Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 2

Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986 Borgarstjórn: Vinnuhópur um öldrunarmál Á FUNDI borgarstjórnar á fimmtudag’ var samþykkt tillaga Árna Sigfússonar (S), formanns félagsmálaráðs, um að skipa starfshóp til að gera tillögur að heildarskipulagi öldrunarmála hjá Reykjavíkurborg og áherslu- verkefnum næstu ára. í máli Áma kom fram að þetta yrði vinnuhópur sem ætlað væri að safna upplýsingum og gera tillögur, sem síðan yrðu til umflöllunar hjá þeim nefndum borgarinnar sem Qalla um öldrunarmál. í hópnum verða tveir fulltrúar úr félagsmálaráði, og mun annar þeirra, Ámi Sigfússon, verða for- maður starfshópsins, einn fulltrúi úr framkvæmdanefnd bygginga- stofnana í þágu aldraðra og fulltrúi úr heilbrigðisráði. Sjá í miðopnu frásögn af könn- un á högum aldraðra. INNLENT Heiðurslaun listamanna 1987: Sextán tilnefndir til heiðurslauna Morgunblaðið/Einar Falur Sigriður Þórðardóttir, oddviti í Grundarfirði, afhenti í gær Ólympíuskáksveitinni 1200 þúsund króna áheit frá útgerðarmönnum og fiskverkendum í Grundarfirði. Skákmennirnir eru: Guðmundur Siguijóns- son, Jóhann Hjartarson, Helgi Ólafsson, Jón L. Árnason, Margeir Pétursson og Karl Þorsteins. Ólympíuskáksveit- inni afhent áheit gestir og eiga þetta fé fyllilega andi verður þetta til að hvetja þá skilið eftir góða frammistöðu. Von- enn frekar til dáða.“ Helgarpósturinn: Ingólfur Margeirs- son segir lausu rit- sljórastarfinu MORGUNBLAÐINU barst í gær eftirfarandi fréttatilkynning frá Ingólfi Margeirssyni, ritstjóra Helgarpóstsins: „Skrif Ragnars Kjartanssonar, fyrrnrn stjómarformanns Hafskips hf., í Morgunblaðinu að undanfömu um viðskipti mín við félagið gefa til kynna að greiðsla fyrir flutning hafí verið felld niður með þeim hætti að eðlilegt sé að líta á sem mistök af minni hálfu. Undanfarið hef ég reynt að gera grein fyrir þessum viðskiptum eftir bestu vit- und og samvisku. Ég vil taka skýrt fram, að þessi viðskipti hafa aldrei haft nein áhrif á störf mín sem ritstjóri Helgar- póstsins eða á ritstjómarstefnu blaðsins. En þar sem umræða þessi öll er komin á það stig að hún get- ur valdið blaðinu og samstarfsfólki mínu ófyrirsjáanlegum erfiðleikum, tel ég mér skylt að segja starfí mínu lausu sem ritstjóri Helgar- póstsins. Mér er það ljóst að undir engum kringumstæðum má varpa skugga á nafn blaðsins eða störf ritstjómar." Verðlagsráð sjáv- arútvegsins: Frjálst fisk- verð enn í deiglunni AFSTAÐA til fijáls fiskverðs á næsta ári var ekki tekin á fundi Verðlagsráðs sjávarútvegsins á fimmtudag. Boðað hefur verið til annars fundar á mánudag og talið er líklegt, að niðurstaða fáist þá. Arni Kristjánsson og Jón úr Vör nýir í þeim í hópi I GÆR var lögð fram á Alþingi breytingartillaga við fjárlaga- frumvarp, þess efnis, að heiðurs- laun listamanna 1987 skuli samtals nema fimm milljónum og tvö hundruð og áttatíu þúsund krónum. Jafnframt var lögð fram tillaga um 16 listamenn, sem hver fái þijú hundruð og þijátíu þúsund krónur í heiðurs- laun úr rikissjóði á komandi ári. Tveir nýir listamenn bætast í hópinn: Arni Kristjánsson og Jón úr Vör. Einn heiðurslaunalista- maður 1986 er látínn, Jón Helgason. Þeir sem verða aðnjótandi heið- urslauna listamanna 1987 eru, samkvæmt tillögunni: Ámi Krist- jánsson, Finnur Jónsson, Guðmund- ur Daníelsson, Halldór Laxness, Hannes Pétursson, Indriði G. Þor- steinsson, Jóhann Briem, Jón úr Vör, Jón Nordal, María Markan, Matthías Johannessen, Ólafur Jó- hann Sigurðsson, Snorri Hjartar- son, Stefán íslandi, Svavar Guðnason og Valur Gíslason. Flutningsmenn tillögunnar eru fjórtán talsins úr öllum þingflokk- um. Fyrsti flutningsmaður er Halldór Blöndal (S.-Ne.) Póls-tækni hf. stofnað á ísafirði Ólympíuskáksveit íslands var í gær afhent áheit útgerðar- manna og fiskverkenda í Grundarfirði, 1200 þúsund krón- ur. Grundfirðingamir tóku þá ákvörðun að greiða skáksveitinni tvær milljónir króna ef hún næði fyrsta sæti á Ólympíuskákmótinu í Dubai. Þessi upphæð skyldi lækka um tvö hundrað þúsund um hvert sæti neðar á listanum. íslenska sveitin lenti í fímmta sæti og fékk því 1200 þúsund frá Grandfírðing- unum. „Þessi ákvörðun var tekin eftir Skákþing íslands síðasta haust, en það var haldið í Grandar- fírði," sagði Sigríður Þórðardóttir, oddviti, en hún afhenti skákmönn- unum féð í móttöku á Hótel Sögu í gær. „Skákþingið skipaði veglegan sess í hátíðarhöldum í tilefni af því að 200 ár vora liðin frá því að Grandarfjörður fékk kaupstaðar- réttindi og áhugi á því var mikill meðal heimamanna. Skákmennimir bjuggu í heimahúsum á meðan á þinginu stóð og þeir guldu fóstur- launin ríkulega með skemmtilegum skákum. Þeir vora miklir aufúsu- Árni Kristjánsson Jón úr Vör Eimskip lagði fram þriðjung hlutafjár Fiskmarkaðir: Verðfall í Bremerhaven FYRIRTÆKIÐ Póls-tækni hf. var stofnað á ísafirði á fimmtudag. Það er stofnað af fyrri eigendum Póls hf. og ýmsum nýjum hluthöfum, s.s. Eimskipafélagi íslands, sem lagði fram þriðjung hlutafjár. Póll hf., sem hefur undanfarin ár stundað hönnun og framleiðslu vogakerfa fyrir frystihús og tog- ara, mun sameinast þessu nýja fyrirtæki. Það er stofnað til að gera fyrirtækinu kleift að takast á við ný verkefni og binda hlut- hafar m.a. vonir við það að auka megi útflutning á framleiðsluvör- um fyrirtækisins. Heildarhlutafé í fyrirtækinu er 45 milljónir króna og eru hluthafar tæplega 60. Stærsti einstaki hluthafínn er Eimskip með 15 milljónir í hluta- fé, en aðrir hluthafar eru t.d. fískvinnslu- og útgerðarfyrirtæki á Vestfjörðum, starfsfólk fyrir- tækisins o.fl. Hörður Sigurgestsson, for- stjóri Eimskips og stjómarform- aður hins nýja fyrirtækis, sagði ástæðu þess að skipafélagið hefði lagt fram hlutafé vera þá, að stjóm félagsins þætti fyrirtækið áhugavert og hefði trú á því að rafeindaiðnaður eigi framtíð fyrir sér, sérstaklega á sviði fískiðnað- ar. Það væri ekki óeðlilegt að stærri fyrirtæki stuðluðu að við- gangi fyrirtækja í nýjum greinum og veittu þeim brautargengi. Hörður sagði að engin áform væru nú hjá Eimskip um þátttöku í rekstri annarra fyrirtækja. í stjóm hins nýja fyrirtækis vom kjömir, auk Harðar, þeir Bjöm Hermannsson og Einar Ingvarsson, en varastjóm skipa Ingólfur Eggertsson og Þorkell Sigurlaugsson. Framkvæmda- stjóri fyrirtækisins er Ásgeir Erling Gunnarsson, viðskipta- fræðingur. TOGARINN Engey RE seldi afla sinn í Bremerhaven á fimmtu- dag. Þrátt fyrir að fiskurinn væri góður fékkst lágt verð fyrir hann. Engey er síðasta skipið, sem selur afla sinn erlendis á þessu ári. Engey seldi alls 171,7 lestir, mest karfa. Heildarverð var 7.760.200 krónur, meðalverð 45,19. Verð á karfa hefiir að undanförnu verið um og yfír 60 krónur á hvert kíló. í þessari viku vora alls seldar 1.263 lestir af físki úr gámum í Englandi og fískiskipum í Englandi ogÞýzkalandi. Heildarverð var 80,5 milljónir króna. Meðalverð úr gám- um var 71,56 krónur. 73,66 fengust fyrir þorsk, 82,14 fyrir ýsu, 37,92 fyrir ufsa, 42,97 fyrir karfa og 63,57 fyrir kola. Þijú fískiskip seldu afla sinn í Englandi og fengu 58,27 til 71,41 krónu að meðaltali á k’íló. Fjögur skip seldu í Þýzkalandi og var meðalverð fyrir karfa og ufsa frá 45,19 upp í 63,17. Á mánudag verður selt úr 35 gámum í Englandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.