Morgunblaðið - 20.12.1986, Síða 93
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
93
Af sölumennsku í skólum
Anna Soffía Óskarsdóttir
skrifar:
Margir ljósmyndarar bjóða að
taka bekkjarmyndir í grunnskólum
borgarinnar og bjóða þá gjaman
passamyndatöku um leið.
í Hólabrekkuskóla voru teknar
bekkjarmyndir fyrir skömmu af
Ljósmyndastofu Þóris. Við það
tækifæri var foreldrum/nemendum
gefínn kostur á að kaupa annað
hvort bekkjarmynd eða passamynd-
ir fyrir ákveðna upphæð, einnig var
hægt að fá hvorutveggja fyrir
ákveðna upphæð. Var ætlast til að
myndimar væm greiddar strax við
myndatöku.
í sjálfu sér er ekkert við þetta
að athuga annað en að verðið var
talsvert hærra en ég hef haft spum-
ir af frá öðrum ljósmyndastofum.
En nú kemur það sem mér fínnst
forkastanlegt:
Nemendur voru síðan sendir heim
með bæði passamyndir og bekkjar-
mynd í glæru plastumslagi ásamt
mkkun um viðbótampphæð fyrir
þær myndir, sem ekki hafði staðið
til að kaupa, ella skyldi senda þær
aftur til skólans. Tólf ára unglingar
þurfa á passamyndum að halda en
hvað eiga sjö ára böm að gera við
sautján passamyndir?
Ég hitti stóran hóp sjö ára bama
þennan eftirmiðdag sem öll höfðu
átt að fá bekkjarmynd en ekki
passamyndir. Öll veifuðu þau mynd-
unum sínum og langaði til að eiga
þær. Má hugsa sér í hvaða baráttu
foreldrar hafa átt þetta kvöld og
hversu margir foreldrar hafí keypt
sér frið fyrir 1000 kr.
Þegar ég kvartaði yfír þessari
aðferð við sölumennsku við ljós-
myndastofuna var mér sagt að allir
vildu selja sína vöm og ekkert væri
einfaldara en að senda bamið til
baka með myndimar. Hvers eiga
börnin að gjalda að sendast fram
og til baka með myndir, sem þegar
er búið að ákveða að kaupa ekki?
Hvers konar virðing er það fyrir
tilfínningum þeirra?
Getur skólastjóri leyft svona að-
ferðir við sölumennsku?
Anna Soffía Óskarsdóttir,
foreldri barns í Hólabrekku-
skóla
Starfsmannastj ór i eða
yfirmaður starfsliðs?
Ágæti Velvakandi,
Nafn Donald Regans hefur alloft
borið á góma á vettvangi fjölmiðla
undanfama daga.
Þar hefur hann verið titlaður
starfsmannastjóri Hvíta hússins og
fínnst mér honum vera gerður vafa-
samur heiður með þeirri nafnbót.
Regan er „chief of staff" og
væri nær að kalla hann yfírmann
starfsliðs (starfsemi) Hvíta hússins
og hljóta vanir menn að sjá, ef
grannt er skoðað, að hér er regin-
munur á.
Er vonandi að Regan fái að njóta
sannmælis þann stutta tíma, er
hann virðist eiga eftir í þessu vold-
uga embætti, svo og eftirmenn
hans.
Virðingarfyllst,
Reynlr Guðmundsson
Donald Regan
Krossgáta getur verið slang-
uryrðafólki góð hugþraut
75 ára krossgátuglaður skrifar:
Stóra krossgátan í Lesbók Morg-
unblaðsins er alveg ágæt og er
vafalaust mjög mörgum augnayndi
og dægrastytting, enn hún er í raun
miklu meira, hún er skóli þeim sem
*eggja sig fram við að ráða hana,
einnig þjálfar hún minnið, eykur
orðaforða, vekur menn til umhugs-
unar um meiningu orða, gefur betri
innsýn í málið en þó lesið sé venju-
legt ritmál, þvingar mann til að
hugsa og margan undrar hvað
mörg hugtök eru til yfír sama hlut-
inn og þar að auki safnar maður í
minnisbanka án þess að gera sér
grein fyrir því.
Mér hefur dottið í hug að góð
krossgáta geti verið slanguryrða-
fólki mjög góð hugþraut og
áminning um betra málfar og ríkari
orðaforða, en til þess að svo geti
orðið þurfa þeir sem Morgunblaðinu
ráða að gefa krossgátunni meira
aðdráttarafl og það á að vera hægt,
með því að verðlauna réttar lausnir.
Verðlaunin þurfa ekki að vera
há, það er ekki markmiðið, þau eiga
aðeins að vera hvatning og viður-
kenning svo fólk fái meiri áhuga á
þessari dægradvöl, mér hefur dottið
í hug að veitt yrðu þrenn verðlaun,
sem dregin væru úr réttum lausnum
sem berast til ykkar og þeir sem
vinning hljóta fengju Morgunblaðið
ftn'tt í einn mánuð, þrjár vikur og
hálfan mánuð, þeir heppnu fengju
svo sendan miða heim til sín, sem
síðan væri framvísað þegar rukkað
er fyrir Morgunblaðið, með þessu
móti fengist bæði hvatning og gam-
an sem fólkið kynni að meta og yki
sölu blaðsins, þetta myndi líkjast
greiðasemi Bylgjunnar við almenn-
ing og þar er ekki leiðum að líkjast.
Nú ætla ég að hella úr skálum
reiði minnar og veita þeim ákúru
sem ræður yfír litlu krossgátunni í
Morgunlaðinu, hún er ekki fastari
í sessi en það, að þegar gest ber
að garði er henni fleygt á dyr, en
látum það gott heita, en það er allt
of algengt að úrvinnsluorð og lausn-
arorð séu ekki rétt og það ergir
mig, því þessa gátu lít ég á í hverju
blaði þegar hún fær að sýna sig,
það er eins og einhver hlaupagikkur
grípi þetta án ábyrgðar og fleygi
því frá sér í kæruleysi, samanber
blaðið 26., 11. þar vantar alveg
lóðréttu úrvinnsluorðin.
Trúr í litlu tetrið virt
temdu þér að vera
Betra er, að láta kyrrt
en öðrum illt að gera.
I
-
Þessir hringdu . . .
Vegna fyrir
spurnar„að
gefnu tilefni“
Guðrún Agnarsdóttir hringdi:
Nú um um helgina birtist í
dálki Velvakanda fyrirspum til
okkar kvennalistakvenna, „ af
gefnu tilefni", hvort að við teldum
„okkar heilbrigðu bömum vera
mismunað með niðurgreiðslum
sumardvalar fyrir fötluð böm“.
Ég hef spurt nokkrar kvennalista-
konur út í þetta og höfum við
mikinn hug á að svara þessu en
vitum því miður ekki alveg hvert
tilefni spumingarinnar er. í fljótu
bragði getum við þó ekki séð að
þeim sem séu svo lánsöm að eiga
heilbrigð böm sé mismunað þó
fötluðum bömum sé auðvelduð
sumardvöl.
Bæði og
Ragna Gunnarsdóttir hringdi:
Nýlega birtist fyrirspum frá
konu í Velvakanda sem spurði
hvar hægt væri að fá bókina
„Bæði og“. Bókin fæst hjá Ey-
mundsson, Olíver Stein í Hafnar-
fírði, Lárusi Blöndal og
Bókaverslun Máls og menningar.
Einnig á hún að fást hjá útgef-
anda.
Rangt farið með
tilvitnun í Grím
Thomsen
Pétur Pétursson, þulur,
hafði samband við Velvakanda og
sagði að rangt hefði verið farið
með tilvitnun í ljóð Grím Thom-
sens sem vitnað var til í dálkum
blaðsins nýlega. Bað um að rétt
væri eftir haft.
Á Glæsivöllum aldrei
með ýtum er fátt,
allt er kátt og dátt;
en bróðemið er flátt mjög og
gamanið er grátt,
í góðsemi vegur þar hvem ann-
an.
Veðurfréttir
norður
Akureyringur hringdi:
Ég er með fyrirspurn til Ríkisút-
varpsins. Hvers vegna er veður-
fréttum kl. 1 á nóttunni ekki
útvarpað á miðbylgju og FM-
bylgju á Eyj afj arðarsvæðinu virka
daga? Veðurfréttum á þessum
tíma er bara útvarpað um helgar
þegar verið er að útvarpa fram
eftir nóttu. Annars næst veðrið
bara á langbylgju og það er ekki
þægilegt.
d i
sins c.r £u sama. 09 i paer
spcujHefcti."
ást er...
... að hvetja hann
til dáða.
TM Rea. U.S. Pat. Off.—atl rights reserved
°1984 Los Angeles Times Syndicate
Hvað kom fyrir þig mað-
ur?
Með
morgunkaffrnu
9!5 f)KKehJ
Skiptir ekki máli brúðar-
meyjar. Það er jafn gott
að hann venjist því strax
hver á að bera byrðam-
ar.
HÖGNI HREKKVÍSI
,.Kálk6njmn ERTILBÖINN pE&AR BJALLAN
HLJÓMAR."
St'