Morgunblaðið - 16.12.1986, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
V
Að hugsa í
annanendann
eftirPál V.
Daníelsson
Bessí Jóhannsdóttir tók sæti á
Alþingi í nokkra daga. Mér hefur
oft fundist Bessí hafa sitt hvað
gott til mála að leggja og varð því
fyrir miklum vonbrigðum þegar hún
bar fram þingsályktunartillögu um
afnám einkasölu ríkisins á áfengi.
Og þegar slíkt er borið fram í nafni
fijálshyggju fer skörin að færast
upp í bekkinn. Að vilja láta fram-
boð og eftirspum ráða í sambandi
við áfengisviðskipti tilheyrir ekki
frelsi fyrir annan en hið harðsvír-
aða, afturhaldssama, grimma og
miskunnarlausa áfengisauðvald,
sem einskis metur hamingju og líf
fólks og er tilbúið að eyða og deyða
ef það hefur hagnað af. Þetta er
að hugsa í annan endann og það
þann sem spillingin ræður ríkjum.
Eg trúi því ekki þegar á reynir að
frúin sé svo ofurseld hagsmunum
áfengissalanna að hún í raun meini
það sem hún lætur frá sér fara í
þessu efni, heldur sé hún slegin
þeirri blindu á samfélagið, sem þjá-
ir allt of marga.
Hvers vegna ekki
frjálsa áfengisverslun
Málið er einfalt. Einkaframtakið
Páll V. Daníelsson
nær alla jafna betri árangri í því
að auka viðskipti. Áfengið er eitur
engu minna en sum þau fíkniefna
sem ólögleg eru. Tjón af völdum
neyslunnar eykst í hlutfalli við
aukningu neyslunnar. Það hafa all-
ar þjóðir reynt. Og verst er ástandið
„Kostnaðurinn í þjóð-
félaginu vegna áfengis-
neyslu er gífurlegur.
Hann er svo mikill að
það er eins og stjórn-
völd þori ekki að láta
gera athugun á því.“
þar sem frelsið í áfengissölu er
mest. Þegar fólk er orðið háð neysl-
unni vegna fíknar eða siðvenja er
það komið í þrældóm hjá áfengis-
auðvatdinu. Tilheyrir slíkt frelsi?
Hinn endinn
Ef litið er til hins endans, afleið-
inganna, má skoða áhrif fijáls-
hyggjunnar frá þeim sjónarhóli. Og
hvað sjáum við?
Við sjáum vanrækt börn vegna
áfengisneyslu forráðamanna. Við
sjáum ungmenni missa alla rótfestu
og bíða tjón. Við sjáum fólk lenda
í fjötrum annarra fíkniefna en
áfengisneyslan er nær 100% for-
Glœsileqt rum
frú IIIGURRI & GVIFR
Rúm
breiddir: 170 cm
150 cm
115 cm
90 cm
Viðartegundir:
Hvítt
Beiki
Litaður askur
Fylgihlutir:
Fataskápar
Kommóður
Speglar
Kollar
HÖNNUN: Einar Ágúst
m
inGURR&GVLFI
Crensósueg3 sími 681144
senda þess. Mörg hinna stærri
slysa, bæði umferðarslys og önnur
eru vegna áfengisneyslu. í mörgum
tilvikum eiga fötlun og örkuml ræt-
ur að rekja til neyslu áfengis. Við
sjáum afbrotafólk, sem að megin
hluta hefur lent út á þá braut vegna
neyslu áfengis. Þá er ljóst að mörg
hinna ógeðslegustu ofbeldisverka,
þar á meðal á heimilum, eru tengd
áfengisneyslu. Samkvæmt skýrslu
landlæknisembættisins eru
10—20% innlagna á almenn sjúkra-
hús vegna veikinda, sem af áfengis-
neyslu stafa. Vart undir 100 manns
láta lífið árlega fyrir aldur fram
vegna áfengisneyslu. Fólk, sem
sljóvgað er af áfengisneyslu gætir
sín verr en ella og er því hættu-
legra varðandi útbreiðslu ýmissa
skæðra sjúkdóma og er alnæmis-
sjúkdómurinn einn þeirra.
Kostnaðurinn
Kostnaðurinn í þjóðfélaginu
vegna áfengisneyslu er gífurlegur.
Hann er svo mikill að það er eins
og stjórnvöld þori ekki að láta gera
athugun á því. Þó er vitað að ríkis-
sjóður greiðir 1 til 1,5 milljarð króna
meira út vegna áfengisneyslu en
tekjumar eru af áfengissölu. Er það
e.t.v. ftjálshyggja að greiða þannig
á óbeinan hátt niður áfengisvið-
skiptin í þjóðfélaginu? Svo kemur
kostnaður sveitarfélaga og kostnað-
ur annarra aðila og má ætla að
heildarkostnaður þjóðarinnar af
áfengisneyslu sé 5—10 milljarðar
króna á ári hveiju. Sé hann sam-
bærilegur og hjá Svíum má miða
við efri mörkin, enda eru þau því
miður líklegri.
Nátttröllið
Einkasalan — nátttröll í samtím-
anum, segir Bessí. Þá á hún við
að áfengissalar fái ekki nóg svig-
rúm til þess að græða. Hennar mat
og margra annarra á fijálshyggju
virðist vera það eitt að fólk fái að
græða og þá skipti litlu máli þótt
einhveijir verði undir í þeim leik.
Pólk úr öllum flokkum styður þessi
gróðasjónarmið þegar um er að
ræða sölu áfengis. En þessu fylgir
aukin fátækt, niðurlæging, veikindi
og dauði. Slíka grimmd og mis-
kunnarleysi gagnvart samborgar-
anum eiga margir erfitt með að
þola. Við höfum séð nóg af slíku.
Og ég trúi ekki öðru, ef vínunnend-
ur legðu það á sig að skoða málið,
þá vildu margir fóma vímunni til
að forða fólki frá því víti sem áfeng-
isbölið er. Og ekki trúi ég öðru en
að Bessí sé í þeim hópi. Þess vegna
væri farsælast að „nátttröllið" yrði
að steini sem engin lind sprytti
undan.
Höfundurer viðskiptafræðingur.
Komið
til móts
við þarfir
fatlaðra
Á FUNDI bæjarráðs Kópavogs
sem haldinn var fyrir skömmu
voru samþykkt tilmæli frá Sam-
starfsnefnd um ferlimál fatl-
aðra.
Nefndin óskaði eftir því við bæj-
arráð að það kannaði möguleika á
því að fjarlægður verði snjóruðning-
ur við innkeyrslur þeirra húsa sem
fatlaðir búa í eftir að snjóplógur
hefur rutt götur bæjarins.
Þjónusta þessi stendur til boða
íbúum Kópavogs sem búa í strætis-
vagnaleið og eru hjartasjúklingar
eða hreyfihamlaðir (sem nota hjóla-
stól eða önnur hjálpartæki).
Sótt er um þessa þjónustu til
Tæknideildar Kópavogskaupstaðar
— deildartæknifræðings í síma
41570.
(Fréttatilkynning frá Samstarfsnefnd
um ferlimál fatlaðra f Kópavogi.)