Morgunblaðið - 16.12.1986, Síða 86
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
86
fc I k f
fréttum
HSimf
Þessi gæs fékk sig fullsadda af hamagangnum á Tjörninn: og kjag-
aði áleiðis í miðbæinn. Hins vegar hafði hún ekkert á móti athygli
ljósmyndarans og stillti sér bísperrt upp.
COSPER
— Vertu ekki að fara heim í þessu óveðri, frænka. Þú getur
sofið hér í nótt.
Hingað og ekki lengra!
MENNTASKOLINN VIÐ SUND
Eitrinu hafnað
Nemendur í 4.Y í Menntaskól-
anum við Sund hafa tekið
eindregna afstöðu gegn reykingum
og er bekkurinn með öllu reyklaus.
Segjast bekkjarfélagar frábiðja sér
öll viðskipti við „sölumenn dauð-
ans“, eins og tóbaksframleiðendur
hafa maklega verið nefndir.
Nú nýverið fékk bekkurinn
skrautritað skjal frá Krabbameins-
félaginu til staðfestingar því að
bekkurinn sé laus við eitrið. Að
þessu tilefni var meðfylgjandi mynd
tekin og sýnir hún hvar bekkurinn
hafnar sem einn maður tilboði
skuggalegs eiturmangara.
Að baki nemendunum stendur
umsjónarkennari þeirra, Guðmund-
ur Arnason.
i ---------------------------------
I vökinni á Tjörninni var mikið kraðak fugla, enda
stóð baráttan um brauðið sem hæst.
Af lífi dýra
og manna
. agana 9.-11. desember voru tveir nemendur í
' níunda bekk Þinghólsskóla, þeir Jón Bergur Hilm-
isson og Andri Konráðsson, í starfskynningu í Ijós-
myndadeild Morgunbiaðsins. Þeir voru sendir í bæinn
að ná myndum af mann- og dýralífinu þar. Arangurinn
lét ekki á sér standa og hér birtast þrjár myndir þeirra
félaga.
Skytturnar
komnar í klippingu
Þetta vélmenni var statt í Aust-
urstræti til þess að auglýsa
frumsýningu kvikmyndar um
frænda sinn.
Kvikmyndatöku myndarinnar
Skytturnar er nú lokið, en tök-
ur fóru fram í Reykjavík, Hvalfirði
og á hvalveiðimiðunum. Er nú unn-
ið að klippingu hennar. Handritið
er eftir þá Einar Kárason og Frið-
rik Þór Friðriksson, en Friðrik
leikstýrði jafnframt. Aðalhlutverk
eru í höndum þeirra Þórarins
Óskars Þórarinssonar og Eggerts
Guðmundssonar, en fjöldi annarra
leikara kemur fram í smærri hlut-
verkum.
Myndin greinir frá tveimur hval-
föngurum, sem koma í land að
lokinni hvalvertíð. Þetta eru gamal-
reyndir jaxlar, sem hafa varla
kynnst öðru lífi en sjómennskunni
og borgaralegt líf þeim næsta
ókunnugt. Nú er þó að því komið
að þeir telja tíma kominn til þess
að tengja. Hugleiða þeir jafnvel að
fá sér fast starf í höfuðstaðnum og
brjótast úr viðjum þeirrar útlegðar
sem sjómennskan hefur verið þeim.
I þessu skyni fara þeir víða; í
samkomuhús og skemmtistaði, í
heimsóknir til vina og ættingja, sem
þeir telja sig eiga. Þeir mæta þó
takmörkuðum skilningi og víðast
hvar koma þeir sér úr húsi með
ódannaðri framkomu og klaufa-
skap. Sjálfír gera þeir illt verra með
því að misskilja viðbrögð fólks,
bæði með kímilegum og alvarlegum
afleiðingum.
Eftir mikinn hamagang og röð
niðurlæginga bijótast þeir félagam-
ir loks inn í skotfæraverslun og
taka þar hólka traustataki með
ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Sem fyrr segir er nú unnið að
klippingu myndarinnar, en hún fer
fram í Kaupmannahöfn. Um tónlist
sjá m.a. Bubbi Morthens, Sykurmol-
amir og Hilmar Öm Hilmarsson.
Gert er ráð fyrir að myndin verði
frumsýnd í Háskólabíói í byrjun
febrúar á næsta ári.
Skytturnar.