Morgunblaðið - 16.12.1986, Side 41

Morgunblaðið - 16.12.1986, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRÍÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986 m. m ■mvm Matinbleu tískugallar. fallegir. 6 mismunandi smart teg- undir, léttir, þægilegir. Víð og góð snið. Litir: Kóngablátt, grænt, svart, rautt, dökkbleikt, hvítt, grátt, gult. 7.557 4.533 UVERSLUNIN Metsölublad á hverjum degi! TVIBURARNIR PÉTUR OG PETRA Bókmenntir Sigurður Haukur Guðjónsson Hans Peterson: Æ, þetta er sárt! Þýðing: Sigrún Á. Eiríksdóttir Almenna bókafélagið Þetta er ein hinna frábæru sagna, sem ekki mega gleymast. Kemur þar margt til. Það fyrst að sagan er skemmtilega skrifuð og myndir meistaralega gerðar, nú svo er hún fræðandi, ekki aðeins fyrir böm, heldur uppalendur líka. Tvíburamir Pétur og Petra em skilin eftir í viku í umsjá afa og ömmu í sumarbústað á eyju í skeija- garðinum sænska. Ýmsu eru þau gömlu hjónin vön, því að tveggja metra sláninn, sonur þeirra, var með meiri hrakfallabálkum er þekktust. En hvað var hann bless- aður hjá tvíbumnum? Föðurbetr- ungar? Allt eftir því hvemig á er litið. Þegar bömin hitta foreldra sína á ný stendur í sögunni: „Sjáið þið mig, kajlaði Pétur til mömmu og pabba. Ég er með sjö plástra ogtvö sárabindi. Og átta marbletti. •— Hvað í ósköpunum er þetta, sagði mamma og sté í land. — Þetta er sonur minn, sagði pabbi. Hann ætlar að líkjast mér. Ég meiddi mig ekki neitt, eða næstum því ekki neitt, sagði Petra og faðmaði mömmu. Það leið bara yfir mig og svo stóð í mér og svo drakk ég eitur og gubbaði. Svo flumbraði ég á mér ennið og sneri mig.“ Vesalings afi og amma flýja sæluna. Hrakfallabálkamir leiða hugann að því sem unglingum og uppalend- um er þörf á að vita. Aftan við söguna eru frábærar leiðbeiningar um skyndihjálp, þroskaferill bama ræddur og bent á margt af því er varast ber. Þessa bók ættu því foreldrar að lesa með bömum sínum og ég fullyrði að slík bók ætti að vera til á hveiju heim- ili þar sem böm alast upp. Ég hefði kosið að sjúkrakaflinn væri skráður á stærra letri. Við sem farin emm að missa sjón, lesum hann ekki gleraugnalaust og gulu leiðbeiningamar til foreldra er okk- ur ákaflega óskýr. Þýðing er góð, en stundum hefír þýðanda verið vandi á höndum, t.d. í upphafi þegar orðið eyðiey er not- að með úrdrætti þó, um 200 manna byggð. Eins þekktum við strákar ekki þverbita á hníf í minni æsku. En þetta eru hártoganir og skipta engu. Hafí allir sem að unnu þökk fyr- ir frábæra bók. Vegna flutninga í janúar að Skipfiolti 33 fiöfum við meirifiáttar Rúmingarsölu. Allt að 20% afsláttur. Sparaðu þér filaupin oy gerðu kaupin á Vöruloftinu Vöruloftíð Sigtúni 3, Sími 83075 Það þarf ekki sporhund til að leita uppi lágu verðin á Vöruloftinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.