Morgunblaðið - 16.12.1986, Page 12

Morgunblaðið - 16.12.1986, Page 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986 Meðal þeirra sem fluttu ávörp á 40 ára afmælisfagnaði Foreign Airlines Association í Lundúnum var Michael Spicer, flugmálaráð- herra Bretlands. Hann sést hér i ræðustól en honum á vinstri hönd sitja þeir Jóhann Signrðsson, formaður FAA og Einar Benedikts- son, sem nýverið lét af sendiherrastarfi í Lundúnum. „Leiðtog'afundurinn var ómetanleg landkynning“ — Rætt við Jóhann Signrðsson svæðisstjóra Flugleiða 1 Lundúnum Fyrir skömmu hélt Samband erlendra flugfélaga í Lundún- um, Foreign Airlines Associati- on (FAA), hátíðlegt fjögurra áratuga afmæli sitt. Hátt á fimmta hundrað gestir komu saman á Hotel Intercontinental við Hyde Park Comer til að taka þátt í afmælisfagnaðinum, sem fór hið besta fram. Veg og vanda að undirbúningi há- tíðarinnar hafði Jóhann Sig- urðsson, sem er svæðisstjóri Flugleiða i Lundúnum en jafn- framt formaður FAA. Morgun- blaðið spjallaði við Jóhann um þetta félag og forvitnaðist jafn- framt um starfsemi Flugleiða í Lundúnum. Umræðuvettvangur — Hvers konar félagsskapur er FAA? „Foreign Airlines Association er einkum hugsað sem sameigin- legur umræðuvettvangur fyrir fulltrúa þeirra erlendu flugfélaga sem starfandi eru hér í Lundún- um. Þetta er kjörinn vettvangur til að kynnast kollegum og viðra sameiginleg hagsmunamál. Það hefur mikið vatn runnið til sjávar síðan félagið var stofnað fyrir réttum fjórum áratugtum. Þá voru til dæmis aðeins starf- andi um fímmtán erlend flugfélög í Lundúnum en nú eiga 83 félög aðild að FAA. Félagið kappkostar að halda vakandi umræðum um sameigin- leg hagsmunamál, til dæmis með því að standa fyrir sérstökum umræðufundum um ýmislegt sem lýtur að flugmálum. Þá hittast fulltrúar aðildarfélaga á hádegis- verðarfundum einu sinni í mánuði, spjalla um daginn og veginn og brydda á því sem efst er á baugi í flugheiminum hveiju sinni.“ — Kjaftaklúbbur? „Orð eru til alls fyrst, segir máltækið. Enda þótt FAA beiti sér ekki sem slíkt í hagsmunamál- um erlendra flugfélaga hér í borg hefur þessi félagsskapur ótvírætt gildi sem nauðsynlegur umræðu- vettvangur þeirra sem að félaginu standa. Ég er til dæmis þeirrar Jóhann Sigurðsson, fyrir miðju, á tali við tvo gestanna á 40 ára afmælisfagnaði Foreign Airlines Association í Lundúnum. Sá til vinstri er Johan Cunningham, gömul stríðskempa, sem nú er formað- ur Geoffrey de Havilland Flying Foundation. Til hægri er John Kverndal, norskur maður, forstjóri O. Kverndal & Co. skoðunar að innan skamms muni reyna meira á þetta félag en oft áður. Hér í Bretlandi stendur nefnilega fyrir dyrum margvísleg uppstokkun í flugmálum; ríkið er í þann mund að sleppa hendinni af ýmsum þáttum sem einkaaðil- um verður nú gefínn kostur á að spreyta sig á. Ber þar vitanlega hæst að British Airways verður selt og gert að einkafyrirtæki. Sömu sögu er að segja um starf- semi alla á breskum flugvöllum. Þetta verður allt boðið út. Við vitum ekki nú hver áhrif þetta kann að hafa til dæmis á lending- argjöld en ljóst er að erlend flugfélög verða að vera vel á verði. FAA er kjörinn vettvangur fyrir umræður um þessi mál öll og hugsanlegar leiðir til að bregð- ast við ef nærri þeim verður höggvið." Skin og skúrir Jóhann Sigurðsson hefur starf- að lengur í FAA en nokkur annar fulltrúi erlends flugféiags í Lund- únum. Hefur hann tekið þátt í þessum félagsskap samfleytt í 33 ár eða frá því hann tók til starfa fyrir Flugfélag íslands í Lundún- um árið 1953; þrisvar hefur hann gegnt formannsembætti. Jóhann hefur búið í Lundúnum í tæpa fjóra áratugi. Hann hleypti heim- draganum á íslandi árið 1948 og hélt til náms í viðskiptafræðum í Englandi. Vann hann síðan hjá bresku fyrirtæki um hríð en fékk brátt mikinn áhuga á flug- og ferðamálum. Árið 1953 bauðst honum að gerast svæðisstjóri Flugfélags íslands í Lundúnum og hefur hann gegnt því starfí síðan þótt nafn fyrirtækisins breyttist vitanlega með samein- ingu Flugfélagsins og Loftleiða á sínum tíma. En hvemig hefur íslensku flugfélagi vegnað í Lund- únum undanfama áratugi? „Það hefur vitanlega gengið á ýmsu en vöxturinn hefur þó verið nokkuð stöðugur þegar á heildina er litið. Mér er það til dæmis minnisstætt að árið sem ég byij- aði héma fóm 374 Bretar til íslands. Nú flytja Flugleiðir ár- lega um 10.000 breska ríkisborg- ara þangað norður eftir." — Engir alvarlegir afturkippir gert vart við sig? „Jú, auðvitað eins og gengur og gerist. Verst var árið sem við áttum í síðasta þorskastríðinu við Breta, 1975-1976. Það stríð hafði alvarleg áhrif.á okkar við- skipti hér í landi því stórlega dró úr ferðum Breta til íslands. Árleg- ur fjöldi breskra farþega hrapaði þá úr 8.000 í tæp 4.000, beinlínis vegna þorskastríðsins. Oll umfjöllun hér í lapdi um þetta leyti fældi fólk frá íslands- ferðum. Þetta var hörð deila og Bretar lögðu hreinlega ekki í það að sækja heim andstæðinginn í stríðinu. Til dæmis er mér kunn- ugt um að margir foreldrar þorðu ekki að senda unglinga til ís- lands, töldu þá geta átt von á hinu versta. Einnig kom sér illa fyrir okkur minnkandi eftirspum eftir ráðsteftiuhaldi, sem við vor- um komnir vel af stað með áður en landhelgisdeilan skall á. En öll él birtir upp um síðir og við vomm fljótir að ná okkur upp úr þeirri lægð sem fylgt hafði þessu síðasta þorskastríði. Nú fara um 10.000 Bretar árlega til íslands eins og ég sagði áðan. Við voram raunar búnir að gera okkur vonir um og spá því að þeim mundi fjölga í 11.000 á þessu ári en sú spá virð- ist ekki ætla að rætast. Megin- ástæðan held ég að sé óblíð og grámygluleg veðrátta hér í landi undanfarin sumur; þegar þannig stendur á kýs fólk fremur að leita á náðir sólar í suðrænum löndum en ótryggrar veðráttu norður við heimsskautsbaug." Leiðtogafundur oglandkynning — En má ekki gera ráð fyrir að nýafstaðinn fundur Reagans og Gorbachovs í Reykjavík muni hafa í för með sér aukinn áhuga á Islandsferðum? „Það leikur ekki nokkur vafi á því að leiðtogafundurinn í Reykja- vík á eftir að verða mikil lyftistöng fyrir íslenskan ferðaútveg. Ég hef til dæmis orðið þess vemlega áskynja í starfi mínu hversu Is- land hefur fest rækilega í sessi í hugum breskra borgara. Leið- togafundurinn var ómetanleg landkynning og nú er bara að hamra jámið á meðan það er heitt. Við hér í Lundúnum höfum nú þegar lagt nokkuð af mörkum í því efni. Eg er til dæmis búinn að senda bréf og bæklinga út um allan heim til rúmlega 500 aðila, sem hafa þann starfa með hönd- um að skipuleggja ráðstefnur af ýmsu tagi. í bréfl til þessara aðila vísa ég raunar beint til fundar þeirra Reagans og Gorbachovs í Reykjavík og bendi á hversu gott orð fari af íslendingum sem gest- gjöfum erlendra fyrirtækja og samtaka, sem þar hafa kosið að halda fundi og ráðstefnur. Við getum auðvitað ekki búist við neinu stóra stökki í ráðstefnu- haldi erlendra aðila alveg strax því allur aðdragandi slíkra funda og ráðstefna er langur. Ég tel að eftir um það bil tvö ár munum við fyrst verða verulega varir við þann gífurlega ávöxt sem leið- togafundurinn í Reykjavík mun bera í þessu efni.“ Ekkert fararsnið Já, það er gott hljóðið í Jó- hanni Sigurðssyni þar sem hann spjallar við fréttaritara Morgun- blaðsins á skrifstofu sinni í Grosvenor Street þar sem Flug- leiðir hafa aðsetur sitt í Lundún- um. Á skrifstofunni starfa að jafnaði um 10 manns, auk þess sem Flugleiðir hafa 3—4 starfs- menn á sínum vegum á Heath- row-flugvelli. Þá er einn maður starfandi fyrir fyrirtækið í Glas- gow. Það hafa margir starfsmenn komið og farið þau 33 ár sem Jóhann Sigurðsson hefur haft með höndum stjóm söluskrifstofunnar í Lundúnum. Á Jóhanni er hins vegar ekkert fararsnið. Hann er löngu búinn að koma sér vel fyrir hér í Bretlandi, ásamt eiginkonu sinni, Dorothy Mary. Þau hjón eiga þijú uppkomin böm; elst er Anna, sem býr nú í Brassel og starfar fyrir auglýsingafyrirtæki; Róbert Bjami er lögfræðingur og starfar sem slíkur í Lundúnum og Edward Thor, yngri sonur þeirra hjóna, starfar á vegum bandarísks fyrirtækis í City, hinu fræga viðskiptahverfi Lundúna- borgar. Þriðji sonur Jóhanns, Alfreðj býr í Reykjavík og er for- stjóri Isfugls. Fæddur og uppalinn á íslandi, starfandi og búsettur í Englandi um áratuga skeið á vegum íslensks fyrirtækis. Er Jóhann Sigurðsson sáttur við útkomuna? „Mér hefur þótt gott að búa hér í Lundúnum og gaman að starfa að framgangi íslenskra flugmála. Ég hef búið hér í 38 ár og því varið hér meiri tíma en heima á íslandi. Þar eru þó mínar heimaslóðir og þangað fer ég svo oft sem ég sé mér fært. í hvert skipti sem ég kem þangað verð ég sannfærðari um það hversu mikil ferðamannaparadís ísland er. Við þurfum að láta umheiminn vita af þessu og hefur það raunar verið starfssvið mitt undanfarin 33 ár. Ég er fyllilega sáttur við árangurinn fram til þessa."

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.