Morgunblaðið - 16.12.1986, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
67
eða bóndi í sveit. Náttúrumeðul og
önnur fæðubótarefni geta oft gert
mikið gagn. Því ættu læknar frem-
ur að hvetja fólk til að nota þau
en að gera þau tortryggileg á röng-
um forsendum.
Guðjón Magnússon segist ekki
geta mælt með öðrum lyfjum en
þeim sem hann sé „100% viss um
að séu góð“. Þetta er í sjálfu sér
virðingarvert sjónarmið og væri
betur ef hann og læknar almennt
færu eftir því heilræði og að engin
lyf væru á markaðinum nema að-
eins þau sem allir væru sammála
um að aðeins væru „góð“ og gætu
aldrei haft neinar slæmar verkanir.
Því miður mundi framkvæmd þessa
heilræðis þýða það, að mestöll lyfja-
notkun legðist niður, sem er áreið-
anlega ekki það sem Guðjón hefur
átt við eða ætlast til með þessu
orðalagi sínu. Því sýnist mér að
best sé fyrir alla að gleyma þessum
orðum hans og flokka fremur lyf
eftir því hvort sjúklingum batnar
af þeim eða ekki. Stundum fínnst
mér og ýmsum fleirum Guðjón sýna
í skrifum sínum einhvers konar
menntahroka, sem stingur mjög í
stúf við háttvísa og viðfeldna fram-
komu hans í sjónvarpi. Hann vill
láta líta svo út að þekking hans
sjálfs (og staða) sé svo yfírgrips-
mikil og langt hafin yfir þekkingu
almennings, einnig hvað varðar
náttúrumeðul, hómópatalyf og aðr-
ar óhefðbundnar lækningaaðferðir,
,að hann geti talað niður til almenn-
ings, eins og hverra annarra óvita.
Þá sést honum stundum yfir það,
að læknar með engu minni menntun
en hann sjálfur hafa stundum skrif-
að vísindalegar greinar um eitthvað
sem hann dæmir og fínnur létt-
vægt, t.d. blómaftjóduft, og að
greinar eða rannsóknarskýrslur um
þau efni hafa verið birtar í vísinda-
tímaritum, sem hann stöðu sinnar
vegna ætti að hafa lesið. Vilji hann
ógilda niðurstöður þess háttar rann-
sókna verður hann að birta eða
vitna í aðrar nýrri eða betri rann-
sóknamiðurstöður, sem ógilda
hinar fyrri. Þá fyrst getur hann
sest í dómarasætið.
Hitt er svo annað mál, að sjálf-
sagt er að vera vel á verði þegar
ný eða gömul „undralyf' eru sett
á markaðinn og e.t.v. auglýst með
brauki og bramli. Ekki má gleypa
við hveiju sem er gagnrýnilaust.
Þar er ég þeim Guðjóni Magnússyni
og Magnúsi Jóhannssyni hjartan-
lega sammála. Vel má vera að í því
efni sé vandratað meðalhófið og að
þeir séu þar í erfiðri aðstöðu og
verði þá kannske stundum á að
veifa fremur röngu tré en engu.
Réttmæt gagnrýni á þessu sviði sem
öðru á fullan rétt á sér en gagnrýn-
in má samt ekki ganga út í þær
öfgar, að lokað sé augunum fyrir
fullgildum rannsóknamiðurstöðum,
auk reynslu almennings, aðeins
vegna þess að þær niðurstöður falla
ekki að persónulegum skoðunum.
Höfundur er starfsmaður Raun-
vísindastofnunar Háskóla íslands.
trommur, Tómas Tómasson á
bassa, Þórður Amason á gítar, Jon
Kjell og Ed Welch á hljómborð,
Kristinn Svavarsson og Howie
Casey á saxófón og félagar úr Sin-
fóníuhljómsveitinni leika strengja-
kafla en auk þess koma ýmsir aðrir
góðir tónlistarmenn við sögu.
í hvert skipti sem von er á ein-
hveiju nýju frá Björgvin Halldórs-
syni veldur það spennandi
vangaveltum hjá fólki og Björgvin
rímar við það því hann heldur sínu
striki með stfl.
Það má með sanni segja að á
plötunni sé hvert lagið öðru betra
og þau sækja á við nánari kynni.
Slíkt er jákvætt því til lengdar eru
það bitastæðari leiðin fremur en
skyndikynni sem gufa upp. Á plötu-
umslaginu mættu gjarnan vera
meiri upplýsingar um flytjendur og
höfunda, en sá pottur er víða brot-
inn hér á landi í sambandi við
hljómplötuútgáfu að ekki er sinnt
nægilega að gefa upplýsingar um
aðstandendur. En platan er hörku-
góð.
Gefið nytsamar
jólagjafir
FRÁ
GENERAL ELECTRIC
Raftækja- og heimilisdeild
HEKLAHF
Laugavegl 170-172 Simi 695550
Tölvur til leikja, náms og starfa skipa nú sífellt stærri sess á heimil-
um íslendinga. En ánægja og árangurtölvunotandans grundvallast
ekki aðeins á fullkomnum tölvum, þægilegir stólar og hagkvæm
tölvuborð skipta einnig verulegu máli.
Reyndu skrifborðsstólana og tölvuborðin frá Stáliðjunni - þau
koma þægilega á óvart.
Gefðu nytsamarog góðar jólagjafir.
Tölvuborð frá kr. 4.700.-
Skrifborðsstólar frá kr. 3.683.-
Góðir greiðsluskilmálar. OTií
Tökum við greiðslukortum. LIlæJ^XN |
Okkar stolt - ykkar vellíðan. SMIÐJUVEGI5, KÓPAVOGI, SÍMI43211 i
-•#
1
i A t fe* 4 l-Xí l 5 S 1Æ4.JU lé & £