Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
21
Flóttamenn ’86
eftirBjörn
Friðfinnsson
Þessa helgi gengst Rauði kross
íslands fyrir fjársöfnun í þágu
flóttamanna og rennur söfnunarféð
óskert til Flóttamannastofnunar
Sameinuðu þjóðanna í Genf, sem
síðan notar það í samráði við Al-
þjóðaráð Rauða krossins til rekstrar
flóttamannabúða víðs vegar um
plánetuna.
Ekki er nákvæmlega vitað um
fjölda flóttamanna um þessar
mundir, en gizkað hefur verið á að
þeir séu um 15 milljónir talsins.
Stærsti hópurinn er flóttamenn frá
Afganistan, sem nú dvelja í Pak-
istan og íran, en einnig má nefna
flóttamenn í Afríku, sem leitað hafa
hælis handan næstu landamæra,
flóttamenn í Mið-Ameríku og flótta-
menn frá Indókína, sem dveljast í
flóttamannabúðunum í SA-Asíu. I
nágrannaríkjum ísraels er enn mik-
ill fjöldi flóttamanna frá Palestínu
og vaxandi fjöldi flóttamanna flýr
nú innanlandsátök í Líbanon og Sri
Lanka og ástandið í íran.
Flóttamannavandamálið hefur
aukizt að undanfömu og munar þar
mestu um flóttamenninna frá Afg-
anistan. Á sama tíma hafa þó
flóttamenn frá nokkrum ríkjum
getað snúið heim, t.d. fólk frá
Zimbabwe og Argentínu og flótta-
mannastraumurinn frá Víet-Nam
hefur minnkað. Flóttamenn, sem
flúðu Pólland, þegar herinnn tók
þar völdin, hafa nú ýmist snúið
heim eða fengið nýtt heimkynni á
Vesturlöndum.
Straumur flóttamanna til V-
Evrópu á síðustu misserum hefur
vakið þar verulega athygli. Flótta-
mönnunum fjölgaði verulega við
það að ríkisflugfélag þýzka al-
þýðulýðveldisins tók upp á því að
flytja flóttamenn upprunna í Líban-
on, íran og Sri Lanka fyrir væna
þóknun til Berlínar, þaðan sem þeir
eiga greiða leið að landamærum
nokkurra V-Evrópuríkja. Eftir því
sem fleiri ríki gripu til takmarkana
á móttöku flóttamannanna, óx
þrýstingur á þau ríki, sem enn höfðu
fijálslegri reglur um móttöku flótta-
manna, þar á meðal Svíþjóð og
Danmörku og loks er nú svo kom-
ið, að alls staðar hafa reglur um
aðgang flóttamanna verið hertar.
Atvinnuleysi ásamt grun um að
margir þeirra, sem sækja um hæli
sem flóttamenn séu í raun innflytj-
endur í leit að bættum lífskjörum,
hefur magnað andstöðu almennings
í Evrópuríkjum við móttöku fleiri
flóttamanna. Einnig hefur borið á
kynþáttahatri í nokkrum ríkjum,
sem einkum hefur beinst gegn
flóttamönnum og innflytjendum
ættuðum frá Asíu og Afríku. Fáir
neita því þó, að í hópi flóttamanna
séu margir, sem fullnægja öllum
skilyrðum alþjóðlegra sáttmála um
vemd flóttamanna. Flóttamanna-
vandi V-Evrópuríkja er smávægi-
legt vandamál, sé hann borinn
saman við þann vanda, sem vanþró-
uð ríki á við Pakistan, Súdan og
Thailand þurfa að glíma við vegna
flóttamannastraums frá nágranna-
ríkjunum.
En hvers vegna grípa menn til
þess ráðs að flýja land? Hvers vegna
yfirgefa menn heimili sín og það
umhverfi, sem þeir þekkja bezt og
halda út í óvissuna? Ástæðan er
vafalaust ótti. Ótti við ofsóknir,
ofbeldi, pyntingar og dauða. Virð-
ing fýrir mannréttindum eru for-
réttindi minnihluta jarðarbúa og
forsenda friðar og jafnvægis, en
virðingarleysi fyrir mannréttindum
er undirrót þess ótta, sem gerir
fólk að flóttafólki.
Flestir flýja land með það í huga
að snúa heim, þegar hættuástand
er liðið hjá. Aðrir gera sér engar
vonir um að geta snúið heim. Það
em þeir, sem tapað hafa í innan-
landsátökum eða tilheyra minni-
hlutahópum sökum trúar sinnar eða
kynþáttar.
Dæmigerður hópur flóttamanna
em Afganirnir, sem nú gista flótta-
mannabúðir í nágrannalöndunum.
Þeir flýja land sitt af ótta við
grimmdarlegar hemaðaraðgerðir
innrásarhers gegn andspymuhreyf-
ingu landsmanna og aðstandendum
hennar. Þeir flýja sprengjuárásir
og brennda akra, eyðilögð hús og
þá almennu neyð, sem ávallt fylgir
í kjölfar hemaðarátaka. Afganimir
hafa flúið land sitt um stundarsak-
ir, en eftir því sem heimferð þeirra
dregst lengur, fjölgar þeim vanda-
málum, sem þeir geta ekki leyst
án utanaðkomandi hjálpar. Þeir em
gestir í öðm ríki og njóta þar sam-
úðar trúbræðra sinna, en „ljúfur
verður leiður, sá er lengi situr" og
gestimir geta ekki fætt sig eða
klætt nema að litlum hluta, þeir
þarfnast aðstoðar í heilbrigðis- og
menntamálum, húsnæðis- og hrein-
lætismálum. Og nærvera flótta-
mannanna færir hemaðarátök nær
heimamönnum.
Afganimir þarfnast því stuðn-
ings heimsbyggðarinnar til þess að
þreyja þorrann og góuna þar til
þeir komast heim og þeir þarfnast
einnig stuðnings allra þjóða til þess
að friður komist á í heimalandi
þeirra og innrásarherinn hverfi á
brott. Að Iáta vandamál þeirra af-
skiptalaust er sama og að leggja
blessun á innrás og ofbeldi. Ef
flóttamennimir fá að deyja drottni
Bjöm Friðfinnsson
sínum, er innrásarhemum auðveld-
að takmark sitt, þ.e. að leggja
landið undir sig til ævarandi yfir-
ráða og ryðja úr vegi því fólki, sem
þama býr fyrir.
Flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna hefur veitt afgönsku
flóttamönnunum vemd sína og hún
hefur skipulagt hjálparstarf ýmissa
hjálparstofnana við það. Hjálpar-
stofnanirnar hafa safnað fé til
starfsins, en auk þess hafa ýmsar
ríkisstjómir látið fé af hendi rakna
til þess. Jafnframt hefur skrifstofa
framkvæmdastjóra Sameinuðu
þjóðanna lagt mikla áherzlu á, að
ná samningum um brottför innrás-
arhersins frá Afganistan.
Annar dæmigerður hópur flótta-
manna, sem þó er mun minni, era
flótttamennirnir frá Viet-Nam, sem
nú dveljast í flóttamannabúðum í
ýmsum ríkjum SA-Asíu. Þar ér um
að ræða fólk, sem ýmist tilheyrir
þjóðemisminnihluta, sem meirihluti
landsmanna lítur óhýru auga eða
fólk, sem tengt er þeim aðilum, er
töpuðu grimmilegu borgarastríði,
sem þama geisaði. Þetta fólk getur
ekki snúið heim án ótta um áfram-
haldandi ofsóknir og kúgun. Það
leitar því eftir varanlegri búsetu í
öðram ríkjum og flóttamannastofn-
un Sameinuðu þjóðanna hefur auk
þess, sem hún hefur skipulagt upp-
setningu flóttamannabúða og
hjálparstarf þar, reynt að fínna
fólkinu ný heimkynni. Það er eina
lausnin á vandamálum þess.
íslendingar hafa tekið þátt í
hjálparstarfí við flóttamenn á veg-
um alþjóðastofnana. Stærsti hluti
þess hefur verið unninn í flótta-
mannabúðum í Thailandi og í Súdan
og hefur frammistaða íslenzkra
starfsmanna borið hróður þjóðar-
innar á fjarlægar slóðir. íslendingar
hafa líka í smáum stíl tekið á móti
flóttamönnum til varanlegrar bú-
setu hér á landi. Þeir flóttamenn,
sem aðlagast hafa samfélagi okkar,
hafa um leið auðgað það á margvís-
legan hátt, flutt með sér nýja
þekkingu og menningaráhrif.
Islendingar búa sig nú undir jóla-
hátíð um leið og Rauði kross íslands
knýr dyra með ósk um að almenn-
ingur láti af hendi rakna framlög
til hjálparstarfs fyrir flóttamenn í
fjarlægum ríkjum.
Kemur okkur vandamál þeirra
við? Kemur þegnum annarra ríkja
vandamál okkar eitthvað við, ef á
bjátar? Geta ekki allir farþegar á
plánetunni Jörð lokað sig af á litlum
reitum hennar og látið, sem þeim
komi ekki vandamál annarra far-
þega við? Er ekki dauði eins bara
annars brauð? Á ég að gæta bróður
míns?
Ég ætla ekki að svara þessum
spumingum. Það gera menn hver
fyrir sig um leið og menn minnast
fagnaðarboðskapar jólanna og velta
fyrir sé'r þeim lögmálum, sem hljóta
að vera forsenda fyrir friði og far-
sæld á plánetunni á okkar dögum,
á dögum barna okkar og um alla
framtíð meðan sólin vermir mátu-
lega þessa vin í eyðimörk alheims-
ins.
Höfundur er stjórnarmaður
Rauða kross íslands ojrformaður
flóttamannaráðs RKI.
Jólagjöfin fæst hjá
Hirti Níelsen hf.
Matta rósin sígilda
Opíð frá kl. 10 - 22
Póstsendum
um land allt.
' Qr \ \ / )y
• 0 X TK\ z
V 1
1 / * N
v .py
Caríier
Poris
Glæsilegar
Cartíer gjafir
í kristal með
silfurrönd.
ORFEVRERIE
\e/tmÆde(r/ri
Forráðamenn fyrirtækja
gefið starfsfólki yðar
virðulega og sígilda gjöf.
Pökktim öllum gjöfum í
glæsííega jólapakka.
^ijörtur^ U/J
KRISTALL OG POSTULÍNSVÖRUR
TEMPLARASUNDI 3 SIMI 19935
Sérverslun með áratuga þekkingu.