Morgunblaðið - 24.01.1987, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 24. JANÚAR 1987
ff
Þetta verður topplið
eftir örfá ár“
- segir Richard Ross, þjálfari Grindvíkinga, íkörfuknattleik
Grindavfk.
Körfuknattleiksdeild Ung-
mennafólags Grindavíkur róð tll
sín bandarískan þjólfara Richard
Ross að nafni síðastliðið haust.
Nú þegar körfuknattleikstímabil-
ið er hálfnað lók fróttaritara
Morgunblaðsins forvitni á að
heyra hans álit á körfuknattleikn-
um sem spilaður er á íslandi.
„Mér finnst körfuknattleikurinn
á íslandi miklu betri en ég hafði
gert mér í hugarlund áður en ég
kom hingað," sagði Ross.
„Ef við skoðum 1. deildina þar
sem Grindavík er í toppbaráttunni
þá eru öll liðin góð og geta unniö
hvert annað. Margir segja gjarnan
að í deildinni séu þrjú góð lið og
önnur þrjú sem eru ekkert sérstök
en. þetta er misskilningur. ÍR, Þór
og UMFG koma að vísu til með
að vera í toppbaráttunni og gætu
unnið sum liðin í úrvalsdeildinni á
góöum degi. Við megum hins veg-
ar ekki vanmeta hin liðin enda
fengum við í UMFG að kenna á
því norður á Sauðárkróki í vetur.
Ég get ekki spáð um hvaða lið
vinnur deildína en eitt get ég sagt
að það lið sem tapar færri leikjum
en fimm ætti að standa uppi sem
sigurvegari. Með öðrum orðum
það verður að vinna alla heimaleik-
iria sem eftir eru og flesta útileik-
ina. Þetta hefur okkur hjá UMFG
ekki tekist því miður. Við höfum
tapað þremur leikjum en Þór frá
Akureyri hefur einnig tapað þrem-
ur og ÍR tveimur svo ekki er öll
nótt úti ennþá," sagði Ross og
brosti en bætti við að Grindvíking-
ar gætu verið bjartsýnir.
„Lið UMFG, sem við erum að
byggja upp, er mjög ungt. Nokkrir
Morgunblaðið/Kr. Ben.
• Dick Ross notar mikið fingramál til að leggja áherslu á hvað hann
meinar og hór er verið að undirstrika að hver á sinn mann í vöm-
inni. Guðmundur Bragason, Eyjólfur Guðlaugsson og Rúnar Árnason
fylgjast með.
mjög góðir einstaklingar 16—17
ára úr þriðja flokki hafa vakið mikla
athygli og ef þeir halda hópinn
verður hér topplið eftir örfá ár.
Ég þjálfaði 3. flokk í Banda-
ríkjunum áður en ég kom hingað
og get því gert samanburð þar.
Frjálsíþrótta-
-fólk æf ir vel
í Alabama
Frá Vóstelni Hafstelnssynl fróttaritara Morgunblaðsins í Bandaríkiunum.
EINS og mörg undanfarin ár
dvelur fjöldi íslenskra frjáls-
íþróttamanna við nám og æfing-
ar við Alabamaháskóla í
Touskalousa í Bandaríkjunum.
Háskólakeppnin í frjálsum
íþróttum innanhúss er nú að
hefjast og verður gaman að
fylgjast með íslendingunum i
keppni þar, þó aðalkeppnis-
tímabilið hefjist ekki fyrr en í
vor utanhúss.
Um helgina mun háskólalið
Alabama keppa á fjölmennu
móti í Baton Rouge í Louisiana-
fylki. Einn íslendingur verður á
meðal keppenda, Guðmundur
Skúlason, Armanni, sem mun
keppa í 800 metra hlaupi. Guð-
mundur keppti lítið síðastliðið ár,
en hefur æft grimmt í vetur og
verður fróðlegt að fylgjast með
honum í keppni á ný.
Eggert Bogason, kringlukast-
ari úr FH, sem bætti sig mjög
mikið á síðasta sumri, mun
keppa í kúluvarpi innanhúss og
er til alls líklegur enda er kappinn
sterkari en nokkru sinni fyrr.
Ragnheiður Ólafsdóttir, FH,
sem á öll íslandsmetin í milli-
vegalengdum kvenna, mun
einnig hlaupa innanhúss og á
eflaust eftir að bæta sig mikið.
Kristján Harðarson, Armanni,
er duglegur að æfa og vonandi
tekst honum að bæta sig innan-
húss og setja íslandsmet í
langstökki.
Nýliðinn í hópnum er spjót-
kastarinn Sigurður Matthíasson,
UMSE, sem tók stórstígum fram-
förum síðastliðið sumar og
kemur væntanlega til með að
veita Einari Vilhjálmssyni og Sig-
urði Einarssyni verðuga keppni í
sumar. Sigurður mun hefja
keppni utanhúss í lok mars
ásamt öðrum hór.
Siguröur Einarsson, spjótkast-
ari úr Ármanni, og Vésteinn
Hafsteinsson, kringlukastari úr
HSK, eru einnig hér við æfingar
og undirbúning fyrir komandi
Evróputímabil með heimsmeist-
aramótið í Róm í haust sem
lokapunkt.
Það er góður andi í hópnum
og fólk æfir stíft við bestu æf-
ingaaðstöðu sem hægt er að
hugsa sér.
Ég fullyrði að strákar eins og Rúnar
Árnason, Sveinbjörn Sigurðsson
og Jón Páll Haraldsson gætu spil-
að í 3. flokki í hvaða „High School"
körfuknattleiksliði heims. Meist-
araflokkur UMFG gæti hins vegar
unnið liðin frá minni háskólunum
en aftur Njarðvík og ÍBK, sem eru
mun betri, ættu að standa sig í
keppni við stærri háskólana,"
sagði Ross.
Um veru sína á íslandi kvaðst
hann og Sandy konan hans taka
með sér dýrmæta og ánægjulega
reynslu heim til Bandaríkjanna
þegar þau færu héðan.
„Á þeim tíma sem við höfum
dvalið hérna í Grindavík höfum við
mætt ótrúlega mikilli vinsemd og
hjálpsemi að hálfu heimamanna.
Ef vindinn lægði svolítið oftar væri
dásamlegt að búa á íslandi," sagði
Ross að lokum. Kr.Ben.
Hugsið um þaö sem þið eruð að gera.
Morgunblaðið/Kr. Ben.
• Sandy og Richard Ross á heimili sínu í Grindavfk.
Morgunblaðið/Kr. Ben.