Morgunblaðið - 20.12.1986, Page 94
94 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
• Charlie Nicholas hefur átt ( meiðslum frá þvf í heimsmeistara-
keppninni ( Mexfkó f sumar. Nú hefur hann náð sér en hefur ekki enn
fengið náð fyrir augum þjálfara Arsenal, George Graham.
Getraunaseðillinn:
Spáð íleiki helgarinnar
I síðustu leikviku komu aðeins
fram tvœr raðir með tólf leikjum
réttum, enda mikið um óvenjuleg
úrslit. Én þannig er knattspyrnan
og það óvœnta er það sem gerir
íþróttina skemmtilega og get-
raunirnar spennandi. Því er alitaf
jafn erfitt eða auðvelt að fylla út
getraunaseðilinn, en þeir sem
vilja tryggja sig fyrir óvæntum
úrslitum, tví- eða þrftryggja suma
leikina til að eiga meiri möguleika
á góðum vinningi.
Á getraunaseðlinum í 18.
leikviku virðast margir leikir vera
öruggir, en hafandi hið óvænta í
huga er ekkert öruggt. Þess vegna
er upplagt að fylla út opinn kerfis-
seðil. Þá getur hver og einn ráðið
fjölda tví- og þrítrygginga og að-
eins þarf að fylla út eina röð. Að
þessu sinni ætlum við að bregða
út af vananum með því að
tvítryggja 4 leiki, þrítryggja 3 og
festa 5 leiki.
Arsenal-Luton 1
Arsenal trónir á toppnum og
hefur gengið sérlega vel í síðustu
11 leikjum, unnið 9 leiki og gert 2
jafntefli. Luton hefur vegnað vel á
gervigrasinu og er í 5. sæti, en
ekki er árangurinn eins glæsilegur
á útivelli. Því festum við heimasig-
ur.
Charlton-Liverpool 2
Charlton byrjaöi vel og heima-
völlurinn hefur reynst drjúgur, en
heldur hefur hallað undan fæti, lið-
ið hefur ekki sigrað í síðustu 8
leikjum og er í 19. sæti. Líklegt
er að Bob Bolder, fyrrum vara-
markvörður Liverpool, leiki gegn
sínum gömlu félögum, en þeir
þekkja hans veiku hliðar. Liverpool
er í 3. sæti, hefur skorað næst flest
mörk og sigrar örugglega.
Chelsea-Spurs 12
Chelsea er í neðsta sæti og
hefur ekki sigrað í síðustu 9 leikj-
um. Ekki bætir úr skák, að margir
lykilmenn eiga við meiðsli að
stríða. Tottenham hefur sjaldan
verið betra, en leikirnir hafa verið
sveiflukenndir. Chelsea vann 3:1 á
White Hart Lane í september og
getur þess vegna komið aftur á
óvart. Opinn leikur, en látum
tvítryggingu nægja.
Coventry-M. City 1X2
Mjög opinn leikur. Coventry er
um miðja deild, en er ekki nógu
sannfærandi á meðan City er í
sókn. Ekkert annað en þrítrygging
kemur til greina.
Everton-Wimbledon 1
Hjá Wimbledon kemur tæplega
annað til greina en sigur eða tap.
Liðið hefur gert eitt jafntefli í deild-
inni og er aðeins 10 stigum á eftir
efsta liðinu. Everton hefur gengið
upp og niður, en áhangendurnir
heimta sigur gegn „háloftaliðinu"
og heimavöllurinn tryggir hann.
M. United-Leicester 1
Úlpur með góðri hettu. Hlýjar og
notalegar buxur. Margir litir.
íslensk gæðavara.
Sportbúð Kópavogs
Hamraborg 22, sími 641000.
Knattspyrna:
Happel boðið að
þjálfa landslið
Saudi-Arabíu
ERNST Happel, þjálfara HSV í
þýsku úrvalsdeildinni í knatt-
spyrnu, hefur fengið tilboð um
að þjálfa landslið Saudi-Arabíu
næstu fjögur árin. Ágætis laun
fylgja starfinu, 4,5 milljón þýsk
mörk, sem er rúmlega 90 milljón-
ir íslenskar krónur - góðar tvær
milljónir á mánuðil
Happel er 61 árs gamall Aust-
urríkismaður og einn þekktasti
knattspyrnuþjálfari Evrópu. Hann
fór til Saudi-Arabíu fyrir skömmu
og dvaldi þar í fimm daga við að
kanna aðstæður, en í tilboðinu
segir að hann eigi að undirbúa
landsliðið fyrir Ólympíuleikana
1988 og HM 1990.
Happel hefur gefið í skyn að
þetta sé síðasta tímabilið hjá HSV,
en liðið er nú efst í úrvalsdeildinni
og síðan hann tók við stjórnun-
• Ernst Happel
inni, hefur HSV tvisvar orðið
deildarmeistari og einu sinni Evr-
ópumeistari bikarhafa.
Handbolti:
Óli P. Olsen
og Gunnlaugur
dæma í IMoregi
ÓLI P. Ólsen og Gunnlaugur Þeir félagar dæmdu leik Hels-
Hjálmarsson, mllliríkjadómarar inger og Tatra Koprivnice í 16
f handbolta, dæma leik Urædd liða úrslitum og fengu góða
frá Noregi og CSKA Sofia frá dóma. Því hafa þeir verið settir
Búlgaríu f 8 liða úrslitum IHF- á fyrrnefndan leik í Noregi og
keppninnar, sem fram fer í verður það að teljast góð viður-
Noregi f byrjun janúar. kenning á dómarastörfum þeirra.
United má muna sinn fífil fegri,
en liðið er smám saman að færast
fjær botninum og hefur í gegnum
árin haft gott tak á Leicester.
Heimasigur.
N. Forest-Sh’ton 12
Forest er í 2. sæti og stefnir upp
á við. Leikmenn Southampton hafa
skorað mikið af mörkum eins og
andstæðingarnir og engin ástæða
er til að ætla að á því verði breyt-
ing. Bæði liðin leika til sigurs og
því tvítryggjum við viðureignina.
Oxford-Aston Villa X2
Aston Villa er í fallsæti og hefur
gengi liðsins ekki verið eins gott
og efni stóðu til. Samt virðast
strákarnir vera að rífa sig upp úr
öldudalnum og því spáum við sigri,
en tvítryggjum engu að síður.
S. Wed.-Newcastle 1X
Sheffield Wed. tapaði stórt um
síðustu helgi á sama tíma og
Newcastle sigraði Forest. Sigurð-
ur Jónsson lék ekki með, en hann
verður væntanlega tilbúinn í slag-
inn og þá mega þeir svartröndóttu
vara sig. Sennilega heimasigur, en
gerum einig ráð fyrir jafntefli og
tvítryggjum leikinn.
West Ham-QPR 1X2
Nágrannaslagur tveggja óút-
reiknanlegra liða. West Ham er á
meðal efstu liða, en QPR nær
botninum og eru 10 stig á milli lið-
anna. Heimasigur líklegastur en
þrítrygging örugg.
Derby-Grimsby 1
Derby lifir á fornri frægð og lið-
ið ætlar sér að komast aftur í deild
hinna bestu. Sem stendur er
Derby í 4. sæti í 2. deild, en Grims-
by er 8 stigum neðar í töflunni.
Gestirnir spila upp á jafnteflið, en
heimamenn sigra.
H.fieid-C. Palace 1X2
Huddersfield er á botni 2. deild-
ar, en Palace um miðja deild. Bókin
segir útisigur, en frekari vangavelt-
ur eru óþarfar með því aö
þrítryggja leikinn.