Morgunblaðið - 16.12.1986, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
Ondvegisbók
Útlendingurinn eftir Nóbelsverðlaunahöfundinn Albert
Camus er fágætlega vel samin saga og listilega íslenskuð.
„Stíll þeirrar sögu, sem hér birtist, hefur verið líkt við fágað
gler, blikandi stál og önnur alskír efni.“ (Bj. B. í formáls-
orðum).
13TA
5 veittur ^
bar afstátwr
verUleö lr \onma\da
SVóðapa^Jnðat, stafú
VIÐ SEUUM ATOMIC SKIÐI,
SALOMON SKIÐASKÓ OG
BINDINGAR
TOppvöí«R
SPORTBÆR Selfossi
SPORTBÚÐ ÓSKARS Keflavík
JÓN HALLDÓRSSOn Dalvík
SPORTBÚÐIB Drafnarfelli
SKÍÐALEIQAN v/Umferðarmiðstöðina
SPORTVAL v/Hlemm
BIKARIMB Skólavörðustíg
SPORTHÚSIÐ Akureyri
MÚSIK & SPORT Hafnarfirði
SPORTHLAÐAH ísaflrði
íslandseldar
Békmenntir
Erlendur Jónsson
Ari Trausti Guðmundsson:
ÍSLANDSELDAR. 168 bls.
Vaka—Helgafell.
í jarðsögunni eru tíu þúsund ár
sem andartak eitt. Þó er þetta tíma-
bil öðrum merkilegra. Fyrir tíu
þúsund árum, eða rúmlega það, var
ísöld lokið norður hér. Við tók hlý-
skeið sem sumir telja að nú sé senn
á enda. Mannkynið var þá orðið
eins og það lítur út nú. Akuryrlqa
hófst, ef til vill vegna batnandi
loftslags. Vera má að um svipað
leyti hafi maðurinn byijað að
brugga vín úr beijum. Búseta færð-
ist norður á bóginn. Skilyrði til
menningar voru að skapast. Það
var vor á jörðinni. Því er eðlilegt
að Ari Trausti skuli velja þetta
tímabil til umijöllunar, enda kallað
»nútími« á mali jarðfræðinga. —
»Eldvirkni á íslandi í 10.000 ár«
er undirtitill bókarinnar.
Þetta er afar glæsilegt rit, mynd-
skreytt mjög og sannarlega fyrir
augað ekki síður en fræðiástríðuna.
Málaðar og teiknaðar skýringar-
mjmdir eru líka eins og best verður
á kosið.
Sú er ein sérstaða fslendinga að
jarðfræðiþekking er hér meiri og
almennari en annars staðar. Leið-
sögumenn verða hvarvetna að vera
við því búnir að þeir séu spurðir
um myndun og jarðsögu. Basalt,
líparít og móberg eru orð sem fólk
tekur sér í munn um Ieið og það
nýtur bláma fjallanna eða klífur
himingnæfa tinda. Það lætur sér
ekki nægja yfírborðsþekkingu held-
ur vill það fylgjast með því sem
nýjast er í vísindunum á hveijum
tíma. Það gerir sér ekki að góðu
neinn bamalærdóm.
Þetta veit Ari Trausti og fer eft-
ir því. Og þar af leiðandi semur
hann textann fýrir lesendur sem
þegar vita talsvert um efnið. Hann
skiptir bók sinni í kafla og tekur
fýrir eitt eldstöðvakerfí í hveijum.
En um verk sitt segir Ari Trausti
í formála:
»Efni bókarinnar er ekki sprottið
af rannsóknum höfundar. Hann
leyfír sér þó stundum að setja fram
tilgátur eða ályktanir. Þess er þá
sérstaklega getið. Efnið er aðallega
unnið úr ritum annarra og stundum
úr samtölum við vísindamenn.«
ísland er eins og tilraunastöð
fýrir jarðfræðinga. Svo er talið að
hér gjósi á hveijum fímm árum til
jafnaðar, einhvers staðar á landinu,
og geta þau orðið æðimörg, gosin,
á meðal mannsævi. Þótt hér hafí
orðið fjögur eða fímm gos síðasta
aldarfjórðunginn skil ég svo að jarð-
fræðingar telji sig hafa lært einna
mest af Kröflueldum. Vegna mann-
virkja — og einnig nálægðar við
byggð — hefur verið fylgst með
þeim betur en nokkrum eldgosum
öðrum. Surtseyjargosið var að því
leyti merkilegt að þar hófst gos á
sjávarbotni og skildi síðan eftir sig
myndarlegan útvörð fyrir landið.
Heimaeyjargosið kom á óvart.
Heklugosið 1947 er enn i fersku
minni þeim sem miðaldra eru eða
eldri. En af fyrri alda gosum ber
Skaftárelda langhæst. Þeir hvíla
eins og skuggi yfír sögu 18. aldar.
En geta gos komið á óvart víðar
en í Heimaey? Hvað um Snæfells-
jökul svo dæmi sé tekið? Hans er
raunar getið í síðasta kafla þessar-
ar bókar. Af forvitni sökum hlaut
ég að lesa þann kafíann fyrst. Jök-
Ari Trausti Guðmundsson
ullinn er þó alltaf augnayndi okkar
Reykvíkinga. Og líka veðurspár-
merki. Of djúpt mun tekið í árinni
að segja að þar geti gosið hvenær
sem er. Þó eru þar virkar eldstöðv-
ar, það er staðreynd. Og þar er
þéttbýli á næstu grösum.
Bjami Thorarensen orti um gos
í Eyjafjallajökli. Talið er að upp úr
því hafi ólgandi Þverá byijað að
velta yfir sanda svo um munaði.
»Síðar kann að koma í ljós að Eyja-
fjallajökull hafí gosið oftar undan-
farin árþúsund en nú er vitað,« segir
Ari Trausti. Á Kötlu þarf varla að
minna. Meðan hennar var helst
von, fyrir svo sem tíu til fímmtán
árum, gaf maður henni lúmskt auga
hvert sinn er ekið var yfír sand.
En þar hefur margt breyst í ald-
anna rás. Ari Trausti minnir á að
eldstöðin hafí upphaflega gengið
undir nafninu Kötlugjá. Þá hafí
jöklar verið minni og sjálf eldstöðin
ekki verið jökli hulin svo mjög sem
nú. En Katla er varla búin. Hún á
örugglega eftir að minna á sig.
Oræfajökull getur átt eftir að
bæta við hæð sína því hann telst
til eldfjalla. »Jökullinn er ekki að-
eins stærsta eldfjall landsins,« segir
Ari Trausti, »heldur hefur hann líka
nokkra sérstöðu. Hann hefur lengi
verið talinn eina virka eldstöðin
utan stóru eldvirku svæðanna, þótt
Suðurlandsgosbeltið sé reyndar
ekki langt undan.«
Höfuðborgin stendur ekki á eld-
gíg, að vísu, en liggur þó skammt
frá einhveiju eldvirkasta svæði
landsins. Mikill hluti Reykjanes-
skagans er bmnahraun. Um þetta
svæði segir Ari Trausti: »Talið er
að gosmyndanir frá nútíma séu að
minnsta kosti 42 rúmkflómetrar og
hraunin þekja rúmlega 1060 fer-
kflómetra. Eldstöðvamar em vafa-
lítið 200 eða fleiri.«
Eldstöðvum fylgja gjama jarð-
skjálftar og minnir Ari Trausti á
að jarðskjálftar séu tíðir á svæðinu.
Fyrir þá, sem áhuga hafa á jarð-
fræði en hafa ekki tækifæri til að
ferðast langar leiðir, er Reykjanes-
skaginn tilvalið rannsóknarefni.
Eins og fyrr segir er bók þessi
mjög myndskreytt. Hygg ég að
óvíða gefi að líta landslagsmyndir
þar sem betur fara saman fróðleik-
ur og augnayndi. Margar mynd-
anna em teknar úr lofti og sýna
því gíga og aðrar eldgosaminjar
sem lítið ber á eða alls ekki sjást
þegar horft er af láglendi. Kort em
lfka víða með textanum. í fáum
orðum sagt: vandað rit, fallegt og
sérlega fróðlegt.
HRINGDU
og fáðu áskriftargjöldin
skuldfærð á greiðslukorta-
reikning þinn mánaðarlega.
m
SÍMINN ER
691140
691141