Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 84

Morgunblaðið - 20.12.1986, Side 84
84 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986 Leðursófasett, verð kr. 127.500,- með afb. Staðgr. kr. 115.000 Nýjar sendingar af leðursófasettum oghornsófum VALHUSGOGN ÁRMÚLA 8, SÍMI 82275. á íor\a9'nU H* Prcnluná mánu<la9- Harrnaminninq LEOFiÓRU líRISTÍUAR í Blaturni ojom rn. tuöKftsson H armaminning Leonóru Kristínar í Bláturni Bjöm Th. Bjömsson þýddi. Eitt af höfuðverkum danskra bókmennta loksins á íslensku! I meira en tvo áratugi sat Leonóra Kristín Ulfeldt, dóttir Kristjáns IV Danakonungs, fangi í Blátumi, þeirh illræmdu prísund í miðri konungshöllinni í Kaupmannahöfn, sem margir íslendingar urðu líka að gista. Þetta var á ofanverðri 17. öld og líklega kom ekkert nema ættemi Leonóm í veg fyrir að hún yrði tekin af lífi fyrir drottinsvik. Meðan hún dvaldi í fangelsinu ritaði hún Harmaminningu, þar sem hún segir frá meinlegum örlögum sínum, jafnframt því sem hún lýsir á áhrifamikinn hátt lífi sínu í fangelsinu, meðföngum sínum og samskiptum við yfirvöld. Leonóra er glöggur mannþekkjari og minningar hennar em kryddaðar ótal skemmtilegum frásögnum. Hannaminning Leonóm kom fyrst út á prenti í Danmörku árið 1869, en hefur síðan verið gefin út æ ofan í æ þar í landi og verið þýdd á fjölmörg tungumál. Nú kemur hún í fyrsta sinn út hérlendis í þýðingu Bjöms Th. Bjömssonar, sem einnig ritar skýringar og sögulegan inngang. Harmaminning Leonóm Kristínar er 340 bls. að stærð og prýdd fjölda mynda. Verð: 1690,- iíM & Við bjóðum til bókaveislu um þessi jól Mál og menning Jóhann H. Gísla- son - Afmæliskveðja Einn af mörgum ágætum sam- starfsmönnum mínum í skipasmíða- iðnaðinum er Jóhann Líndal Gíslason skipasmíðameistari, sem á 75 ára afmæli í dag. Jóhann hefur alltaf fengið viður- kenningu fyrir að vera bráðlaginn og hafa bátar hans og bátaviðgerðir borið þess glöggt merki. Jói Gísla, eins og hann er oftast nefndur í daglegu tali, fæddist á Bíldudal 20. desember 1911. Einn af fímm systk- inum og átti hann fjórar systur. Foreldrar hans voru Gísli Jóhanns- son skipasmiður, sem í mörg ár rak skipasmíðastöð á Bíldudal. Móðir hans var Leópoldína Guðmundsdótt- ir frá Flatey á Breiðafirði. Jóhann ólst upp í Flatey til fimmtán ára aldurs. Hann fékkst við bátasmíðar hjá Valdimar Ólafssyni í Hvallátrum um tíma, eftir það fór hann til föður síns á Bíldudal og lauk hann þar námi í skipasmíði og tók sveinspróf 1937, meistarabréf fékk hann 1945. Hann kvæntist 1940 Fjólu Símon- ardóttur frá Vestmannaeyjum. Þau fluttu til Hafnarfjarðar 1945 og hóf Jóhann þá strax skipasmíðar hjá skipasmíðastöðinni Dröfn hf. En svo kom að því að þar fór að vera lítið að gera í skipasmíðastöð- inni eftir að hinn mikli innflutningur hófst á bátum frá Svíþjóð í lok síðari heimsstyijaldarinnar. Fór hann þá að smíða trillu í litlu plássi í her- skála á Flatahrauni í Hafnarfirði. Stuttu síðar tókum við, undirritaður og Jóhann, herskálann á leigu og hófum þar smíði á bæði trillum og nótabátum. Bátar þessir urðu fljótt eftirsóttir, og þegar verkefni færðust í aukana fjölguðum við mannskap. Tveir af þeim sem gengu í lið með okkur voru Einar B. Sturluson og Sig- mundur Bjamason og stofnuðu þeir með okkur samlagsfélag sem við nefndum Bátasmíðastöð Breiðfirð- inga, enda allir Breiðfírðingar að ætt og uppruna. Jóhann vann samfleytt með okkur í fyrirtækinu fram á vor 1957. Starf hans einkenndist af góðri samvinnu, dugnaði, mikilli einlægni og óeigin- girni. Um það leyti sem Jóhann hætti í fýrirtækinu var hann nokkuð heilsu- veill og bentu læknar honum á að breyta um starf. Jóhann átti marga góða kunn- ingja, einn þeirra var fyrrverandi alþingismaður, Gísli Jónsson, sem Ingersoll-Rand loftþjöppur G óð jólagjof Afköst: 110—320 l/mín. Þrýstingur: 8—10 BAR. Verð frá kr. 10.735,- Loftverkfærasett. Verð kr. 3.650,- IhIHEKLAHF Laugavegi 170-172 Sími: 695500. Véladeild símar: 695730 — 695750.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.