Morgunblaðið - 16.12.1986, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
35
Stofnun ferðamála-
skóla er tímabær
eftir Gunnar G.
Schram
Ferðamannaþjónusta er sú at-
vinnugrein sem um þessar mundir er
í einna mestum vexti af öllum grein-
um atvinnulífsins hér á landi. Allar
líkur eru á að sú þróun muni halda
áfram á næstu árum og ferðamálin
verði æ mikilvægari þáttur í þjóðar-
búskap okkar íslendinga.
Til þess að svo megi verða er þó
nauðsynlegt að búa vel að þessari
starfsemi og það á ekki síst við um
menntun þeirra sem að ferðamálum
starfa. Þeir sem vilja starfa við ferða-
mál, og mennta sig í þeim efnum,
verða nú að sækja nám sitt að lang-
mestu leyti til skóla erlendis.
Tillag-a á Alþingi
Af þessum sökum bar ég fyrir
skömmu fram tillögu á Alþingi um
stofnun fyrsta ferðamálaskólans hér
á landi. í tillögunni er ríkisstjóminni
falið að hraða undirbúningi að stofn-
un slíks skóla. Þar er gert ráð fyrir
að veitt verði menntun í þeim greinum
sem tengjast alhliða ferðamannaþjón-
ustu svo að ekki þurfí lengur að
sækja nám í þessari ört vaxandi at-
vinnugrein til útlanda.
3.500 ársverk
Spytja má hver sé nauðsyn þess
að stofna slíkan skóla. Því er best
svarað með því að benda á hve mik-
ill fjöldi manna starfar nú þegar við
ferðamannaþjónustu og hvert er orð-
ið mikilvægi ferðamalanna í íslensk-
um þjóðarbúskap. A síðasta ári er
áætlað að ársverk þeirra, sem störf-
uðu að ferðamálum, hafí verið um
3.500 og stefnir þar í verulega aukn-
ingu.
Til samanburðar við aðrar atvinnu-
greinar má nefna að vægi ferðaþjón-
ustu á vinnumarkaði er nú heldur
meira en allrar bankastarfsemi í
landinu. Þessi staðreynd sýnir að
tímabært er orðið að komið verði á
skipulegri fræðslustarfsemi fyrir
þann mikla fjölda sem að ferðamálum
vinnur, ekki síst með það í huga að
allar vonir standa til að veruleg aukn-
ing verði á þessu sviði á næstu árum.
Er það ekki síst vegna vaxandi kynn-
ingar á íslands erlendis, m.a. í kjölfar
leiðtogafundarins sem hér var hald-
inn í haust.
Gjaldeyristekjur um 4
milljarðar króna
Mikilvægi ferðaþjónustunnar má
einnig sjá af því að nú skilar hún
meiri tekjum í þjóðarbúið en margir
gera sér ljóst. Á þessu ári munu gjald-
eyristekjur af erlendum ferðamönn-
um nema um 4 milljörðum króna og
er þá ekki tekið tillit til „duldra gjald-
eyristekna". Hinar beinu gjaldeyris-
tekjur eru um 7% af heildarútflutn-
ingstekjum þjóðarinnar og jafngilda
um 40% af útflutningstekjum allra
frystra fískafurða landsmanna. Af
þeim tölum sést hve gildur þáttur í
þjóðarbúskapnum ferðamannaþjón-
ustan er þegar orðin.
En hér er ekki aðeins um það að
ræða að ferðamannaþjónustan stór-
bæti gjaldeyrisstöðu þjóðarinnar.
Aðrar atvinnugreinar hafa einnig hag
af henni. Má þar nefna auknar tekjur
flugfélaganna, gisti- og veitinga-
staði, sérleyfis- og hópferðaakstur,
leigubifreiðaakstur, framleiðslu og
sölu matvæla, minjagripa og fatnað-
ar. Erlendir ferðamenn eru þvi eins
konar viðbót við neytendur landsins.
Nýjar leiðir
Hingað munu koma um 110 þús-
und erlendir ferðamenn á þessu ári.
Á því leikur ekki nokkur vafi að sé
hér rétt á málum haldið og mótuð
ákveðin og markviss ferðamálastefna
getur ferðamönnum farið mjög fjölg-
andi á næstu árum. ísland er land
hins hreina vatns, tæra lofts og óm-
engaðrar náttúru. Hingað hafa því
ferðamenn margt að sækja og
ómældir eru þeir möguleikar, sem
felast í þeim kostum, sem ísland hef-
ur yfír að ráða í hverum sínum og
heitum laugum. Á því sviði getur
mikil uppbygging átt sér stað ekki
síður en á sviði hótel- og gisti-
þjónstu, en þar er nú mjög vel að
verki staðið þessi misserin fyrir frum-
kvæði dugmikilla einstaklinga.
Gunnar G. Schram
„Þetta sýnir að fyllilega
er orðið tímabært að
koma á fót almennum
f erðamálaskóla þar
sem auk gisti- og veit-
ingareksturs yrðu
kenndar aðrar greinar
sem að móttöku og
þjónustu við ferðamenn
lúta.“
Þetta sýnir að fyllilega er orðið
tímabært að koma á fót almennum
ferðamálaskóla þar sem auk gisti-
og veitingareksturs yrðu kenndar
aðrar greinar sem að móttöku og
þjónustu við ferðamenn lúta.
Má þar nefna rekstur ferðaskrif-
stofa og störf á því sviði, svo sem
skipulag ferða, ráðstefnuhald, útgáfu
farseðla og markaðs- og kynningar-
mál. Annar þáttur er leiðsögn ferða-
manna, en á því sviði er þegar um
árlegt námskeiðahald að ræða. Þá
má nefna gestamóttöku, tungumála-
nám o.fl. auk þeirra greina sem
tengjast rekstri hótel- og gistihúsa í
þéttbýli og dreifbýli.
I þessari tillögu er ekki um það
fjallað hve langt slíkt nám ætti að
vera eða hvar í skólakerfínu ætti að
fínna því stað. Ekki sýnist þó nein
ástæða til að um háskólanám verði
hér að ræða.
Undirbúningur
þegar hafinn
Nokkur undirbúningur að þessu
máli hefur þegar átt sér stað. Árið
1983 var gerður samningur milli
menntamálaráðuneytisins og bæjar-
stjómar Kópavogs um skólahald á
framhaldsskóla- og grunnskólastigi í
Kópavogi. Er m.a. gert ráð fyrir að
komið verði þar upp skóla í matvæla-
greinum og að hagkvæmt yrði að
tengja saman hótel- og veitingaskóla
og matvælaskóla. Hefur nefnd, sem
um mál þessi hefur fjallað, gert ráð
fyrir að við Menntaskólann í Kópa-
vogi verði komið upp bóknámssvið-
um, gestamóttökubraut og leiðsögu-
braut, sem tengdist verknámi á
matvæla- og hótelsviði.
Með þessu hefur ákveðið undirbún-
ingsstarf þegar verið unnið og
greinilega er það bæði hagkvæmt og
skynsamlegt að tengja nám í ferða-
málum við Hótel- og veitingaskólann,
sem verða mun í Kópavogi þegar
húsnæði þar hefur fengist.
Með stofnun fyrsta ferðamálaskóla
landsins mun mikilvægt skref verða
stigið til þess að efla þessa ört vax-
andi atvinnugrein og það tryggt að
ungt fólk, sem starfa vill að ferðamál-
um, þurfi ekki lengur að sækja
menntun sína út fyrir landsteinana.
Höfundur er einn af alþingis-
mönnum Sjálfstæðisflokks fyrir
Reykjaneskjördæmi.
Litir: Dökkblátt/grátt, hvítt/rautt,
Rautt/grátt, dökkblátt/hvítt
stærðir: 45-56
6.950.-
LASERFRÁ
ADIDAS
Póstsendum samdægurs
BOLTAMAÐURINN
SPENNUSAGA ÁRS/NS
lÍFSHÁSKI í LJBNADAl
AA Hér er komin nýjasta skáldsaga breska met-
söluhöfundarins Ken Folletts, sem meö,al
annars er kunnur fyrir bækur sínar Þrenning,
Lykillinn aö Rebekku, Nálaraugaog Maðurinn frá
Sánkti Pétursborg. Lífsháski í Ljónadal hefur
komiö út víöa um heim, vakiö mikla athygli og
verið lalin besta spennusaga ársins af gagn-
rýnendum.
I' Lífsháska í Ljónadal er meistaralega
* tvinnaö saman hraöa, spennu og ástar-
ævintýrum þar sem ung bresk kona, franskur
læknir og bandarískur blaðamaöur lenda
í óvæntum átökum og ævintýrum.
Jk Njósnir, starfsemi skæruliöa og
N mögnuð átök setja svip á
þessa frábæru spennusögu
snillingsins Ken Folletts.
VJUU IjrigafcU
LAUGAVEGI 27 SIMI 15599
GOTT FOLK / SÍA