Morgunblaðið - 24.01.1987, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
25
tólum og tækjum barst ótrúlega
fljótt til Norðurlanda. Það var gam-
all siður í Noregi að leggja smíðatól
í haug, eins og gert var við Skalla-
grím. Það hefur því fundizt allmikið
af smíðatólum frá víkingaöld. Eftir
þessum fommenjum að dæma telur
Sigurd Grieg að trésmiðir hafi þá
haft þessi smíðatól: 1. Ali og nafra
af einfaldri gerð. 2. Tálguhnífa og
bjúghnífa. 3. Axir og nafra af ýms-
um gerðum. 4. Hamra. 5. Spoijám
og skolpa. 6. Trésköfur (ýmsar
gerðir). 7. Sagir. 8. Hefla.
Að sjálfsögðu höfðu menn bor-
jám og nafra af mismunandi gerð
og stærð, en tálguborar (centrum-
borar) og hjólsveifar þekktust þá
ekki. Tálguhnífar vom vafalaust á
hveiju heimili. Þeirra er getið í sög-
um vomm, og vom þeir stundum
svo stórir, að þá mátti nota sem
vopn. í Eyrbyggju er sagt frá
manni, sem smíðaði vögur (til skýr-
ingar: einskonar sleða, einkum til
að aka heyi á). Hjá honum vom
„engi vápn nema lítil öx ok
tálguknífr mikill, er hann hafði tek-
ið ór vagaborunum; hann var
spannar fram frá hepti." Borinn
hefur ekki verið nægilega stór, svo
að hann hefur víkkað götin með
hnífnum. Axir vom helztu smíðatól-
in. Þær vom af mörgum gerðum
og höfðu mörg nöfn: bolöx, viðaröx,
skógaröx, tálguöx, blegði, saxbíla
o.fl. Orðið spoijárn kemur ekki fyr-
ir í fomu máli, en svipuð tól höfðu
fornmenn. Skolpar vom einskonar
spoijám með flatbeygðri egg. Af
trésköfum þekkjast margar tegund-
ir, en óvíst er að þær hafi allar
verið notaðar á víkindaöld. Þær
vom ýmist fyrir aðra hönd eða báð-
ar, vom með beittri egg og notaðar
til þess að slétta við og gera strik,
líkt og heflar. I fomu máli er ætíð
talað um að „skafa við“, en aldrei
að hefla.“
Lengra skal ekki farið út í að
geta um hin ýmsu verkfæri fom-
manna, en bmgðið upp mynd af
einum fyrsta húsameistara lands-
ins, Rögnvaldi Ólafssyni, og er þá
ekki farið nema u.þ.b. öld aftur í
tímann.
Hann fæddist 5. desember 1874
á Ytri-Húsum í Dýrafirði. Varð
stúdent frá Reykjavíkurskóla árið
1900 og eftir cand.phil.-próf frá
Prestaskólanum í Reykjavík sigldi
harin til Danmerkur 1901 og stund-
aði nám í húsagerðarlist við Det
kongelige Akademi for de skönne
Kunster næstu þijú ár en hvarf þá
heim vegna veikinda án þess að
taka lokapróf. Gerðist hann þá
ráðunautur landstjómarinnar um
húsagerð og gegndi þeirri stöðu
allt til dauðadags 1917, eða í 13
ár. Á þessum tíma teiknaði hann
margar opinberar byggingar, m.a.
kirkjumar í Keflavík, Hafnarfírði,
á Patreksfirði, Stóra-Núpi og
Húsavík, heilsuhælið á Vífílsstöð-
um, pósthúsið í Reykjavík og
skólana á Hvanneyri, Eiðum, Hól-
um í Hjaltadal og Siglufirði.
Rögnvaldur var í byggingarnefnd
Reykjavíkur um langt árabil og
samdi byggingarreglugerðir fyrir
mörg kauptún landsins. Hann
kenndi við Iðnskólann í Reykjavík
1912—16. Hann var meðal stofn-
enda að Verkfræðingafélagi íslands
og sat í stjórn þess síðustu fimm
æviár sín. Hann var berklaveikur
og andaðist á Vífilsstaðahæli 14.
febrúar 1917, í því húsi, sem hann
teiknaði sjálfur. Byggingar Rögn-
valds bera með sér að hann hefur
haft mikið til brunns að bera sem
húsagerðarmeistari, og þegar þess
er gætt að hann andast framarlega
á fimmtugsaldri má kallast undmm
sæta, hve miklu hann hefur komið
í verk og vera þó ekki heilsuhraust-
ur.
Að lokum skal getið þess fyrir-
tækis, sem verið hefur hvað öflug-
ast við útvegun á hverskonar timbri
til húsbygginga og annarrar smíða-
vinnu. Það er Völundur hf., sem
stofnað var í febrúar 1904, en að
þeirri stofnun stóðu 19 trésmiðir. í
lögum félagsins er strax í upphafi
tekið fram, að hlutverk þess sé að
vinna að timbursmíði í verksmiðju,
sem sett verði á stofn í Reykjavík,
og reka timburverzlun. Tæpu ári
síðar kaupir Völundur svokallaða
Klapparlóð, þann hluta Arnarhóls-
lóðar, sem var austan Klapparstígs.
Pósthúsið í Reykjavík, Rögnvaldur Ólafsson teiknaði.
Þann sama vetur fór einn stjómar-
manna til útlanda til timburkaupa
og einnig til útvegunar á vélum til
verksmiðjunnar. Þær komu til
landsins sumarið eftir og var verk-
smiðjan fullgerð 7. nóv. 1905, er
hún tók til starfa.
í afmælisriti Trésmiðafélags
Reykjavíkur árið 1964 segir Gils
Guðmundsson rjthöf. svo frá: „Völ-
undur tók skjótum og miklum
þroska. Auk timbursölu og fjöl-
breytilegrar trésmíðavinnu tók
Völundur að sér húsbyggingar í
stórum stíl. Fýrstu meiri háttar
húsin, sem Völundur sá um bygg-
ingu á, vom íslandsbanki, Guten-
berg, Iðnskólinn og Kleppsspítalinn.
Stofnun Timburverksmiðjunnar
Völundar er merkur áfangi í þróun-
arsögu íslenzks iðnaðar. Tæknin
var að halda innreið sína. Brautryðj-
endur á þessu sviði vom reykvízkir
trésmiðir, sem með félagslegu átaki
mddu brautina." Við það má svo
bæta að Völundarmenn munu ávallt
vera hvað stoltastir af Safnahúsinu
við Hverfísgötu, sem félagið sá um
byggingu á árið 1909.
Eftir sex áratuga aðalbækistöð á
homi Skúlagötu og Klapparstígs
byijar Völundur byggingu stórhýsis
í Skeifunni 19 og hefur starfsemin
nú flutzt þangað að mestu eða öllu
leyti.
Við stjómvölinn standa þar
menn, sem em beinir afkomendur
eins af stofnendum félagsins, en
fremur má teljast fágætt að fyrir-
tæki haldist áratugum saman í
sömu ætt.
Þannig verður Timburverzlunin
Völundur talin eitt merkasta fyrir-
tæki íslenzkt í sínu fagi. Góður
andi svífur þar yfír vötnunum og
mun þar flest til fyrirmyndar teljast.
Höfundur er tæknifræðingur og
fyrrum forstjóri A. Jóhannsson
& Smith.
NISSAN
SUNNY
SIGURHÁTÍÐ
Sunny er glæsilegasti sigur Nissan til þessa, enda hefur
Sunny fengið stórkostlegar móttökur um allan heim.
Sunny 4ra dyra
Sunny 5 dyra
Munum sýna Sunny, flestar gerðir, laugardag og
sunnudag kl. 14—17.
Dæmi úr Sunny verðlista okkar:
NissanSunnyH/BLX1.0,5dyra,4g(ra ...................... 340.000
NissanSunny H/BLX1.3,5dyra,5gíra ..................... 365.000
Nissan Sunny H/BSLX 1.5,3dyra, 5gíra ................. 395.000
Nissan Sunny H/B SLX 1.5,5dyra, Sgíra ................ 400.000
NissanSunnyH/BSLX1.5,3dyra, Bgíra, m/vökvastýri ...... 413.000
Nissan Sunny H/B SLX 1.5,5 dyra, 5 gíra, m/vökvastýri . 416.000
Nissan Sunny H/B SLX1.5,5 dyra, sjálfsk............... 430.000
Nissan Sunny H/B 1.5,5 dyra, sjálfsk., m/vökvastýri .. 444.000
NissanSunnySedanLX1.3,5dyra, ögíra ................... 362.000
NissanSunny SedanSLX1.5,4dyra, 5gíra ................. 396.000
Nissan Sunny Sedan SLX 1.5,4dyra, 5gira m/vökvastýri . 413.000
NissanSunnySedanSLX1.5,4dyra, sjálfskiptur ........... 426.000
Nissan Sunny Sedan SLX1.5,4 dyra, sjálfskiptur, m/vökvast. ... 440.000
Nissan Sunny Wagon LX 1.5, 5gíra ..................... 433.000
Nissan Sunny Coupe LX 1.5,5gira ...................... 432.000
NissanSunnyCoupeSLX1.5,5g(ra ......................... 467.000
TOKUM FLESTA NOTAÐA BÍLA UPP í NÝJA.
INGVAR HELGASON HF.
Rauðagerði, sími 33560.