Morgunblaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
19
deild SÍF með tilkomu pæklunar
og tandurfísks.
Ferskfískútflutningurinn hlýtur
nú að vera á tímamótum og í topp-
marki. Fiskvinnslufólk óttast um
hag sinn því að vinna minnkar stöð-
ugt í þeim frystihúsum, sem eru
nærri þessum gámagleypum til að
spoma við taumlausum útflutningi
á ferskum físki, sem er þjóðinni
hættulegur þegar til lengri tíma er
litið. Þá tel ég ekki útilokað að
nota hið illræmda kvótakerfí þannig
að einungis 15% af afla hvers báts
mætti flytja út óunninn, þannig
myndi stöðvast taumlaus útflutn-
ingur í ákveðnum verstöðvum eins
og nú er.
Það verður að bægja þessum
byggðavoða frá svo ekki glatist
verk- og vinnuþekking fiskvinnslu-
fólksins. Við verðum að vera
minnugir þess að þjóðin stóð saman
þegar að Bretinn heijaði með fólsku
í landhelgi okkar en þá færði sam-
staðan okkur sigur. En nú þegar
Bretinn herjar á ný með breyttum
baráttuaðferðum, otar gulli og
glansbrydduðum pundum með
fölskum fagurgala, þá virðumst við
sofa á meðan Bretinn vinnur vopna-
laust að ákveðnu marki. Stefnan
fer ósjálfrátt í það að við verðum
hréfnisöflunarmenn erlendra þjóða
í landhelginni, sem við áttum og
nýttum öllum vinnandi höndum til
hagsældar.
Enn eitt ár mun kvótinn kvelja
stóran hluta fískvinnslunnar. Eg
hlýt því að taka. undir með Friðriki
Pálssyni forstjóra SH um breyttan
farveg þeirra mála. Byggðarlag eitt
vestur á landi hefír misst um 40%
af aflakvóta sínum, vegna sölu
tveggja skipa, sem urðu verðbólg-
unni að bráð. Eitt best rekna
frystihús Sambandsins varð þar
með úr leik, sem gott fýrirtæki,
hins vegar ef Friðriks-farvegurinn
hefði gilt þá hefði nefnt frystihús
fengið nóga báta_ til að afla því
hráefnis. Halldór Ásgrímsson sjáv-
arútvegsráðherra sagði á fískiþingi
í fyrra: „Vissulega er mikilvægt að
skipting milli einstakra þjóðfélags-
hópa sé réttlát en sú barátta má
ekki koma í veg fyrir framfarir."
því spyr ég hvar er réttlætið gagn-
vart þessu byggðarlagi? Og í annan
stað eru það framfarir, að stækka
eitt byggðarlag með því að minnka
annað og láta þar sitja eftir óarð-
bærar fjárfestingar?
Málefni fískvirihslufólks voru
mjög á dagskrá á liðnu starfsári,
starfsfræðsla er nú komin í fullan
gang við góðar undirtektir starfs-
fólksins og greinilega til betri
samskipta milli fólks og fyrirtækja
og þá er ótalinn þjóðarhagurinn,
sem liggur að baki allri verkþekk-
ingu og góðu hugarfari.
Um skattfrádrátt fiskvinnslu-
fólks hefír því miður ekkert áunnist
en við heitum á þingmenn okkar
og landstjóm að þeir muni um síðir
læra að meta störf þessa fólks, sem
er burðarás velmegunar á íslandi.
Það skal viðurkennt að nú í bili
er bjart yfír verðlagsmálum sjávar-
afurða og flest fyrirtæki með
þolanlegan rekstur, nema þau sem
að sigldu of djarft hin dapurlegu
verðbólguár. En förum hægt, mér
sýnist blika við sjóndeildarhring.
Fijálst verð á allri þjónustu við sjáv-
arútveginn er langt yfir viður-
kennda verðbólgu. Fijáls
samkeppni þjónustuaðila er ekki
til, samkeppnin er aðeins um vinnu-
aflið en ekki um verkefnin. Stjóm-
málamennimir hafa séð um að nóg
er að gera, en þeir kunna sér ekki
hófs þegar þeir eru á atkvæðaveið-
um. Fyrst og síðast er slagorðið:
„Fleiri atvinnutækifæri, fleiri at-
vinnutækifæri", þessi upphrópunar-
þensla þeirra er nú að koma í ljós
með mikilli offjárfestingu í atvinnu-
tækifæmm, sem enginn er til að
vinna við, því nú vantar 4.000
starfsmenn á vinnumarkaðinn til
að fullnægja eftirspum.
Með allri virðingu fyrir þessum
atvinnupólitíkusum legg ég til að
þeir leggi slagorðið niður, nema að
þeir komi á þegnskyldu til að taka
við atvinnutækifærunum, það hent-
ar ekki þjóðarheill að flytja inn
útlendinga til að vinna ábyrgðar-
störf fískvinnslufólksins. Svo og
mætti áminna bankastjóra um að
varða ofan í grunn atvinnutækifær-
anna áður en lánsféð er látið af
hendi, til að kanna hvort botn sé í
títtnefndum tækifærum. Ef ekki
verður spáð í blikuna strax þá er
Já, Skátabúðin byrjar skíðavertíðina á glæsilegan hát't.
Mikill afslátturá glerfínum skíðavörum.
Skíði, bindingar, skór og buxur. Allt toppvörur á toppverði.
Ekki missa af þessu stórkostlega tækifæri.
SKÁTABUÐIN
Snorrabraut 60 sími 12045
verðbólgan vís og sú glæta sem nú
er, hún hverfur..
Góðir fundarmenn, starfsemi
Sambands fiskvinnslustöðvanna er
sá tengiliður sem styrkir bönd á
milli framleiðenda og sölusamtaka
okkar, sá hlekkur má ekki bresta.
Því er það hugmynd mín að stjóm-
arfundir verði ársfjórðungslega en
inn komi starfsneftid sem saman-
standi af frammámönnum' frá
Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna,
Sölusambandi ísl. fískframleiðenda
og Skreiðarsamlaginu ásamt fram-
kvæmdastjóra okkar og stjómar-
formanni. Þessi nefnd fundi saman
einu sinni í mánuði og þar safnist
saman fróðleikur, sem ársfjórð-
ungsfundir stjómarinnar fjalli um.
Með þessari skipan skapast náið
samband og virk aðgæsla á hags-
munum okkar, sem myndi lýsa
okkur rétta veginn og setja rautt
ljós á þann drabbveg er við vorum
látnir ganga á verðbólguárunum.
Að lokum vil ég þakka fyrrver-
andi framkvæmdastjóra okkar,
Knúti Óskarssyni, gott starf þann
stutta tíma er hann var hjá okkur,
einnig vil ég þakka starfsfólki
Vinnuveitendasambandsins. Þá vil
ég bjóða velkominn til starfa nýráð-
inn framkvæmdastjóra, Ágúst
Elíasson, sem er okkur öllum að
góðu kunnur.
Meðstjórnendum mínum þakka
ég gott samstarf. Ég mun starfa
áfram með þeim þótt ég hafí óskað
eftir að losna úr forystustarfi vegna
fjárlægðar frá aðalstarfssvæðinu.
Dýrindis glös á jólaborðið
og í jólapakkann
Jól í
Kosta Boda
Chateáu
Bankastræti 10 Sími 13122
(larðakaupum (larðabæ, sími (Í51S12.