Morgunblaðið - 28.12.1986, Side 17

Morgunblaðið - 28.12.1986, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 17 Stykkishólmur: Aðventuhátíð í Helgafellskirkju Þeir Árni Johnsen og Ómar Ragnarsson munu halda uppi fjörinu á nýársfagmaðinum á Hótel Örk. Stykkishólmi. EFNT var til aðventuhátíðar í Helgafellskirkju að tilhlutan Kvenfélagsins í Helgafellssveit sunnudaginn 17. desember. Var þátttaka almenn og fjölbreytt efni og hugleiðingar. Fullorðnir og börn lásu upp, sungu og sögðu frá. Séra Gísli Kolbeins flutti jólahugvekju og síðan var al- mennur söngur. Undanfarið hefir verið unnið að því að endurbæta kirkjuna, setja á hana nýjan turn og ganga þannig frá utan dyra að hvorki vatn né vindar ógni. Hefir þessu verki mið- að vel áfram, en ekki er ráðist í meiri framkvæmdir en svo að ekki þurfi að taka lán til þess. Þótti því sjálfsagt að minnast þess sem áunn- ist hefir, var því aðventan kjörinn vettvangur til þess. Þau sögðu mér hjónin Ragna og Hinrik á Helga- felli að þetta væri í fyrsta sinn sem aðventuhátíð hefði verið haldin á Helgafelli og því gleðilegt hvað hún tókst vel í alla staði, var bæði fjöl- menn og hátíðleg. Eins og um aðrar sveitir má segja að þá hefir Helgafellssveit ekki far- ið varhluta af þeirri óheillaþróun sem nú ríkir í sveitum. Þó má segja að innan um séu ljósir punktar þar sem ungt fólk hefir hafíð búskap á seinustu árum. Samtök hafa verið góð og það sýnir bygging veglegs félagsheimilis fyrir fáum árum síðan og hefir það komið að góðum notum, bæði fyrir félagslíf í sveit- inni og eins sem aðstaða fyrir ferðafólk. Og nú í haust hefír verið þar vinnuflokkur sem er að breyta veginum til Grundarfjarðar. Dregið í happdrætti Vegarins DREGIÐ hefur verið í bygginga- happdrætti Vegarins. Aðeins var dregið úr seldum miðum. Suzuki Swift GTi árg 1987 kom á miða númer 9. Jólaúttektir í Mikla- garði komu á miða númer 149, 539, 577, 627 og 1137. Vinningsnúmer eru birt án ábyrgðar. - Ami Um áramótin er í gijdi svonefnt lúxustilboð hjá Hótel Örk fyrir þá sem vilja gista á hótelinu á nýárs- nótt og fyrstu dagnana í janúar. Kostar ein nótt 2.400 kr, tvær nætur 4.600, þijár nætur 6.600 og fjórar nætur 8.400 Frá Ítalíu skrifar 23 ára verk- fræðinemi. Hefur áhuga á íþróttum, ferðalögum, ljósmyndun ogtónlist: Fabio Remondini, Via Croce Coperta 17, 40026 Imola (BO) Italy. Sænskur frímerkjasafnari vill skrifast á við íslendinga: Ella Andersson, Tv;argatan 8, S 274 00 Skurup, Sverige. Frá Póllandi skrifar maður á þrítugsaldri. Hefur margvísleg áhugamál: Jaroslaw Janas, 59-231 Kawice-39, Pologne. Frá Noregi skrifar 42 ára karl- maður sem vili skrifast á við konur á aldrinum 25-40 ára: Pelle Nilssen, Olav Nilssonsgate 62, N-4000 Stavanger, Norge. Frá Spáni skrifar 35 ára verk- fræðingur, sem vill skrifast á við 20-35 ára konur. Hann safnar póst- kortum og hefur áhuga á tízku, tónlist, íþróttum o.fl: Antonio A. Ortega, Apartado 644, 29080 Malaga, Spain. Við hjá SS mælum sérstaklega með rauðvínslegnu eða jurtakrydduðu lambalærií hátfðarmatinn. Rauðvínslegnu og jurtakrydduðu lambalærin frá SS eru eingöngu unnin úrnýju, fyrsta flokks hráefni og eru tilbúin í ofninn. Sannarlega gómsætur hátíðarmatur. ■

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.