Morgunblaðið - 20.12.1986, Blaðsíða 73
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
73
Minning:
Guðrún Guðnndótt-
irfrá Hólsgerði
Fædd 28. september 1895
Dáin 15. desember 1986
Guðrún „amma“ eins og ég
kallaði hana er dáin. Mér finnst
það skrýtin tilhugsun.
Guðrún var 91 árs er hún
lést eftir stutta sjúkralegu. Hún
var eiginlega á leiðinni heim
eftir smávægileg veikindi að eig-
in sögn. Þetta lýsir henni vel,
lífskraftur hennar og hressleiki
var með eindæmum. 91 árs bjó
hún ein. Hún prjónaði fínustu
sjöl úr eingimi fram á síðustu
daga, hafði unun af lestri bóka,
fylgdist vel með öllu og var hin
hressasta. Ferðalögum unni hún
mjög en nú hin síðari ár var
farið að hægjast um hjá henni.
Ég get lítið rakið hennar ævi
frá æskuárum og um þau var
hún fámál, sagði að það væri
ekkert frásagnarvert. Þó veit ég
að hún hefur reynt margt á
sínum æviferli sem hefði ef til
vill bugað aðra veikari. En Guð-
rún hélt sínu striki.
Ég kynntist henni fyrst er ég
kom í fjölskylduna sem tengda-
dóttir Hjálmars sonar hennar
(en Guðrún eignaðist tvö böm,
Herborgu og Hjálmar).
Frá henni er kominn stór
ættleggur því Herborg á 4 böm
en Hjálmar eignaðist 7 böm.
Mér fannst Guðrún „amma“
aldrei gömul og þegar hún var
í heimsókn hjá mér gátum við
skrafað saman eins og gamlar
vinkonur um heima og geima.
Ég fann ekki fyrir aldursmuni
á okkur þótt það væm tæp 60
ár. Hún hafði líka ákveðnar
skoðanir og var ófeimin að láta
þær í Ijós.
Ég man eftir fyrstu kynnum
okkar þegar ég kom í Hólsgerði
og var boðið að fara á hestbak.
Hún brosti góðlátlega þegar hún
sá mig stíga á bak, hefur eflaust
fundist tilburðimir skrýtnir, en
Guðrún var mikil hestakona og
hafði unun af góðum hestum.
Minnisstæður verður mér 90
ára afmælisdagur Guðrúnar í
fyrra. Þá heimsótti hana fjöldi
manns. Gamlir sveitungar heiðr-
uðu hana og „amma“ tiplaði svo
falleg og giæsileg á milli gest-
anna ljómandi af ánægju.
Þreytumerki var ekki að sjá á
henni.
Og núna rétt fyrir jólin var
hún á leiðinni heim en hún sofn-
aði á sunnudagskvöldið og
vaknaði ekki aftur til þessa lífs.
Ég veit þó að hinum megin hef-
ur verið tek vel á móti henni
af ástvinum sem famir voru á
undan henni en þar á meðal er
Hjálmar sonur hennar, sem lést
fyrir 3 ámm, og missti Guðrún
þá mikið.
Ég sakna hennar og ég og
fjölskylda mín þökkum henni
samvemna, hún hefur gefið okk-
ur mikið.
Sigrún Ásgeirsdóttir
VILLEROV& BOCH
Sameinar styrkleika og stíl
ÍDiamant
matar- og kaffistellinu
Útsölustaðir:
Hagkaup,
Heildsöludreifing Fjarðarkaup,
JL, gjafavörur,
7 7---------------------------- Vöruhús KÁ, Selfossi,
[JL JÓHANN ÓLAFSSON & C0. HF. Kaupfélag Borgfirðinga,
^ ----------------------------------------- Kaupfélag Héraðsbúa,
Kaupfélag Þingeyinga,
Samkaup, Njarðvík.
vöruúrvíd, hraða afgreiðslu og góða
Þad er auðvitad ekki ráðlegt að fara í
búðakerrukappakstur í SS-búðunum, en rýmisins
vegna erþað vel mögulegt. I SS-búðunum ert þú laus
við þrengsli, hamagang og hávaða stórmarkaða;
þar er afslappandi umhverfi og nægt olnbogarými.
I SS-búðunum rignir vörunum hreinlega yfir þig ■
úrvalið er eins og best verður á kosið. Og þar e<
auðvelt að nálgast vörurnar, því hjá okkur hittir þú
hjálpsamt og nærgætið starfsfólk sem veitir þt
hraða og góða þjónustu.
Austurveri, Glæsibæ, Hafnarstræti, við Hlemm og á Akranesi.