Morgunblaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
21
Til hvers eru
landsfundarsam-
þykktir Sjálf-
stæðisflokksins?
eftirFriðrik
Kristjánsson
Virðisaukaskattur
í hugum okkar sjálfstæðismanna
er landsfundur flokksins, sem hald-
inn er annað hvert ár, vettvangur
þar sem hinum almenna flokks-
manni gefst tækifæri til að hafa
áhrif á gang mála. Þar eru saman-
komnir einstaklingar með svipuð
lífsviðhorf og þann ásetning að
vinna að sameiginlegum markmið-
um landi og þjóð til heilla.
Niðurstöður landsfundar ættu
síðan að vera leiðarljós þeirra full-
trúa sem kjörnir eru til að fylgja
málum eftir.
Samþykkt landsfundar
Eftirfarandi var samþykkt mót-
atkvæðalaust á XXVI Landsfundi
Sjálfstæðisflokksins þann 14. apríl
’85:
„Ekki verði tekin ákvörðun um
virðisaukaskatt fyrr en að lokinni
rækilegri kynningu meðal almenn-
ings og fyrirtækja. Það er ennfrem-
ur skilyrði fyrir upptöku virðisauka-
skattsins að hvorki skattheimta,
ríkisumsvif né skriffinnska aukist
frá því sem nú er. Einnig verði
hækkun neysluvara og byggingar-
kostnaðar mætt þannig að hagur
almenns launafólks verði ekki lak-
ari á eftir.“
Hvað um kynninguna?
Það var hljótt um virðisauka-
skatt langa hríð á eftir eða þar til
snemma á þessu ári er örfáir
frammámenn flokksins tilkynntu
„að Sjálfstæðisflokkurinn hefði
ákveðið að upp verði tekinn virðis-
aukaskattur í stað söluskatts".
Það er fyrst nú allra síðustu vik-
ur að tilraun til kynningar hefur
farið fram með því að birtur hefur
verið einhliða lofsöngur skattinum
til dýrðar. Því sem næst eingöngu
hafa þar verið að verki launaðir
embættismenn ríksins, sem greini-
lega eru sendir fram á ritvöllinn
af yfirmönnum sínum.
Hvað um báknið?
Það eru gömul sannindi og ný
að umsvif hins opinbera fara ætíð
fram úr áætlun og hlaða utan á
sig, um það höfum við mörg dæmi.
Ríkisvaldið viðurkennir nú þegar
að verði 26% virðisaukaskatti kom-
ið á muni skatttekjur aukast um
2,5 milljarða, sem nýtt niður-
greiðslukerfi á að ráðskast með.
Sömuleiðis er viðurkennt að fjöldi
starfsmanna núverandi söluskatt-
skerfis muni aukast um 100% og
síðast en ekki síst mun fjöldi skatt-
skyldra (eða VASK-skyldra) aukast
um 150%.
Það þurfa hvorki meira né minna
en 12 þúsund nýir aðilar að tíunda
öll innkaup sín og sölu (innskattur-
útskattur) og rölta síðan reglubund-
ið í VASK-musterið með greinar-
gerð og uppgjör. Það er vert að
íhuga að nýir skattheimtumenn
verða jafnmargir og allir Akur-
eyringar að bömum oggamalmenn-
um meðtöldum. Og hér er aðeins
verið að tala um viðbótina við það
sem fyrir er. Hvort á nú betur við
„Báknið burt“ eða „Leiftursókn til
sósíalisma" eins og ungur sjálfstæð-
ismaður nefndi það af öðru tilefni.
Friðrik Kristjánsson
„Við getum krafist þess
að fulltrúar okkar
kjörnir á landsfundi og
í alþingiskosningum,
virði landsfundarsam-
þykktir og hægi að
minnsta kosti á ferðinni
fram að næsta lands-
fundi, sem haldinn
verður eftir rúma tvo
mánuði.“
Aðrar staðreyndir
Auk þess sem áður er getið er
vert að beina athygli að nokkrum
staðreyndum.
1. BandaríkjamennogJapanirhafa
ekki tekið upp virðisaukaskatt í
stað söluskatts og ekki er hægt
að merkja að það hái þeim á
viðskiptasviðinu, nema síður sé.
2. Allir virðast sammála um að
ekki verði aftur snúið frá
VASK-martröðinni sé hún á
annað borð komin á. Þrátt fyrir
þetta hefur frumvarp verið lagt
fram í norska Stórþinginu í þá
veru að taka aftur upp venjuleg-
an söluskatt í stað virðisauka-
skatts. Knýjandi hlýtur þörfin
að vera ef menn vilja jafnvel
reyna hið óframkvæmanlega til
að losna úr fjötrunum.
3. Virðisaukaskattsfrumvarpið er
frá Alþýðubandalaginu komið.
Ætti það eitt sér að vera nægi-
legt til þess að Sjálfstæðismenn
spyrntu við fótum.
Lokaorð
Ofanskráð ætti að vekja okkur
Sjálfstæðismenn, og þá sérstaklega
landsfundarfulltrúa, til alvarlegrar
íhugunar.
Við getum krafist þess að fulltrú-
ar okkar, kjörnir á landsfundi og í
alþingiskosningum, virði lands-
fundarsamþykktir og hægi að
minnsta kosti á ferðinni fram að
næsta landsfundi, sem haldinn
verður eftir rúma tvo mánuði. Það
er hægara í að rata en úr að komast.
Höfundur rekur eigið innflutn-
ingsfyrirtæki í Reykja vík.
KJOTIÐNAÐARSTOÐ (fg) Borgarnesi sími 93-7200
Þiðþurfið ekki að 8
lenguryfir þessu-
-HANGIKJÖTIÐ ER FRÁ OKKUR
Og hangikjötið frá Kjötiðnaðarstöð KB er gott. Allt frá fyrsta
munnbita mælir það með sér sjálft. Borgarneshangikjötið er
úrvalskjöt, vel taðreykt svo að bragð er að. Sem sagt: Ijúf-
fengt hangikjöt við hvers manns hæfi og hentar við öll tæki-
færi.
Spurðu um Borgarneshangikjötið
Bergið klifið. Minn-
ingar veiðimannsins
Hlöðvers Johnsens.
Úteyjalíf náttúrubarns
og náttúruskoðara, sjó-
mennska með Binna í
Gröf, Vestmannaeyja-
gos. Einnig fróðleiks-
brunnur um horfna
þjóðhætti Eyjamanna.