Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 30
MQRGUNBLAÐIÐ, LAUGAKDAGUJR, 20. DESEMBER 1986
30
Flugstöðin verður opnuð í apríl
Farþegabrýrnar komnar til landsins
FRAMKVÆMDIR við nýju flug-
stöðina á Keflavikurflugvelli
ganga samkvæmt áætlun, að
sögn Sverris Hauks Gunnlaugs-
sonar formanns bygginganefnd-
ar. Er því útlit fyrir að flugstöðin
verði opnuð í april eins og gert
hefur verið ráð fyrir i áætlunum.
Þessa dagana eru á þriðja hundr-
að manns við vinnu í flugstöðinni.
Nýlega komu sex farþegabrýr í
landsins. Farþegabrýmar ganga út
úr aðallandgangi flugstöðvarinnar
og út að flugvélunum. Em þær
hreyfanlegar á hjólum og hægt er
að draga þær sundur og saman eins
og harmoníku, þannig að hægt er
að nota þær við allar stærðir og
gerðir flugvéla í millilandaflugi.
Farþegabrýmar vom keyptar af
fyrirtæki í Utah í Bandaríkjunum
og kostuðu 1,5 milljónir dollara með
flutningi hingað, eða rúmlega 60
milljónir króna. Sverrir Haukur
sagði að uppsetning yrði hafin strax
eftir áramót og lyki verkinu vænt-
anlega fyrir 1. mars.
Farþegabrýrnar við Flugstöðina á Keflavíkurflugvelli.
Morgunblaðið/Guðmundur Pétureson
3
Borgarnes-
Hækkun fasteignagjalda
Borgarnesi.
SVEITARSTJÓRN Borgarnes-
hrepps hefur samþykkt 25-26%
hækkun fasteignagjalda á næsta
ári. Fullnýtir sveitarstjómin sér
þá heimildir í lögum um tekju-
skatt sveitarfélaga. Fulltrúar
sjálfstæðismanna og framsókn-
armanna, sem skipa minnihluta
í sveitarstjóminni, mótmæltu
þessum auknu álögum harðlega
að sögn Gísla Kjartanssonar full-
trúa sjálfstæðismanna.
Aðspurður sagði Gísli Karlsson
sveitarstjóri að þama hefði meiri-
hlutinn tekið pólitíska ákvörðun og
verið m.a. að bregðast við tveggja
milljón króna niðurskurði framlaga
til sveitarfélagsins úr jöfnunarsjóði
sveitarfélaga. Áætlað væri að
hækkun fasteignagjaldanna skilaði
hreppnum um 600 þúsundum.
Áðspurður sagði Gísli Kjartans-
son fulltrúi sjálfstæðismanna að
hann teldi þessa hækkun fasteigna-
gjalda ótímabæra og alveg úr takt
við það sem væri að gerast hjá
öðmm sveitarfélögum. Það lægi
ekkert fyrir í dag um afkomu sveit-
arfélagsins á síðasta ári. Og
ýmislegt benti til þess að afkoman
yrði betri en áætlað hefði verið.
Verkalýðsfélag Borgamess og
Verslunarmannafélag Borgamess
samþykktu samhljóða ályktun þar
sem hækkun fasteignagjalda er
mótmælt og þess krafist að sveitar-
stjómin endurskoði nú þegar
áðumefnda hækkun. í lok ályktun-
arinnar segir „því verður ekki trúað
að sveitarstjómarmenn í Borgar-
nesi neiti að stuðla að lækkun
verðbólgu".
Aðspurður um ofangreind við-
brögð sagði Eyjólfur Torfí Geirsson
oddviti að viðskilnaður fyrrverandi
meirihluta hefði verið mjög slæmur
og hefðu skuldir sveitarfélagsins í
ágúst sl. numið um 60 milljónum.
Í þannig stöðu væri það ábyrgðar-
hlutur að nýta ekki að fullu þá
tekjustofna sem fyrir hendi væm.
Þá sagði Eyjólfur að fasteignamat
væri frekar lágt í Borgamesi þann-
ig að þessi hækkun næmi ekki nema
frá 500-1500 krónum á hveija hús-
eign. Ennfremur benti Eyjólfur á
að ríkisstjómin væri að velta sínum
skattalækkunum út til sveitarfélag-
anna með því að skerða framlög
úr jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
TKÞ
Vestmannaeyjar:
Jólainnkaup
í veðurblíðu
VERSLANIR í Vestmannaeyjum
voru opnar til klukkan 22 í fyrra-
kvöld.
Að sögn lögreglunnar í Vest-
mannaeyjum er jólaundirbúningur-
inn vel á veg kominn og vom
verslanir þar opnar fram eftir
kvöldi. Eyjaskeggjar nýttu sér þjón-
ustuna og versluðu til jólanna í
veðurblíðunni.
Áskriftarsiminn er 83033
Ævintvralega
ódýru
örbylgjuofnamir
frá
Örbylgjuofnarnir frá SHARP eru auðveld-
ir í notkun og henta jafnt fyrir stórar
steikur sem létt snarl.
Þú setur hráefnið í ofninn, stillir hann
og út kemur girnilegur og bragðgóður
matur.
Öllum örbylgjuofnum fylgir ókeypis mat-
reiðslunámskeið fyrir alla fjölskylduna í
SHARP-eldhúsinu.
Einnig fylgir sérhönnuð 80 síðna mat-
reiðslubók með ótal uppskriftum sem
henta við öll tækifæri.
í Hljómbæ er mikið úrval örbylgjuofna
og allir eru þeir frá SHARP, það tryggir
gæðin.
Sérhönnuð 80 síðna
matreiðslubók
ag fer fram sýnikennsla f SH ARP-eldhúsinu
á Hverfisgötu 103.
Matreiðslukennari
sér um kennsluna.
HUÐMBÆR
HVERRSGCmj 103 SIMI 25999
Umboðsmenn: Bókaskemman Akranesi, Kaupfólag Borgfirðinga, Hljómtorg ísafirði, Kaupfélag Skagfirðinga Sauöárkróki, KEA Akureyri,
Radiover Húsavík, Skógar Egilsstöðum, Kaupfélag Héraðsbúa Egilsstöðum, Myndbandaleiga Reyðarfjarðar Reyðarfirði,
Ennco Neskaupsstað, Djúpið Djúpavogi, Hornabær Hornafirði, Kaupfélag Rangæinga Hvolsvelli, M.M. búðin Selfossi,
Rás Þorlákshöfn, Fataval Keflavík, Rafeindaþjónusta Ómars Vestmannaeyjum, Radioröst Hafnarfirði, JL Húsið Reykjavík.