Morgunblaðið - 20.12.1986, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
35
það er að segja að velja nýtt, dugrnikið og
hæft fólk í ábyrgðarstöður. Formaðurinn
hefur þegar gefið til kynna að hann ætli
sér að ákveða sjálfur ráðherralistann, en
ekki eftirláta þingflokknum það, þegar að
stjómarmyndun kemur. Auðvitað er þetta
hárrétt hjá honum og sýnir að hann er að
ná meiri tökum á flokknum, þó að ugglaust
kosti þessi ákvörðun hans mikil átök við
gömlu ráðherrana."
Önnur sjálfstæðiskona í Reykjavík segir:
„Nýr lífsstíll og ný lífsviðhorf einkenna í æ
ríkara mæli daglega lifnaðarhætti, en eiga
sér harla litla samsvörun í því andliti Sjálf-
stæðisflokksins sem snýr að almenningi."
Hún segir jafnframt: „Djúpstæð óánægja
virðist vera meðal margra sjálfstæðismanna
með flokk sinn. Á bak hátíðum má búast
við að hún bijótist út. Grunnhyggni væri
að taka ekki möguleikana á sérframboðum
inn í þá mynd ef óbreyttar niðurstöður
prófkjara eiga að ráða framboðslistum."
„Gríma pólitískrar
spillingar á flokknum"
Náinn samstarfsmaður Þorsteins Páls-
sonar, úr forystuliði flokksins í Reykjavík,
segir ástæðumar fyrir fylgistapi flokksins
vera margar. „Augljósasta ástæðan er sú
að Sjálfstæðisflokkurinn hefur með óijúfan-
legum hætti tengst fjármálahneyksli
Hafskips og Útvegsbankans. Einn helsti
frammámaður flokksins, Albert Guðmunds-
son, tengist því máli á þann veg, að ekki
verður vefengt. Hann hefur með bolabrögð-
um náð fýrsta sætinu í prófkjöri í Reykjavík
og sú niðurstaða varð einfaldlega til þess
að sjálfstæðismönnum blöskraði. Á með-
an ekkert er að gert, hefur Sjálfstæð-
isflokkurinn á sér grímu
pólitískrar spillingar. Sú
gríma verður ekki afmáð,
af andliti flokksins
nema Albert Guð-
mundsson
verði lát-
tnn
víkja. Sjálfstæðis-
"flokkurinn getur ekki
hellt sér út í kosninga-
baráttu í Reykjavík undir
forystu manns sem hefur
sýnt pólitískri ábyrgð algjöra
fyrirlitningu og hafnað henni.
Hann leggur augljóslega að jöfnu
pólitíska ábyrgð og refsilagaábyrgð."
Fleira kemur
til en Albert
Þingmaður Sjálfstæðisflokksins segir að
umræðan um Albert og tengsl hans við
Hafskip og Útvegsbankann hafi tvímæla-
laust haft sitt að segja hvað fylgistap
flokksins varðar. Það væri hins vegar mikil
einföldun að segja það einu skýringuna á
slæmri stöðu flokksins. Flokkurinn hafi að
undanfömu verið óheppinn í málflutningi
ksínum og tímasetningar verið slæmar. Nefn-
ir hann sem dæmi akstur skólabarna og
fjölmiðlaumfjöllun um Sverri Hermanns-
son og hans orð í því sambandi. Annað
mál sem sé óheppilegt, einkum hvað
varðar tímasetningu, sé fmmvarp um
virðisaukaskatt. Þá sé dæmið um
Borgarspítalann skýrt dæmi um
pólitískan klaufaskap, sem geti haft
alvarlegar afleiðingar fyrir flokk-
Linkind og- geðleysi
einkennir flokkinn“
Þór Sigfússon, formaður Heimdallar er
einnig ómyrkur í máli, þegar staða flokksins
í Reykjavík er rædd: „Albert vil ég alfarið
kenna útkomu Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík. Ástæða þess er augljós. Það er
auðvelt að skilja að fólk hafni því að maður
sem er í jafnkrítískri stöðu og Albert Guð-
mundsson er, m.a. vegna tengsla bans við
Hafskip og Útvegsbankann, veljist í forystu-
hlutverk Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Jafnframt tel ég, að fylgistap flokksins ann-
ars staðar, svo sem í Reykjaneskjördæmi,
megi rekja til þessa máls. Þetta hefur ekki
einungis áhrif hér í Reykjavík, heldur um
land allt.
Að vísu er ekki við Albert einan að sak-
ast, hvað niðurstöðu prófkjörsins varðar,
því þar bmgðust aðrir frambjóðendur einn-
ig. Það, hvemig aðrir frambjóðendur
bmgðust við, eða öllu heldur bmgðust ekki
við, sýnir mikla linkind," segir Þór og held-
ur áfram: „Ef ekki eiga sér stað breytingar
á listanum, þá kemur þessi linkind og geð-
leysi sem í stöðunni virðist einkenna flokks-
starfið, áþreifanlega í ljós.“
Sjálfstæðiskona í Reykjavík tekur undir
þessi orð Þórs, og segir flokksforystuna í
Reykjavík hafa bmgðist: „Hvorki Friðrik
Sophusson, varaformaður flokksins, né
Birgir Isleifur Gunnarsson, fýrmm borgar-
stjóri, lýstu forystu sinni fyrir reykvískum
sjálfstæðismönnum. Þeir hafa báðir fengið
ótvírætt tækifæri til að leiða í ljós hæfni
sína sem leiðtogar, en hún birtist ekki.“
Ofangreind sjálfstæðiskona segir að sam-
keppni þeirra þriggja sem lentu í sætunum
á eftir Albert, hafi auðveldað honum leik-
inn, að ná fyrsta sætinu. Úrslitin í Reykjavík
sanni þó ekki að Albert sé foringi flokksins
í Reykjavík, nema síður sé, sé tekið mið af
fylgistapi hans. Sér hún aðeins eina færa
leið fyrir Albert Guðmundsson: „í ljósi þeirra
sanninda að málefnið er manninum ofar,
víkur Albert af sjálfsdáðum úr sæti sínu á
listanum í Reykjavík — vegna hagsmuna
flokksins."
Vill formanninn í fyrsta sæti
í Reykjavík
Þór Sigfússon telur að að Albert verði
að víkja af listanum og bendir m.a. á þá
lausn að formaður flokksins, Þorsteinn Páls-
ÞORSTEINN PÁLSSON
hefur ekki komist að niðurstöðu um það hvemig skuli bregðast við Alberts-vandanum,
en margir telja að tíminn, sem hann og aðrir forystumenn flokksins hafi til þess að bregð-
ast við og bregðast rétt við, sé mjög naumur. Er af mörgum talið að Þorsteinn hafí ekki
sýnt nægilega festu og ákveðni í þessu máli og það muni koma niður á flokknum í kom-
andi alþingiskosningum.
VÍGLUNDUR
ÞORSTEINSSON
segir að Albert verði að víkja
af lista, en frumkvæðið verði
að koma frá honum sjálfum.
Hann segir að Albert einn
geti samið þann frið í flokkn-
um sem flokkurinn þurfi á
að halda.
ÞÓR
SIGFÚSSON
formaður Heimdallar telur
að víkja beri Albert af lista
og að formaður flokksins eigi
að taka fyrsta sætið. Hann
segir Albert vera óheppileg-
an frá pólitísku og siðferði-
legu sjónarmiði, til þess að
leiða kosningabaráttu
flokksins í Reykjavík.
ALBERT
GUÐMUNDSSON
er af mörgum talinn vera höfuð-
ástæðan fyrir fylgistapi flokksins, en
aðrir segja hann vera allshetjar blóra-
böggul, Sjálfstæðisflokknum og
flokksforystunni til afsökunai-.
FRIÐRIK
SOPHUSSON
gerði ekki ótvíræða kröfu til
forystu fyrir sjálfstæðis-
mönnum í Reykjavík, og því
kenna margir honum um það
að Albert hlaut efsta sætið
í prófkjörinu.
RAGNHILDUR
HELGADÓTTIR
er í forystuliði Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík, en því tókst ekki að ná
samstöðu um 1. sætið. Er það mat
margra að forysta þeirra Ragnhildar,
Friðriks og Birgis hafí brugðist.
son, flytji sig úr Suðurlandskjördæmi og
taki fyrsta sætið í Reykjavík.
„Það væri mín helsta ósk að tekið yrði
af skarið og Albert. yrði knúinn til þess að
víkja af listanum,“ segir Þór. Hann telur
að slíkt myndi alls ekki skaða flokkinn
meira, en að hafa Albert áfram á listanum,
jafnvel ekki þótt Albert færi fram í sérfram-
boði. „Þó svo að flokkurinn myndi missa
þama tvö til þijú þúsund atkvæði, þá er
aðalatriðið að við förum heilsteyptir út í
kosningabaráttuna og kosningarnar og það
getur ekki orðið, nema Albert víki,“ segir
Þór.
Þór heldur áfram: „Albert hefur í gegnum
tíðina talað illa um unga sjálfstæðismenn,
forystu Sjálfstæðisflokksins, starfsmenn
flokksins, og yfírleitt alla þá sem vilja kenna
sig við félagsstarf í flokknum. Ég tel því að
í pólitískum og félagslegum skilningi sé
Sjá næstu síðu
GEIR. H.
HAARDE
skipar sjöunda sæti listans í
Reykjavfk og er af mörgum
talinn fyrsta ferskleikamerk-
ið á listanum, en það er
umkvörtunarefni
margra hversu
neðarlega á listan-
i^m slík end-
umýjun hefst.
SOLVEIG
PÉTURSDÓTTIR
skipar áttunda sæti listans
og þykir einnig vera merki
um endumýjun, en ónóga að
flestra mati. Hún er jafn-
framt eina nýja konan á
listanum í sæti, sem á mögu-
leika á kjöri, og þykir
mörgum súrt í broti að hún
skuli ekki vera ofar á lista.
BIRGIR ÍSLEIFUR
GUNNARSSON
fyrrverandi borgarstjóri í
Reykjavík tók ekki heldur
af skarið um það í hvers
höndum forystan skyldi vera,
og segja menn því að hann,
ásamt þeim Ragnhildi og
Friðrik, axli ábyrgðina af því
að Albert skipar nú 1. sæti
listans.
JÓN BALDVIN
HANNIBALSSON
hrósar hér sigri á flokksþingi Alþýðuflokksins í haust,
en gerir hann það að loknum kosningum? Sjálfstæðiskona
í Reykjavík segir að um tímabundið framhjáhald sjálf-
stæðismanna sé að ræða, en atkvæði þeirra muni skila
sér til Sjálfstæðisflokksins á kjördag.