Morgunblaðið - 20.12.1986, Qupperneq 95
I
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 20. DESEMBER 1986
--------------.--------------------1_________
95
AP/Símamynd
• Joel Gaspoz, Sviss, er hér f stórsvigskeppnlnni f Júgóslavíu f gœr. Hann vann þar sigur f stórsvigi
heimsbikarsins f annað sinn f vetur og er nú f fjórða sœti heimsbikarsins. Landi hans, Pirmin Zurbrigg-
en, heldur enn forystu sinni, með 112 stig.
Heimsbikarinn á skíðum:
Annar sigur Gaspoz
í stórsvigi í vetur
- Girardelli ekki meira með ívetur?
„ÉG kann vel við mig f hörðum
og erfiðum brautum eins og var
hér í dag,“ sagði Joel Gaspoz,
Sviss, eftir sigur sinn í stórsvigi
heimsbikarsins í Kranjska Gora í
Júgóslavíu f gœr. Hann varð að-
eins sex hundruðustu úr sekúndu
á undan Roberto Erlacher frá
Ítalíu. Pirmin Zurbriggen, Sviss,
varð í 9. sœti og heldur enn for-
ystu sinni f heimsbikarnum
samanlagt. Heimsbikarhafinn frá
því í fyrra, Marc Girardelli, verður
líklega frá keppni vegna meiðsla
það sem eftir er tímabilsins.
fyrra, keyrði út úr í fyrri ferð.
Zurbriggen nældi sér í dýrmæt
stig með því að hafna í níunda
sæti.
Úrslit í stórsviginu í gær voru
þessi:
Joel Gaspoz, Sviss 2.37,12
Roberto Erlacher, italfu 2.37,18
Richard Pramotton, Ítalíu 2.37,58
Helmut Mayer, Austurríkl 2.38,15
Markus Wasmeier, V-Þýskalandi 2.38,23
Ingemar Stenmark, Svfþjóð 2.38,28
Hubert Strolz, Austurrfki 2.38,52
Michael Eder, V-Þýskalandi 2.38,93
Plrmin Zurbriggen, Svlss 2.38,95
AlbertoTomba, ftalfu 2.38,97
Staðan í heimsbikarnum sam-
anlagt er þá þessi:
Pirmln Zurbrlggen, Sviss 112
Richard Pramotton, italfu 108
Markus Wasmeier, V-Þýskalandi 104
Joel Gaspoz, Sviss 88
Ingemar Stenmark, Svfþjóð 78
Peter MUIIer, Sviss 82
Robert Erlacher, ftalfu 82
Franz Heinzer,, Sviss 51
Hubert Strolz, Austurrfki 48
Leonhard Stock, Austurrfki 43
í dag keppa karlarnir í svigi í
Kraniska Gora. Kvennfólkið keppir
í svigi í Val Zoldana á Ítalíu.
Piltarnir héldu
uppi heiðri íslands^
ÍSLENSKA piltalandsliðið hélt
uppi heiðri Islendinga með því
að vinna Finna, 29:27, í hand-
knattleik á Akranesi í gærkvöldi.
Finna höfðu yffir í hálfleik, 12:15.
íslenska liðið lék mjög vel á loka-
kaflanum og tryggði sér þá
sigurinn. Með þessu sigri sfnum
gefa þeir A-liðinu von um að
hljóta efsta sætið á mótinu.
íslenska liðiö byrjaði mjög vel
og komst í 8:3 en Finnar náðu að
jafna og komast yfir í hálfleik. í
seinni hálfleik komust Finnar í
17:12 en þá tóku íslensku strák-
arnir við sérog náðu að jafna 22:22
þegar um 12 mínútur voru eftir.
Þeir sigur síðan framúr og unnu
örugglega.
Arni Friðleifsson lék mjög vel
og stjórnaði leik liðsins. Berg-
sveinn, markvörður, varði vel í
lokin, oft úr dauðafærum. Bjarki,
Jón Kristjánsson og Stefán stóðu
sig einnig mjög vel.
Mörk fslands: Bjarki Sigurðsson 5, Pétur
Petersen 5, Sigurjón Sigurösson 5/5,
Konráð Olavson 4/4, Jón Kristjánsson 3,
Árni Friðleifsson 2, Halfdán 1 og Héðinn 1.
Mörk FINNLANDS: Rönneberg 14/2, Ka-
ellman 5/1, Lindberg 4, Goran 2 og -
Kihlstedt og Maekinen eitt mark hvor.
P.B./Vajo
Islendingar náðu
aðeins jöfnu gegn
Bandaríkjamönnum
ÍSLAND og Bandarfkin gerðu
jafntefli, 28:28, á desembermót-
inu í handknattleik á Akranesi f
gærkvöldi. íslendingar höfðu tvö
mörk yfir f hálfleik, 14:12. Banda-
rfkjamenn jöfnuðu á síðustu
sekúndum leiksins.
íslendingar byrjuðu leikinn mjög
illa, klúöruðu þá oft dauðafærum.
Bandaríkjamenn komust í 5:1 og
síðan 10:5 þegarfyrri hálfleikur var
hálfnaður. Síðan komu fimm mörk
í röð hjá íslendingum og staðan,
10:10. Aftur var jafnt 12:12 en
íslenska liðið skoraði tvö síðustu
mörkin fyrir leikhlé og leiddu með
tveimur mörkum.
íslendingar byrjuðu vel í seinni
hálfleik og komust í 20:16 en
Bandaríkjamenn söxuðu síðan á
forskotið og jöfnuðu í fyrsta sinn
í hálfleiknum, 24:24, þegar sex
mínútur voru eftir. Síðan skiptust
Staðan
Staðan f desembermótinu f
handknattleik fyrir sfðustu
umferðina er þessi:
Finnland 5 4 0 1 154:125 8
ísland 5 3 1 1 135:121 7
U-21 árs 5 113 119:140 3
Bandarikin 5 0 2 3 105:127 2
Markahæstir:
Jan Rönneberg, Finnlandi 57/7
Mikael Kaellman, Finnlandi 41/4
Steinar Birgisson, fslandi 27/2
Joe Storey, Bandarikjunum 24/4
liðin á um að hafa forystu. íslend-
ingar skoruðu 28. markið þegar
tæp mínúta var til leiksloka og
Bandaríkjamenn jöfnuðu þeget _
innan við 10 sekúndur voru eftir.
Bjarni og Steinar voru bestu menn
íslands. Geir stóð sig vel í vörninni
í fyrri hálfleik. Þorgils Óttar bætti
upp lélegan fyrri hálfleik í seinni
og Júlíus komst vel frá seinni hálf-
leik. Guðmundur Hrafnkelsson
stóð lengst af í markinu og stóð
sig vel. Einar byrjaði leikinn og
endaði, en fann sig ekki.
Mörk fSLANDS: Steinar 7/2, Bjarni 6,
Sigurður 4, Þorgils Óttar 4, Július 3, Guð-
mundur 3 og Hilmar 1.
Mörk Bandaríkjana: Janny 7, Goss
Oleksyk 5, Story 4/2, Sullivan 3 og Drig-
gers 3.
P.B./Vajo
Úrslit í
Höllinni í dag
í dag lýkur desembermótinu f
handbolta og verður viðureign
íslands og Finnlands, sem hefst
f Höllinni klukkan 17.15, hreinn
úrslitaleikur. U-21 árs og Banda-
ríkin keppa um 3. sætið og byrjar
sá leikur klukkan 15.30.
Sjóvátryggingarfélag íslands
gefur öll verðlaun til keppninnar,_
en auk verðlauna fyrir sæti, verðd*^-
valdir leikmenn mótsins og fá þeir
sérstaka viðurkenningu.
Þetta var annað stórsvigið sem
Joel Gaspoz vinnur á þessu keppn-
istímabili. Stórsvig er hans sér-
grein og hefur hann unnið fimm
stórsvigsmót í heimsbikarnum
síðustu tvö ár.
Marc Girardelli hóf keppni í gær
en féll í fyrsta hliði og kom illa nið-
ur í harða brautina og meiddist
aftur á vinstri öxl. Hann meiddist
illa á sama stað í fyrstu keppni
vetrarins og hefur verið með í 10
keppnum síðan án þess að vera
orðinn góður. Læknir Girardellis
sagði að hann yrði sennilega frá
keppni það sem eftir væri keppn-
istímabilsins. Girardelli mun
gangast undir uppskurð á sjúkra-
húsinu í St. Gallen í Sviss í dag.
Joel Gaspoz hafði besta tímann
i fyrri umferð stórsvigsins, en
fjórða tímann í seinni. Það nægði
honum til að vinna nauman sigur
á Robert Erlacher, Italíu, sem náði
besta tímanum í seinni ferð. Ital-
•nn, Richard Pramotton, varð þriðji
°g Helmut Mayer, Austurríki,
fjórði.
Ingemar Stenmark, sem byrjaði
tímabilið með því að vinna sinn 84.
sigur í heimsbikarnum, hafnaði í
sjötta sæti eftir að hafa verið í
þriðja sæti eftir fyrri ferð. Rok
Petrovich, sem sigraði í svigi
heimsbikarinsins samanlagt í
Afreksmannasjóður ÍSÍ:
Eðvaro fékk
200 þúsund
EÐVARÐ Þ. Eðvarðsson,
sundmaður frá Njarðvík,
fékk 200 þúsund krónur í
styrk úr afreksmannasjóði
ÍSI í vikunni. Einar Vil-
hjálmsson og Sigurður
Einarsson, frjálsíþrótta-
menn, fengu 100 þúsund
krónur hvor og Bjarni Frið-
riksson, júdómaður, og
Einar Ólafsson, skíðamað-
ur, hlutu 50 þúsund krónur
hvor úr sjóðnum.
Fram kom við afhendinguna
að samstarf stjórnar afreks-
mannasjóðs ISÍ og Ólympíu-
nefndar íslands verður mjög
náið á næstunni til að tryggja
sem besta nýtingu á því fjár-
magni, sem þessir aðilar hafa
til ráðstöfunar til afreksmanna
með langtímamarkmið í huga,
en áætlað er að ráðstöfunarféð
á næsta ári verði 6,5 milljón
krónur.
I byrjun janúar verður ákveð-
inn hópur íþróttamanna kallað-
ur til viðræðna um hvað þeir
hyggjast fyrir í næstu framtíð
og hugsanlega gerður við þá
ákveðinn rammasamningur
með mánaðarlegar greiðslur í
huga. Þetta er gert til að
íþróttamaðurinn geti helgaö sig
íþróttinni með stanslausri þjálf-
un og einbeitingu, en til þess
að verða afreksmaður í íþrótt-
um og ná árangri á alþjóðamót-
um er slíkt nauðsynlegt.
• Eðvarð Þór Eðvarðsson, sundmaður, er nú elnn mesti afreks-
maður í íþróttum hér á landi.
V