Morgunblaðið - 16.12.1986, Síða 53

Morgunblaðið - 16.12.1986, Síða 53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986 Landlæknir setur fundinn að Hótel Borg. Við háborðið eru, talið frá vinstri, Eiríkur Tómsson Hæstaréttarlögmaður, Björn Björnsson prófessor, Ólafur Ólafsson landlæknir, Skúli G. Johnsen borgarlæknir og fundarstjóri, Kristján Erlendsson ónæmisfræðingur og Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómalæknir. Borgarafundur á Hótel Borg; Útbreiðsla alnæmis hérlendis komin á alvarlegt stig ALMENNUR borgarafundur var haldinn að Hótel Borg, siðastlið- inn laugardag, á vegum land- læknisembættis, þar sem rætt var um fræðslu og vamir gegn alnæmi. Nokkrir framsögumenn héldu erindi og að þeim loknum voru almennar umræður. Ólafur Ólafsson landlæknir setti fundinn og fundarstjóri var Skúli Johnsen borgarlæknir. Sigurður Guðmundsson smitsjúkdómalæknir og Kristján Erlendsson ónæmis- fræðingur ræddu um alnæmi frá sjónarhorni læknisfræðinnar. Sig- urður gat þess m.a. að nýlega væri fram kOmin ný tegund alnæmis- veiru og væri þessi veira náskyld íslensku visnuveirunni. Sigurður gat þess að með hliðsjón af því að fjórir menn hefðu lokastig sjúk- ððmsins hérlendis. osr að fvrir hvem einn slíkan gætu allt að 300 manns verið með fyrri stig veikinnar, væri ísland í 8. sæti að því er varðaði útbreiðslu alnæmisveirunnar og í 5. sæti í Evrópu. í erindi sínu, ræddi Kristján Er- lendsson m.a. um leiðir í baráttunni gegn alnæmi og þá sérstaklega um möguleika þess að smitprófa stóra hópa eða jafnvel alla þjóðina. Kristj- án taldi marga vankanta vera á að smitprófa alla þjóðina. í fyrsta lagi væri slík prófun óhemju dýr (u.þ.b.100 milljónir), í öðru lagi þyrfti að framkvæma slíka prófun oft ef hún ætti að gefa einhvem árangur, í þriðja lagi gæti slík próf- un gefíð fólki falska öryggiskennd og síðast en ekki síst þyrfti að prófa alla þjóðina í einu, en slíkt hlyti að teljast óframkvæmanlegt. Að tölu læknanna lokinni hélt Björn Bjömsson prófessor erindi um alnæmi og siðferðilega ábyrgð. Bjöm taldi það bestu vömina að einstaklingar hefðu til að bera sið- ferðilega dómgreind. „Uppfræðsla barna um veijur er ágæt sem slík, en það er mun meira virði að kenna bömum að meta siðferðileg gildi. Það er út í hött að kenna bömum tæknileg atriði kynlífs en ekki grundvallarreglur um mannleg samskipti." Bjöm taldi það og ósæmandi að menn, sem hlytu slíkan sjúkdóm væm dregnir í ein- hveija ákveðna dilka og þeir stimplaðir sem syndarar eða sekir menn. „Við menn sem slíkt gera, er aðeins eitt að segja: Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrsta steinin- um.“ Eiríkur Tómasson flutti því næst erindi, þar sem hann fjallaði um ýmis lögfræðileg álitaefni er snertu alnæmi, sérstaklega að því er varð- aði frelsissviptingu og heimild til þess að taka blóðsýni af mönnum að þeim forspurðum. Eiríkur kvað kynfrelsi vera eitt af þeim gæðum, sem varið væri af lögum, þ.a. menn verði ekki þvingaðir til þess að hafa kynmök við aðra en þeir vilja. „Þetta frelsi mega menn þó ekki misnota frekar en frelsi almennt, t.d. til þess að valda öðrum mönnum tjóni." Eiríkur sagði að samkvæmt hegningarlögum væri það refsivert að valda öðrum hættulegum sjúk- dómi og gæti slíkt varðað fangelsi allt að 6 árum. Einnig varpaði Eirík- ur fram því álitaefni, hvort að ekki mætti flokka það sem manndráp, þegar alnæmissjúklingur héldi upp- teknum hætti, með vitneskju um sjúkdóm sinn. 53 Síðasta erindið var flutt af Böð- vari Bjömssyni, en hann er starfs- maður San ^aka ’78 og Iaunaður af landlækni til þess starfa að mál- um varðandi alnæmi með hommum. Böðvar benti á, að í þijú ár hefði sjúkdómurinn verið landlægur með- al homma, en nú fyrst þegar hætta væri á útbreiðslu meðal annarra þjóðfélagshópa, væri gripið til að- gerða; ekkert hefði verið gert til að hefta útbreiðslu alnæmis innan hommahópsins. Böðvar gagnrýndi einnig bækling þann, sem land- læknisembættið hefir nýverið gefið út. Samtök ’78 hefðu fengið hand- rit til yfirlestrar og gert við það samtals 23 athugasemdir, en engin þeirra hefði verið tekin til greina. „Bæklingur þessi er mjög illa unn- in, engin heil hugsun er í honum, heldur er hann bara auglýsing fyrir smokka. Ekkert er hins vegar gert. til þess að upplýsa unglinga um „savesex" eða öruggt kynlíf." Böð- var tók það sem dæmi um viðhorf heilbrigðisyfírvalda, að í bæklingum hefði verið talin ástæða til þess að skýra orðið „gagnkynhneigður" en ekki orðið „samkynhneigður" enda væri þá verið að jafna slíku saman, en slíkt gengi greinilega ekki. Hins vegar hefði verið talin ástæða til þess að þýða orðið „hommi“, þrátt fyrir að hvert mannsbam vissi hvað það þýddi. Böðvar taldi bæklinginn frekar ýta undir fordóma, en hitt. Að loknum framsöguerindum tóku margir fundargesta til máls. Meðal þeirra var séra Þorbergur Kristjánsson, sem taldi að sú stefna heilbrigðisyfírvalda að veita ung- mennum fræðslu um notkun veija, hlyti að auka þrýsting á þau að taka upp kynlífshegðan, sem þau hefðu ekki þroska til og þar með auka hættuna á aukinni útbreiðslu. „Telja menn það gæfuveg að af- skrifa lögmál Guðs? Væri ekki ástæða til þess, jafnframt því að fræðsla sé veitt, að þau séu hvött til þess að sýna aðgát og bindindis- semi þar til þau hafa fundið þann eða þá réttu?" Þegar þú greiðir með tékka, fyrir vöru eða þjónustu, og sýnir Bankakortið þitt, jaíngildir það ábyrgðarskírteini frá viðskiptabankanum eða spari- sjóðnum þínum, sem ábyrgist innstæðu tékkans að ákveðinni hámarksupphæð og tryggir þannig viðtakandanum innlausn hans. Viöskiptineiga sér þannig stað að um leið og þú afhendir tékkann, sýnirðu Bankakortið og viðtakandinn skráir númer kortsins á hann. Þannig er Bankakortið þitt tákn um trausta viðskiptahætti. Hafðu Bankakortið því ávallt handbært. Bankakortíð - nauðsynlegt í nutimaviöskiptum Samvinnubankinn, Útvegsbankinn, Alþýöubankinn, Búnaðarbankinn, Landsbankinn, Verzlunarbankinn og Sparisjóðirnir. veitta AUK hf. X2.1/SIA
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.