Morgunblaðið - 16.12.1986, Side 83
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
83
höfnum sínum dreifður um lands-
byggð alla, og víðast burðarás
þeirra staða, að ómögulegt væri án
að vera, og mætti sannarlega til
furðu telja, að ekki skuli svo hver
einasti maður og kona sem treyst
hafa þessari stofnun fyrir aurunum
sínum, fyrir löngu hafa hreinsað
það útúr öllum húsum þessarar
stofnunar svo sem gantagangurinn
hefur óheftur yfir dunið nú uppá
síðkastið, og sýnir það best hve
góðan og traustan huga fólkið ber
til bankans. Og þótt maður komi
manns í stað, og banki verði látinn
gleypa annan banka, er ekki fyrir
að synja að þar geti böggull átt
eftir að fylgja skammrifi í ýmsum
þáttum þeirra breytinga sem verða
kunna.
Það er þá ekki heldur því að
leyna, að svo virðist að ríkið sjálft,
sem á þó þessa ágætu stofnun, sé
sá veraldarlegi vesalingur, að fótum
fram kominn í öllu formi til að
standa í fararbroddi þjóðar sinnar
til viðreisnar og endurhjálpar í vá-
legum vindum, sem ávallt geta hér
yfír dunið, og þótt bankakerfið okk-
ar hafi að alltof stórum hluta hirt
úr vösum þegna þessa lands ótöld-
um og fjallháum fjármunum, í
ábata- og gróðaskyni eingöngu,
getur þó aldrei orðið svo traustum
böndum reyrt um háls okkar og
hendur, að ekki geti úr kvamast í
ýmsar áttir, og hélt ég satt að segja
að í mörgu tillitinu væri þá komið
að öðmm að kvarta, þegar banka-
starfsemin okkar væri komin á
vonarvöl.
En reisn og metnaður stjórnvalda
í þessu máli getur enganveginn,
talist stóram stráum stráð á veg
þeirrar framtíðar sem áfram sækja
þeir til framvindu sinna verka um
ókomin ár. Mætti þar fremur um
þenkja, hvort ekki hefðu sniðið sér
þann skuggavald til erfiðra drauma
í göngu sinni um fagra fold til lið-
veislubeiðni um traust og trú sér
til handa í endumýjun um forastu
í stjómmálakapítula þessa lands.
En eftir að hafa horft uppá óguð-
legustu sóun á fjármunum hjá
öðram banka þessarar þjóðar, að
algjörri nauðsynjalausu, án nokk-
urrar minnstu aðfínnslu til neinna
átta, og þar á ofan var við stofnun
hans talið að ekki ætti að verða
dýrt fyrirtæki, þar til dygði 5 menn,
en sem nú að kominn er uppí 130
manna starfshóp, og auðvitað allir
hafa þar þjóðþrifaverk að vinna, og
ég vil að því fullum getum leiða að
þessi sparnaður, sem talinn er svo
mikils virði með fækkun bankanna
nú í framtíðinni, þá öllu verður á
botnin hvolft.
Ég er ekki að kvarta um það að
stofnun byggi hús yfir starfsemi
sína, ég er að álasa fyrir það, að
sóa fjármunum til þeirra hluta langt
út fýrir þarfamörk í allskonar
íburði, pijáli, og allra handa flott-
heitum eingöngu og spilamennsku,
sem engri átt nær.
Það er verið að gera mikið veður
útaf því, hver beri ábyrgð á tapi
Útvegsbankans, rétt eins og það
sé nú aðalkapítalið. Það mætti helst
líkja því við sjóferð, þar sem róið er
í góðum byr á haf út í von um
góðan afla. Auðvitað er það skip-
stjórinn sem ræður og ber ábyrgð
á sjóferðinni. En í miðri sjóferðinni
hleypir á ofsaveður og óviðráðan-
legt. Það er keyrt uppí ofsann og
boðaföllin bijóta á skipinu, en hvort
á að lóna uppí brotsjóinn eða reyna
að snúa skipinu og komast í land-
var eða heimahöfn. Það getur verið
lífshættulegt að snúa skipinu undan
í öldurótinu, en auðvitað tekur skip-
stjórinn þar ákvörðun, hvort hann
það gerir á réttu augnabliki eða
ekki, getur enginn dæmt um og
ekki hann einu sinni sjálfur oft á
tíðum. Kannski hefur hann róið of
langt á hafíð, og ber þá einnig
ábyrgð á því. En róðurinn er
áhættuatvinna, sem getur lánast,
en getur líka farið svo að menn
missi allar lóðimar og sjái þær aldr-
ei meir, þykist góðir að komast
lifandi í land. Álíka mætti eins segja
að ekki síður væri áhætta að lána
peninga, áhætta að fara útí útgerð
sem og hvaðeina sem við gerum.
Er ekki þetta okkar lífsins haf sem
við geram alla okkar tilvera útá,
einn sjóðandi og kraumandi ólgu-
sjór, sem enginn hefur trygga
ábyrgð fyrir hvar við að lokum
náum heilir í höfn?
En ríkið okkar íslenska, það ætti
ekki að vera það verr í stakk búið
en ég eða þú, að kollvarpast megi
við að tapa einum milljarði, eða
hálfum. Og það sem talað hefur
verið um að ausið hafi verið pening-
um í þetta fyrirtæki, Hafskip, þá
er vel að merkja, að mikið af þess-
um skuldum þess era dráttarvextir
og óreiðuvextir á öllum sviðum við-
skiptalífsins. Þetta era ekki útlagðir
peningar frá bankanum að öllu
formi, sem þarna er talið til taps í
þessu tilfelli.
Ég skal taka sem dæmi, að mað-
ur átti 100 þús. kr. víxil í banka.
Það liðu alveg óvart aðeins 3 dagar
frá síðasta gjalddaga þar til víxillinn
var borgaður, en hvað kostuðu þess-
ir 3 dagar? Hvorki meira né minna
en 3.750,00 krónur, eða eitt þúsund
tvöhundrað og fimmtíu krónur á
dag. Hefði nú þessi víxill legið í
óskilum í eitt ár, þá geta allir marg-
faldað 365 daga í árinu með kr.
1.250,00 að útkoman er nokkuð
glæsileg fyrir bankann að minnsta
kosti, því hún er hvorki meira eða
minna en kr. 456.250,00 og þá er
100 þús. kr. víxilskuldin orðin að
litlum kr. 556.250,00. Það vita svo
bæði guð og menn, að með svona
vaxtaokri liggja fleiri þúsundir
víxla. Auðvitað til að skýra -þetta
dæmi er þama um að ræða mánað-
ardráttarvexti, en það var ekki
bankinn að skýra greiðandanum frá
að víxillinn mætti liggja í einn
mánuð í bankanum á þessum vöxt-
um, og ekki heldur nemandanum
undir sama hátti til að komast í
skólann, stelpugreys unglingi. Nei,
og aftur nei, hann súnkaði auranum
með glöðu geði og bros á vör beint
í skúffuna hjá sér, og þóttist góðan
fenginn hlotið hafa, og marga fleiri
álíka. Nei, sko, hér er ekki um tap-
ið eitt að ræða, heldur baneitraða
og snarvitlausa pólitík, en það þarf
enginn að halda að sú tík lækni
allar þær skelfilegu ófarir þessarar
þjóðar í fjárráðum hennar, þótt einn
aðalbanki landsins verði boðinn með
meðlægi, eins og áður fyrr að gert
var með gamla ómaga, enda þótt
smáskvettuskragga slettist þar inn-
um dyragættina, og manni verður
á að spyija: Af hveiju var verið að
hlaupa undir bagga með Flugleiðum
og Arnarflugi og fleiri góðum fyrir-
tækjum hér á jörðu? Auðvitað af
því það var þjóðhagslegt þrifa- og
hagsmunamál, og með því sýndu
ráðamenn okkar reisn sína og mátt
til góðra verka, en nú aftur standa
þeir hrópandi útí auðnina, auglýs-
andi öllum heimi að engum komi
til hugar sinn minnsta fingur fram
að rétta, þá annar aðalbanki lands-
ins á í hlut, sem um allan sinn
lífstíma hefur staðið í fararbroddi
til stuðnings aðalatvinnufyrirtækj-
um þjóðarinnar, kringum allt
landið, útgerðinni og fískvinnsl-
unni, sem og mörgum öðram
þjóðþrifafyrirtækjum á landi hér,
sem ótaldar krónur, milljónir og
milljarðar hafa fært þessari þjóð á
ótal sviðum. Svona er nú þessi tík
okkar pólitíkin.
Einn er sá maður á landi hér sem
af sanngimi, viti og reisn hefur
skrifað um þetta mál og tilvera
Útvegsbankans. Það er Indriði G.
Þorsteinsson í Morgunblaðinu 30.
júlí sl. Hefðu fleiri af jafnmikilli
sanngimi og raunsæi rætt um þessi
mál væri manneskjulegri niður í
vitund og hugum manna en nú er.
En þrátt fyrir allt trúir því enginn
í fullri alvöru, að svo sé nú ráðandi
mönnum þessarar þjóðar heillum
horfnar, þrautseigja reisn og þor,
að það eitt til ráða finni í þessu
máli, að drusla því svo útí lág-
kúrana, að til annála megi um allan
aldur hafa í lágkúra vesalmennsk-
unnar, að okkar gamli, tryggi og
góði íslandsbanki verði sem bláfá-
tækur vesalingur borinn útúr sínum
veglegu byggingum, af líklega okk-
ar sterkustu ríkisstjómarráðherrum
sem hér um íslenskar grandir geng-
ið hafa um langa tíð. Þá mætti
segja mér, þá fram líða stundir, að
einhveijum að orði yrði, að svo
aumingjalega hefði enginn „gert“ í
nytina sína fyrr en á árinu 1986.
Útvegsbankinn á virðulegan og
veglegan sess í vitund og tilvera
íslendinga.
Akureyri:
Ok á mann og stakk af
Ljósastaur lagði réttvísinni lið og stöðvaði flóttann
TÖLUVERÐ ölvun var á Akur-
eyri og í Vestmannaeyjum
aðfaranótt laugardagsins og
mikið annríki hjá lögreglunni á
báðum stöðum. I Eyjum gistu
þrír fangageymslur og fjórir á
Akureyri. Á Ákureyri handsam-
aði lögreglan mann grunaðan um
ölvun við akstur, en hann hafði
áður ekið á gangandi mann og
stungið af.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum vora dansleikir á
þremur stöðum og mikið annríki
af þeim sökum. Ölvun var áberandi
í bænum, rúður brotnar og hiti í
mönnum, þrátt fyrir vitlaust veður.
Á Akureyri bar það helzt til
tíðinda að ekið var á gangandi
mann á Norðurgötu. Vegna hálku
á gangstétt og roks gekk maðurinn
í hjólföram á götunni. Aðvífandi
bíll lenti á honum og kastaðist
maðurinn fyrst upp á bílinn en síðan
í götuna fyrir framan hann og lá
þar rotaður. Ökumaður gerði sér
lítið fyrir, dró manninn frá bílnum
og ók á brott. Hann fannst skömmu
síðar, þar sem ljósastaur hafði lagt
réttvísinni lið og stöðvað flóttann.
Tvö vitni vora að atburði þessum
og gerðu þau lögreglunni viðvart.
Sá slasaði var fluttur á sjúkrahús.
Hann reyndist óbrotinn en mikið
skrámaður. Ökumaðurinn fékk inni
í lögreglustöðinni og er granaður
um ölvun við akstur. Þrír óláta-
belgir fengu gistingu á sama stað.
Bæjum, Snæfjallaströnd.
VÖRUFLUTNINGABÍLL valt í
botni Hestfjarðar við Isafjarðar-
djúp um miðjan dag á föstudag.
Ökumaðurinn, Bjarni Þórðarson
úr Hnifsdal, slapp ómeiddur.
Óhappið vildi þannig til að Bjarni
missti hjólin út af vegarkantinum
með þeim afleiðingum að bíllinn
Auk þessa var mikill órói í fólki
í bænum um nóttina. Talsvert var
um slagsmál, rúða var brotin í verzl-
un í miðbænum og einn fótbrotnaði.
Lögreglan taldi að hluti þessa mikla
drykkjuskaps stafaði af því, að víða
voru „litlu jólin“ haldin hjá fyrir-
tækjum í bænum á föstudagskvöld-
ið.
valt á hliðina á skaflbreiðu fyrir
utan veginn. Flutningabíllinn var
fullur af vöram, en Bjami var á
leið frá Reykjavík til ísafjarðar.
Hann var í samfloti með tveimur
öðrum vöraflutningabílstjóram,
sem komu honum til ísafjarðar.
Bifreiðin er talin lítið skemmd.
Jens í Kaldalóni
Vöruflutningabíll valt
í botni Hestfjarðar
Hér ergripurinn
alla
AEG
AEG höggborvélin hefur nánast
eiginleika dýrari véla nema verðið.
Högg, aftur á bak og áfram möguleika,
hraðastillir og með einu handtaki
breytt í skrúfvél.
VERÐAÐEINS:
Nákvæmni
í þína þágu.
B R_/E jÐ U R N_
ORMSSON HF
IAGMULA 9 SIMI 38820