Morgunblaðið - 28.12.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
Áhöfn björgunarþyrlu Vædderen ásamt skipherra danska skipsins, frá vinstri Arne Fröge, Claus T. Eriksen, Jörgen Laursen og Jan Ras-
mussen þyrluflugstjóri og Preben A. Anderssen skipherra á Vædderen.
Björgunarbátur sem kastað
var úr flugvél réð úrslitum
- að sögn skipherra Vædderen
Þórshöfn, frá Agnesi Bragadóttur og Árna Johnsen.
„Urðum að ná
til bátsins
eins fljótt og
auðið var“
- sagðiþyrlu-
flugstjórinn
„Þessi björgunaraðgerð gekk í
alla staði frábærlega þrátt fyrir
erfiðar aðstæður. Við gerðum
okkur grein fyrir því að við urðum
að ná til bátsins eins fljótt og auð-
ið var vegna þess hvað mennirnir
höfðu verið lengi í sjónum,“ sagði
Jan Rasmussen, flugstjóri skips-
þyrlu Vædderen í samtali við
Morgunblaðið eftir að skipið lagð-
ist að bryggju í Færeyjum í
fyrrinótt.
Rasmussen sagði að þyrlan hefði
hafið sig til flugs á hádegi á jóla-
dag og áætlaður flugtími að björg-
unarbátnum hefði verið ein og hálf
klukkustund. Klukkan 1.32 var
þyrlan komin á staðinn og fann
björgunarbátinn með leiðsögn
bresku björgunar- og leitarvélarinn-
ar.
„Við sáum bátinn og mennirnir
stóðu í honum og veifuðu til okkar.
Við sendum sigmann niður og hann
aðstoðaði við björgun tveggja fyrstu
mannanna en hinir þrír komust af
eigin rammleik upp með spiltaug-
inni,“ sagði Rasmussen. Hann sagði
að þeir hefðu gert sér vonir um að
fleiri hefðu komist lífs af og að
áætlað hefði verið að þyrlan færi
tvær ferðir, en því miður hefði ekki
reynst þörf á því.
„Björgun mannanna úr björgun-
arbátnum um borð í þyrluna tók
29 mínútur," sagði Rasmussen. „Og
því næst flugum við aftur áleiðis
til Vædderen. Ferðin í heild tók 3
klukkustundir eins og áætlað hafði
verið þannig að það var aðeins eft-
ir eldsneyti til flugs í 12 til 15
mínútur þegar við lentum."
„LÍKLEGA hefur það ráðið úrslit-
um um björgun skipverjanna
fimm að þeir komust um borð I
gúmbjörgunarbát sem bresk
Nimrod-þota henti niður skammt
frá þeim stað sem skipbrotsmenn-
irnir höfðu barist fyrir lífi sínu í
löskuðum björgunarbát í 10-11
klukkutíma. Þá hefur það einnig
skipt máli að björgunarþyrlan frá
Vædderen kom við sögu því skips-
læknirinn okkar telur að minnsta
kosti tveir skipveijanna hefðu
ekki lifað af hefði þyrlan ekki
komið svo skjótt á staðinn sem
raun bar vitni og bíða hefði orðið
eftir þvi skipi sem næst var og
von var á að björgunarbátnum 6-7
klukkustundum eftir að þyrlan
bjargaði mönnunum," sagði Pre-
ben A. Andersen, skipherra
danska skipsins Vædderen, í sam-
tali við Morgunblaðið skömmu
eftir að skipið lagði að bryggju í
Færeyjum laust eftir klukkan eitt
í fyrrinótt með skipbrotsmennina
fimm af Suðurlandi sem björguð-
ust og lík þeirra þriggja sem létust
af vosbúð í björgunarbátnum þeg-
ar það sökk. Þriggja er enn
saknað.
Tíu skipveijar reyndu að synda
að gúmbjörgunarbátunum. Síðast
sást til skipstjórans þegar brotsjór
reið yfír skipið er síðustu mennimir
yfírgáfu það.
Hópur fólks sem beið komu Vædd-
eren til Þórshafnar með skipbrots-
mennina stóð hljóður í virðingarskyni
þegar lík skipveijanna voru borin í
land. Áhöfn Vædderen stóð heiðurs-
vörð. Skömmu síðar gengu skipveij-
amir fímm í land í fylgd skipslæknis-
ins og vom þeir lagðir inn á
sjúkrahús í Þórshöfn.
Þegar Vædderen, sem er með 65
manna áhöfn, fékk tilkynningu um
slysið á jóladag var skipið statt í
Þórshöfn. Það lagði af stað í björgun-
arleiðangurinn 16 mínútum síðar á
slysstað sem var 300 mílur NA af
Færeyjum. Um miðjan dag 25. des-
ember höfðu leitarflugvélar staðsett
gúmbjörgunarbát. Þá gerðu yfír-
menn Vædderen björgunaráætlun
fyrir skipsþyrluna. Þyrlan hafði
þriggja klukkustunda og tuttugu
mínútna flugþol. Var áætlað að vera
á lofti í þijár klukkustundir í fyrri
leiðangrinum til að ná skipveijunum
sem þá var haldið að væru allir um
borð í björgunarbátnum.
„Því miður reyndust ekki eins
margir á lífí og vonir stóðu til,“ sagði
Præben. „Þegar við tókum mennina
upp í þyrluna höfðu þeir fyrst verið
í tíu klukkustundir í rifnum bát sem
stöðugt gaf yfir, meira og minna
standandi upp í klof í sjó. Lofthitinn
var þijár gráður en sjávarhitinn núll
gráður. Síðustu 3-4 tímana voru
þeir í heilum bát sem kastað hafði
verið til þeirra úr Nimrod-vél. Þegar
við náðum til þeirra var snjókoma,
strekkings vindur og 8-10 metra
ölduhæð. Sigmaður þyrlunnar hjálp-
aði tveimur fyrstu um borð i hana en
í þriðju lotu fékk hann dráttarkrók
í höfuðið og var hífður um borð.
Þrír þeir síðustu í gúmbjörgunar-
bátnum gátu sjálfir fest sig í krókinn
og komist um borð í þyrluna. Þegar
þyrlan kom aftur að skipshlið með
mennina fimm hafði hún verið á lofti
í þijár klukkustundir og átta mínút-
ur. Hafði þar af leiðandi aðeins eftir
tólf mínútna flugþol."
Vædderen fór síðan til móts við
breska veðurskipið „Metro" sem náði
líkum skipveijanna þriggja úr björg-
unarbátnum. Voru þau sett um borð
í Vædderen sem flutti þau til Þórs-
hafnar. í áhöfn þyrlunnar voru fjórir
menn, flugstjóri, sigmaður og tækni-
menn. Læknir sem er venjulega með
varð eftir um borð í Vædderen til
þess að hægt væri að flytja fleiri
skipbrotsmenn með þyrlunni. Skip-
herrann sagði að þyrluáhöfnin hefði
unnið óaðfinnanlega í samvinnu við
bresku og bandarísku leitarflugvél-
arnar. „Slysið varð langt frá íslandi,
Færeyjum og Noregi en allir aðilar
sem unnu að björgun á íslandi, í
Færeyjum og Skotlandi og víðar
unnu saman sem einn,“ sagði Præ-
ben að lokum.
Björgun skipbrotsmannanna
af Suðurlandi - tímasetningar
Morgunblaðið/Þorkell
Jóhannes Briem deildarstjóri hjá Slysavarnafélagi
JÓHANNES Briem deildar-
sljóri hjá Slysavarnafélagi
íslands var á bakvakt yfir jólin
og var kallaður út um leið og
neyðarkallið barst frá ms. Suð-
urlandi. Jóhannes stjórnaði
björgunaraðgerðum, sem
björgunarsveitir frá fimm þjóð-
um tóku þátt í, og var i stjórn-
stöð SVFI næsta sólarhringinn
eða þar til leit hafði verið hætt
að kvöldi jóladags. Jóhannes
fékk ekki mikla hvíld því þá
undir miðnættið var hann kall-
aður aftur út vegna breska
flutningaskipsins Syneta sem
strandaði við Skrúð og tók þá
við önnur vökunótt.
Það sem fer hér á eftir er byggt
á dagbókarfærslum Jóhannesar
þann tæpa sólarhring sem leið frá
því að ms. Suðurland sendi út
neyðarkallið og þar til leit hafði
verið hætt. Jóhannes vildi taka
það fram að tímasetningar gætu
verið örlítið ónákvæmar þar sem
dagbókarfærslurnar hefðu stund-
um þurft að víkja fyrir öðru.
23.17. Nesradíó tilkynnir að
ms. Suðurland hafí kallað og til-
kynnt að það hafi fengið á sig
brotsjó og sé með 25-30 0 slag-
síðu. Staðsetningin var óþekkt
ennþá.
23.21. Nesradíó gefur upp stað-
setningu kl. 22.39, á 08,33N 002
08.19V. eða 290 sjómílur aust-
norðaustur af Langanesi. 9-10
vindstig voru af suð-suðaustan.
Skipið segist halda sjó en það
þarfnist aðstoðar strax.
23.28. Jóhannes Briem kemur
í SVFÍ. Reynir strax að ná sam-
bandi við Aberdeen í Skotlandi
og Bodö í Noregi en það reyndist
vonlaust vegna mikils álags á
síma. Jóhannes hefur þá samband
við varnarliðið á Keflavíkurflug-
velli og biður um aðstoð. Jóhannes
hefur síðan samband við flug-
stjórn á Reykjavíkurflugvelli og
biður hana að ná sambandi við
Bodö og Edinborg. Langlínusam-
bandið var beðið um að kalla út
bakvakt á talsamband við útlönd.
þessu var lokið 23.47.
23.49. Suðurland tilkynnir um
Nesradíó að áhöfn sé farin í bát-
ana. Áður hafði Nesradíó tilkynnt
að skipið væri orðið vélarvana og
hafði eftir skipstjóranum að halla-
mælir í stýrishúsi hafi slegið í
botn í 45°. Bátamir voru þá til-
búnir, tveir venjulegir björgunar-
bátar og tveir gúmbátar.
Ljóst að engin umferð skipa er
á þessu svæði og engin skip ná-
lægt. Urriðafoss hafði farið þama
um sólarhring áður með síld á
leið til Sovétríkjanna en var nú
undan Norður-Noregi.
00.07. Landhelgisgæslunni til-
kynnt um slysið. Varðskip, sem
statt var fyrir Vestfjörðum hélt
þegar af stað.
00.11. Marine stationen í Fær-
eyjum tilkynnt um slysið og hún
beðin um aðstoð.
00.33. Edinborg segist enga
þyrlu hafa á sínu svæði sem ráði
við að fljúga á slysstaðinn. Býður
fram Nimrod ratsjárflugvél sem
er þegin.
00.40. Bodö segist ekki hafa
tiltæk nein skip eða þyrlur.
00.50. Vamarliðið segir að eng-
in eldsneytisvél sé til staðar og
því geti það ekki sent þyrlu.
Thorshavn Navalstation segir tvö
skip leggja af stað innan klukk-
utíma. Beðið er um eldsneytisvél
frá Woodbridge í Suður-Englandi.
1.18. Þórshöfn tilkynnir að
varðskipin Vædderen og Olav
Helgi séu farin frá Færeyjum.
Áætlað er að sigling á slysstað
taki 15 tíma en skipin ganga 16
sjómflur. Edinborg segir að
Nimrodvélin sé tilbúin og er vélin
beðin um að fara eins fljótt og
hægt er.
1.30. Útgerð Suðurlands til-
kynnt fomlega um slysið.
1.36. Keflavík ætlar að senda
P-3 kafbátaleitarflugvél sem er
búin innrauðu leitartæki.
2.04. Norsk Orion vél í við-
bragðsstöðu vegna skipta við
vélar að morgni. Norðmenn hafa
heyrt í neyðarsendi.
2.25. Nimrodvélin fer í loftið
2.35. P-3 vélin fer í loftið.
Heimild fengin fyrir að senda
Hercules eldsneytisflutningavél
frá Woodbridge og er áætlað að
hún fari í loftið klukkan 5.30.
Ákveðið að senda þyrlur til Aust-
fjarða ásamt TF-SYN, flugvél
Landhelgisgæslunnar, og bíða þar
eftir eldsneytisvélinni.
2.45. Farþegaflugvél telur sig
heyra í neyðarsendi og aftur kl.
3.32. Samband næst við veður-
skipið „Metro" sem er statt
rúmlega 120 sjómílur suð-suð-
austur af slysstaðnum og heldur
skipið þegar af stað.
4.16. Herculesvélin áætlar
brottför kl. 4.30 frá Woodbridge.
Áætlar að fara á Egilsstaði og
þaðan á slysstaðinn. Nimrodvélin
og P-3 vélin tilkynna að þær séu
komnar á svæðið.
4.18. Nimrodvélin tilkynnir:
Confírm — Sighted 1 dinghy.
(Staðfesti — sé 1 fleka.)
4.24. Nimrodvélin tilkynnir:
„Believed we sighted 2 liferafts
tied together at 67 07N 01 45W.“
(Tel okkur hafa séð 2 björgunar-
fleka bundna saman.)
5.57. Nimrodvélin tilkynnir að
hún sjái skipbrotsmenn veifa úr
bátnum.
6.23. Þyrla leggur af stað frá
Keflavík.
7.11. Þyrlan snýr við vegna
ísingar og dimms éls yfir Þorláks-
höfn. Á leiðinni til baka bilar
þyrlan.
9.10. Herculesvélin sem lagði
af stað frá Woodbridge í Skot-
landi tilkynnir bilun. Ónnur vél
er undirbúin og áætlar brottför
9.30.
9.49. Skipt um flugvélar í eftir-
litsflugi yfir skipsbrotsmönnun-
um.
11.35. Nimrodvél tilkynnir að
hún hafí séð annan björgunarbát
á hvolfí, um 3,5 sjómílur frá bátn-
um sem skipbrotsmennimir voru í.
11.49. Vædderen tilkynnir að
þyrla af Lynx gerð hafi farið það-
an áleiðis til skipbrotsmannanna.
Vædderen átti þá eftir 150-160
sjómílna siglingu á staðinn.
13.00. Þyrlan tilkynnir að hún
sé yfir björgunarbátnum.
13.50. Þyrlan staðfestir að hún
hafi tekið fimm manns um borð
úr bátnum.
15.18. Staðfest að þrír hafí lát-
ist um borð í björgunarbátnum
en þrír hafi aldrei komist í bát-
ana. Skipbrotsmennimir komnir
um borð í Vædderen undir læknis-
hendur og tilkynnt að líðan þeirra
sé sæmileg. Vædderen áætlar að
koma á slysstað kl. 23.00. Skipin
halda áfram í áttina að slysstaðn-
um en öðrum björgunaraðgerðum
er hætt. Veðurskipið „Metro" kom
á staðinn um klukkan 20 og tók
björgunarbátinn og líkin um borð
og flutti þau yfír í Vædderen.