Morgunblaðið - 16.12.1986, Side 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
Máttur blómafrj ókorna
Athugasemd vegna viðtals við Magnús Jóhannsson og Guðjón Magnússon
+
eftir Ævar
Jóhannesson
í Morgunblaðinu 14. nóvember
sl. er nærri heil opna um lækninga-
mátt „pollens" eða blómafijókoma.
Ég ætla ekki á þessu stigi máls-
ins að fara að blanda mér í þær
umræður, en get þó ekki stillt mig
um að gera stutta athugasemd við
ummæli Magnúsar Jóhannssonar,
dósents, og Guðjóns Magnússonar,
aðstoðarlandlæknis, sem báðir eru
beðnir að segja álit sinn á blóma-
frjódufti og hugsanlegum lækn-
ingamætti þess.
Báðir þessir menn eru vel mennt-
aðir og þekktir læknar, svo að ekki
ætti að óreyndu að vera ástæða til
þess að gera ráð fyrir að þeir láti
hafa eftir sér neitt fleipur. Því mið-
ur virðist mér þó að sumt það sem
þeir sögðu blaðamanninum í áður-
greindu viðtali þurfí að endurskoða
nokkuð, eigi allur sannleikurinn að
koma fram.
Magnús Jóhannsson segir svo í
viðtalinu: „Það koma upp svona
dellur á eins til þriggja ára fresti
og em svo sjálfdauðar skömmu
síðar, eftir að fólk prófar þetta, en
kemst svo að því að það gerir ekk-
ert gagn. Til dæmis er núna lítið
rætt og ritað um kvöldvorrósarolí-
una, sem kom á markaðinn fyrir
nokkrum árum, en það er einmitt
vegna þess að fólk prófaði hana,
en árangurinn lét á sér standa. Ég
hef enga ástæðu til að ætla að um
annað sé að ræða hvað varðar
blómaftjókom.
Það hefur sama sem ekkert verið
skrifað um þetta frá læknisfræði-
legu sjónarmiði og það era engar
ER ERFITT
i AÐ FINNA
ISSKÁP
SE.M
UPPFYLLIR
ALLAR
OSKTR ?
Bauknect býður:
Allar stærðir og gerðir ísskápa
Einstaka hönnun
Tæknilega fullkomnun
Hver hlutur á sinn stað
Hentar jafnt stórum fjölskyldum sem smáum
og er hrein heimilisprýði
BAUKNECHT VESTUR-ÞÝSK GÆÐAVARA
Líttu inn og skoðaðu skápana á staðnum og hafðu
með þér heim íslenska bæklinginn frá BAUKNECHT
RAFBÚÐ SAMBANDSINS TRYGGIR ÖRUGGA
ÞJÓNUSTU
VERÐ
FRA:
20.900.-
MHf
^SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SiMAR 6879/0-681266
auknecht
tnjólk
Hffri
upplýsingar sem benda til þess að
þetta sé eins hollt og gott og fram-
leiðendur vilja vera láta.“ Tilvitnun
lýkur.
Báðar þessar fullyrðingar Magn-
úsar, um kvöldvorrósarolíuna og
blómafijókonin era, að mati undir-
ritaðs og annarra sem kynnt hafa
sér þessi mál, rangar eins og nú
skal rökstutt.
Nú munu hafa verið gerðar yfír
hundrað vfsindalegar rannsóknir
með tvöfaldri blindprófunaraðferð á
gagnsemi kvöldvorrósarolíu við
ýmsum sjúkdómum og hafa fjöl-
margar þeirra ótvírætt sannað
gagnsemi hennar. Sagt hefur verið
frá sumum þessara rannsókna í
víðlesnum og virtum læknatímarit-
um, t.d. The Lancet, tímariti
breskra lækna. Ég trúi illa að
Magnús Jóhannsson taki upplýsing-
ar þaðan ekki gildar.
Astæða þess að minna er nú
skrifað um kvöldvorrósarolíu en
fyrir nokkram áram er sú, að þekk-
ing á henni er nú orðin almennings-
eign og ýmsir þeir sem frekast
þurfa á henni að halda vita um
hana og nota að staðaldri eða öðra
hvora. önnur ástæða þess að minna
er nú skrifað um hana er sú að
enginn vísindamaður með minnsta
snefíl af sjálfsvirðingu skrifar nú
gegn notkun hennar, síðan áður-
nefndar rannsóknamiðurstöður
vora birtar og því hafa deilur um
hana hljóðnað. Éinnig hefur komið
í ljós á allra síðustu áram, að stund-
um má ná líkum og í vissum tilfell-
um betri árangri á ódýrari hátt,
með því að nota þorskalýsi eða aðr-
ar fítur af Omega-3 fitusýraröðinni.
Það rýrir þó á engan hátt gildi
kvöldvorrósarolíunnar sem slíkrar,
og heldur ekki það, að nú era komn-
ar og era að koma á markaðinn
fleiri tegundir fjölómettaðra olía
með líka fítusýrasamsetningu, sem
keppa við kvöldvorrósarolíuna um
markaðinn.
Líkt má segja um blómafijókom-
in, þó að ennþá hafí ekki verið
gerðar jafn margar tvöfaldar blind-
prófanir á þeim. Þó era nú þegar
til nokkrar slíkar prófanir sem m.a.
sýna aukið þrek íþróttamanna sem
nota fijókomin fram yfír viðmiðun-
arhópa, sem fengu óvirkar snuð-
pillur. Einnig sýndu tvöfaldar
blindprófanir að efni úr blómdufti
era öflugt lyf gegn ýmiskonar þvag-
færasýkingu, þ. á m. bólgum í
blöðrahálskirtli.
Ef Magnús Jóhannsson efast um
sannleiksgildi þeirra upplýsinga,
sem ég er hér að segja frá, skal
ég með ánægju veita honum nánari
upplýsingar um heimildir og get
jaftivel látið hann fá ljósrit af ein-
hveijum slíkum skýrslum. Honum
„Báðir þessir menn eru
vel menntaðir og þekkt-
ir læknar, svo að ekki
ætti að óreyndu að vera
ástæða til þess að gera
ráð fyrir að þeir láti
hafa eftir sér neitt
fleipur. Því miður virð-
ist mér þó að sumt það
sem þeir sögðu blaða-
manninum í áður-
greindu viðtali þurf i að
endurskoða nokkuð,
eigi allur sannleikurinn
að koma fram.“
sem kennara í Læknadeild Hí er
nauðsynlegt að hafa slíkar heimild-
ir til að geta frætt nemendur sína
um einfaldar og áhættulausar að-
ferðir til að bæta eða lækna ýmsa
þráláta og örðuga sjúkdóma sem
læknisvísindunum hefur gengið illa
að ráða við með hefðbundnum lyfj-
um.
Þetta þýðir þó engan veginn að
ég eða nokkur annar, sem ég veit
til, álíti að kvöldvorrósarolía eða
blómafijóduft, sem ég veit því mið-
ur ekki nógu mikið um, bæti eða
lækni alla sjúkdóma, eins og oft er
látið í veðri vaka þegar rætt er um
svokölluð „náttúrameðul" af ein-
staka læknum, sem telja sig vita
allt um þau efni þó að þeir viti
líklega stundum ekkert meira um
þá hluti en meðalgreind húsmóðir
Bj örg'vin heldur
sínu striki
meðreisn
Hljömplötur
Árni Johnsen
Björgvin heitir nýjasta hljóm-
plata Björgvins Halldórssonar
söngvara, en þar syngur Björgvin
10 lög úr ýmsum áttum. Björgvin
bregst ekki bogalistin frekar en
fyrri daginn, hvorki sem frábær
söngvari eða maður sem vandar vel
til verka, því það er valinn maður
í hveiju rúmi.
Það er þægilegur og aðlaðandi
blær á þessari plötu Björgvins, lög
og textar sem er sótt bæði innan
lands og utan landi.
Það er fjölbreytileiki á plötu
Björgvins, ljúfar ballöður sem eru
sterkasta hlið Björgvins þótt hann
skili að sönnu ekki síður þróttmikl-
um lögum.
Útsenting laganna á plötunni er
fagmannlega gerð en þar hefur
Björgvin fengið til liðs við sig bresk-
an hljómlistarmann, Ed Welch,
bráðsnjallan tónlistarmann.
Liðsmenn Björgvins á þessari
plötu era Ásgeir Óskarsson á