láta peningana renna í nokkurs konar sjóði sem ættu að hjálpa atvinnu- rekendum að fjárfesta og þannig skapa atvinnu. Það fannst atvinnu- rekendum minna á sænska kerfíð með launþegasjóði sem verkalýðs- hreyfíngin notar til þess að hafa áhrif á efnahagslífíð. Fimm Bandaríkja- mönnum vísað frá Sovétríkjunum Moakva,AP SOVÉSK stjórnvöld hafa vfsað fímm bandarískum sendiráðs- mönnum úr landi fyrir óleyfi- lega starfsemi, að þvi er tilkynnt var sl. sunnudag í Moskvu og verða þeir að fara frá Sovétríkjunum fyrir mán- aðarmót. Talið er að þetta sé mesti fjöldi bandarískra sendiráðsstarfsmanna sem vísað hefur verið úr landi í Sovétríkjunum, í einu, undanfarin 20 ár. Eini sovéski fjölmiðillinn sem sagt hefur frá brottvísuninni er út- varpið og þar var ekki minnst á að Jarðskjálfti WeUington, Nýja Sj&landi.AP. Mesti jarðskjálfti sem orðið hef- ur í heintinum í eitt ár varð i gær i Suður-Kyrrahafi og mældist hann 8,1 stig á Richterkvarða. Ekki er vitað til að tjón hafi orð- ið. Upptök skjálftans voru við Kermadec eyjar um 960 km. norð- austur af Nýja Sjálandi. Aðeins ein þeirra er byggð, Raoul eyja og dvelj- ast þar nokkrir nýsjálenskir vísinda- nokkram sovéskum fulltrúum hjá Sameinuðu þjóðunum var nýlega vísað úr landi í Bandaríkjunum. Georgy Arbatov, sovéskur sér- fræðingur í málefnum Banda- ríkjanna og meðlimur miðstjómar sovéska kommúnistaflokksins sagði í þættinum „Face the nation" hjá bandarísku sjónvarpsstöðinni CBS sl. sunnudag, að hann vissi ekki hvort brottvísun Bandaríkjamann- anna frá Moskvu væri hefndarráð- stöfun vegna þess að Bandaríkja- stóm krafðist þess að Sovétmenn fækkuðu í starfsliði sínu hjá Sam- einuðu þjóðunum. í Kyrrahafi menn, þeir höfðu í gær samband við yfírmenn sína í Wellington, á Nýja Sjálandi og sögðu að allir væra heilir á húfí og að ekkert tjón hafí orðið af völdum slqálftans. Lýst var yfír hættuástandi á stóru hafsvæði, þar sem óttast var að flóðbylgja myndi rísa, en svo varð ekki. Sfðasti skjálfti af þessum styrkleika varð í Mexíkó fyrir rúmu ári og olli þar gífurlegu tjóni.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.