Morgunblaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
Vélarvana í
Norðursjó
FISKISKIPIÐ Höfrungur n
GK-27 fékk vatn í olíuna í Norð-
ursjónum á sunnudagskvöldið og
stöðvaðist. Skipið átti eftir um
sólarhrings siglingu til Bremer-
haven, en þangað var skipið að
fara i söluferð með um 70 tonn
af ufsa. Fiskiskipið Jóhann Gísla-
son AR-42, sem var að koma úr
söluferð frá Þýskalandi, tók
skipið í tog og var áætlað að
skipin kæmu til Bremerhaven í
nótt.
Þokkalegt veður var á þessum
slóðum þegar óhappið varð og var
skipið og áhöfnin ekki í neinni
hættu að sögn Þorleifs Björgvins-
sonar framkvæmdastjóra Glettings
hf. sem gerir út Jóhann Gíslason.
Ekki var ljóst hvemig vatn komst
í olíu Höfrungs því ekki tókst að ná
í skipstjórann í gær.
Það er Hópsnes hf. í Grindavík
sem gerir út Höfrung II og voru
forsvarsmenn fyrirtækisins í Bre-
merhaven í gær til að taka á móti
bátnum.
Sædýrasaf ninu
lokað vegna
fjárskorts:
Nýir aðilar
vilja opna
safnið að vori
SÆDÝRASAFNINU í Hafn-
arfirði hefur verið lokað
vegna fjárskorts og hefur
Fauna, félag áhugamanna um
fisk- og sædýrasafn, tekið
yfir bú Sædýrasafnsins.
Stefnt er að því að opna Sæ-
dýrasafnið aftur að vori ef
opinberir aðilar, ríki og sveit-
arfélög, sýna framtakinu
velvilja með styrkjum, að
sögn Helga Jónassonar, for-
manns félagsins.
„Við emm þessa dagana að
skoða hvort möguleiki sé á
áframhaldandi rekstri Sædýra-
safnsins. Við höfum rætt við
fjárveitinganefnd o’g eins ætlum
við að leita eftir stuðningi sveit-
arfélaganna héma í kring,"
sagði Helgi.
Tvö sæljón hafa verið seld til
Hollands, en önnur dýr safnsins
em þar enn. Helgi gerði ráð
fyrir að íslensku dýmnum yrði
lógað, en þeim dýmm, sem erfið-
ara væri að fá, yrði þyrmt á
meðan verið væri að athuga
málin.
MorgunDiaoio/Einar Falur
Á þriðju milljón bréfa í hendur Reykvíkinga
STARFSFÓLK póstmiðstöðvarinnar í Armúla þarf vart að kvíða
verkefnaskorti fram að jólum. í Reykjavík einni verða borin út
2,1 milljón bréfa og póstkorta i þessum mánuði. Ríflega 160
manns vinna nú að flokkun böggla og bréfa í póstmiðstöðinni
og um 150 bréfberar eru á þönum út um borgina til að koma
póstinum í hendur viðtakenda.
Að sögn Kristjáns Harðarssonar, deildarstjóra í bréfadeild Pósts og
síma, er reiknað með því að Reykvíkingar sendi vinum og vandamönn-
um erlendis og hérlendis um 270 smálestir af bréfum fyrir jólin. Við
þetta bætast 200 smálestir böggla Sem borgarbúar senda út á land og
63 lestir sem sendar eru til útlanda. Þá eru ótaldir um 20.000 böggl-
ar sem berast til landsins í þessum mánuði og póstmiðstöðin dreifír
til viðtakenda úti á landi.
Formenn aðildarfélaga BSRB:
Vilja samflot um gerð
samninga við ríkið
ÞORRI formanna aðildarfélaga
Bandalags starfsmanna ríkis og
bæja vill hafa samflot í væntan-
legri samningagerð við ríki og
sveitarfélög um kjarasamning
fyrir næsta ár. Þetta var niður-
staða fundar stjórnar og for-
manna aðildarfélaga BSRB, sem
haldinn var í gær, en frumvarp
til laga um samningsrétt opin-
berra starfsmanna, sem vænst
er að samþykkt verði fyrir jól,
gerir ráð fyrir að samningsrétt-
urinn færist til hvers aðildarfé-
lags innan BSRB fyrir sig.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagði að samþykkt hefði
verið að óska eftir fundi með fjár-
málaráðherra, borgastjóra og
formanni Sambands íslenskra sveit-
arfélaga við fyrsta tækifæri til þess
að ræða við þá um fyrirkomulag
samningagerðarinnar. Kristján
sagði að nokkur forföll hefðu orðið
í mætingu á fundinn hjá formönn-
um utan af landi vegna veðurs, en
annars hefðu formenn allra aðildar-
félaganna utan tveggja samþykkt
að hafa samflot í samningunum.
Starfsmannafélag Akureyrar og
Félag tollvarða hefðu haft fyrirvara
á um þetta atriði og tekið sér tíma
til þess að athuga málið betur.
Vestmannaeyjar:
Fundur hjá Dagsbrún í kvöld:
Stuttur fundur Þórar-
ins og Þrastar í gær
Sprakk á tveimur deklq-
um Fokker Flugleiða
í lendingu í Eyjum
FUNDUR stjórnar og trúnaðarmannaráðs verkamannafélagsins
Dagsbrúnar er í kvöld og mun fundurinn ákveða hvernig staðið
verður að viðræðum við Vinnuveitendasamband íslands um nýjan
kjarasamning. Dagsbrún er ekki aðili að kjarasamningi ASI og
vsí, sem undirritaður var fyrir rúmri viku.
„Á fundinum munum við gera
grein fyrir því hvemig okkur sýnist
þessi mál standa eftir að tfmi hefur
gefíst til þess að skoða þessa samn-
inga,“ sagði Þröstur Ólafsson,
framkvæmdastjóri Dagsbrúnar, í
samtali við Morgunblaðið. Hann
sagðist búast við því að afstaða
Dagsbrúnar myndi skýrast á fund-
inum. Þröstur sagði að kröfugerð
félagsins hefði verið í endurskoðun
undanfarið og á fundinum yrði
rætt um hvaða leið skyldi farinn í
samningagerðinni.
Þröstur og Þórarinn V. Þórarins-
son, framkvæmdastjóri VSÍ, hittust
að máli í gær og ræddu um hvað
framundan væri í samningagerð
milli félagsins og sambandsins.
Þröstur sagði að lítið hefði komið
út úr þessum fundi. VSÍ byði upp
á óbreyttan samning frá þeim
samningi sem gerður var við ASÍ.
Hann sagði að samningurinn væri
óaðgengilegur fyrir Dagsbrún, en
það væri álitamál hversu mikið
þyrfti að breyta honum til þess að
Dagsbrún gæti hugsað sér að
ganga að honum. Dagsbrún teldi
að sú kauphækkun sem samið var
um væri of lítil. Segja mætti að
launþegar hefðu borgað sér þessa
launahækkun. Þá væri launaflokka-
kerfíð nánast aflagt og erfítt að sjá
fyrir enda þess máls. Hins vegar
væri ýmislegt gott að segja um
samninginn. Hækkun lágmarks-
launanna væri mjög ánægjuleg og
sennilega hefði ekki verið raunhæft
að gera meira í þeim efnum í bili.
Þá væri það einnig gleðiefni að
stefnt væri að áframhaldandi stöð-
ugleika í efnahagsmálum, en að
mati Dagsbrúnar væri meira rými
til launahækkana, en samið hefði
verið um, án þess að stofna þessum
stöðugleika í hættu.
ÞAÐ óhapp vildi til er Fokker-
vél Flugleiða lenti á flugvell-
inum í Vestmannaeyjum rétt
eftir kl. 13.00 í gær að það
sprakk á tveimur hjólum vél-
arinnar sömu megin. Um 35
farþegar voru með vélinni, en
engan sakaði.
Að sögn Sæmundar Guðvinsson-
ar, blaðafulltrúa Flugleiða, var vélin
á lítilli ferð er óhappið varð, en
veðurskilyrði voru erfíð til lending-
ar. Tveir flugvirkjar voru sendir
með lítilli vél frá Reykjavík til Eyja,
en þegar þeir höfðu lokið við að
skipta um dekkin, hafði veður
versnað.
Vélin hélt þó til Reykjavíkur um
kl. 19 í gærkvöldi, en án farþega.
Sæmundur sagði að Vestmanna-
eyjaflugvöllur væri afar illa fallinn
til að geyma flugvélar í slæmu veðri
og engin flugskýli þar til staðar.
Árekstra-
fjöld í
borginni
MIKIL hálka var i Reykjavík
i gær og urðu hvorki fleiri
né færri en 42 árekstrar frá
kl. 6 um morguninn til kl.
16.30 en betur fór en á horfð-
ist, því aldrei þurfti að kaUa
til sjúkrabifreið.
Það var ekki aðeins gærdag-
urinn sem_ reyndist ökumönnum
erfíður. Á föstudag urðu 30
árekstrar, 33 á laugardag en
aðeins 5 á sunnudag.