Morgunblaðið - 28.12.1986, Page 56
SUNNUDAGUR 28. DESEMBER 1986
VERÐ I LAUSASOLU 50 KR.
Morgunblaðið/Þorkell.
Lík sjö skipveija á Synetu voru flutt til Reykjavíkur med flugvél Landhelgfisgæzlunnar
á annan dag jóla.
Símamynd/AP.
Nýleg mynd af tankskipinu „Syneta“. Skipið var 1.260 tonn að stærð, skráð á Gíbralt-
42 menn farast með ensku tankskipi við Skrúð:
Bilanir og ókunnugleiki
Jíklegar orsakir slyssins
stöddum skipum snúið á staðinn.
Áður en fyrstu skipin komu á slys-
staðinn klukkan 1:30 um nóttina var
orðið Ijóst að skipið hafði strandað við
Skrúð en ekki Seley. Fljótlega fannst
brak úr skipinu og klukkan 2:40 fannst
fyrsta líkið. Skömmu síðar náðu skip-
veijar á Sæljóni frá Eskifirði þriðja
stýrimanni skipsins upp úr sjónum og
reyndist hann vera með lífsmarki. Hann
var meðvitundarlaus og helblár og
reyndust lífgunartilraunir árangurs-
lausar. Líkin fundust síðan eitt af öðru.
Alls náðust sjö lík en tvö runnu úr
björgunarvestum og sukku þegar reynt
var að ná þeim úr sjónum. Leit var
haldið áfram að þeim þremur skip-
veijum sem ekki fundust en hún bar
ekki árangur og voru þeir taldir af.
Það kom fram í samtölum við björg-
unarmenn að skipveijar Synetu hefðu
ENGIN skýring hefur fundizt á sjóslysinu við Skrúð í mynni
Fáskrúðsfjarðar skömmu fyrir miðnætti á jóladag, þegar enska
tankskipið Syneta strandaði þar og sökk með þeim afleiðingum
að allir skipverjar, 12 að tölu, drukknuðu. í bréfi sem fannst
á einum skipverjanna og skrifað var á aðfangadag kom fram,
að skipið hafði aðeins getað siglt á hálfri ferð og sjálfstýring
var i ólagi. Þessar bilanir ásamt ókunnugleika skipverja á stað-
háttum er talin líklegasta skýring á þessu mannskæða slysi.
Syneta, 1.260 tonna skip, var vænt-
anlegt til Eskifjarðar aðfaranótt annars
í jólum til að sækja lýsi. Klukkan 23:20
á jóladag sendu skipveijar út neyðar-
kall og sögðu skipið strandað við Seley
í mynni Reyðarfjarðar. Óskað var eftir
tafarlausri aðstoð. Björgunarsveitir
yoru þegar í stað ræstar út og nær-
---------------------------
Stytturnar
dönsuðu á
sjónvarpinu
Selfossi.
„ÞETTA er einhver mesti jarð-
skjálfti sem við höfum fundið
hérna. Það hristist allt og skókst
og stytturnar dönsuðu á sjón-
varpinu,“ sagði Þrúður Sigurð-
ardóttir i Hvammi í Olfusi um
jarðskjálftann sem þar fannst
Ckan rúmlega sjö á aðfanga-
kvöld.
Jarðskjálftakippurinn mældist
3,7 stig og átti upptök sín norð-
vestur af Hveragerði. Jarðskjálftinn
fannst víðar í Olfusi og á Selfossi
varð fólk vart við vægan kipp. Eft-
ir aðalskjálftann um sjö leytið á
aðfangadagskvöld varð vart við
smákippi annað slagið alla jólanótt-
ina en síðan hefur allt verið rólegt.
Heimilisfólkið í Hvammi í Ölfusi
heyrði hvin og fann síðan greinilega
fyrir skjálftanum, sem var það mik-
ill að við lá að hlutir féllu úr hillum.
^ékjálftans varð einnig greinilega
vart víða annarstaðar í Ölfusinu.
„Það hrikti og titraði í nokkrar sek-
úndur og mér datt í hug að þetta
væri upphafið að einhverju stóru
og varð eiginlega svo hrædd að ég
stóð ekki einu sinni upp,“ sagði
Þrúður Sigurðardóttir í Hvammi um
skjálftann.
Sig.Jóns.
Morgunblaðid/Albert Kemp.
Björgunarsveitarmenn draga gúmbát á land á Vattarnesi.
verið illa klæddir, sumir á skyrtu og
buxum einum klæða. Hefði verið á öllu
ljóst að þeir hefðu yfirgefið skipið í
skyndi og líklega ekki komið út björg-
unarbátum. Enda mun Synetu hafa
hvolft nokkru eftir að það strandaði
og síðan sokkið að mestu. Töldu björg-
unarmenn að eina von skipveijanna
hefði verið björgun úr þyrlu. Sex
mannnanna voru brezkir en sex voru
frá Grænhöfðaeyjum.
Sjópróf verða hjá sýslumanninum á
Framleiðnisjóður landbúnaðarins:
Samið um niðurskurð
á um 30 þúsund fjár
Vantar fjórðung upp á að upphafleg niðurskurðarmarkmið náist
SAMANTEKT sem stjórn Framleiðnisjóðs landbúnaðarins hefur
gert til bráðabirgða á samningum við bændur um niðurskurð í
haust, bendir til að ekki hafi náðst þau markmið sem stjórnvöld og
bændaforystan stefndu að við gerð búvörusamningana í haust. Stefnt
var að fækkun fjárstofnsins um 40 þúsund kindur og minnka þann-
ig framleiðsluna á næsta verðlagsári um 800 tonn en aðeins er búið
að gera samninga um niðurskurð á um 30 þúsund kindum og koma
þannig í veg fyrir framleiðslu á 500—600 tonnum af kjöti.
„Þetta er vissulega heldur minna
en fyrstu vísbendingar bentu til,“
sagði Jóhannes Torfason á Torfa-
læk II, formaður stjórnar Fram-
leiðnisjóðs. „Það virðist sem menn
hafi ekki áttað sig á staðreyndum
þessa máls. Menn hafa ekki séð
nógu vel hvað þetta var gott tilboð
til bænda til að aðlagast breyttum
framleiðslustaðreyndum. Þá sýnist
mér að áróður gegn þessum aðgerð-
um hafi borið einhvern árangur og
sýnt að þeir sem hafa haldið honum
uppi verða að axla mikla ábyrgð
og bæta mönnum þetta upp með
öðrum hætti,“ sagði Jóhannes.
Framleiðnisjóður tók á sig
ábyrgð á samdrætti kindakjÖts-
framleiðslunnar um 800 tonn á
næsta verðlagsári. Jóhannes sagði
að þar sem ekki hefði tekist að
gera samninga við bændur um allan
þennan samdrátt yrði sjóðurinn að
greiða útflutningsbætur með um
200 tonnum af kjöti næsta haust
og sagði hann að það gæti kostað
sjóðinn um 40 milljónir kr. A móti
sparast greiðslur sem annars hefðu
farið beint til bænda.
Eskifirði. Fyrir réttinn koma þeir sem
þátt tóku í björguninni. í einu brezku
blaðanna í gærmorgun var leitt að því
getum að gleðskapur hafí verið um
borð áður en skipið strandaði en það
var á engan hátt stutt rökum.
Sjá nánari frásögn, viðtöl, myndir
og kort á bls. 24 og 25.
Svæðamótið í Gausdal:
Fjölmennasta
íslenska skák-
sveitintilþessa
FIMM íslenskir skákmenn taka
þátt í svæðamótinu i Gausdal í
Noregi, sem hefst 9. janúar næst-
komandi. Er það fjölmennasta
sveit sem Islendingar hafa sent
á þetta mót til þessa.
Islensku skákmennimir sem tefla
í Gausdal að þessu sinni eru Jóhann
Hjartarson, Jón L. Ámason, Guð-
mundur Sigutjónsson, Sævar
Bjarnason og Þröstur Þórhallsson.
Á svæðamótinu í Gausdal munu
margir sterkustu skákmenn Norð-
urlanda leiða saman hesta sína en
mótið er fyrsti liðurinn í heims-
meistaramótinu í skák og munu
sigurvegarár tryggja sér þáttöku-
rétt á millisvæðamóti sem haldið
verður síðar á næsta ári.
Margeir tefl-
ir í Hastings
MARGEIR Pétursson, stórmeist-
ari, teflir á alþjóðlega skákmót-
inu i Hastings á Englandi, sem
hefst 29. desember næstkom-
andi. Margeir sigraði á þessu
móti í fyrra og tryggði sér þar
með stórmeistaratitil.
Skákmótið í Hastings, sem haldið
er ár hvert, er eitt elsta skákmót
sem haldið er í heiminum og í hópi
þátttakenda eru jafnan þekktir og
sterkir skákmenn víða að úr heimin-
um. Meðal þátttakenda nú verður
danski stórmeistarinn Bent Larsen.