Morgunblaðið - 16.12.1986, Blaðsíða 94
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. DESEMBER 1986
94
Morgunblaðið/Árni Sœberg
Landsbankamót ÍR í minnibolta
• Landsbankamót ÍR í minnibolta fór fram í 4. sinn dagana 5. til 12. desember. Um þrjúhundruð 11
ára krakkar úr gunnskólunum í Breiðholti og Langholtsskóla tóku þátt í mótinu og er það met þátt-
taka. Laugardaginn 13. desember bauð síðan Landsbankinn í Mjóddinni öllum skaranum til hófs
þar sem allir fengu afhenta viðurkenningu fyrir þátttöku sína. Þessi mynd var tekin af hópnum þeg-
ar hann kom sæll og glaður úr Verðlaunahófinu. Við munum segja nánar frá mótinu á Unglinga-
íþróttasíðu á sunnudaginn kemur.
UMFN sigraði KR ígóðum leik
Morgunblaöiö/Júlíu8
• Svafar Magnússon lák vel með Bllkum á sunnudaginn. Hér skorar
hann framhjá Gylfa Birgissyni hjá Stjörnunni.
Blikar unnu í
jöfnum og skemmti
legum leik
BREIÐABLIK skaust á sunnudag-
inn upp í efsta sæti 1. deildarinn-
ar í handknattleik karla er liðið
vann Stjörnuna f fþróttahúsi
Digraness með 25 mörkum gegn
24 f æsispennandi leik. Jafnt var,
14:14, f leikhléi. Blikar hafa 15
stig eins og Vfkingar f fyrsta sæti
en þar sem þeir unnu leikinn við
Víking á sfnum tfma skoðast þeir
f efsta sæti.
Leikurinn var hnífjafn allan
tímann ef fyrstu mínúturnar eru
ekki taldar með. Stjarnan byrjaði
mjög vel. Allt gekk upp hjá þeim
á meðan ekkert gekk hjá Blikum.
Stjarnan gerði fyrstu 4 mörkin í
leiknum en eftir 20 mínútur jöfn-
uðu Blikar 9:9 og eftir það var jafnt
á öllum tölum þar til yfir lauk.
Af þessu sést að leikurinn var
óhemju spennandi og hann var líka
, nokkuð vel leikinn. Varnir beggja
liða voru þokkalegar ef frá eru tald-
ir hornamennirnir í liðunum. Þar
var allt galopið enda mörg mörk
skoruðu þaðan. Sóknarleikurinn
var einnig skemmtilegur og oft
sáust skemmtileg leikkerfi, einkum
hjá Blikum, sem enduðu með
fallegum mörkum.
Páll var góður í þessum leik og
sömu sögu er að segja af Hann-
esi. Hafsteinn og Sigurjón voru
lunknir við að skora úr hornunum
enda opin leið þar inn og Guð-
mundur er veikastur fyrir þar.
Jónas varði þokkalega á köflum.
Hjá Blikum var Guðmundur góð-
ur í markinu nema hvað honum
Staðan í 1 deild karla er
nú þessi:
UBK 9 7 1 1 204:192 16
Vlkingur 9 7 1 1 201:191 15
FH 9 8 1 2 228:198 13
Valur 9 6 1 3 229:199 11
KA 9 4 1 4 199:210 9
Fram 8 4 0 4 188:172 8
Stjarnan 8 3 1 4 200:201 7
KR 9 3 0 6 179:202 6
Haukar 9 2 0 7 188:222 4
Ármann 9 0 0 8 179:220 0
gekk bölvanlega að ráða við horna-
menn Stjörnunnar. Björn vargóður
og Svafar einnig. Hornamennirnir
Þórður og Jón Þórir voru ekki eins
og þeir eiga að sér í þessum leik.
Þó svo þeir kæmust í gegn tókst
þeim ekki að nýta færin sem skildi.
Mörk UBKiBjörn Jónsson 6/2, Svafar
Magnússon 5, Aðalsteinn Jónsson 4,
Kristján Halldórsson 3, Jón Þórir Jónsson
3/2, Þórður Davíösson 2, Sigþór Jóhann-
esson 1, Magnús Magnússon 1.
Mörk STJÖRNUNNAR: Páll Björgvinsson
5, Hannes Leifsson 5/1, Sigurjón Guð-
mundsson 5/1, Hafsteinn Bragason 4,
Gylfi Birgisson 3, Skúli Gunnsteinsson 1,
Einar Einarsson 1.
-SUS
Staðan
STAÐAN í úrvalsdeildinni í
körfubolta eftir 11 umferðir er
þessi:
UMFN 11 9 2 895:767 18
(BK 11 8 3 807:692 16
Valur 11 7 4 750:728 14
KR 11 5 6 772:826 10
Haukar 11 4 7 795:794 8
Fram 11 0 10 640:752 0
LEIKUR KR og UMFN í úrvals-
deildinni f körfubolta, sem fram
fór í fþróttahúsi Hagaskólans á
sunnudaginn, var fjörugur og
skemmtilegur á aö horfa. Leikur-
inn var frekar jafn, KR-ingar
höföu undirtökin framan af og
voru yfir f hálfleik, 47:45, en
Njarðvfkingar voru ákveönari f
-áeinni hálflelk og unnu 102:81.
Mikill hraði var í leiknum til að
byrja með og hittnin góð. Liðin
skiptust á að skora, en um miðjan
fyrri hálfleik voru KR-ingar fjórum
stigum yfir, 25:21. Þá gleymdist
að skrá eina körfu, sem Guðni
Guðnason skoraði fyrir KR.
Skömmu sfðar var munurinn orð-
inn átta stig, 37:29, en gestirnir
náðu nær að jafna fyrir hlé.
Það gerðu þeir strax í seinni
hálfleik og jafnræði var með liðun-
um næstu tíu mínúturnar. Gestirnir
tvíefldust undir lokin og unnu ör-
ugglega 102:81.
KR-liðiö lék vel lengst af, en
slakaði á undir lokin. Guðni Guðna-
son og Garðar Jóhannsson voru
bestir, en hjá Njarðvíkingum báru
Valur Ingimundarson og Jóhannes
Kristbjörnsson af. Njarðvíkingarnir
voru góöir og halda efsta sætinu
í deildinni.
Stig KR: Guðni Guðnason 32, Garðar Jó-
hannsson 18, Þorsteinn Gunnarsson 13,
Guðmundur Jóhannsson 10, Ólafur Guð-
mundsson 8.
Stig UMFN: Valur Ingimundarson 35,
Jóhannes Kristbjörnsson 23, Helgi Rafns-
son 15, Teitur örlygsson 12, ísak
Tómasson 6, Hreiðar
Kristinn Einarsson 5.
Hreiöarsson
S.G.
6,
• Jón Kr. Gíslason skoraöl 28 stlg gegn Val og var bestur
f góöu liði ÍBK.
Öruggt hjá í BK
TORFI Magnússon, Val, og Jón
Kr. Gfslason, ÍBK, áttu stórleik á
sunnudagskvöldiö, þegar liðin
léku í úrvalsdeildinni f körfu f
fþróttahúsi Seljaskóla. En enginn
má viö margnum, Torfi fékk litla
aðstoð félaga sinna á meðan
Kefivfkingar unnu vel saman enda
unnu þeir leikinn 68:54 eftir aö
staðan f hálfleik haföi verlö 30:29
iciidaá
adidas
SNYRTIVÖRUR
SPORTMANNSINS
Fást í helstu snyrtivöruverslunum
Val f vil.
Leikurinn var góður, hraður og
skemmtilegur fram í miöjan fyrri
hálfleik. Keflvíkingar skoruðu
fyrstu sex stigin, en Torfi hélt í við
þá. Eftir tíu mínútna leik var staðan
20:17 ÍBK í vil og hafði Torfi skor-
að nær öll stig Vals.
Eftir þetta datt leikurinn niður,
leikmenn beggja liða gerðu sig
seka um mörg mistök, en Vals-
menn náðu að jafna og höfðu eitt
stig yfir í hálfleik, 30:29.
Keflvíkingar voru ákveðnari í
seinni hálfleik, náðu fljótlega for-
ystunni og voru lengst af 6 til 10
stigum yfir. Sunnanmenn voru
komnir til að sigra og 68:54 sigur
var verðskuldaður.
Vörn Vals var góð, en sóknin
afleit fyrir utan Torfa Magnússon,
sem átti stórleik í vörn og sókn.
Jón Kr. Gíslason var allt í öllu í
sóknarleik ÍBK, en breiddin er að-
all Keflvíkinga. Leikmennirnir vinna
vel saman, aðstoða hvern annan
og uppskera eftir því.
Stlg VALS: Torfi Magnússon 31, Einar
Ólafsson 8, Leifur Gústafsson 6, Tómas
Holton 4, Björn Zöega 4, Sturla Örlygsson
1.
Stig IBK: Jón Kr. Gíslason 28, Guðjón
Skúlason 12, Sigurður Ingimundarson 12,
Gylfi Þorkelsson 6, Ólafur Gottskálksson
6, Matti Ó. Stefánsson 4.
. . . S.G.
Happdrætti GR
DRÆTTI hefur verið frestað f
happdrætti GR um viku, eöa fram
til 22. desember, þar sem marglr
eiga eftir aö gera skil.