Morgunblaðið - 28.12.1986, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 28.12.1986, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986 53 Nýr íþróttaframi í vændum? ... í andvaraleysíþróttinni jafnast slíkt á við glæsilegt kast í spjót- kasti eða hreinasta skrauthopp í stökkum. Úlfur Ragnarssonlæknir skrifar: Það er að renna upp fyrir þjóðinni að við íslendingar erum efnilegir í þeirri íþrótt að ugga ekki að sér fyrr en um seinan. Nýlegt dæmi um afrek okkar í andvaraleysis- íþróttinni eru skemmdarverkin sem voru unnin í Hvalfirði og Reykjavík- urhöfn. Þar voru að verki útlendir menn, sem stjórnvöld höfðu verið vöruð við, en láðst að koma þeim aðvörunum á framfæri, í andvara- leysisíþróttinni jafnast slíkt á við glæsilegt kast í spjótkasti eða hrein- asta skrauthopp í stökkum. Reyndar kom upp á daginn að assúransinn borgar brúsann. Skaði eigendanna að skipunum verður ef til vill enginn. Óvíst er að það sama verði upp á teningnum í öðrum andvaraleysis- fræðum svo sem Hafskipsmáli, Hjálparstofnunarmáli, virkjunarmál- um, erlendri skuldasöfnun og andvaraleysisafrekum á sviði menntamála, svo eitthvað sé nefnt. En hvað um það? Greiðum við íslenskir ríkisborgarar ekki með mestu ánægju úr eigin vösum fáeina milljarða til að lyfta frá botni sokkn- um fyrirtækjum, sem eru til marks um glæsileg afrek sem jafnvel gætu komið okkur í heimsmetabók Guin- ness? Hörð samkeppni Allt í kringum okkur eru keppi- nautar i andvaraleysisíþróttinni og það er sjálfsagt að gera sér grein fyrir styrk þeirra á þessum vett- vangi áður en við gerum okkur vonir um heimsmet, þó svo að árangur okkar sé þegar marktækur á heimsmælikvarða. Nýlega las ég grein eftir Sólveigu Eggerz í banda- rísku tímariti, „Lincoln Review“ (Volume 6, number 4, 1986). Á íslensku gæti yfirskrift greinar- innar verið: „Hvemig félagsvísindi ýttu sögunámi út úr námskerfi skól- anna og afleiðingar þess fyrir (amerískt) samfélag. Samkvæmt þessari ítarlegu grein Sólveigar kemur ljóslega fram að svo vel hefur bandarískum fræðslumálafrömuðum tekist upp í andvaraleysisíþrótt sinni að ungmennin upp til hópa vita ekk- ert í sinn haus varðandi sögu síns lands. Víða vantar algerlega botninn undir skilning á eðli og gildi frelsis og lýðræðis. Ekki er kyn þótt kerfið leki. Sterk rök Grein Sólveigar er svo vel og fræðilega rituð og studd svo mörgum marktækum tilvitnunum í áreiðan- legar heimildir, að öll rök hníga til þess að niðurstaða hennar sé rétt og ótvíræð: Með því að rýra þátt sögukennslunnar eru rofin tengsl fortíðar og nútíðar með þeim hætti að frelsi, lýðræði og mannréttindi fara fljótt í súginn. Þó að þetta kunni að vera fagnað- arboðskapur þess háttar lýð sem skrúfar frá botnventlum er óvíst að öllum líki. Samt er að sjálfsögðu ólíkt flott- ara að opna botnventla voldugasta lýðræðisríkis í heimi en sjófylla tvo vesæla hvalveiðidalla í dvergríki. Ekki er samt svo að skilja að ekki sé fleira á döfinni í því landi. Þarlendir menn eru að skrúfa frá botnventlum íslensku þjóðarskút- unnar með því að vinna spellvirki á sögukennslu og reyndar á íslensku- kennslu að auki. Þá er ötullega að því unnið að rjúfa tengsl við liðna tfð með ýmsu öðru móti, t.d. með því að ekkert nema ellimörkin á þeim sem komnir eru á efri aldur en búa í raun yfir dýrmætri þekk- ingu og lífsreynslu, lífsneista Söguþjóðarinnar. Ög hvað er annað hægt en hrista höfuðið og gráta í hjarta sínu þegar fólk, sennilega af íslensku bergi brotið, ræðst inn í kirkjugarð til að vanhelga legstaði þeirra sem áttu þá ósk heitasta að leysa ísland undan erlendri áþján? Landið okkar Eitt er íandið ægi girt yst á Ránarslóðum fyrir löngu lítils virt langt frá öðrum þjóðum. Um þín kjör og aldafar aðrir hægt sér láta, sykki það í myrkan mar mundu fáir gráta. Þannig orti Matthías Jochumsson. Aldrei hafði honum í hug komið að íslenskir menn gætu átt hlut að því að sökkva í myrkan mar þeim far- kosti, sem ber þá sjálfa uppi. Nei, okkur er nær að leggja niður þessa andvaraleysisíþrótt. Okkur er annað sæmra. Það er kominn sjór í vélarrúm þjóðarskútunnar íslensku og mál til komið að loka snarlega botnventlunum og setja dælurnar á fullt: (Sólveig Eggerz höfundur greinarinnar í Lincoln Review sem til er vitnað er búsett í Bandaríkjun- um og hefur starfað þar að rann- sóknum á menntun. Hún er dóttir Péturs Eggerz rithöfundar og fyrr- um sendiherra.) í»essir hringdu . . Sakaður um skjalafals Einar Gunnlaugsson hringdi: Ég og félagi minn sem er utan af landi, Guðmundur Sigutjónsson, fórum í vídeóleiguna Borgarvídeó á Kárastíg nýlega og ætluðum við að taka á leigu tæki og spólur. Þegar ég var spurður um nafn- skírteini vændi starfsfólkið mig nánast um skjalafals. Þannig var mál með vexti að stimpillinn á myndinni, svo og myndin sjálf, eru farin að mást, líklega vegna þess að skírteipið hefur ekki verið lofttæmt. Ég tók eftir þessu þama í fyrsta sinn sjálfur og hef aldrei orðið fyrir vandræðum út af þessu áður. Mér fínnst þessi framkoma við- komandi starfsmanns fyrir neðan allar hellur. Löng bið eftir leið 2 Herdíshringdi: 22. desember biðum við nokkrir farþegar eftir leið 2 í 30 mínútur. Ég veit um fleiri konur en mig sem skildu bílana eftir heima og lentu í þessu sama. Þess má geta að samtímis fóru leið 10,11 og 12 tvi- svar sinnum fram hjá. Manni dettur nánast í hug að SVR fari í mann- greinaálit. Jólaglögg fyrir börn Pollýhringdi: Nýlega birtist heilsíða í Morgun- blaðinu um jólaglögg og jólaglögg fyrir böm, það var nú það eina sem okkur vantaði. Ef hægt væri að kenna karlmönnunum um þetta ein- vörðungu væri þetta nú létt fyrir okkur konurnar. En við emm bara ekkert skárri sjálfar og bömin em skilin eftir umhirðulítið heima með- an allir fara í jólaglögginn. Ættum við ekki að staldra aðeins við og hugsa okkar ráð? Svo er ég líka hissa á atvinnurekendum sem halda jólaglögg fyrir starfsmenn í að eyða fé og fýrirhöfn í að gera fólk óat- vinnuhæft og svo em allir á bflum. Það er kannski orsök þessarar slysaöldu. Nú vom líka fyrir stuttu gerðir þessir rosa samningar fyrir verka- lýðinn. Þeir sömdu um lítið og ekki neitt á öllum þessum vökunóttum sínum þessir háu herrar. Og svo láta þeir okkur halda að við höfum grætt þessi lifandis ósköp. Fólkið treystir þessum mönnum fyrir ölög- um sínum en svo bregðast þeir svona. Islensku höfund- arnir að Trivial Pursuit Þóra Árnadóttirhringdi: í Velvakanda 23. desember sl. var spurt hvetjir væm íslensku höf- undarnir að Trivial Pursuit. Tvær útgáfur em komnar á markaðinn. Þá fyrri önnuðust Haukur Arason, Láms Thorlacius og Þóra Árnadótt- ir en útgafu fyrir unga leikmenn sáu Láms Thorlacius, Óðinn Elís- son, Sigríður K. Árnadóttir og Þóra Ámadóttir um. Því miður ákváðu dreifiiigaraðilar spilsins á íslandi að ekki yrði boðið upp á íslenskar spumingar án leikspjalds þó slíkt sé venja erlendis. Að lokum má bæta því við að önnu útgáfa fyrir fullorðna kemur á markað seint á næsta ári. Og verður þá væntanlega eingöngu boðið upp á spurningar án leikspjalds.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.