Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 34

Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 34
^ íáú’gÁRÖÁgú’é éo.'b'ÉsÉiíSÉRrí'íiée ER FÁLKANUM AÐ FATAST FLUGIÐ? ■ Er Albert Guðmundsson höfuðvandamál Sjálfstæðisflokksins í dag, eða er hann notaður sem blóraböggull til þess að afsaka fylgistap flokksins? ■ Verður Albert vikið af lista, eða býðst hann til þess að færa sig um set? ■ Hefur Sjálfstæðisflokkurinn á sér grímu pólitískrar spillingar? ■ Einkennir linkind og geðleysi Sjálfstæðisflokkinn um þessar mundir? rjár nýlegar skoðanakannanir á fylgi stjórnmálaflokkanna gefa til kynna að fylgi Sjálfstæðis- flokksins hafí farið verulega minnkandi. Flokkurinn virðist tapa fylgi jafnt og þétt og Alþýðuflokkurinn sækja á, að sama skapi. Skoðanakönnun Félagsvísindastofnunar háskólans sem gerð var fyrir Morgunblaðið 31. október síðastlið- inn til 7. nóvember sýndi að Sjálfstæðis- flokkurinn hafði fylgi 33,6% þeirra sem tóku afstöðu, en Alþýðuflokkurinn 24,1%. Morg- unblaðið greindi frá niðurstöðum_ þessarar könnunar 13. nóvember sl. SKÁIS gerði skoðanakönnun á fylgi stjórnmálaflokkanna fyrir Helgarpóstinn dagana 1. og 2. desem- ber sl. og voru niðurstöður þeirrar könnunar þær að Sjálfstæðisflokkurinn hafði fylgi 34,7% þeirra sem tóku afstöðu og Alþýðu- flokkur 28,6%. Loks birtust niðurstöður skoðanakönnunar DV í því blaði þann 9. desember og eru þær mjög í sömu veru, því Sjálfstæðisflokkurinn fær þar 34,7% fylgi þeirra sem afstöðu taka en Alþýðu- flokkur 26,4% fylgi. Fjórða skoðanakönnunin sem Hagvangur gerði nú nýlega fýrir Sjálfstæðisflokkinn sýnir þó aðrar niðurstöður en þær þijár hér að ofan sem vitnað er til. Þar fær Sjálfstæð- isflokkurinn 40,5% fylgi þeirra sem afstöðu taka, en Alþýðuflokkurinn 22,2%. Alþýðuflokkur virðist vera að styrkja stöðu sína sem annar stærsti stjómmála- flokkur landsins, jafnvel þótt miðað sé við skoðanakönnun Hagvangs, auk þess sem flokkurinn virðist einkum sækja aukið fylgi sitt í raðir óánægðra sjálfstæðismanna, þó að fylgisaukning hans verði ekki að öllu leyti skýrð á þann veg. Það er ekki úr vegi að reyna að kanna hveijar ástæður liggja hér að baki og fá það fram í dagsljósið hvað það er sem sjálf- stæðismenn eru óánægðir með í eigin flokki. Eg hef rætt við fjölmarga sjálfstæðismenn að undanfömu og þá reynt að leita fanga hjá sem breiðustum hóp sjálfstæðismanna, um land allt. Það segir sig sjálft þegar fylg- istap hjá eigin flokki er til umræðu hjá sjálfstæðismönnum, þá getur verið um við- kvæmt og erfitt umræðuefni að ræða. Því hafa margir viðmælenda minna kosið að greina mér frá sjónarmiðum sínum, hvað flokkinn þeirra varðar, án þess að vilja vera bomir fyrir þeim skoðunum undir nafni. Eins og gefur að skilja, í jafnstórri fjölda- hreyfingu og Sjálfstæðisflokknum, eru skoðanir skiptar á því hveijar séu ástæðum- ar fyrir minnkandi fylgi flokksins. Tilgreina menn ýmsar ástæður, en rauði þráðurinn í skýringum ijölmargra manna virðist samt sem áður vera sá, að fátt hafi skaðað flokk- inn jafn mikið á undanfömum misserum og Hafskips-Útvegsbankamálið og tengsl odd- vita sjálfstæðismanna í Reykjavík, Alberts Guðmundssonar, við það mál. Höfum verið í varnarstöðu Þorsteinn Pálsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, metur stöðu flokksins á eftirfar- andi hátt: „Ég tel að við höfum í haust verið í ákveðinni vamarstöðu. Þar held ég að umræða um skattamál hafi verið okkur erf- ið, svo og umræðan um Hafskip og Útvegs- bankann frá upphafi . Auk þess tel ég, að ég hafi of seint farið að svara lýðskrumi Alþýðuflokksins, sem er jú svo auðvelt að hrekja. Við höfum málefnalega sterka stöðu, þannig að við höfum öll vopn í hendinni til þess að snúa vörn í sókn.“ Þorsteinn viðurkennir að kjaraskerðingin sem fólst í því að vísitala launa var afnum- in fyrir þremur og hálfu ári, hafí vafalaust haft neikvæð áhrif á fylgi við flokkinn. Hann bendir á að ekki hafi verið hægt að ná verðbólgunni niður, nema að ráðast í harkalegar aðgerðir. A það yrði að líta, að nú væri þetta allt á uppleið á nýjan leik og kaupmáttur væri meiri nú en nokkru sinni fyrr. „Það er ekki hægt að vera í pólitík, nema að þora að taka ákvarðanir, einnig sársaukafullar ákvarðanir," segir Þorsteinn, og heldur áfram: „Ég held að menn eigi eftir að gera sér grein fyrir hversu góðum árangri við höfum náð og flokkurinn mun fá aukið fylgi vegna þess.“ Þorsteinn segist telja að ekki stafi veru- legri ógn af Alþýðuflokknum og fylgisaukn- ingu hans. Hann telur að ekki sé hætta á að Alþýðuflokkurinn nálgist Sjálfstæðis- flokkinn að stærð og vísar til Hagvangs- könnunarinnar, sem sýni, að Sjálfstæðis- flokkurinn er á uppleið aftur. Hann segist telja að þar sem allt sé í upplausn hjá Al- þýðubandalaginu, þá sé raunverulega bara einn kostur í stjómarandstöðunni — Al- þýðuflokkurinn og fylgisaukning flokksins skýrist að hluta til af því, en ekki einvörð- ungu með tapi Sjálfstæðisflokksins yfir til Alþýðuflokks. Umræöan um Albert endur- speglast í skoðanakönnunum Víglundur Þorsteinsson segir að umræð- an um Albert Guðmundsson og tengsl hans við Hafskip og Útvegsbankann endurspegl- ist í þessum nýlegu skoðanakönnunum, og leiði til þess að Sjálfstæðisflokkurinn njóti jafnlítils fylgis og þær gefi til kynna. „Það er hins vegar spuming, hvað gerist fram að kosningum og í kosningunum sjálfum,“ segir hann, „því ef við Iftum á málefnalega stöðu flokksins, þá er hún mjög góð. Rifjum upp þau kosningaloforð sem Sjálfstæðis- Sjálfstæöismenn í eðli sínu trygglyndir Athafnakona í Reykjavík, sem lengi hefur starfað að félagsmálum innan Sjálfstæðis- flokksins, segir: „Sjálfstæðismenn eru í eðli sínu trygglyndir, þannig að í megindráttum skila atkvæði stuðningsmanna flokksins sér á kjördegi. Ég er ekki þar með að segja, að vandi flokksins sé ekki fyrir hendi, en hann er bara ekki jafnmikill og þessar skoð- anakannanir gefa til kynna. Sjálfstæðismenn hrífast alltaf af nýjung- um og þess vegna hafa margir þeirra hallast á sveif með Jóni Baldvin, en þó sú staða sé fyrir hendi í dag, þá er ekki þar með sagt að hann hafi tryggt sér fylgi þessa fólks á kjördag. Ég lít eiginlega á þessa afstöðu sem lítilsháttar framhjáhald, sem ljúki á næstu vikum eða mánuðum. Vissu- Jega þarf Sjálfstæðisflökkurinn að bregðast ^ ^við þessari sókn Alþýðuflokksins og Jóns Baldvins og það gerir flokkurinn með því að beita hemaðarlist Jóns Baldvins, flokkurinn gaf fyrir síðustu kosning- ar. Hann lofaði að ná niður verðbólgu, að gera átak í hús- næðismálum, að efla frelsi íjölmiðla með af- námi ríkiseinokunar í út varps- og sjónvarps- rekstri, að auka frelsi í við- skiptum og bankamálum og að ráðast í aðgerðir til lækkunar tekjuskatts. Það þarf ekki um það að deila að fyrstu fjögur loforðin hefur flokkurinn nú þegar efnt og að einhveiju marki það fimmta. Það er á hinn bóginn afskaplega loðið orðalag að boða afnám tekjuskatts af almennum launatekjum. Hver treystir sér til þess að skilgreina það hug- tak, þannig að óumdeilt verði? Af 175 þúsund skattframteljendum á landinu eru 100 þúsund tekjuskattlausir. Af þeim 75 þúsund sem eftir em, em það 22 þúsund manns sem greiða 67% þess tekjuskatts sem lagður er á. Staðreyndin er því sú, að skattbyrði á háar tekjur og efri miðlungstekjur hefur ekki minnkað. Kjósendur flokksins í þessum hópi telja að Sjálfstæðisflokkurinn hafi að þessu leyti svikið eitt kosningaloforða sinna.“ Hann segir að flokkurinn geti með sanni haldið því fram að meginmarkmiðin sem sett vom við myndun þessarar ríkisstjómar hafí náðst, þó að enn sé úrbóta þörf hvað varðar tekjuskattinn. Því sé málefnaleg staða flokksins mjög góð.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.